Morgunblaðið - 20.05.2001, Qupperneq 35
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 35
Til leigu 200 fm. skrifstofuhús-
næði á annarri hæð.
Húsnæðið skiptist í 3 skrif-
stofuherbergi, tvo góða sali,
fullbúið eldhús og baðherbergi,
parket á öllum gólfum, tölvu-
og rafmagnslagnir í stokkum,
virkilega fallegt útsýni til sjávar
og fjalla.
Austurströnd
Leiga
Húsnæðið hentar t.d. fyrir þá sem vilja vera í skapandi
umhverfi eins og auglýsingastofur, arkitekta,
tölvufyrirtæki og fl. Sanngjörn leiga.
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
netfang: lundur@f-lundur.is - heimasíða:www.f-lundur.is
SKEIÐARVOGUR - RAÐHÚS
BÆJARTÚN - KÓP. - EINBÝLISHÚS
OPIÐ Á LUNDI Í DAG FRÁ KL. 12-14
Gott 170 fm raðhús á 3 hæðum. M.a. góðar stofur og 5 herbergi.
Möguleiki á séríbúðaraðstöðu í kjallara. Fallegur suðurgarður.
Verð 16,9 millj.
Glæsilegt ca 290 fm einbýlishús á 2 hæðum ásamt innbyggðum
tvöföldum bílskúr og möguleika á aukaíbúð. Vönduð og vel hönn-
uð eign á vinsælum stað.
HJARÐARHAGI - M. BÍLSKÚR
Góð 3ja herbergja 85 fm íbúð á 2. hæð í nýviðgerðu fjölbýlishúsi.
Aukaherbergi í risi. Nýtt rafmagn, gler o.fl. Góður bílskúr fylgir
íbúðinni.
TVÆR BÓKAVERSLANIR
Höfum til sölumeðferðar tvær bóka- og ritfangaverslanir. Báðar
eru þær vel staðsettar í góðum verslunarkjörnum. Önnur er í
leiguhúsnæði en hin í eigin húsnæði. Nánari upplýsingar gefur
Ellert á skrifstofu.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Búland 18 – Reykjavík
Afar vandað og fallegt 194 fm raðhús á
4 pöllum auk 24 fm bílskúrs. Eignin
skiptist í forst., gesta-wc., eldhús m.
nýl. innrétt., saml. parketl. stofur með
arni auk borðstofu, 5 herb. auk fjöl-
skyldurýmis og nýl. endurn. baðherb.
auk þvottaherb. og geymslu. Suðursvalir. Gott útsýni yfir Fossvogsdalinn.
Falleg ræktuð lóð. Hiti í stéttum. Áhv. húsbr. 3,1 millj. Verð 24,4 millj.
Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 14 - 16
Bergstaðastræti 32b - Reykjavík
Fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús
á tveimur hæðum auk rislofts á fallegri
baklóð í Þingholtunum. Húsið skiptist í
forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús,
baðherbergi, 3 sv.herb. og sjónv.hol,
auk rislofts. Vönduð gólfefni. Húsið er
nýklætt að utan með bárujárni, rafm. og lagnir hafa verið endurnýjaðar,
nýtt gler og nýtt járn á þaki hússins. Vönduð eign á eftirsóttum stað.
Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099
OPIÐ HÚS SUNNUD. 20. MAÍ 2001
NORÐURBRÚN 4, REYKJAVÍK
Vorum að fá í sölu vandaða
húseign á þessum eftirsótta
stað í austurborginni, sérhæð í
parhúsi. Um er að ræða bjarta
og fallega 166 fm efri sérhæð
með bílskúr. Fjögur góð svefn-
herbergi og tvær stofur með
merbau-parketi. Stórar s-svalir
og gott útsýni. Innangengt er inn
í 24 fm bílskúr frá kjallara,
bílskúrinn er með 3ja fasa rafmagni og rafm.hurðaropnara. Nýtt
þak er á húsinu að sögn eiganda. Nýtt gler er í allri íbúðinni fyrir
utan einn glugga. Nýtt rafmagn að sögn eiganda. Húsið er klætt
að utan að hluta, hiti er í stéttum, endurn. hitalagnir o.fl. Nýjar
hurðir eru í allri íbúðinni. Húsinu verður skilað öllu nýmáluðu.
Verð 18,0 millj. Áhv. 6,5 millj.
Ólöf tekur á móti ykkur í dag milli kl. 14 og 16.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Við smábátahöfnina
í Hafnarfirði
Nýkomin í einkasölu þessi þekkta
húseign á tveimur hæðum,
samtals ca 3.200 fm. Um er að
ræða húseign sem býður upp á
mikla möguleika, m.a. vegna
staðsetningarinnar, byggingarréttur
mögulegur. Verð tilboð.
UNDANFARIN sex ár hefur Lýð-
skólinn starfað á Íslandi í anda
dönsku lýðháskólanna. Tekið hef-
ur verið upp samstarf við Valle-
kildeskólann á Sjálandi. Fé til
samstarfsins fékkst frá Reykjavík-
urborg en borgin hefur stutt skól-
ann frá upphafi. Samstarfið felst í
því að 15 íslenzkir nemendur
ásamt einum íslenzkum kennara
fá að taka fullan þátt í skólastarf-
inu ásamt Dönunum. Oddur Al-
bertsson er skólastjóri Lýðskólans.
