Morgunblaðið - 19.07.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÉTTIDÚKURINN sem Árni
Johnsen alþingismaður keypti fyrir
hönd byggingarnefndar Þjóðleik-
hússins er í geymslu á vegum Þjóð-
leikhússkjallarans uppi í Gufunesi,
en eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hefur umræddur
dúkur verið í geymslu á vegum
Þjóðleikhússins og var það haft
bæði eftir Árna Johnsen og Rafni
Gestssyni húsverði leikhússins.
Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóri fullyrti hins vegar í fréttum
Bylgjunnar og Ríkisútvarpsins í
gærmorgun og í hádeginu að þetta
væri ekki rétt og byggði það á
samtölum sínum við húsvörðinn.
Dúkinn keypti Árni í byrjun mán-
aðarins og átti að nota hann í við-
gerð á austurhlið leikhússins, en
lekið hefur af bílaplani inn á smíða-
verkstæði leikhússins. Eftir að
dúkurinn var keyptur var ákveðið
að fresta framkvæmdum og liggur
ekki fyrir hvenær þær hefjast.
Árni sótti dúkinn sjálfur og sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
fór hann með hann upp í Þjóðleik-
hús. Þar lá hann í nokkra daga.
Þegar forráðamenn veitingarekstr-
ar Þjóðleikhússkjallarans voru að
rýma dót úr kjallaranum fór dúk-
urinn með og er nú í geymslu sem
Þjóðleikhússkjallarinn er með við
Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi.
Vísað á bug af
þjóðleikhússtjóra
Í hádegisfréttum Bylgjunnar í
gær sagði m.a.: „Stefán Baldursson
þjóðleikhússtjóri vísar því á bug að
þéttidúkur sem Árni Johnsen al-
þingismaður skrifaði hjá Þjóðleik-
húsinu í versluninni Garðheimum
sé í vörslu hússins eins og segir í
frétt Morgunblaðsins í dag.
Stefán segir að frétt Morgun-
blaðsins í dag um málið sé því ekki
á rökum reist. Blaðið hafði eftir
Rafni Gestssyni, húsverði Þjóðleik-
hússins, að þéttidúkurinn væri í
geymslu á vegum leikhússins. Stef-
án segir að eina vitneskja húsvarð-
arins um þetta mál séu orð Árna
Johnsen um að þar sé dúkinn að
finna. Hann hafi rætt þetta mál við
húsvörðinn og fengið staðfest að
dúkurinn sé ekki í húsinu eða
neinni geymslu á þess vegum.
Rafn húsvörður Gestsson vildi
ekki ræða við fréttastofu um þetta
mál nú rétt fyrir fréttir. Stefán
Baldursson þjóðleikhússtjóri segist
hins vegar hafa rætt ítrekað við
Rafn í morgun og fengið það stað-
fest að dúkurinn væri ekki í
geymslu á vegum Þjóðleikhússins.
Morgunblaðið segir hins vegar að
rétt hafi verið haft eftir í frétt
blaðsins í dag.“
Hélt því fram að
fréttin væri röng
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps-
ins hélt Þjóðleikhússtjóri því einn-
ig fram að frétt Morgunblaðsins
hefði verið röng.
Í henni sagði: „Tjarnardúkur
sem Árni Johnsen keypti í nafni
byggingarnefndar Þjóðleikhússins
er ekki geymdur í Þjóðleikhúsinu
eða í geymslu á þess vegum. Árni
segir svo í Morgunblaðinu í morg-
un, Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóri segir að það sé rangt.
Árni keypti 200 fermetra af
tjarnardúk í Garðheimum í byrjun
júlí fyrir 173 þúsund krónur.
Bylgjan greindi frá þessu í gær.
