Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 33
Sigurður Kristins-
son vinur minn frá
Höfða er látinn. Kallið
kom fyrirvaralítið og
allt of fljótt. Þegar Sigurður hringdi
í mig á nýja árinu fann ég að hann
var þreyttur. Síðasta árið var búið
að vera honum erfitt. Samt sló hann
á létta strengi og minntist þess þeg-
ar við lágum saman á sjúkrahúsinu
á Akureyri árið 1982. Hann hafði
m.a. hitt eina af starfsstúlkunum,
SIGURÐUR ÁRNI
KRISTINSSON
✝ Sigurður ÁrniKristinsson frá
Höfða fæddist 10.
maí 1926 á Végeirs-
stöðum í Fnjóskadal.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri að kveldi
11. maí síðastliðins
og fór útför hans
fram frá Akureyrar-
kirkju 18. maí.
„elskunum okkar“ eins
og hann orðaði það
með sinni glettni, og
rifjað upp með henni
gömul prakkarastrik. Í
þá viku sem við lágum
saman á sjúkrahúsinu
áttum við Sigurður
ánægjulegar stundir
þó að báðir hefðum við
verið fárveikir. Sigurð-
ur var svo skemmtileg-
ur og fróður. Öllu var
alltaf snúið upp í grín.
Sigurður átti góða
konu, Sigrúnu Stefáns-
dóttur, sem heimsótti
hann á hverjum degi og börnin sem
bjuggu fyrir norðan gerðu það einn-
ig. Þegar þau voru farin talaði hann
svo vel um þau öll og einnig sagði
hann frá foreldrum sínum og systk-
inum. Þó að ég hafi ekki kynnst
fleirum en Sigrúnu finnst mér ég
þekkja alla fjölskyldu Sigurðar.
Hann sagði mér frá því að móðir sín
öldruð hefði lent í loftárásum í sex-
dagastríðinu í Ísrael með séra
Frank M. Halldórssyni. Hann sagði
mér einnig frá því þegar hann
seinna fór hringferð um landið með
móður sína, þá háaldraða. Sú ferð
varð lengri en áætlað hafði verið,
vegna þess að í hverju einasta plássi
þekkti móðir hans fólk sem vildi fyr-
ir alla muni hýsa hana. Svo vel var
móðir hans kynnt og það var Sig-
urður líka.
Þó að við Sigurður hittumst ekki
á hverju ári töluðum við saman í
gegnum jólakortin. Alltaf var gam-
an að opna jólakortið frá honum og
Sigrúnu. Enn verðmætara var að
sitja og skrifa kveðju til þeirra fyrir
hver jól. Þrátt fyrir að við Sigurður
hefðum ekki umgengist mikið á
hann stóran sess í hjarta mínu.
Minningin um góðan vin, manninn
með fallega glettna brosið og miklu
kímnigáfuna, á eftir að ylja mér um
hjartarætur allt þangað til að við
hittumst aftur. Sigrúnu og fjöl-
skyldunni votta ég mína dýpstu
samúð.
Guðmundur Guðjónsson,
Kópavogi.
Mig langar að minn-
ast eins besta vinar,
sem ég hef eignast,
með fáum orðum og
rifja upp örfá atriði
sem aldrei falla úr minni. En það er
ótal margt sem ekki er hægt að
skrifa, því það væri efni á margar
blaðsíður. Elsku Finni, þú varst ein-
stakur í mínum augum, hjálpsamur,
og ég minnist þess ekki að hafa séð
FRIÐFINNUR
SVEINN JÓSEFSSON
✝ FriðfinnurSveinn Jósefsson
fæddist á Böggvis-
stöðum í Svarfaðar-
dal 12. desember
1936. Hann lést á
Landspítalanum 6.
maí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Húsavíkurkirkju
12. maí.
þig skipta skapi, enda
ljúfmennskan ein. Mig
langar að þakka þér
gleðina og skemmt-
unina í öllum útilegun-
um sem við fórum með
ykkur Sigrúnu og syni
ykkar, þær eru
ógleymanlegar og ég
veit að börnin mín
minnast þeirra með
gleði líka og minnast
Finna sem alltaf hafði
tíma til að leika við þau.
