Morgunblaðið - 19.07.2001, Page 24

Morgunblaðið - 19.07.2001, Page 24
NEYTENDUR 24 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ESSÓ-stöðvarnar Gildir til 31. júlí nú kr. áður kr. mælie. Göteborg Ballerina, 180 g 115 135 640 kg Maarud ostapopp, 100 g 139 155 1.390 kg Snickers, 60 g 59 70 990 kg Mars 59 70 Prins Pólo stórt, 40 g 59 70 1.480 kg Floridana appelsínu/ eplasafi, ¼ ltr 59 75 236 ltr Tebollur með súkkulaði/eða rúsínum 189 210 189 st. Emmess lurkar 79 90 79 st. FJARÐARKAUP Gildir til 21. júní nú kr. áður kr. mælie. Skafís, 5 teg. 2 ltr 498 589 249 ltr Hrásalat, 350 g 99 145 340 kg Grillsvínakótilettur 898 1.198 898 kg Grillpylsur 498 725 498 kg Vatnsmelónur 98 189 98 kg Góu tvenna hraunb./æðibitar 298 378 298 pk. Fersk bláber, 350 g 198 298 565 kg Homeblest kex, 300 g 148 169 493 kg Hagkaup Gildir til 25. júlí nú kr. áður kr. mælie. Marinerað lambalæri 989 1.198 989 kg Kjarnafæðis gráðostsósa, 200 ml 137 170 685 ltr Kjarnafæðis hvítlaukssósa, 200 ml 137 170 685 ltr Kjarnafæðis piparsósa, 200 ml 137 170 685 ltr Aviko crispy krokettur, 450 g 159 198 353 kg Nabisco Oreo kremkex, 176 g 119 149 676 kg Chicken Tonight Peking, 500 g 259 298 518 kg Nettó Gildir á meðan birgðir endast nú kr. áður kr. mælie. Vínarpylsur,10 st. 565 754 565 kg Kryddl.silungur 848 998 848 kg Grill lambaframhryggjasneiðar 1430 1.589 1430 kg Grill lambakótilettur 1423 1.582 1423 kg Chic.freschetta pitsa supr., 24 cm 398 458 1047 kg Capri krydd.kjúkl., bitar 638 798 638 kg Bláber box, 551 ml 199 332 361 kg NÝKAUP Gildir til 21. júlí nú kr. áður kr. mælie. Svínalæri 399 559 399 kg Svínalærissneiðar, 1fl 599 798 599 kg Svínabógur 399 559 399 kg Svínabógsneiðar 499 699 499 kg Svínakótilettur 799 1.099 799 kg Svínahnakki, úrb. 799 1.139 799 kg Svínahnakki, m/beini 499 879 499 kg Svínalundir 1.359 1.798 1.359 kg SAMKAUP Gildir til 22. júlí nú kr. áður kr. mælie. Melónur gular 129 259 129 kg Bökunarkartöflur í álbakka 129 229 129 pk. Gourmet lambakótilettur 1.254 1.568 1.254 kg Gourmet lærisneiðar 1.238 1.548 1.238 kg O. piparsósa, 300 g 139 199 463 kg EF barbequesósa, 420 ml 149 189 355 ltr EF hvítlauksssósa, 420 ml 159 195 379 ltr Vatnsmelónur 129 259 129 kg SELECT-verslanir Gildir til 25. júlí nú kr. áður kr. mælie. Tomma og Jenna safar 3 st. 119 kr. 150 kr. Maryland kex 105 kr. 130 kr. Freyju lakkrísdraumur, stór 85 kr. 110 kr. Stjörnu poppkorn, osta og venjulegt 98 kr. 120 kr. Mónukossar, 8 st. 289 kr. nýtt UPPGRIP-verslanir OLÍS Júlí tilboð nú kr áður kr. mælie. Villiköttur 75 95 75 st. Kit Kat Chunky Orange súkkul., 55 g 75 100 1.360 kg Prins Póló stór, 3 st. í pk. 148 240 Toffypops, 150 g 138 160 920 kg Fanta appelsín, 0,5 ltr 110 130 220 ltr Doritos snakk , 200 g, 4 teg. 238 285 1.190 kg Hel garTILBOÐIN MIKILL verðmunur var á bláberjum milli verslana á höfuðborgarsvæðinu þeg- ar verð var kannað í gær- morgun. Askja af bláberj- um frá Bandaríkjunum, sem er 551 ml., um 350 gr., kostaði minnst 169 krónur í Bónus og 179 kr. í Sparverslunum en mest 399 krónur í Nýkaupi og 349 kr. í Hagkaupi. Verð- munurinn er því mestur 136% á milli Bónuss og Nýkaups. Í Fjarðarkaupum kost- aði bláberjaaskjan 198 krónur, í Nettó er hún á tilboði á 199 kr og í Nóa- túni kostaði askjan í gær 285 kr. Ljóst er að verðmunur er mjög mikill, ekki síst í verslunum Baugs; Bónus, Hagkaupi og Nýkaupi, þar sem framleiðandi og innflytjandi er sá sami. Hver er skýringin á þessum gíf- urlega verðmun? „Ég veit ekki á hvaða verði þeir eru að kaupa þetta,“ segir Brynjar Ingólfsson, innkaupastjóri Ný- kaups, og bætir við: „Stundum eru menn að borga með berjunum og aðrir ekki.