Skólinn býður upp á fjórar
brautir, þ.e. margmiðlunarbraut,
sálfræðibraut, leirlistarbraut og
tónlistarbraut. Þar að auki er
hægt að velja á milli 10 valgreina,
svo sem matargerð, ljósmyndun,
leiklist og fleira. Þeir sem ekki
komast að í haust komast þá að á
vormisseri 2002 og geta sótt um
hjá Norræna húsinu í Reykjavík.
Íþróttasalur er á staðnum og
fótboltavöllur, tvö sjónvarps-
herbergi og setustofa með arni.
Heimanám er lítið sem ekkert í
Lýðskólanum. Þeir sem eru í tón-
listinni þurfa að syngja eða leika
á hljóðfæri í lok annarinnar sem
er eins konar skemmtun fyrir
hina nemendurna.
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
Íslendingarnir reiddu fram saltkjöt og baunir á sprengidaginn í skól-
anum á Sjálandi.
Lýðskólinn
í landvinningum
Á FUNDI bæjarstjórnar Mosfells-
bæjar 9. maí sl. var tekinn til um-
ræðu úrskurður ráðuneytisins varð-
andi stjórnsýslukæru í framhaldi af
lóðaúthlutunum 27. desember sl. Í
því sambandi var svohljóðandi bók-
un samþykkt með sjö atkvæðum sem
viðbrögð bæjarstjórnar við dómn-
um:
„Nú liggur fyrir úrskurður félags-
málaráðuneytisins vegna stjórn-
sýslukæru í framhaldi af lóðaúthlut-
unum sem fram fóru 27. desember sl.
Samkvæmt úrskurðinum eru viðmið-
unarreglur sem bæjarstjórn sam-
þykkti vegna mats á hæfum um-
sækjendum um lóðir við Svölu- og
Súluhöfða taldar andstæðar ákvæð-
um 65. gr. stjórnarskrárinnar og
ákvæðum stjórnsýslulaga.
Af þessu tilefni vill bæjarstjórn
Mosfellsbæjar leggja áherslu á að
vegna fjölda umsókna um umræddar
lóðir komu upp aðstæður sem bæj-
aryfirvöld höfðu ekki staðið frammi
fyrir áður og voru ekki búin undir.
Vegna þessara aðstæðna taldi bæj-
arstjórn nauðsynlegt að setja nánari
viðmiðunarreglur um úrvinnslu um-
sókna, enda tóku þær reglur sem til-
greindar voru á umsóknareyðublaði
ekki á því hvernig velja skyldi milli
umsækjenda sem fullnægðu þeim.
Í því sambandi skal tekið fram að
bæjarstjórn leit svo á að reglur á
umsóknareyðublaði fælu í sér lág-
marksskilyrði sem umsækjendur
skyldu fullnægja og var í góðri trú
um að sér væri heimilt að setja nán-
ari viðmiðunarreglur við úrvinnslu
umsókna. Með setningu viðmiðunar-
reglnanna viðhafði bæjarstjórn aðra
aðferð við lóðaúthlutanirnar en tíð-
kast hefur hjá sveitarfélögum þar
sem yfirleitt hefur ekki legið fyrir á
hvaða grundvelli lóðarhafar eru
valdir. Taldi bæjarstjórn sig þannig
vera að ganga skrefi lengra í þá átt
að viðhafa opna stjórnsýslu heldur
en almennt hefur tíðkast hjá sveit-
arfélögum við lóðaúthlutanir.
Vegna gífurlegrar eftirspurnar
eftir umræddum lóðum taldi bæjar-
stjórn rök fyrir því við setningu við-
miðunarreglnanna að bæjarbúar,
sem hefðu um árabil tekið þátt í upp-
byggingu bæjarins, hefðu forgang
framyfir aðra. Þetta taldi bæjar-
stjórn einnig eðlilegt með hliðsjón af
því að slíkt hefur tíðkast hjá sveit-
arfélögum og íbúar í bænum því oft
ekki átt kost á lóðum í öðrum sveit-
arfélögum og var bæjarstjórn í góðri
trú um að þetta væri heimilt með
hliðsjón af venjubundinni fram-
kvæmd.
Jafnframt er á það að líta að um er
að ræða ráðstöfun á eignum bæjar-
ins og þar með bæjarbúa og með
hliðsjón af því taldi bæjarstjórn
einnig eðlilegt að bæjarbúar nytu
forgangs eftir að í ljós kom hversu
mikil eftirspurn var eftir lóðunum.
Bæjarstjórn telur að úrskurður-
inn marki tímamót og fagnar því að
nú liggi fyrir skýrari línur um það
hvernig sveitarfélög skuli standa að
lóðaúthlutunum. Bæjarstjórn telur
þó að úrskurðurinn svari ekki öllum
þeim spurningum sem vakna í kjöl-
far hans með nægilega skýrum hætti
og fulla ástæðu til þess að félags-
málaráðuneytið gefi út almennar og
skýrar leiðbeiningar til sveitarfélaga
um hvernig standa beri að lóðaút-
hlutunum til að stuðla að því að íbúar
allra sveitarfélaga standi jafnt að
vígi við umsóknir um lóðir í öðrum
sveitarfélögum en þeir búa í.
Jafnframt telur bæjarstjórn að úr-
skurðurinn veki spurningar um
hversu langt sveitarfélögum er
heimilt að ganga á öðrum sviðum í þá
átt að setja búsetu í sveitarfélaginu
að skilyrði fyrir þjónustu eða annarri
fyrirgreiðslu þeirra og ástæðu til að
ráðuneytið gefi einnig út almennar
leiðbeiningar þar að lútandi.“
Leiðbein-
ingar um
lóðaúthlut-
anir nauð-
synlegar