Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 1
162. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 19. JÚLÍ 2001 HOSNI Mubarak, forseti Egyptalands, sagðist í gær ekki sjá neina von til þess að deila Ísraela og Palestínumanna myndi leysast á meðan Ariel Sharon sæti í embætti forsætisráðherra Ísraels. „Það er engin von til þess að málin leysist meðan Sharon situr við völd. Hann skilur bara morð, árásir og stríð,“ sagði Mubarak í viðtali við kín- verskan blaðamann að því er fram kom hjá egypsku fréttastofunni MENA. Mubarak sagði enn fremur að viðræður við rík- isstjórn Sharons væru „gagnslausar“ og kenndi henni um að ekki hefði tekist að koma á ró á her- numdu svæðunum. Þetta eru hörðustu og svartsýnustu ummæli sem forsetinn hefur látið frá sér fara frá því að Sharon var kjörinn í embætti forsætisráðherra Ísraels í febrúar. Jafnframt lét Mubarak þá skoðun sína í ljós að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, hefði „lagt mikið á sig til að draga úr ofbeldinu“ en hann gæti ekki haft fulla stjórn á því. Arafat átti fund með Mubarak í Kaíró um sl. helgi og var einnig viðstaddur fund utanríkisráð- herra arabaríkjanna sem lauk þar í gær. Ísraelar harma ummæli forsetans Egyptar hafa haft efasemdir um Sharon frá upphafi en hafa tekið þá afstöðu að bíða og sjá þar til nú. Mubarak lætur ummælin falla nú þeg- ar ofbeldishrinan, sem staðið hefur í 10 mánuði, fer sívaxandi á Vesturbakkanum og Gaza-svæð- inu. Að auki er vopnahléið sem samið var um fyr- ir tilstilli Bandaríkjamanna hinn 13. júní sl. í and- arslitrunum. Ísraelska ríkisstjórnin sagðist í gær harma mjög ummæli Mubaraks Egyptalandsforseta. „Ef hann hefur í alvöru látið þessi orð falla þá er það svo sannarlega ekki til að bæta andrúms- loftið,“ sagði Avi Pazner, talsmaður stjórnarinn- ar. Ísraelsmenn sendu fjölda skriðdreka á her- numdu svæðin í gær og efldu mjög herlið sitt. Þessar aðgerðir segja þeir að séu aðvörun til Pal- estínumanna en staðhæfa að þeir ætli sér samt sem áður ekki að ráðast inn á svæði þeirra. Arafat sagði ekkert annað að ráðherrafundi loknum en að hann hefði verið mjög mikilvægur. Nefnd utanríkisráðherra arabaríkjanna var mynduð til að fylgja eftir þeirri ákvörðun ríkjanna að styðja Palestínumenn í deilu þeirra við Ísraela. Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, um ástandið í Mið-Austurlöndum Friður óhugsandi með- an Sharon er við völd Kaíró. AFP. RÁÐHERRAR utanríkismála í átta helstu iðnríkjum heims, G-8- löndunum svonefndu, komu saman í Róm í gær til tveggja daga við- ræðna til að undirbúa leiðtogafund ríkjanna í Genúa á föstudag. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og rússneskur starfsbróðir hans, Ígor Ívanov, not- uðu tækifærið í gærmorgun til að fjalla um samskipti ríkjanna. Enn- fremur reyndu ráðherrar aðildar- ríkja Evrópusambandsins að fá stjórnvöld í Japan til að hvika ekki frá stuðningi við Kyoto-bókunina um varnir gegn loftslagsbreyting- um sem Bandaríkjamenn eru and- vígir. Gert er ráð fyrir að allt að 100.000 manns úr röðum andstæð- inga ýmiss konar mála, þar á meðal hnattvæðingar og mengunar, komi til Genúa og noti tækifærið til að mótmæla. Schengen tímabundið felldur úr gildi Aðeins ein járnbrautarstöð er opin í Genúa og kom fyrsta lestin með um 700 mótmælendur frá Róm í gær. Einnig voru þar 25 Bangla- desh-menn sem ætla að taka þátt í göngu innflytjenda sem krefjast aukinna réttinda. Sumir mótmæl- endur hafa þegar smíðað sér skildi, aðrir hafa troðið bylgjupappa undir fötin til að verjast hnjaski í átökum. Ítölsk yfirvöld hafa meinað nær 700 útlendingum að koma til lands- ins og voru ákvæði Schengen- samningsins felld tímabundið úr gildi vegna fundarins. Lögreglan hefur lagt margvíslegar hömlur á daglegt líf borgarbúa, sorptunnur hafa verið fjarlægðar, dómshús hafa lokað. McDonalds-skyndibita- staðir eru lokaðir og verslunareig- endur hafa sumir þegar neglt planka fyrir glugga sína, minnugir átakanna