Morgunblaðið - 20.05.2001, Page 18
18 C SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Vilt þú verða sjúkraliði?
● Innritun á sjúkraliðabraut Fjölbrautaskólans
við Ármúla/Heilbrigðisskólans stendur nú yfir.
● Fjölbrautaskólinn við Ármúla/Heilbrigðis-
skólinn er kjarnaskóli í heilbrigðisgreinum.
● Sjúkraliðanám er 120 eininga nám. Meðal-
námstími á sjúkraliðabraut er 3 ár í skóla
(6 annir) auk 16 vikna launaðrar starfsþjálf-
unar. Námið skiptist í almennar bóklegar
greinar, sérgreinar brautar, verknám á stofn-
unum og starfsþjálfun.
● Sjúkraliðanám veitir lögverndað starfsheiti
skv. Reglugerð heilbrigðisráðuneytisins.
● Sjúkraliðanám er lánshæft hjá LÍN.
● Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunn-
skólaprófi. Umsækjendur sem lokið hafa
frekara námi fá það metið til styttingar á
náminu.
● Starfsvettvangur sjúkraliða er sjúkrahús,
heilsugæslustöðvar, öldrunarheimili og
aðrar heilbrigðisstofnanir.
● Sjúkraliðar eru eftirsóttur starfskraftur og
atvinnuöryggi og fjölbreytni í starfi er mikið.
● Auðvelt er að byggja ofan á sjúkraliðanám
og ljúka stúdentsprófi, óski nemendur eftir
því.
● Í undirbúningi er að koma á fót árs fram-
haldsnámi fyrir starfandi sjúkraliða, sem
veitir frekari starfsréttindi.
Umsóknum skal skila á skrifstofu skólans á um-
sóknareyðublöðum sem þar fást. Einnig er
hægt að prenta blaðið af heimasíðu skólans,
www.fa.is, undir Skólinn. Umsóknum skulu
fylgja vottorð um skólagöngu.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Hildur Ragn-
arsdóttir kennslustjóri eða skólayfirvöld.
Vélskóli Íslands
Hraðferð til 2. stigs
vélstjóranáms sem gefur
750 kW réttindi
Dagskóli - hægt er að ljúka náminu á tveim
önnum (1 vetri).
Kvöldskóli - hægt er að ljúka náminu á þrem
önnum (1,5 vetri)
Inntökuskilyrði: Eins árs siglingatími stað-
festur með sjóferðabók og umsækjandi sé
22 ára eða eldri.
Sveinar í málmiðnaðar- eða rafiðnagreinum
þurfa ekki fyrrnefndan siglingatíma og fá auk
þess ýmsa áfanga metna.
Kvöldnámið er háð því að næg þátttaka fáist.
Hraðferðin byggir á því að almennar greinar,
svo sem raungreinar og tungumál, eru felld
út og styttir það nám til 750 kW réttinda úr 83
einingum í 48 einingar.
Skriflegar umsóknir berist til Vélskóla Íslands
fyrir 10. júní næstkomandi.
Frekari upplýsingar í síma 551 9755, fax
552 3760 frá kl. 8.00—16.00 alla virka daga.
Netfang: vsi@ismennt.is, veffang: http://
www.velskoli.is og http://www.maskina.is
Póstfang: Vélskóli Íslands, Sjómannaskólanum
v/Háteigsveg, 105 Reykjavík.
Skólameistari.
Rakú-brennsla
Að brenna Rakú er
spennandi upplifun.
Stutt námskeið í júní tvö
kvöld og einn laugardagur.
Leirkrúsin,Hákotsvör 9,
Álftanesi, sími 564 0607,
www.leir.is
Grímugerð
Leiklist fyrir 7-11 ára
● Styrking sjálfsmyndar
● Ævintýraleg upplifun
● Skapandi samvinna með öðrum börnum
Leiklistarnámskeið
Í Reykjavík dagana 5-10 júní í Kramhúsinu v/
Skólavörðustíg, s. 551 5103.
Á Akureyri dagana 11-16 júní í Kompaníinu
v/Hafnarstræti, s. 462 2710.
Leiðbeinendur Þorsteinn Bachmann leikari og
Laufey Brá Jónsdóttir leikkona, s. 695 5323.
Frá Tónlistarskóla Kópavogs
Innritun forskólanemenda fyrir skólaárið 2001/
2002 fer fram á skrifstofu skólans, Tónlistarhúsi
Kópavogs, Hamraborg 6, dagana 21.—25. maí,
kl. 9.00—16.00.
Innrituð eru börn frá 6 ára aldri, sem ekki hafa
áður stundað forskólanám við Tónlistarskóla
Kópavogs.
Skólastjóri.
Sumarskólinn í FB
Kennt í júní.
Kennt frá kl. 17:30 til 22:10. Yfir 50 áfangar í
boði. Engin mætingarskylda.
