Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 11 B JÖRN Bjarnason menntamálaráðherra óskaði eftir greinar- gerðinni með bréfi til byggingarnefndar Þjóðleikhússins 31. júlí 1997. Í bréf- inu kemur fram að í ráðuneytinu sé nú verið að meta fjárþörf fram- kvæmda sem kostaðar eru af End- urbótasjóði menningarbygginga. „Ráðuneytið telur af því tilefni nauðsynlegt að óska eftir nýrri áætlun frá byggingarnefnd Þjóð- leikhússins um væntanlegar fram- kvæmdir þar á næstu árum og kostnað við þær. Óskar ráðuneytið eftir því að Framkvæmdasýsla rík- isins komi að þessari áætlanagerð þannig að gætt sé krafna um opin- berar framkvæmdir. Með hliðsjón af slíkri framkvæmdaáætlun og kostn- aðarmati á grundvelli hennar mun ráðuneytið beita sér fyrir fjárveit- ingum til endurbóta á Þjóðleikhús- inu,“ sagði ennfremur í erindisbréfi ráðherra til formanns byggingar- nefndarinnar, Árna Johnsen alþing- ismanns. Aðrir í nefndinni voru þeir Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri og Steindór Guðmundsson, þv. for- stöðumaður Framkvæmdasýslu rík- isins. Skipað var að nýju í nefndina með formlegu erindisbréfi mennta- málaráðherra hinn 13. febrúar 1996 og var hlutverk nefndarinnar þá þannig skilgreint: „meðal annars að skipuleggja framhald þess upp- byggingarstarfs sem staðið hefur yfir um skeið, gera áætlanir um kostnað og tillögur um leiðir og verklag.“ Tækniþróun kollvarpað stjórnbúnaði leikhúsa Það var Verkfræðistofa Gunnars Torfasonar ehf. sem vann greinar- gerðina fyrir byggingarnefnd Þjóð- leikhússins. Fylgiskjöl með henni voru fjögur; kostnaðaráætlun, til- laga að dreifingu útgjalda á sex ára tímabili, kostnaðaráætlun miðuð við verðlag í mars 1999, ljósmyndir alls sex blöð af rakaskemmdum og skemmdum utanhúss og loks grunn- myndir af helstu framkvæmda- áföngum. Í greinargerðinni er byggingar- saga Þjóðleikhússins rifjuð upp og bent á á að árið 2000 fagni húsið 70 ára afmæli og leikhúsið hálfrar ald- ar starfsafmæli. Á þeim árum hafi hönnun leikhúsa þróast verulega og öll tækni gjörbreyst. Nægi þar að nefna áhrif tölvuvæðingar sem koll- varpað hafi öllum stjórnbúnaði leik- húsa. Í upprifjuninni kemur fram að allan þennan tíma, eða þar til 1. áfangi endurreisnar hússins fór fram á árunum 1990 til 1991, hafi eðlilegt viðhald og endurnýjun verið látin sitja á hakanum. Eftir umfangsmiklar breytingar og viðgerðir á húsinu að utan og inn- an var Þjóðleikhúsið opnað að nýju með hátíðarsýningu 21. mars 1991. Í greinargerð byggingarnefndar kemur hins vegar fram að enn sé fjölmörgu ólökið. Þannig sé enn eft- ir að ljúka frágangi á gestasvæðum á 1. hæð, t.d. niðurfellingu lofta á göngum, uppsetningu lyftu fyrir hreyfihamlaða og byggingu tækni- rýmis fyrir framtíðarbúnað loft- ræstikerfa hússins svo aðeins fátt eitt sé nefnt. Þá segir að til viðbótar þessum endurbótum hafi á síðustu árum tekist að þoka áfram nokkrum úr- bótum í turnbyggingu leikhússins, þrátt fyrir lítið fjárráð byggingar- nefndar. Sé þar um að ræða fimm afmarkaða verkþætti, aðstöðu starfsfólks, stækkun saumastofu, andlitslyfting ganga og stigahúss, endurbætur lagna og endurnýjun lyftu. Aukinheldur kemur fram að frá- rennslislagnir hússins hafi verið endurnýjaðar og styrktar sumarið 1996, þar sem liggja frá húsinu í sundinu milli nýja Hæstaréttar- hússins og Þjóðleikhússins og allar götur norður fyrir gamla og undir fyrra hús Hæstaréttar. Þessi fram- kvæmd hafi verið ófyrirséð, en kom- ið til byggingar húss Hæstaréttar. Í framhaldinu hafi sundið frá Hverf- isgötu að Lindargötu verið hellu- lagt, að hluta til í samvinnu við Hæstaréttarhúsið. Áætlun um framkvæmdir á sex ára tímabili Í framkvæmdaáætlun greinar- gerðarinnar er gert ráð fyrir að framkvæmdir taki til sex ára tíma- bils og að þær verði unnar í