undanfarna mánuði á al- þjóðlegum leiðtogafundum. Fáir voru á götum úti í gær, kaffihús voru mannlaus. Er fundurinn hefst verða um 20.000 lögreglumenn að störfum. Umferð einkabíla er bönnuð á af- mörkuðu svæði milli hafnarinnar og Palazzo Ducale, hallarinnar þar sem fundurinn verður haldinn. Allir verða að sýna sérstök skilríki til að fara um svæðið sem girt er stál- rimlum. Í höfninni eru varðbátar á sveimi og við flugvöllinn eru loft- varnaflaugar. Mikill viðbúnaður í Genúa Róm, Genúa. AP, AFP. EGYPSKIR karlmenn, sakaðir um að hafa brotið egypsk lög er varða klám og siðgæði, hylja andlit sín er þeir ganga í hópi í átt að dómshús- inu í Kaíró í gær. Alls voru 52 karl- menn handteknir í borginni 11. maí sl. fyrir að halda samkvæmi fyrir samkynhneigða. Málið hefur vakið mikla hneykslan meðal strangtrú- aðra múslima í Egyptalandi en al- þjóðleg mannréttindasamtök hafa fordæmt handtöku mannanna. AP Handteknir fyrir samkynhneigð VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss- lands, viðurkenndi á blaðamanna- fundi í Kreml í gær að hafa staðið rangt að málum þegar kjarnorkukaf- báturinn Kúrsk sökk fyrir nærri ári. Sagði hann að heppilegra hefði verið ef hann hefði snúið þegar í stað til Moskvu þegar fréttir bárust af slys- inu, en hann var í sumarfríi þegar það átti sér stað. „Frá sjónarhorni fjölmiðla hefði það litið betur út, en hefði ekki breytt neinu,“ sagði Pútín. Hann sagði að ekkert hefði getað bjargað lífum þeirra sem í bátnum voru. Þá sagði forsetinn að Rússar myndu ekki taka þátt í samræmdum viðbrögðum við þeim breytingum sem fylgja myndu fyrirhugaðri eld- flaugavarnaráætlun Bandaríkja- manna með Kína eða nokkru öðru ríki. Pútín sagði jafnframt að hann liti ekki á Atlantshafsbandalagið (NATO) sem óvin Rússlands, en að hann ætti erfitt með að skilja hvers vegna Vesturlönd vildu stækka bandalagið til austurs. „Við erum fylgjandi því að múrar sem aðskilja þjóðir séu brotnir niður, en það verð- ur að vera ljóst hvað í því felst.“ Pút- ín sagðist fylgjandi því að Evrópa yrði eitt varnarsvæði, annaðhvort með því að Rússland fengi inngöngu í NATO eða að NATO yrði lagt niður og annað svipað bandalag sett á fót sem Rússar ættu þá hlut í. AP Vladimír Pútín Rússlandsforseti á blaðamannafundinum í Moskvu í gær. Alls sóttu um 500 blaðamenn fundinn. Pútín við- urkennir mistök Moskva. AP, AFP. ÓVÍST er hvort botninum er náð í efnahagserfiðleikunum í Bandaríkj- unum, samdráttur í öðrum löndum gæti tafið fyrir bata, að sögn Alans Greenspans, seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Hann svaraði spurn- ingum þingnefndar í gær í kjölfar þess að bankinn sendi frá sér yfirlýs- ingu um horfurnar í efnahagsmálum. Greenspan var spurður hvort nú sæi fyrir endann á stöðnunarskeið- inu sem staðið hefur í eitt ár og svar- aði hann því til að erfiðleikunum væri ekki lokið „en augljóst er að hraðinn á niðursveiflunni hefur minnkað“. Hann sagði að eitt af því sem hefði gert kleift að lækka vexti jafn mikið og raun hefur orðið á árinu væri að tekist hefði að halda verðbólgunni í skefjum og gaf í skyn að ef til vill yrði að lækka þá enn frekar. Lét hann í ljós von um að lægri vextir ásamt lækkandi olíuverði og væntanlegri endurgreiðslu tekjuskatts til al- mennings myndu auka neysluna og ýta undir hagvöxt á næstu mánuðum. Spá 1–2% hagvexti Greenspan sagðist aðspurður ekki óttast að mikill efnahagsvandi í Arg- entínu myndi hafa umtalsverð áhrif í Bandaríkjunum. En óvissan um efnahagsframvinduna væri mikil. Hins vegar hefði efnahagur lands- manna lagað sig að breyttum að- stæðum. Seðlabankinn sendir frá sér skýrslu af þessu tagi tvisvar á ári. Hann segir að tímabili slakrar frammistöðu efnahagsins sé ekki lok- ið enn þá og ekki hægt að útiloka að grípa þurfi til frekari aðgerða. Bank- inn spáir 1–2% hagvexti á árinu en 3– 3,5% á næsta ári. Alan Greenspan Vextir enn lækkaðir? Washington. AP, AFP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.