Morgunblaðið - 19.07.2001, Page 21

Morgunblaðið - 19.07.2001, Page 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 21 w w w .d es ig n. is © 20 01 Þú eyðir 1/3 hluta ævinnar í rúminu! Með því einu að snerta takka getur þú stillt rúmið í hvaða stellingu sem er. Með öðrum takka færð þú nudd sem þú getur stillt eftir eigin þörfum og látið þreytuna eftir eril dagsins líða úr þér. Með stillanlegu rúmunum frá Betra Bak er allt gert til þess að hjálpa þér að ná hámarks slökun og þannig dýpri og betri svefni. ...gerðu kröfur um heilsu & þægindi 20” THOMSON á betra verði í BT Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 Opið: Mán. - fös kl. 10-18 ÞAÐ ER ALLT BRJÁLAÐ GUÐRÚN Sigurðardóttir heldur sína fyrstu sýningu á leirverkum í Halldórskaffi í Brydebúð í Vík í Mýr- dal. Guðrún er náttúrubarn í list- sköpun og hefur farið ótroðnar slóðir í listsköpun sinni. Fyrir nokkrum ár- um kynntist hún leirnum og varð það ást við fyrstu sýn. Í stað þess að fara hefðbundnar leiðir í leirvinnslu hefur hún þróað eigin tækni í meðhöndlun á mold, sandi og vikri, sem hún blandar með eigin aðferð í leirinn. Þessi blanda sem hún notar gefur leirnum nýtt og framandi yfirbragð. Þá má sérstaklega geta söguskál- anna en í þær mótar hún jafnvel heil- an æviferil og hefur hver skál sína sögu að segja, en skálarnar er hægt að sérpanta. Flest verka Guðrúnar eru til sölu en þó eru nokkur í einka- eign. Sýningin stendur frá 15. júlí til 15. ágúst. Leirbrot í Vík í Mýrdal Fagridalur SIGRÚN Lilja Einarsdóttir hefur opnað aðra myndlistarsýningu sína í Halldórskaffi í Brydebúð í Vík í Mýrdal. Sigrún, sem er nánast hreinræktaður Mýrdælingur, fædd og uppalin í Þórisholti, sækir efni- við mynda sinna í þjóðsögur úr Mýrdalnum en hún hefur rann- sakað þær meðfram námi sínu í bókmennta- og þjóðfræði í Háskóla Íslands. Sigrún hefur reynt að fara ótroðnar slóðir í myndsköpun sinni en hún er að mestu leyti sjálf- menntuð, einungis sótt námskeið í málun. Myndirnar eru allar ol- íumálverk unnar síðastliðið ár. Sýn- ingin stendur til 15. ágúst og eru allar myndirnar til sölu. Huliðsöfl og kynjaverur Fagridalur Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sigrún Lilja ásamt dóttur sinni, Þorgerði Sól, við málverkið Kötlu. HALDIÐ var upp á 10 ára afmæli Hyrnunnar fyrir skemmstu. Kjör- orð afmælisdagsins voru ,,Komdu við og gerðu þér glaðan dag með okkur“. Gestum var boðið upp á pylsur frá Goða, Svala eða Fanta að drekka, auk íss frá Emmess. Einn- ig bauð Hyrnan fólki frítt í sund- laug Borgarness allan daginn og veittur var afmælisafsláttur á elds- neyti sem nam með safnkorti 4,80 kr./ltr. Hyrnan var formlega opnuð kl. 12 á hádegi 21. júní 1991, með því að starfsfólk gömlu sjoppunnar við Borgarbrautina gekk fylktu liði yf- ir götuna að Hyrnunni. Starfsfólkið hóf störf á nýjum stað eftir að Vil- hjálmur Jónsson, þáverandi for- stjóri Essó klippti á rauðan borða sem strengdur var á milli tveggja bensíndæla. Fyrstu áfyllinguna fékk velþekkt tveggja hæða rúta frá Sæmundi sérleyfishafa. Hefur staðið undir væntingum Í fyllingu tímans hefur komið á daginn að Hyrnan hefur staðið undir væntingum og vel það. Hyrn- an samanstendur af þremur deild- um, sjoppu og verslun, veitingum og bensínafgreiðslu. Samkvæmt Georg Hermannsyni rekstrar- stjóra getur fjöldi afgreiðslna á góðum degi farið upp í þrjú þúsund. Yfir sumartímann fer heildarfjöldi starfsmanna hátt í 70 manns og nýtur fjöldi skólafólks góðs af því. Hyrnan stendur þó á vissum tíma- mótum vegna tilkomu Hyrnutorgs verslunarmiðstöðvar á næstu lóð. Enn sem komið er hefur ekki þó dregið úr aðsókn að Hyrnunni og er Georg bjartsýnn á framtíðina. Hyrnan orðin 10 ára Borgarnes Nærir og mýkir NÆRINGAROLÍA ♦ ♦ ♦ Til að auglýsa á þessari síðu hafðu samband við okkur í síma 569 1111 eða sendu okkur tölvupóst á augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.