Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 44
DAGBÓK
44 SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sky
Bird og Brúarfoss koma
í dag. Pascoal Atlantico
fer í dag. Nordstar kem-
ur og fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Namay kemur í dag.
Oyra og Ostan koma á
morgun.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 8.45 leikfimi, kl. 10
boccia, kl. 14 félagsvist,
kl. 12.30 baðþjónusta.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, penna-
saumur og perlusaumur,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13.30 félags-
vist, kl. 13 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10 sam-
verustund, kl. 13 búta-
saumur.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, á Kjalarnesi og í
Kjós. Félagsstarfið í
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fótanudd,
s. 566 8060 kl. 8–16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað-
gerð og myndlist, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10–
13 verslunin opin, kl.
11.10 leikfimi, kl. 13
handavinna og föndur,
kl. 13.30 enska, fram-
hald.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Á morg-
un kl. 9 böðun, kl. 9.45
leikfimi, kl. 9 hár-
greiðslustofan opin.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar í Bæjar-
útgerðinni eru hættar,
en verða á þriðjudögum
og föstudögum kl. 14–16
í sumar. Ef verkfall leys-
ist verður á morgun
mánudag félagsvist kl.
13.30 og á þriðjudag
brids kl.13.30. Dagsferð
á Njáluslóðir fimmtu-
daginn 7. júní nk. og
þriggja daga ferð til
Hornafjarðar 9. júlí.
Skráning hafin, allar
upplýsingar í Hraunseli,
sími 555- 0142.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Sunnudagur:
Félagsvist kl. 13.30.
Dansleikur kl. 20,
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánudagur:
Brids kl. 13. Dans-
kennsla Sigvalda kl. 19
framhald og byrjendur
kl. 20.30. Þriðjudaginn
29. maí verður farin
stutt vorferð í Hafn-
arfjörð og Heiðmörk.
Lagt verður af stað kl.
13 og leið lögð um Hafn-
arfjörð og þar litast um
undir leiðsögn Rúnars
Brynjólfssonar. Síðan
er ekið um Heiðmörk-
ina, staldrað þar við og
Vatnsveita Reykjavíkur
skoðuð. Að lokum eru
kaffiveitingar í boði
Orkuveitu Reykjavíkur.
Brottför frá Glæsibæ kl.
13. Leiðsögn Páll Gísla-
son og Pálína Jóns-
dóttir. Skráning hafin.
6.-8. júní ferð til Vest-
mannaeyja. Skoðunar-
ferðir um eyjuna. Gist-
ing á Hótel Þórshamri.
Nokkur sæti laus. Ath.
lækkað verð. 10.-12. júní
Skaftafellssýslur.
Þriggja daga ferð um
Skaftafellssýslur komið
að Skógafossi o.fl. fal-
legum stöðum á Suður-
landi. Gist á Hótel
Eddu, Kirkjubæjar-
klausti. Silfurlínan er
opin á mánudögum og
miðvikudögum frá kl.
10–12. Ath. Opnunar-
tími skrifstofu FEB er
frá kl. 10–16. Upp-
lýsingar í síma 588 2111.
Félagsstarf aldraðra,
Háteigskirkju. Spilað í
Setrinu mánudaga kl.
13–15, kaffi. Miðviku-
dagar kl. 11–16 bæna-
stund, súpa í hádeginu,
spilað frá kl. 13–15,
kaffi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun kl.
9–16.30 opin vinnustofa,
handavinna og föndur,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 14
félagsvist.
Gerðuberg, félagsstarf,
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn. Sigvaldi
byrjar aftur dansinn kl.
15.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9–17, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.
13.30 lomber.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 postulínsmálun,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 10.30 bæna-
stund, kl. 13 hár-
greiðsla, kl. 14
sögustund og spjall.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun,
fótaaðgerðir, keramik,
tau- og silkimálun og
klippimyndir, kl. 10
boccia, kl. 13 spilað.
Handavinnusýning
verður sunnudaginn 20.
og mánud. 21. maí
Skemmtiatriði, harm-
ónikkuleikur og karla-
kórssöngur, veislukaffi
opið báða daga frá kl.
13-17. allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Á morg-
un verður fótaaðgerða-
stofan opin kl. 9–14,
bókasafnið opið kl. 12–
15, ganga kl. 10. Sýning
á handavinnu og list-
munum aldraðra verður
sunnudaginn 20. maí og
mánudaginn 21. maí frá
kl. 13.30-17 í matsal
félagsstarfsins, hátíð-
arkaffi. Á mánudaginn
kemur kór frá Vitatorgi
og syngur í kaffitím-
anum. Á sunnudaginn
verður Guðný við píanó-
ið í kaffitímanum. Allir
velkomnir.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9 fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 10 boccia, kl.