sam- fellu. Þeim er lýst með eftirfarandi hætti: „Fyrsta árið taki eingöngu til undirbúningsvinnu eins og áætlana- gerðar og þarfagreiningar, frumat- hugana og tilrauna vegna utanhúss- viðgerða, auk þess sem unnið verði að brunavarnarþáttum samkvæmt áður gerðri áætlun. Samningar verði gerðir við ráðgjafa og hönnun hafin. Næstu fjögur ár verði hin raun- verulegu framkvæmdaár og er reiknað með að þörf sé á árlegri fjárveitingu að upphæð 304 milljónir kr. að meðaltali. Á öðru ári er áformað að ljúka við utanhússviðgerðir og byggja tækja- klefa í jörðu, án búnaðar en með til- heyrandi lóðargerð. Á þriðja ári er áformað að kaupa, setja upp og tengja tækjabúnað í tækjaklefa og kemst þar með öryggi á rekstur loftræsti- og hitakerfa hússins. Þá verði keypt lyfta sem tryggi aðkomu hreyfihamlaðra og hún sett upp með tilheyrandi múr- broti og byggingu nýrra snyrtiher- bergja karla í Leikhússkjallara, en núverandi snyrtiherbergi eyðileggj- ast með tilkomu lyftunnar. Fullnað- arfrágangur fari fram á gestasvæð- um 1. hæðar. Á fjórða og fimmta ári er áformað að vinna að og ljúka endurbótum og breytingum í Leikhúskjallara og turnbyggingu. Sundurliðun og skipting þeirra framkvæmda í áfanga hefur ekki verið gerð, en reiknað er með að fyrra árið verði fjárfrekara vegna tækjakaupa. Tek- ið skal fram að engin hönnun liggur fyrir á endurnýjum hljóðkerfis, þannig að áætlaður kostnaður vegna þess er óviss þegar þetta er ritað. Sjötta og síðasta árið verði lokið við endurnýjun brunavarnakerfis í turnálmu og er það í samræmi við þegar gerðar áætlanir.“ „Ekki tókst vel til um stjórnun samkvæmt skipuritinu“ Í greinargerð er vikið að ráðgjöf- um Þjóðleikhússins og rifjað upp skipurit það sem gilti við byggingu hússins og þá sem komu að vinnu arkitektsins, Guðjóns Samúelssonar húsameistara ríkisins. Þá er greint frá þeim sem komu að endurbótum á árunum 1988 til 1991 og rifjuð upp saga byggingar- nefndarinnar og sýnt skipurit í sam- ræmi við lög um skipan opinberra framkvæmda. Síðan segir: „Hins vegar tókst ekki vel til um stjórnun samkvæmt skipuritinu og kom þar margt til. Aðstæður í húsinu voru að hluta til illa kannaðar, áður en hönnun hófst. Þetta varð til þess að hönnun var í raun skammt á veg komin þegar verkið var boðið út og varð það til þess að það samningsform sem fyrir valinu varð, reyndist ónothæft. Æf- ingaþörf Þjóðleikhússins á lokatíma framkvæmda hafði verið vanmetin. Áfangaskipti, þ.e. mörk 1. áfanga, voru illa skilgreind og loks má geta þess að byggingarnefnd var í stöð- ugri varnarstöðu vegna fjármála og rangra kostnaðaráætlana.“ Í niðurlagi greinargerðarinnar er bent á að sumarfrí leikhússins sé að jafnaði aðeins tveir mánuðir. Þar sem ekki fari saman hávaðasamar byggingarframkvæmdir og leik- starfsemi sé sýnt að framkvæmda- tími hvers árs verði mjög skammur. Það kalli aftur á mjög góða skipu- lagningu og vandaðan undirbúning framkvæmda hverju sinni til þess að framkvæmdatími gjörnýtist og truflun á starfsemi hússins verði sem minnst. Bent er á að nauðsyn- legt geti reynst að lengja sumarfrí leikhússins eitthvað vegna fram- kvæmdanna, eða loka húsinu tíma- bundið eins og gert var 1990. „Brýn þörf á utanhússviðgerðum hefur áður verið kynnt fyrir fjár- laganefnd Alþingis sem og nauðsyn- legar endurbætur innanhúss í suð- urálmu. Formleg afstaða bygging- arnefndar til nauðsynlegra endur- bóta og viðhalds í norðurálmu, bæði hvað varðar tæknibúnað og ýmsar almennar innréttingar, sem rekja má til hrörnunar og tæknilegrar úreldingar, hefur hins vegar ekki verið lögð fram,“ sagði í lokaorðum greinargerðarinnar og einnig að nauðsynlegt sé fyrir byggingar- nefnd að fá vitneskju um hvernig fjárveitingu til endurnýjunar verði háttað, til þess að hægt sé að koma í gang undirbúningsvinnu. Ekki