Fótboltinn flaug stans-
laust þótt þú ættir ekki
auðvelt með hlaup, ég
man aldrei eftir að hafa heyrt þig
kvarta, þú hafðir ótakmarkaðan tíma
fyrir börn, enda mikil barnagæla.
Ekki gleymi ég þegar við Sigrún
stungum af, aðrir fóru að sofa og við
gátum rætt málin fram undir morg-
un, þetta var svo gaman. Síðan allar
skemmtilegu stundirnar sem við átt-
um heima, sem voru ófáar. Ég veit að
í veikindum þínum stóðstu þig eins
og hetja enda ekki vani þinn að
kvarta. Síðast þegar ég sá þig heima
hafði ég orð á því þegar við komum
heim hvað Finni liti vel út, þá varst
þú hress og kátur, síðan þremur vik-
um seinna hafði þessi andstyggilegi
sjúkdómur unnið baráttuna. Mér
brá, en leið skár er mér var sagt að
þú hefðir ekki kvalist. Elsku vinur,
við munum ætíð minnast þín, ná-
kvæmlega eins og þú varst. Mér
finnst þú alltof ungur til að kveðja
þennan heim, en ekki ráðum við.
Hafðu hjartans þökk fyrir allt.
Guð geymi þig þar til við hittumst.
Nú syrgja vinir með votar brár
en verndin háa þér yfir.
Á kveðjustund er söknuður sár
en samskipta minningin lifir.
Elsku Sigrún, Þröstur og fjöl-
skylda, ég veit þið standið ykkur frá-
bærlega.
Þín vinkona,
Valgerður.
!"#
$ #% &#'#%# $ ( ')%
!**+ #
!" ! ! ! # $%
& ' (
) %& % # ! & *
#" $
# ,%-!
$') #$"# !
%' . / )#
!& )#
"0 %!
"%- )#
1') -%!
) # %" )#
#" $ !!
$ 0 ,%* )#
"0
2 "# "!
3 !
+*## !" / 2
! "
# !$ %&'%
( ) * + $''%
) ", + $''% $$ " -$
$" + $'-$ % $$ .'%
/ $$ + $'-$
"$ )'%
0* + $'-$
1 $1+ $ 1 $1 $1+ $
-) , ,$'$'
! " "! #$
!
"
#
$%& '
% & % '%
"%%" ( (
') " " "%(%(
!
"
#$
%&&
!" #"
$%& !" '#"
& !" #" "( )*
+!* !"
* ,
! "# $%
!& ' (& #! !!& ) !$%
! & (& $% "# * &+ !
,& !&, ! # ,& !&,& !&,& !'
SÓLVEIG
ÞÓRÐAR-
DÓTTIR
✝ Sólveig Þórðardóttir fæddist íSeljabrekku í Mosfellssveit 14.
maí 1952. Hún lést á heimili sínu
17. apríl og fór útför hennar fram
frá Grafarvogskirkju 24. apríl.
Þú ert engill lífsins. Þú ert ljós í
hjarta mínu, ég finn fyrir þér í her-
berginu mínu á kvöldin og stundum
þegar ég vakna á nóttunni. Nú dreg-
ur sorgarský fyrir hjarta mitt, því þú
varst ljós í hjarta mínu.
Þín frænka,
Margrét Erla Gísladóttir.
Þú ert engill í brjósti mér og munt
alltaf búa í mér. Ég mun alltaf muna
eftir þér, ég elska þig.
Þín frænka,
Elísa Hafdís Hafþórsdóttir.
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: Í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. Í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Skilafrestur
minning-
argreina
! " #
$
"%$$
$"&"'$ (& &( ) (& &(& &( *
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
HÚSASKILTI
Pantið fyrir
25. nóvember
til jólagjafa.
HÚSASKILTI
Maítilboð
10% afsláttur
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.