Gísli Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Garðheima, segir að búið sé
að senda reikning fyrir dúknum til
Framkvæmdasýslunnar en ekki sé
búið að greiða hann. Hann segir
dúkinn meðal annars notaðan til að
koma í veg fyrir leka á húsum og
til að búa til tjarnir í görðum. Í
Morgunblaðinu í morgun segir
Árni Johnsen að dúkurinn sé í
Þjóðleikhúsinu eða í geymslu í húsi
úti í bæ og segist telja að hús-
vörður leikhússins geti bent á hvar
hann sé. Haft er eftir húsverðinum
að dúkurinn sé í geymslu á vegum
leikhússins. Stefán Baldursson,
þjóðleikhússtjóri sagði við frétta-
stofu í morgun að dúkurinn væri
ekki í vörslu leikhússins og að hús-
vörðurinn hafi aðeins haft orð Árna
Johnsens fyrir því að dúkurinn
væri í geymslu á vegum leikhúss-
ins. Árni Johnsen viðurkenndi í
fyrrdag að hafa sagt ósatt um það
hvar óðalsteinar sem hann keypti
fyrir leikhúsið væru geymdir en
hann hafði sagt að þeir væru
geymdir á brettum úti í bæ en þá
var búið að gera úr þeim stétt við
heimili hans. Árni hefur nú sam-
kvæmt þessu í annað sinn á örfáum
dögum gefið rangar upplýsingar
um það hvar byggingarefni er nið-
urkomið sem hann hefur keypt í
nafni leikhússins.“
„Þetta dúksmál er
greinilega mjög flókið“
Stefán Baldursson, Þjóðleikhús-
stjóri, óskaði eftir því við Morg-
unblaðið síðdegis í gær að koma
eftirfarandi á framfæri: „Þetta
dúksmál er greinilega mjög flókið
og þetta mál verður skoðað ofan í
kjölinn í úttekt þeirri sem nú fer
fram á vegum Ríkisendurskoðunar.
Að öðru leyti mun ég ekki ræða
frekar um innkaup Árna Johnsen í
fjölmiðlum meðan úttektin stendur
yfir.“
Þéttidúkur sem Árni Johnsen keypti fyrir hönd byggingarnefndar Þjóðleikhússins
Er í geymslu Þjóðleik-
hússkjallarans í Gufunesi
Morgunblaðið/Ásdís
Þéttidúkurinn í geymslu Þjóðleikhússkjallarans í Gufunesi í gær.
LJÓSLEIÐARINN fór í sundur
við Ásabraut á Akranesi um klukk-
an hálf fjögur í gærdag þar sem
verktaki var við vinnu. Var vinnu
við að koma ljósleiðaranum í lag
lokið um klukkan sjö um kvöldið.
Í tilkynningu frá Símanum segir,
að af þeim sökum hafi orðið trufl-
anir á farsímakerfum og gagna-
flutningum á Vesturlandi og einnig
á Vestfjörðum og Norðurlandi
vestra um tíma. Auk þess voru
truflanir á sjónvarps- og útvarps-
sendingum á sama svæði. Þá var
erfitt með símasamband við Akra-
nes og Borgarnes.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi gerði þetta það að verkum að
þeir náðu ekki sambandi við lög-
reglubílinn sem var úti. Ákveðin
vandamál hafi skapast en þó ekkert
stórvægileg.
Morgunblaðið/Billi
Unnið að viðgerð ljósleiðarans sem fór í sundur á Akranesi í gær.
Ljósleiðarinn í sund-
ur á Akranesi í gær
ÖKUMAÐUR rútunnar, sem fór út
af brúnni yfir Hólsselskíl á Hóls-
fjöllum hinn 16. júlí í fyrra, var í
gær sýknaður af ákæru um mann-
dráp af gáleysi og brot á umferð-
arlögum. Ríkissaksóknari sakaði
manninn um að hafa ekið of hratt
og án nægilegrar aðgæslu inn á
brúna með þeim afleiðingum að rút-
an fór út af brúnni og valt ofan í
ána. Einn farþegi í rútunni lést og
11 slösuðust.
Héraðsdómur Vesturlands komst
að þeirri niðurstöðu að slysið hefði
að langmestu leyti orðið vegna að-
stæðna sem ökumaðurinn gat ekki
gert sér grein fyrir fyrirfram. Því
væri ósannað að hann hefði ekið gá-
leysislega inn á brúna. Dómurinn
féllst á það með ökumanninum að
brúin sýndist breiðari en hún er í
raun en stöplar brúarinnar og
handrið hallast út að ofan.
