Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 12
12 C SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ritstjóri hjá
Námsgagnastofnun
Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða ritstjóra
frá 1. ágúst nk. að telja.
Leitað er að starfsmanni til að annast ritstjórn
námsefnis fyrir grunnskóla, einkum í samfé-
lagsgreinum, heimilisfræði og dönsku. Aðrar
námsgreinar geta einnig komið til greina.
Viðkomandi þarf að:
1. Hafa haldgóða þekkingu á skólastarfi. Kenn-
aramenntun og kennslureynsla nauðsynleg.
2. Hafa gott vald á íslensku máli.
3. Hafa reynslu af stjórnun verkefna og hafa
góða samstarfshæfileika.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu á reyklaus-
um vinnustað.
Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Jakobsson,
útgáfustjóri, í síma 552 8088.
Umsóknir sendist Námsgagnastofnun, Lauga-
vegi 166, 125 Reykjavík, fyrir 1. júní 2001.
Háskóli Íslands
Bókmenntafræðistofnun
Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands aug-
lýsir laust starf ritstjóra íslensks bók-
mennta lexíkons. Um er að ræða hálft starf
til tveggja ára en hærra starfshlutfall kemur
þó til greina. Umsækjendur þurfa að geta hafið
störf sem fyrst.
Hæfniskröfur: Krafist er a.m.k. meistaraprófs
í íslenskum bókmenntum eða almennri bók-
menntafræði. Auk víðtækrar þekkingar á
íslenskum og erlendum bókmenntum þarf um-
sækjandi að hafa mikla reynslu af ritstjórn og
útgáfumálum, vera lipur í samskiptum og hafa
allnokkra tölvukunnáttu.
Starfssvið: Ritstjórinn mun stjórna vinnslu
bókarinnar á öllum stigum í samráði við rit-
stjórn stofnunarinnnar, annast margvíslegt
samstarf við aðila innan og utan HÍ og velja
fólk til starfa.
Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2001, og skal
umsóknum skilað til starfsmannasviðs Háskóla
Íslands, Aðalbyggingu, við Suðurgötu, 101
Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað
og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfs-
ins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Ástráður Eysteinsson,
prófessor, netfang: astra@hi.is, símar 525 4357
eða 562 7188 og Matthías Viðar Sæmundsson
í síma 525 4087, netfang: mattsam@hi.is .
http://www.starf.hi.is .
Kennarar
Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða
kennara næsta haust í:
Dönsku
Aðstoðarskólastjóri og deildarstjóri viðkom-
andi deildar veita nánari upplýsingar um
starfið. Umsóknum skal skila á skrifstofu skól-
ans í síðasta lagi 31.05.2001.
Laun samkvæmt sérstökum samningi við
skólanefnd VÍ.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Ofanleiti 1, 103 Reykjavík,
sími 5900 600, verslo@verslo.is
Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands
Framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands óskar að ráða
framkvæmdastjóra frá 1. júlí 2001. Helstu verk-
efni eru daglegur rekstur, áætlanagerð, skipu-
lagning tónleika auk stefnumótunarvinnu í
samstarfi við hljómsveitarráð og aðalstjórn-
anda. Viðkomandi þarf að hafa menntun og/
eða reynslu á sviði fjármála, áætlanagerðar
og stjórnunar auk innsýnar í tónmennt og list-
sköpun. Sjálfstæði, frumkvæði, skipulags-
hæfni, færni í mannlegum samskiptum og
samstarfsvilji eru nauðsynlegir eiginleikar.
Konsertmeistari
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands óskar að ráða
konsertmeistara í hlutastarf frá 1. september
2001. Hljómsveitin er í örri þróun og gert er
ráð fyrir að konsertmeistari verði þátttakandi
í sérstökum frumkvöðlahópi, sem móta muni
starfsemina næstu árin. Gerð er krafa um hæfni
í hljómsveitarleik, fagmennsku í vinnubrögðum
og færni í mannlegum samskiptum.
Gert er ráð fyrir að konsertmeistari muni hafa
búsetu á starfssvæði hljómsveitarinnar.
Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar er til 1.6.
2001. Umsóknir skulu sendar hljómsveitarráði
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Hafnar-
stræti 81, 600 Akureyri, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf.
Nánari upplýsingar um stöðurnar fást hjá
Gunnari Frímannssyni, formanni hljómsveitar-
ráðs, (gunnarf@nett.is), Guðmundi Óla Gunn-
arssyni, aðalhljómsveitarstjóra
(goli@ismennt.is), og á skrifstofu Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í síma 462 1788.
Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra
Viltu gefandi starf
nálægt heimili þínu í sumar?
● Einstakt starfsumhverfi í náttúruparadís.
● Nýju starfsfólki er boðið upp á góðan
stuðning.
● Skriflegir ráðningarsamningar við alla
starfsmenn.
Við bjóðum fólki 20 ára og eldra fjölbreytt og
gefandi sumarafleysingastörf í fallegri nátt-
úruparadís í Tjaldanesi í Mosfellsdal.
Um er að ræða 50-100% störf í vaktavinnu.
Við leitum eftir þroskaþjálfum sem búa yfir
færni í mannlegum samskiptum og eru áhuga-
samir um vinnu með einstaklingum með fötl-
un. Einnig óskum við eftir ófaglærðu, áhuga-
sömu starfsfólki af báðum kynjum. Við
veitum nýju starfsfólki vandaða leiðsögn og
fræðslu.
Einnig eru í boði sumarafleysingastörf á heim-
ilum fólks með fötlun í Kópavogi, Garðabæ
og Hafnarfirði.
Við bjóðum laun samkvæmt gildandi kjara-
samningum Þ.Í. og S.F.R., sem meðal annars
tryggja rétt til sumarorlofs og veikinda. Kaffi-
tímar eru greiddir í yfirvinnu, frítt fæði og fleira.
Reyklaus vinnustaður. Sérstök athygli er
vakin á launahækkun í nýjum samningi
S.F.R.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk. Upp-
lýsingar um ofangreind störf eru veittar í síma
564 1822 á skrifstofutíma. Umsóknareyðublöð
eru á skrifstofunni að Digranesvegi 5 í Kópav-
ogi og á vef Svæðisskrifstofu á Netinu http://
www.smfr.is
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin
á Akranesi
Læknaritarar
Læknaritari óskast við Heilsugæslustöðina á
Akranesi frá og með 1. júlí nk.
Nánari upplýsingar gefur Sigrún Sigurðardóttir,
skrifstofustjóri læknaritara H.A., í síma 430 6041,
netfang: sigrun.sigurdardottir@sha.is
Aðstoðarkennari
í dönsku
í framhaldsskólum
Í samræmi við samning milli mennta-
málaráðuneyta Danmerkur og Íslands
um sérstakan stuðning við dönsku-
kennslu á Íslandi er hér með auglýst eftir
aðstoðarkennara í dönsku til starfa í
framhaldsskólum landsins á skólaárinu
2001—2002.
Áætlað er að aðstoðarkennarinn vinni í
6—7 framhaldsskólum, bæði á höfuð-
borgarsvæðinu og á landsbyggðinni á
skólaárinu 2001—2002 og starfi 3—5 vikur
í hverjum skóla. Ekki er á þessu stigi ljóst
hverjir þeir framhaldsskólar verða.
Hlutverk aðstoðarkennarans er að þjálfa
nemendur í munnlegri dönsku í sam-
starfi við starfandi kennara.
Leitað er eftir einstaklingi, sem hefur
dönsku að móðurmáli og sem hefur fag-
legan bakgrunn sem tungumálakennari
eða sem stundar nám sem slíkur.
Danska menntamálaráðuneytið greiðir
laun aðstoðarkennarans í samræmi við
fyrrnefndan samning milli menntamála-
ráðuneytanna.
Frekari upplýsingar veitir Michael Dal,
lektor í dönsku við Kennaraháskóla
Íslands, sími 563 3821 og netfang:
michael@khi.is .
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk. og
skal umsóknum skilað skriflega til
Danska sendiráðsins, Hverfisgötu 29,
101 Reykjavík, merkt: „Sprogassistent“.
Vegna aukinna umsvifa að undan-
förnu þurfum við hjá Fast-
eignaþingi að ráða til okkar vana
sölumenn. Um er að ræða mjög
skemmtilegt og líflegt starf í góðu
og jákvæðu starfsumhverfi þar
sem áhersla er lögð á metnað og
árangur í starfi.
Nánari upplýsingar veitir Ísak í
síma 897 4868 eða 800 6000.
Fasteignaþing,
Kringlan 4—12, 5. hæð - stóri turn,
s. 800 6000, 585 0600.
Skíðalið Reykjavíkur
Skíðaþjálfari
Skíðalið Reykjavíkur óskar að ráða skíðaþjálf-
ara frá 15. des. 2001 fyrir unglinga frá 13 ára
aldri. Uppl. í síma 896 4672 eða 866 5427.