13 kóræfing, kl. 12.15
danskennsla, framhald,
kl. 13.30 danskennsla,
byrjendur. Mánudaginn
21. maí verður farið á
handverkssýningar í
Hvassaleiti og Norð-
urbrún. Lagt af stað kl.
13.
Vitatorg. Á morgun kl. 9
smiðjan og hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir, kl. 13 hand-
mennt, kl. 13 leikfimi, kl.
13 spilað.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gullsmára
býður alla eldri borgara
velkomna að brids-
borðum í félagsheimilinu
að Gullsmára 13 á
mánud. og fimmtud.
Mæting og skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
GA-fundir spilafíkla eru
kl. 18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara).
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis eru
með fundi alla mánu-
daga kl. 20 á Sól-
vallagötu 12, Reykjavík.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Önfirðingafélagið í
Reykjavík. Aðalfund-
urinn verður haldinn
sunnudaginn 27. maí kl.
14 í matsal Granda,
Norðurgarði. Lokadags-
kaffi félagsins verður
eftir fundinn kl. 15–17 á
sama stað. Ljós-
myndasýning.
Kvenfélagið Heimaey.
Aðalfundur verður
mánudaginn 21. maí kl.
20.30 í skála Hótels
Sögu, tískusýning, sjá
nánar í bréfi.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Þriðju-
daginn 22. maí verður
farið til Þingvalla og í
Grímsnes, lagt af stað
frá kirkjunni kl. 10
skráning hjá Önnu, s.
554-1475.
Heilsuhringurinn held-
ur aðalfund sinn þriðju-
daginn 22. maí í Nor-
ræna húsinu kl. 20. Að
loknum aðalfund-
arstörfum kl. 21 flytur
Kári Einarsson raf-
magnsverkfræðingur
erindi er nefnist hefur
rafgeislun og öflug
jarðgeislun áhrif á heilsu
fólks. Öllum velkomið að
hlusta á erindið.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Munið ferð á Njálu-
slóðir 29. maí. Allir vel-
komir. Upplýsingar í
Gjábakka, s. 554-3400 og
Gullsmára, s. 564-
5260.
Í dag er sunnudagur 20. maí,
140. dagur ársins 2001. Bænadag-
ur. Orð dagsins: Þakkið Drottni, því
að hann er góður, því að miskunn
hans varir að eilífu.
(Sálm. 107.)
VANGAVELTUR um fjar-
vinnslu eftir að hafa heyrt
ávæning af erindi í morg-
unútvarpinu einn morgun-
inn: Í umræðunni að und-
anförnu hefur talsvert farið
fyrir umfjöllun um fjar-
vinnslu og fjarvinnslufyrir-
tæki. Við virðumst enn vera
talsvert lokuð fyrir þeim
óendanlegu möguleikum
sem þetta býður upp á þótt
ótrúlegt sé miðað við nýj-
ungagirni Íslendinga. Nýr
möguleiki í atvinnulífi land-
ans! Bæði fyrir fyrirtækin
og fólkið í þjóðfélaginu,
ekki hvað síst fyrir ríkisfyr-
irtækin (þar liggja heilu
haugarnir af upplýsingum
sem á eftir að koma í tölvu-
tækt form), og myndi fljótt
spara mikinn tíma og mikla
peninga í formi fyrirhafnar
og starfsfólks.
Eins og svo oft hjá okkur
hér á klakanum var rokið til
og sett upp þessi líka fínu
fyrirtæki úti á landi sem
áttu að mala gull í stað
fisksins sem við erum að
verða búin að sópa upp.
Reyndar held ég að þetta
hafi aðallega verið fyrir-
tæki úr Reykjavík sem sáu
sér þarna leik á borði til að
ná sér í smáskotsilfur. Það
var keypt húsnæði eða leigt
fyrir stóran pening og svo
þurfti að sjálfsögðu kaupa
tölvur og tilheyrandi fyrir
milljónir. Nú átti þetta sko
að gerast með stæl og allir
að verða ríkir í hvelli. En
eins og svo oft áður klikkar
eitthvað í útreikningunum
og allt fór á hausinn með
látum og það jafnvel áður
en herlegheitin komust í
gang að einhverju viti.
