Morgunblaðið - 20.05.2001, Qupperneq 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 39
Þitt heimili á COSTA BLANCA
Í 19 ár höfum við selt húseignir á Spáni.
Nú seljum við beint frá 36 byggingaraðilum TIL ÞÍN.
VERÐDÆMI:
1. Stúdíóíbúð í blokk, 35 fm, 3.000.000 ísl. kr.
2. 2ja herb. íbúð, garður, 59 fm, 5.000.000 ísl. kr.
3. Íbúð í fjórbýli, garður, 64 fm, 7.500.000 ísl. kr.
Við tölum íslensku - Hafðu samband
Sími 0034 6067 19032 - Fax 0034 9657 05487
BORGIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
F A S T E I G N A S A L A
OPIÐ HÚS SUNNUDAG KL. 14 TIL 16
GARÐSENDI 3
Mjög rúmgóð ca 67 fm kjallaraíbúð í
þríbýli. Þvottahús og geymsla inni í
íbúðinni. Parket á gólfum. Mjög frið-
sæl og góð staðsetning. Linda tekur
vel á móti fólki milli kl. 14 og 16 í
dag. Verð 7,9 m.
OPIÐ HÚS SUNNUDAG KL. 14 TIL 16
SKIPHOLT 55 - LAUS - SEM NÝ
3ja herbergja íbúð á 1. hæð sem
verið var að endurnýja frá grunni -
allar innréttingar og gólfefni ný.
Íbúðin er mjög rúmgóð og vel stað-
sett beint á móti verslunarmiðstöð.
Stórar svalir. Verið er að laga blokk-
ina að utan á kostnað seljanda.
Sturlaugur er á staðnum frá kl. 14 til
16 í dag. Verð 11,9 m.
45 fm. vandaður sumarbústaður
fullbúinn að utan, og fokheldur
að innan.
Nú er bara að kaupa lóð og
panta flutningabíl, og hafa það
svo notalegt í sveitinni.
Verð aðeins kr. 2.500.000.
Sumarbústaður
Til afhendingar strax
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf.
Sími 562 4250, Borgartúni 31
Nýlegur sumarbústaður, afar vandaður á góðum stað í Skipasundi 5,
Grímsnesi. Hann er 61 fm að stærð ásamt svefnlofti. Í bústaðnum er raf-
magn, kalt og heitt vatn (komið inn í hús, eftir að tengja), nýjar innrétting-
ar og sólpallur. Hann er notaður sem heilsársbústaður. Lóðin er 5.000 fm
og er í góðri rækt. Jens (861 4153) tekur á móti þér og þínum í dag á milli
kl. 13 og 18. SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
OPIÐ HÚS Í HRAUNBORGUM - GRÍMSNESI
Brekkubær 34
Vandað vel staðsett 280 fm raðhús,
syðst í Brekkubænum niður við Fylk-
isvöllinn. Möguleiki á séríbúð í kjall-
ara. Gott aðgengi að verslun og
þjónustu. 5 svefnherbergi og 3 stof-
ur. V. 24,5 m. Áhv. 8,1 m. Lúðvík og
Guðný taka á móti áhugasömun
frá kl. 14-17.
Opin hús
í dag
Lækjasmári 54 - Kópavogi
Glæsileg fullbúin 4ra herb. efri sér-
hæð í fjögurra íb. húsi m. stæði í lok-
uðu bílskýli á eftirsóttum stað. Sér-
þvottah. Parket. Stórar s-vestursvalir.
Sérinng. Áhv. húsbréf 6,2 m. Einn
besti staðurinn í Smáranum. Verð
13,7 m. Soffía og Þorlákur sýna
eignina í dag milli kl. 14 og 17.
Skólagerði 40 - Kópavogi
Falleg 112,4 fm miðhæð m. sérinng.
Íb. er mikið endurnýjuð. Merbau-
parket. 3-4 svefnherb. Nýl. eldhús.
Nýl. skápar. Fráb. staðsetning. Stutt í
skóla. Getur losnað fljótl. Guðmund-
ur og Heiðrún sýna eignina í dag
frá kl. 14-17.
HEILBRIGÐISDEILD Háskólans
á Akureyri (HA) og Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri (FSA)
standa fyrir ráðstefnu á Akureyri
undir yfirskriftinni „Fagmennska í
fyrirrúmi“ dagana 21.–23. maí nk.