framkvæmda- eða verkáætlun, segir ráðherra Engin ákvörðun hefur enn verið tekin af stjórnvöldum um endur- bætur á Þjóðleikhúsinu, enda þótt ríflega tvö ár séu frá því að grein- argerð byggingarnefndar Þjóðleik- hússins barst menntamálaráðherra í hendur. Áætlanir nefndarinnar um kostnað við endurbætur upp á 1.200 milljónir kr. hafa heldur ekki verið kynntar með formlegum hætti í rík- isstjórn eða í fjölmiðlum. Þegar Morgunblaðið leitaði til Björns Bjarnasonar menntamála- ráðherra vegna þessa máls, benti hann á að tilgangur greinargerðar- innar hefði verið sá að fá fram á ein- um stað yfirlit yfir það sem óunnið er talið við Þjóðleikhúsið og því megi segja að hún sé eins konar óskalisti sem ætlaður er til skoðunar í ráðuneytinu og Endurbótasjóði menningarbygginga, en eins og mál- um sé háttað sé gengið að því sem vísu að hann verði látinn standa undir kostnaði við þessar fram- kvæmdir. „Ég taldi nauðsynlegt að gerð yrði slík heildaráætlun til að þeir að- ilar, sem kæmu að því að ákveða framhaldið hefðu hana undir hönd- um. Þetta er að sjálfsögðu ekki verk- eða framkvæmdaáætlun enda hefur ekki verið ákveðið að ráðast í þessar miklu framkvæmdir, þar sem fjárveitingar skortir,“ segir Björn. Menntamálaráðherra bendir á að meginráðstöfunarfé Endurbóta- sjóðs menningarbygginga renni nú til Þjóðminjasafnsins. Þessi áætlun um Þjóðleikhúsið sé til undirbún- ings því að skipa stórframkvæmd- um þar í verkáfanga þegar menn sjái fram á að fjármagn fáist. Hafi verið fjallað um málið innan ráðu- neytisins og á vettvangi Endurbóta- sjóðs menningarbygginga en engar ákvarðanir teknar eða eða nokkrum veitt umboð til að vinna í samræmi við þessa skýrslu. Á hinn bóginn hafi áfram verið unnið að því að sinna brýnustu við- haldsverkefnum innan Þjóðleik- hússins í samræmi við fjárheimildir hverju sinni. „Ráðuneytið hefur hvorki kynnt það í ríkisstjórn né annars staðar, hve mikið fé skortir til að koma Þjóðleikhúsinu í viðunandi horf samkvæmt þessari skýrslu, en oft hefur því verið hreyft opinberlega að til þess þurfi að minnsta kosti einn milljarð króna. Ráðuneytið hef- ur lagt áherslu á að framkvæmdum við Þjóðminjasafnið sé lokið, áður en ráðist er í skipulegar stórfram- kvæmdir við Þjóðleikhúsið,“ segir Björn og bætir því við að rétt sé að geta þess að þriðja stofnunin, Þjóð- skjalasafnið, telji sig einnig eiga rétt á að fá verulegar fjárhæðir úr End- urbótasjóði menningarbygginga á næstu árum þar sem starfsaðstaða þess sé óviðunandi. Þar hafi menn einnig unnið að því að gera áætlanir um fjárþörf og verkáfanga. „Framlög úr Endurbótasjóði menningarbygginga hafa verið skert við afgreiðslu á fjárlögum undanfarin ár til að hafa hemil á þenslu í efnahagslífinu með sem minnstum opinberum framkvæmd- um,“ segir ráðherra ennfremur. Hann kveðst ekki hafa séð ástæðu til að óska eftir frekari áætlunum frá byggingarnefnd Þjóðleikhússins miðað við fjárveitingar. Áætlun um endurbætur við Þjóðleikhúsið í greinargerð byggingarnefndar árið 1999 Viðhald og endur- nýjun setið á hak- anum í fjörutíu ár Greinargerð byggingarnefndar Þjóðleikhússins, sem skilað var í apríl 1999, dregur upp heldur dökka mynd af ástandi hússins og í henni er gerð áætlun til sex ára um framkvæmdir upp á ríflega 1.200 milljónir kr. Björn Ingi Hrafnsson reifar efni skýrslunnar, sem ekki hefur áður verið gerð opinber, og ræðir við Björn Bjarnason menntamálaráðherra. Morgunblaðið/Billi                +,-" .'                    !""" " " " #""" $"""  """" """" " " %$&$' ("""   &""" &%&) %$! " " &)("" ! " " " #"""" '""" &"""""  " " " !&!!" " '''#"% !"" " " " " " """"  # "! "  "   #"  ! ** +         $%&$'(       #!" #"" &!" &"" '!" '"" !" "" !" ,%% ,"" ," ,"' ,"& ,"# -. bingi@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.