Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 47

Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 47
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 47 MOGWAI er búin að vera iðin hljóm- sveit, í meira lagi, síðan hún tók til starfa árið 1995. Hún er búin að gefa út helling af ep-plötum, smáskífum og þrjár breiðskífur. Rock Action er einmitt þeirra þriðja stóra plata og hennar hefur verið beðið með nokk- urri eftirvæntingu þar sem Mogwai hefur verið í forystusveit evrópskra síðrokksveita allt frá því að plata þeirra Young Team kom út; en hún var einkar vel heppnuð í alla staði. Síðan Young Team leit dagsins ljós hefur Mogwai þótt líklegur kandídat til þess að valda straumhvörfum inn- an tónlistargeirans. Ekki verður þeim kápan úr því klæðinu í þetta sinn, því á Rock Action heldur Mogwai uppteknum hætti, fetar á fyrri slóðir avant-rokks og naum- hyggju. Tónlist Mogwai er í ætt við hina þjóðsagnakenndu hljómsveit Slint, Godspeed You Black Emperor, Low og þýsku snillinganna í Neu!. Örlagið „Robo Chant“ er í raun hálf- gerður óður til Neu!, einskonar end- urvinnsla á upphafi eins frægasta lags Þjóðverjanna „Negativland“. Hin nýja plata Mogwai er alls ekki slæm, en það sem vantar er meiri framsækni, áræðni til þess að taka af skarið og fara alla leið; í samsuðu rokks og raftónlistar sem örlar fyrir á Rock Action. Kvintettinn frá Skot- landi hefur sýnt það í gegnum tíðina að þeir hafa upp á margt að bjóða, en sá máttur og dýnamík sem var að finna á þeirra fyrstu verkum hefur dofnað. Á Rock Action er engu að síður um nokkuð auðugan garð að gresja, þarna eru fín lög, skemmtileg spilamennska, ásamt góðri upptöku- stjórn Dave Fridmanns sem meðal annars hefur séð um hljóðritanir fyr- ir hljómsveitirnar Mercury Rev og Flaming Lips. „Sine Wave“ er upphafslag Rock Action og er það alveg feikilega gott. Lagið er samsuða raftónlistar að hætti múm og rokks að hætti Mogwai. Þarna er vottur af þeirri framþróun sem Mogwai er fær um að galdra fram en fær því miður ekki að njóta sín nema í einu öðru lagi; laginu „2 Rights Make 1 Wrong“. Þar er komið besta lag plötunnar, níu og hálfs mínútna rokk/raf-fantas- ía. Lagið byrjar á sýrurokki, svífur um í nokkra stund, blandast síðan við vel útfærða raftakta, skreyttum skemmtilegum banjóleik. Þetta er það lag sem rís hvað hæst, þarna kveður við nýjan og ferskan tón sem vonandi verður unnið meira með í náinni framtíð. „Secret Pint“ er loka- lagið, tregafullt og rólegt lag rétt til að ná fólki niður. Lagið liðast hægt áfram, skreytt strengjum og píanó- spili og minnir eina helst á útfarar- sálm; svona hálfgert bless og takk, þetta er búið í bili. Rock Action hefur margt til síns ágætis og mun án nokkurs vafa gleðja hina fjölmörgu aðdáendur Mogwai hér á klakanum. Tónlistin er oft tilkomumikil og svöl eins og hljómsveitin, en því miður stendur hún ekki fyllilega undir væntingum. ERLENDAR P L Ö T U R Jóhann Ágúst Jóhannsson fjallar um nýjustu breiðskífu Mogwai, Rock Action  Óður til …! Skoska síðrokkssveitin Mogwai. ROKKIÐ hefur orðið síðmód-ernismanum að bráð einsog aðrar listastefnur ogekkert nema gott um það að segja. Allt er leyfilegt og menn hræra saman sem þeim sýnist rokki, fönki, óhljóðum, djassi og svo má telja. Í síðrokkinu hefur mjög borið á djassinum, ekki síst innan Chicago- klíkunnar margræddu, en fleiri hafa orðið til að nusa af djassi, Þar á meðal emo-sveitin Karate. Á tónleikum í neðanjarðarbúllu í Hamborg fyrr á árinu mátti sjá og heyra að Karate er geysiöflug sveit þótt ekki sé hún fjölmenn, trommur, bassi og syngj- andi gítarleikari, og þýskir áheyr- endur sem troðfylltu staðinn kunnu vel að meta tilfinningaríkan söng, djassskotinn hryngrunn og liprar gítarfléttur. Skífa Karate Unsolved sem kom út seint á síðasta ári er og fyrirtak, sem og næsta plata þar á undan, Bed is in the Ocean. Geoff Farina gítarleikari og söngv- ari stofnaði sveitina með bassaleik- aranum Eamonn Vitt og trymblinum Gavin McCarthy. Fyrstu tónleikarnir voru í desember 1993 og fyrsta smá- skífan, Death Kit, kom út stuttu síð- ar. Síðan eru smáskífurnar