Ráðstefnan er að mestu afrakstur
rannsókna kennara og nemenda við
Háskólann á Akureyri, bæði í verk-
efnum til B.Sc.-gráðu og meistara-
gráðu. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar
er Dr. Christopher Johns, en hann
er mjög þekktur á Bretlandi og hef-
ur skrifað mikið um ígrundun í
starfi. Hann er eftirsóttur fyrirlesari
og er mikill fengur að komu hans til
Akureyrar. Hann mun vera með
vinnusmiðju og halda erindi um
ígrundun í starfi á sviði líknandi
meðferðar. Margir telja að þau
grundvallarmarkmið sem liggja að
baki líknandi meðferð, virðing fyrir
vilja einstaklingsins, umhyggja og
samráð, eigi alls staðar við þar sem
fólk er deyjandi og í raun innan heil-
brigðisþjónustunnar allrar. Sautján
erindi verða flutt á ráðstefnunni,
m.a. um mikilvægi þess að læra að
þekkja sinn eigin líkama og treysta
táknum frá honum, um mikilvægi
fjölskyldunnar í lífi sjúklinga í hinum
ýmsu aðstæðum þeirra og um lífs-
gæði þeirra kvenna sem sjá um
maka sína heima. Þá verður einnig
rætt um það hvernig það er að lifa
við langvarandi verki og reynslu-
heim þeirra sem vinna að hjálpar-
starfi og kynnast þjáningu fólks á
átakasvæðum víðs vegar í heiminum.
Í kynningum á rannsóknum til
B.Sc.-gráðu eru mörg athyglisverð
erindi, m.a. um tengsl ofvirkni við
vímuefnaneyslu, kynferðislegt of-
beldi gegn börnum, um upplifun
hjúkrunarfræðinema af verklegu
námi („Gott en gæti verið betra“),
líðan einstaklinga sem missa maka
sinn í sjálfsvígi („Áttum eftir að lifa
lengi saman“), líðan móður að eiga
einhverft barn („Hlustið á mig“),
tengsl listmeðferðar og hjúkrunar-
fræði og um upplifun verðandi feðra
á meðgöngu sem eiga barn/börn fyr-
ir („Strembið en stórkostlegt“). Ráð-
stefnan er öllum opin og er verði
haldið mjög í lágmarki (5 þúsund
fyrir þrjá daga), en ráðstefnan er
hugsuð sem framlag heilbrigðis-
deildar Háskólans á Akureyri og
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
til aukinnar þekkingar innan heil-
brigðisvísinda og þar með til auk-
innar fagmennsku. Skráning á ráð-
stefnuna fer fram hjá Hildigunni
Svavarsdóttur (hildig@fsa.is) og hjá
ritara framkvæmdastjóra hjúkrun-
ar.
Námskeið
um fag-
mennsku í
fyrirrúmi
KENNARAR og nemendur við
læknadeild Háskóla Íslands munu
sitja fyrir svörum um nám í lækn-
isfræði og sjúkraþjálfun mánudag-
inn 21. maí kl. 15–18.
Námskynningin er haldin í hús-
næði sjúkraþjálfunar að Skógarhlíð
10. Nám í læknisfræði tekur 6 ár og
leggja nú 229 nemendur stund á nám
til kandidatsprófs í læknisfræði. Sá
sem lokið hefur embættisprófi í
læknisfræði ber próftitilinn candid-
atus medicinae.
Læknadeild býður upp á kennslu
til meistara-og doktorsprófs. Nú
leggja 55 stúdentar stund á meist-
aranám og 25 á doktorsnám.
Nám í sjúkraþjálfun tekur 4 ár og
leggja nú 62 nemendur stund á nám
til BS-gráðu í sjúkraþjálfun. Við
deildina er boðið upp á rannsóknar-
tengt meistaranám í sjúkraþjálfun.
Nánari upplýsingar um námið má
finna á heimasíðu Háskólans, http://
www.physio.hi.is eða http://www.
hi.is/nam/laek/.
Kynna nám í
læknisfræði og
sjúkraþjálfun
♦ ♦ ♦
FASTEIGNIR mbl.isDILBERT mbl.is