Í dómnum segir að brúin sé
óvenjulega mjó af einbreiðri brú að
vera. Á Norðurlandi eystra eru 158
brýr. Níu þeirra eru 2,6 metrar á
breidd eins og brúin yfir Hólsselskíl
og eru sumar þeirra eru á afvegum.
Þá segir dómurinn að telja verði
líklegt, af skráningarblöðum ökurit-
ans, að hraði rútunnar, þegar hún
kom inn á brúna hafi verið á bilinu
43–54 km/klst. Það sé þó ekki
öruggt. Auðvelt sé fyrir mann sem
þekkir brúna að átta sig á því að
slíkur hraði sé of mikill, en það liggi
ekki í augum uppi fyrir mann sem
er að fara veginn í fyrsta sinn líkt
og ökumaðurinn var að gera í um-
rætt sinn.
Ekki var talið útilokað að sjón-
skerðing ökumannsins á vinstra
auga hefði átt nokkurn þátt í slys-
inu. Í niðurstöðu dómsins segir að
ekki hafi verið skilyrði til þess að
veita honum réttindi til hópbílaakst-
urs árið 2000 en þau réttindi voru
afturkölluð í fyrra. Ökumanninum
er hins vegar ekki gefið þetta að
sök enda hafi hann að öllu leyti lög-
lega og heiðarlega staðið að um-
sókn um ökuréttindin. Hann hafði
búið við þessa sjónskerðingu frá
unga aldri en hafði ekki gert sér
grein fyrir því. Í greinargerð augn-
læknir er slíkt sagt algengt.
Málsvarnarlaun verjanda manns-
ins, Tryggva Bjarnasonar hdl.,
munu greiðast úr ríkissjóði.
Finnur T. Hjörleifsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn en með-
dómendur hans voru Gísli V. Hall-
dórsson bifvélavirkjameistari og
Steinn Hermann Sigurðsson, leigu-
bílsstjóri og bifreiðasmiður.
Brúin yfir Hólsselskíl blekkti augað
Ökumaður rút-
unnar sýknaður
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra segir það skýrt að Fram-
kvæmdasýsla ríkisins greiði reikn-
inga vegna byggingaframkvæmda
við Þjóðleikhúsið. Hún geri það án
þess að leita blessunar mennta-
málaráðuneytisins. Þegar álitamál
rísa sé ekki óeðlilegt, að menn leiti
álits annarra, áður en þeir taka
ákvörðun.
„Ég er sífellt að gera það í mínu
starfi, en ber að sjálfsögðu ábyrgð
á þeim ákvörðunum, sem ég tek en
ekki sá, sem gefur mér álit sitt,“
sagði menntamálaráðherra er
Morgunblaðið leitaði viðbragða
hans vegna fréttar í DV í gær þar
sem Óskar Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Framkvæmdasýslu
ríkisins, vísar á embættismann í
menntamálaráðuneytinu, sem hafi
lagt blessun sína yfir reikninga sem
Árni Johnsen undirritaði í nafni
byggingarnefndar Þjóðleikhúss. Í
DV sagðist Óskar hafa upplýst Ör-
lyg Geirsson, skrifstofustjóra
menntamálaráðuneytisins, um
reikningana og gert athugasemdir
vegna þeirra.
Menntamálaráðherra segir
Framkvæmdasýslu ríkisins ekki
vera að skjóta sér undan ábyrgð á
ákvörðunum sínum um greiðslu
reikninga vegna byggingafram-
kvæmda við Þjóðleikhúsið með því
að bera álitamál undir embættis-
menn ráðuneytisins og embættis-
mennirnir ekki heldur að taka
ákvörðun fyrir Framkvæmdasýslu
ríkisins með því að lýsa áliti sínu.
Menntamálaráð-
herra um Fram-
kvæmdasýslu ríkisins
Ber ábyrgð
á ákvörð-
unum þótt
leitað sé álits
ráðuneytis