Eins og allir vita sem
eitthvað þekkja til í tölvu-
heiminum er þetta mögu-
leiki sem margir þekkja
orðið og margir nýta sér.
Aðallega virðist það þó vera
úti í hinum stóra heimi sem
fyrirtæki nýta sér þetta
frábæra tækifæri. Kannski
von með hliðsjón af feng-
inni reynslu hér heima af
þessum fyrirtækjum sem
ætluðu sér svo stóra hluti.
En vegna þess hvernig við
byrjuðum á þessari braut
er eins og það hafi komið
afturkippur í þetta allt
saman og nú þori enginn að
byrja að nýju. Kannski
skortir bara hugmyndir um
hvernig best væri að haga
þessu.
Í þjóðfélagi þar sem allt-
af er verið að tala um hag-
ræðingu og sparnað hlýtur
þetta að vera frábær leið til
að hafa rekstrarlega hag-
kvæman starfskraft.
Eins og allir vita er tals-
vert ódýrara að hafa verk-
taka í vinnu en launamann.
Kemur þar til s.s. launa-
tengd gjöld og skattar sem
fyrirtæki þurfa að greiða
fyrir hvern starfsmann en
það er ca. 43% sem leggst á
hvern unninn klukkutíma
(búið að reikna inn í þessa
prósentutölu desember-
uppbót og orlofsuppbót og
ath. þetta er ca. tala) á með-
an það er aðeins 24,5% á
verktakann. Dæmið lítur
því þannig út fyrir atvinnu-
rekanda ef miðað er við
1.000 kr. pr. klst.
vsk 24,5 % 245 = 1245
launat. gj.atvrek. 43%
430 = 1430
Nú, ef fyrirtækið er með
verktaka fær það endur-
greiddan virðisaukann
þannig að eftir sitja í raun
bara 1.000 krónurnar á
móti 1.430 krónunum.
Augljóst er því að það er
mjög óhagkvæmt að vera
verktaki í stað launþega
þegar á allt er litið. En
verktakinn er jafnframt
mjög hagkvæmt vinnuafl
fyrir fyrirtækin.
Nú og svo ekki síst það
að það þarf aðstöðu og tæki
fyrir viðkomandi starfs-
mann þó að hann yrði bara í
vinnu í nokkrar vikur eða
mánuði við fyrirtækið.
Hvað svo?
Þótt þú getir selt búnað-
inn, skrifborðið, stólinn,
reiknivélina, prentarann og
svo mætti lengi telja, en við
vitum að það fæst lítið fyrir
þetta því megnið af þessu
er orðið úrelt daginn eftir
að þú keyptir það og það
vilja auðvitað allir fá það
nýjasta ef þeir eru að fjár-
festa á annað borð.
Eða eins og einn orðaði
það:
„Ef þú ætlar að fylgjast
með þróuninni í tölvu-
bransanum þá þarftu alltaf
að endurnýja á mánudög-
um.“
Nú, við vitum öll að það
liggja gögn út um allt land
sem bíða eftir að komast í
gagnagrunna og því fyrr
sem við byrjum því betra.
Því ekki að nota vinnuafl-
ið sem er vítt og breytt um
landið og vill vinna og hefur
allan búnað og aðstöðu
heimafyrir til að sinna
þessu.
Það þarf ekki fín fyrir-
tæki og yfirbyggingu. Það
er nóg:
tölva,
mótald,
símalína
og kannski prentari
og svo einhver sem er
viljugur að sitja fyrir fram-
an þetta og vinna. Og ég er
ekki í vafa um að við eigum
nóg af þessu öllu.
G.B.J.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hagkvæmur
rekstur
Víkverji skrifar...
VINUR Víkverja fær, eða á aðfá, send skilaboð frá Tali í far-
símann sinn þegar skorað er í leik
með enska knattspyrnufélaginu
Liverpool. Það sigraði í Evrópu-
keppni félagsliða, UEFA-keppninni
sem svo er nefnd, á miðvikudags-
kvöldið í ótrúlegum leik í Dortmund
í Þýskalandi, 5:4. Um hádegisbil á
fimmtudaginn fóru vininum að ber-
ast upplýsingar um leikinn í símann;
og mörkunum hreinlega rigndi! En
hann var ekki sérlega spenntur þeg-
ar þarna var komið sögu og fannst
þjónustan ekki til að hrópa húrra
fyrir.
x x x
YFIRLÝSING Karls Sigur-björnssonar, biskups Íslands,
sem birtist í Morgunblaðinu á föstu-
daginn, þar sem hann áréttar þagn-
arskyldu presta og djákna, vakti at-
hygli Víkverja.