orðnar fimm og breiðskífurnar fjórar, Kar- ate, In Place of Real Insight, Bed is in the Ocean og Unsolved sem getið er í upphafi. Árið 1995 slóst Jeff Goddard í hópinn sem bassaleikari, en Vitt gat þá sinnt hryngítarleik. Hann entist þó ekki nema fram á árið 1997, að hann hætti til að leggja stund á lækn- isfræði. Ekki við eina fjölina felldur Geoff Farina er óskoraður leiðtogi Karate, semur lög og texta og ræður ferðinni í útsetningum og stemmn- ingu. Hann er ekki við eina fjölina felldur í tónlistinni, heldur úti sóló- ferli samhliða Karate og leikur að auki í tvíeykinu Secret Stars. Karate var á sínum tíma hreinræktuð emo- sveit, en Secret Stars flokka menn sem sadcore og heldur er Farina naumhyggjulegur þegar hann er einn. Alltaf leggur hann þó mikla áherslu á hljóma og hljóð og leitun að öðrum eins grúskara í magnara- og skælifetlafræðum. Í viðtali um það leyti sem þriðja plata sveitarinnar, Bed Is in the Ocean, kom út sagði hann að þegar Karate var að byrja fór það mjög í hann hve allt sem þeir félagar gerðu hljómaði illa og þá vegna þess að sökum fjárskorts höfðu þeir ekki efni á að nota nema úr- gangsgræjur. Smám saman tók hann að gera upp magnara og sérsmíða og hefur sitt að segja með tæran gítar- hljóminn sem einkennir síðustu plöt- ur Karate, en söngstíllinn vekur einn- ig athygli manna, einlægur og tilfinningaríkur, þó ekki falli sam- setningin öllum í geð. Síðrokkið er áberandi á fyrstu plötum sveitarinnar, en hefur smám saman látið undan síga, hægt á takt- inum og hljómarnir fá meira rými. Það mátti vel heyra á The Bed is in the Ocean og síðan á Unsolved, sem hljómar eins og rökrétt framhald á The Bed is in the Ocean þótt hún sé tekin upp meira en tveimur árum síð- ar. Lærði djassleik í tónlistarskóla Djassáhrifin í tónlist Karate þurfa ekki að koma á óvart, því Farina lærði djassleik í tónlistarskóla, en hann segist líka leita í ótal áttir eftir innblæstri og áhrifum, allt frá R&B/ rappi í gamlan blús, en einnig segist hann hafa dálæti á raftónlist ýmis- konar og óhljóðalist, ekki síst í sí- felldri leit að nýjum hljóðum og hljóð- gjöfum. „Vélbúnaður er málið,“ segir hann og bætir við að fátt sé dýrmæt- ara en græjurnar hans, en þess má geta að Farina skrifaði mastersrit- gerð um sögu hljóðgervla. Hann seg- ist og mikið spá í slíka hluti, sem geti eins leitt af sér að hann stofni eina sveit til, techno-sveit, enda heillaður að sögn af þeim möguleikum sem raf- einda- og tölvutæknin gefi. „Menn gleyma því gjarnan að rafgítarinn var framandlegur og ónáttúrlegur þegar hann kom fram á sjónarsviðið og bylti síðan öllu, líkt og tölvutækknin er að gera.“ Sumir hafa orðið til að gagnrýna sveitina fyrir sundurgerð í tónlist og benda á að erfitt sé að segja til um hvort flokka eigi Unsolved sem rokk- djass, nýbylgju, síðrokk eða blús og svo má telja. Í textum er Karate svo sama marki brennd og margar aðrar síðrokksveitir, sjá til að mynda Rad- iohead, þar sem andinn er við það að sigra efnið hvað eftir annað. Farina segist skrifa texta laganna eins og vitundarflæði, þ.e. þeir eru nánast ósjálfráð skrift þar sem allt er látið flakka. Sem betur fer gengur hann ekki eins langt í þessum efnum með Karate og þegar hann er einn á ferð, en textar á síðustu sólóskífu hans eru, satt best að segja, innihaldslaust bull. Það er reyndar fróðlegt að fylgjast með því hvernig margar forvitnileg- ustu rokksveitir síðustu ára eru að feta út í bull- og blaðurfræði; upp- teknar af merkingarfræði og dul- speki, gegnumsýrðar af innblæstri eins og blóðmörskeppir í blásteins- legi. Sú bylgja hefur áður risið og mun fljótt hníga, en það skiptir svo sem ekki máli á meðan menn eru að semja skemmtilega tónlist. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Nusað af djassi Í umróti síðustu ára er allt orðið leyfilegt í rokki, menn geta hrært saman því sem þeir vilja og kallað það sem þeir vilja. Árni Matthíasson segir frá rokk- sveitinni Karate sem sumir vilja kenna við djass. Karate-félagar. Geoff Farina, Jeff Goddard og Gavin McCarthy.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.