Matshæft í öðrum framhaldsskólum.
Ýmis greiðslukjör.
Nám fyrir nemendur í 10. bekk.
— Símainnritun í síma 570 5619.
— Netinnritun á www.fb.is .
— Innritað í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
28., 30. og 31. maí, 1., 2. og 5. júní.
— Nánari upplýsingar í símum 570 5619 og
862 7610.
Sumarnámskeið
11. júní-15. júní
Kennt verður daglega í eina viku.
Kl. 9:00-14:00 Fullorðinsdeildir:
● Teiknun og pastel● Málun● Vatnslitamálun
Kl.16:00-19:00 Fullorðinsdeildir:
● Teiknun og pastel ● Málun ● Vatnslitamálun
● Photoshop og vefsíðugerð.
Kl.10:00-12:15 Börn 6-10 ára
Kl.13:00-15:15 Unglingar 12-15 ára
Hugmyndavinna og verkefnaöflun fer fram
utandyra þegar veður leyfir. Innritun virka daga
kl.15.00—18.00 á skrifstofu skólans, Fannborg
6, 3. hæð eða í símum 564 1134 eða 863 3934.
Netfang: myndlist@mmedia.is
Vefsíða: www.mmedia.is/myndlist
Vilt þú verða lyfjatæknir?
● Innritun á lyfjatæknabraut Fjölbrautaskólans
við Ármúla/Heilbrigðisskólans stendur nú yfir.
● Fjölbrautaskólinn við Ármúla/Heilbrigðis-
skólinn er kjarnaskóli í heilbrigðisgreinum.
● Lyfjatæknabraut er 143 eininga nám sem
skiptist í 2ja ára aðfaranám (almennar náms-
greinar) og 2ja ára nám í sérgreinum braut-
arinnar. Til viðbótar kemur svo 10 mánaða
starfsþjálfun í apótekum sem fer milli náms-
ára og að loknu námi. Sérgreinar lyfjatækna-
brautar er einungis hægt að taka í Heilbrigð-
isskólanum.
● Nám í lyfjatækni veitir lögverndað starfsheiti
skv. Reglugerð heilbrigðisráðuneytisins.
Lyfjatæknar vinna fjölbreytt störf í apótek-
um, lyfjaheildsölum, lyfjaframleiðslufyrir-
tækjum og við aðrar stofnanir. Starfsvett-
vangurinn er fjölbreyttur og líflegur og
starfsöryggi mikið.
● Nám í lyfjatækni er lánshæft hjá LÍN.
● Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunnskóla-
prófi. Umsækjendur sem lokið hafa stúdents-
prófi fara beint yfir sérgreinar brautarinnar.
Umsóknum skal skila á skrifstofur skólans á
umsóknareyðublöðum sem þar fást. Einnig
er hægt að prenta blaðið af heimasíðu skólans,
www.fa.is, undir Skólinn. Umsókn skulu fylgja
vottorð um fyrri skólagöngu. Nánari upplýsing-
ar veitir Bryndís Þóra Þórsdóttir kennslustjóri
eða skólayfirvöld í síma 581 4022.
Skólameistari.
Vilt þú verða læknaritari ?
● Innritun á læknaritarabraut Fjölbrautaskólans
við Ármúla/Heilbrigðisskólans, stendur nú
yfir.
● Fjölbrautaskólinn við Ármúla/Heilbrigðis-
skólinn er kjarnaskóli í heilbrigðisgreinum
og þar eru nú fimm námsbrautir á heilsu-
gæslusviði og mun fjölga á næstu misser-
um.
● Nám í læknaritun skiptist í 3 bóklegar annir
og 6 mánaða starfsþjálfun á heilbrigðisstofn-
un og þiggja nemendur þá laun fyrir. Í bók-
lega hlutanum er einkum lögð áhersla á heil-
brigðisgreinar, læknaritun, latínu, ensku,
tölvufræði og upplýsingatækni.
● Nám í læknaritun veitir lögvernduð réttindi
til starfsheitisins læknaritari skv. reglugerð
heilbrigðisráðuneytisins. Starfsvettvangur
læknaritara eru sjúkrahús, heilsugæslustöðv-
ar, læknastofur og vísindastofnanir þar sem
þeir eru mikilvægur hlekkur í keðju heilbrigð-
isstarfsfólks.
● Umsækjendur skulu hafa stúdentspróf eða
sambærilega menntun eða reynslu af fjöl-
breyttum störfum. Nauðsynlegt er að um-
sækjendur hafi góða kunnáttu í íslensku og
ensku og séu tölvulæsir.
● Nánari upplýsingar gefa Guðrún Narfadóttir
kennslustjóri og skólayfirvöld í s. 581 4022.
Upplýsingar um nám í skólanum eru á
heimasíðu hans, www.fa.is .
Skólameistari.