Yfirlýsingin er svohljóðandi:
„Að gefnu tilefni skal áréttað að
vígðir þjónar þjóðkirkjunnar, prest-
ar og djáknar, eru bundnir þagn-
arskyldu um allt er þeir verða
áskynja í starfi og leynt skal fara. Í
sálgæslu og skriftum er prestur
áheyrandi í Krists stað. Það sem
hann verður þannig áskynja má
hann því aldrei láta uppi án sam-
þykkis viðkomandi skjólstæðings
nema landslög kveði á um eða stór-
felldir hagsmunir einstaklings eða
almennings séu í húfi. Er prestum
og djáknum því með öllu óheimilt að
skrá slíkar upplýsingar í skýrslur
sem ætlaðar eru öðrum.“
Í frétt blaðsins kemur svo fram
að fyrirhugað sé að gera breytingar
á ákvæði samninga sem sjúkra-
stofnarnir hafa gert um skráningu í
gagnagrunn, sem taka af allan vafa
um að upplýsingar frá prestum og
djáknum fari ekki inn í grunninn.
Víkverji hefur einmitt undanfarið
velt dálítið fyrir sér þagnarskyldu
ákveðinna starfsstétta, og hve mik-
ilvægt er að hún sé haldin.
Þannig er mál með vexti að Vík-
verji dvaldi í bæjarfélagi, nokkuð
stóru, úti á landi á dögunum og varð
þess þá áskynja að fólk sem hann
var í samskiptum við virtist hafa
ýmsa vitneskju um atburði sem
honum fannst óeðlilegt. Af hinu og
þessu sem gerst hafði innan veggja
sjúkrahússins á staðnum, fréttir úr
herbúðum slökkviliðs og lögreglu og
þar fram eftir götunum. Ekki allt
hættulegar upplýsingar en inn á
milli hlutir sem gersamlega fárán-
legt er að séu á milli tannanna á
„fólki úti í bæ“ vegna þess að því
kemur þetta ekki við. Á að minnsta
kosti að vera fráleitt að frétta hlut-
ina frá áðurnefndum starfsstéttum.
Vilji einhver sem var laminn, eða
einhver sem lamdi, eða einhver sem
fór heim með einhverjum eftir ball,
eða var stungið í steininn, eða berst
við einhvern sjúkdóm segja frá því
er það auðvitað mál viðkomandi, en
nefndar starfsstéttir verða skilyrð-
islaust að kunna að þegja.
Þjóð veit þá þrír vita, segir mál-
tækið, og segi ungur aðstoðarlækn-
ir, svo dæmi sé tekið af handahófi,
tengdaföður sínum ákveðna hluti
sem eru að gerast á sjúkrahúsinu
þar sem sá fyrrnefndi starfar getur
hann ekki verið viss um að sá síð-
arnefndi breiði söguna ekki út á sín-
um vinnustað. Og svo …
Rétt er að taka fram að misjafn
sauður er í mörgu fé og í þessu sem
öðru geta fáeinir svartir sauðir
komið óorði á heilar stéttir. Ein-
hverjum kann að þykja Víkverji
taka stórt upp í sig með því að minn-
ast á þetta, en hér er ekki um sögu-
burð að ræða, því miður, heldur
staðreyndir sem vert er að hugleiða.
LÁRÉTT:
1 vind, 4 höfðu upp á, 7
bætir við, 8 húð, 9 ílát, 11
topp, 13 at, 14 fiskinn, 15
lítill, 17 óþétt, 20 brodd,
22 gufa, 23 trylltur, 24
kaggi, 25 ræktuð lönd.
LÓÐRÉTT:
1 digurt, 2 óveður, 3 lofa,
4 kák, 5 synja, 6 alda, 10
tími, 12 skepna, 13 her-
bergi, 15 rófu, 16 greinin,
18 á jakka, 19 hreinar, 20
heiðursmerki, 21
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bókabúðin, 8 skein, 9 dílar, 10 aki, 11 rekur, 12
nemur, 15 stegg, 18 salli, 21 ögn, 22 tíðum, 23 öngul, 24
einlægnin.
Lóðrétt: 2 ómerk, 3 asnar, 4 úldin, 5 illum, 6 ósár, 7 hrár,
12 ugg, 14 efa, 15 súta, 16 eyðni, 17 gömul, 18 snögg, 19
lægri, 20 illt.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16