“ En getur það skýrt þennan gíf- urlega verðmun? Er álagningin ekki einfaldlega of há? „Við leggjum ekkert óeðlilega á þessa vöru,“ segir Brynjar en vill ekki gefa upp álagninguna. Hann segir þó að innkaupsverð fyrir Ný- kaup sé um 240 krónur. Ef reiknað er með þeirri krónutölu er álagn- ingin því um 66%. „Stundum er álagningin svona há og stundum er hún einfaldlega lægri.“ Í sama streng tekur Finnur Árna- son, framkvæmdastjóri Hagkaups. „Þetta er afmörkuð verðsamkeppni og menn eru að borga með vör- unni.“ Aðspurður hvort Hagkaup muni lækka verð vegna aukinnar samkeppni segir Finnur: „Við erum með fjölda tilboða í hverri viku en við erum ekki að elta öll tilboð keppinautanna. Lækkun á verði blá- berja er þó vel hugsanlegt.“ Gauti Þorgilsson, rekstrarstjóri hjá Bónus, segist ekki geta svarað fyrir hátt vöruverð hjá keppinautum en Bónus bjóði alltaf besta verðið. „Við skoðum verð í öðrum versl- unum og gerum betur.“ Aðspurður segir Gauti að berin séu seld undir kostnaðarverði í verslunum Bónuss, þau lækkuðu úr 199 kr. á þriðjudag í 169 kr. í gær og hann gerir ráð fyrir að það verð muni haldast. Innflytjendur ætla ekki að lækka verð Eggert Á. Gíslason, fram- kvæmdastjóri heildsölunnar Mata sem flytur inn bláber m.a. fyrir Nettó, Fjarðarkaup og Sparversl- anir, gerir ekki ráð fyrir að berin muni lækka frekar í verði í inn- kaupum, þrátt fyrir að aðalupp- skerutíminn standi nú yfir í Banda- ríkjunum, en oft hafa þau lækkað í kjölfarið. „Það má skýra meðal ann- ars með hærra gengi en áður. Neyt- endur hafa þrátt fyrir það fengið berin á mjög góðu verði síðastliðnar vikur, á um 200 krónur öskjuna sem er sambærilegt verð og í fyrra.“ Bláberin lækka ekki heldur svo neinu nemur hjá Ávaxtahúsinu, sem selur Baugsverslunum bláber, að sögn Einars Þórs Sverrissonar fram- kvæmdastjóra. „Hafa ber í huga að flugfraktin og annar flutningskostnaður vegur um helming af inn- kaupsverði og honum verður ekki breytt, þrátt fyrir lækkandi verð í Bandaríkjunum.“ Einar segir ekki unnt að bera evrópsk bláber saman við bandarísk en gæði þeirra síðarnefndu eru mun meiri. Ísland er meðal fárra Evrópuþjóða sem kaupir ber þaðan. Í Bandaríkjum og Danmörku er verð svipað eða lægra Bláber voru víða á tilboði í Bandaríkjunum í byrjun mánaðar- ins en verðið er nú svipað eða lægra en hér á landi. Í matvöruversluninni Keystore í Brooklyn hverfinu í New York í Bandaríkjunum, kostar sams konar askja og seld er í verslunum hér um 100 krónur en Keystore er keðjuverslun, svipuð og Hagkaup. Í stórmarkaðnum Giant Food Inc. í höfuðborginni Washington, kostaði um 300 gr. askja af bláberjum í gær um 250 krónur. Í verslunar- keðjunni Safeway er tilboð þessa viku, þar fást tvær öskjur sem vega 350 gr. hvor á um 400 krónur. Í Kaupmannahöfn ber enn sem komið er lítið á bláberjum í versl- unum. Enn er verið að selja ódýr jarðarber, kirsuber, rifsber, sólber og hindber. Í versluninni ISO, sem er í líkingu við Hagkaup, eru seld bláber frá Ítalíu í tæplega 200 gr. bökkum á um 177 íslenskar krónur, en tveir pakkar kosta 294 krónur. Innkaupsverð á bláberjum mun ekki lækka þrátt fyrir lækkandi verð hjá framleiðanda Um 136% verðmun- ur milli verslana Í matvöruverslunum hér eru seld bandarísk bláber og nú er aðaluppskerutíminn. Gillette-rakvélablöð Af hverju stafar gífurlegur verðmunur á rakvélablöðum fyrir Gillette Mach 3? Þegar hringt var í nokkrar verslanir kom í ljós að verðmunur á Gillette Mach 3-rakvélarblöðun- um er mjög mikill. Blöðin eru seld fjögur saman í pakka. Lægst reyndist verðið vera í Bónus þar sem þau kostuðu 535 krónur. Þau voru nokkru dýrari í Fjarðarkaup- um þar sem þau kosta 630 kr. og svo mun dýrari í Nýkaupi, eða 849 kr. Af þeim verslunum sem haft var samband við var verðið hæst í 11–11 þar sem þau kosta 868 kr. Þessi mikli munur á verði vekur athygli, enda verðmunur allt að 62%. En af hverju skýrist þessi munur? Sævar Einarsson, markaðsstjóri 11–11, segir ekki auðvelt að út- skýra hann. „Hér eru menn að reka mismunandi tegundir versl- ana, ég get ekki útskýrt hvers vegna einstaka verslanir geta haft verðið svona lágt, þetta er um kostnaðarverð þar sem það er lægst. Ég get ekki svarað því hvers vegna menn eru að gefa þessa vöru. Ég tel okkur hafa eðli- lega verðlagningu.“ Í sama streng tekur Sigurður Reynoldsson, inn- kaupastjóri matvöru í Hagkaupi, en þar kostuðu rakvélarblöðin 785 krónur. „Við erum með þá álagn- ingu sem við teljum okkur þurfa. Svo er það eins og gerist og geng- ur á þessum markaði að verslanir reyna stundum að hafa sumar vörur dýrari og aðrar ódýrari en keppinauturinn.“ Sveinn Sigurbergsson, verslun- arstjóri í Fjarðarkaupum, segir samkeppni lækka verðið á þessari vöru. „Þetta hefur verið sam- keppnisvara sem lendir oft í verð- könnunum og okkar álögur hafa endurspeglað það. Við höfum jafn- vel borgað með vörunni.“ Red Bull-orkudrykkur Undanfarið hefur verið rætt um hættulega orkudrykki í Sví- þjóð. Eru þessir drykkir á mark- aði hér? Hver er munurinn á þeim drykkjum sem eru á markaði hér og þeim sem ollu hugsanlega dauða ungmennanna í Svíþjóð? Sá orkudrykkur sem um er rætt í Svíþjóð þessa dagana er Red Bull. Hann fæst ekki hér á landi enda inniheldur hann mun meira magn af koffíni en leyfilegt er. Samkvæmt reglugerðum Evrópu- sambandsins mega orkudrykkir ekki innihalda meira en 135 milli- grömm af koffíni í hverjum lítra. Þessar reglur gilda bæði hér á landi og í Svíþjóð. Munurinn er að sögn Sigurðar Gunnlaugssonar, markaðsstjóra Vífilfells, innflytj- anda Battery og Magic, sá að í Svíþjóð hafa nokkrir drykkir feng- ið undanþágu frá þessu hámarki og eru þá með mun meira magn af koffíni. Þeirra á meðal er Battery, sem fæst hér á landi, og Red Bull, sem er með 320 milligrömm af koffíni í hverjum lítra. Hann er bannaður hér á landi. Steinar B. Aðalbjörnsson, nær- ingarfræðingur hjá Hollustuvernd ríkisins, segir algengt að sami drykkurinn sé mismunandi eftir löndum vegna lagatakmarka. Þannig er til dæmis orkudrykk- urinn Battery með 320 milligrömm af koffíni í hverjum lítra í Svíþjóð en undir 135 milligrömmum hér á Íslandi. „Innflytjendur hafa oft tök á að fá breytta efnasamsetningu sem hentar reglum á hverjum stað. Þess vegna geta drykkirnir verið mismunandi eftir löndum, þá er þeim hreinlega breytt fyrir inn- flytjandann.“ Ekki er enn vitað hvað það var nákvæmlega sem dró sænsku ung- mennin til dauða. Steinar bendir á að það sé ekki endilega koffínið eitt og sér sem hafi haft þessi áhrif. Hugsanlegt er að samspil koffíns við eitthvert annað efni í orkudrykknum, eða einfaldlega fæðu þeirra sem létust, hafi valdið dauða þeirra. Rannsókn á þessu máli stendur yfir í Svíþjóð. Rétt er að árétta að það er mik- ill munur á svokölluðum íþrótta- drykkjum annars vegar og orku- drykkjum hins vegar. Sigurður Gunnlaugsson hjá Vífilfelli segir hlutverk íþróttadrykkja vera að koma í veg fyrir vökvatap eða bæta upp vökvatap sem verður við áreynslu og iðkun íþrótta. Þetta er þveröfugt við orkudrykki sem inni- halda koffín, en það efni eitt og sér veldur vökvalosun innan líkamans. Íþróttadrykkir eru í grunnatriðum vatn með viðbættum litarefnum auk sykurs sem auðveldar upptöku vatns. Orkudrykkir eru hins vegar drykkir sem innihalda ýmist mik- inn sykur, mikið koffín eða hvort tveggja. Þetta tvennt er svo allt annar handleggur en fæðubótar- efni, enda tilgangurinn með þeim annar. Spurt og svarað um neytendamál

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.