Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 25
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 25
Á ANNAÐ þúsund manns
hafa heimsótt jöklasýninguna
á Höfn í Hornafirði það sem af
er sumri.
Sýningin var formlega opn-
uð í fyrravor og þar sem hún
átti vinsældum að fagna var
ákveðið að halda sýningunni
áfram nú í ár. Dóra Stefáns-
dóttir atvinnu- og ferðamála-
fulltrúi Hornafjarðar segir að
jöklasýningin sé þó breytt þar
sem búið sé að bæta ýmsu
nýju við.
„Við erum nú með stutta
kvikmynd um Vatnajökul eftir
Valdimar Leifsson en tónlistin
er eftir Jónas Moravék skólastjóra
tónlistarskólans á Höfn. Þá erum við
einnig með litskyggnusýningu eftir
Jóhönnu Arnbjörnsdóttur og verk
eftir aðra myndlistarmenn sem eiga
það sameiginlegt að búa undir jökli.
það eru Páll frá Húsafelli, nágranni
Langjökuls og Helga Erlendsdóttir
og Inga Jónsdóttir nágrannar Vatna-
jökuls.
Fræðsluspjöld vega þyngst á jökla-
sýningunni segir Dóra en þau fjalla
almennt um jökla og eðli þeirra og
sérstök áhersla er lögð á Vatnajökul.
Hún bendir á að Helgi Börnsson eigi
heiðurinn að þeim. Þá er tekin fyrir
sambúð manna og jökla hér í Skafta-
fellssýslu og það voru starfsmenn
sýslusafnsins sem tóku saman það
sem þar kemur fram.
Dóra bendir á að til sýnis séu einnig
gamlir munir eins og tjöld, sleði sem
var notaður í dönskum leiðangri árið
1934, jöklastika frá Kvískerjum, nú-
tíma jöklafatnaður, landakort og
bækur.
En hver átti hugmyndina að því að
opna jöklasafn á Höfn?
„Það var Helgi Björnsson jökla-
fræðingur en hann var m.a. fenginn til
að gera Grímsvötnum skil á jöklasafni
í Noregi. Hann varpaði fram þessari
hugmynd þegar verið var að ræða
möguleika í ferðaþjónustu hér á
svæðinu. Sýningin var fyrst sett upp í
fyrra og var þá samstarfsverkefni
Reykjavíkur , menningarborg Evr-
ópu árið 2000 sem styrkti sýninguna
fjárhagslega en að auki ýmsir aðrir. Í
ár njótum við stuðnings menningar-
borgarsjóðs auk annarra. Við fengum
líka 5 milljón króna styrk frá Alþingi
til að vinna að undirbúningi jöklaset-
urs.“
Dóra segir að nefnd sé að athuga
þá möguleika sem í því felast. Nefnd-
in fór m.a. til Noregs til að kynna sér
jöklasafnið sem Helgi kom að og einn-
ig tvö onnur við Jostedalsjökulinn
sem Norðmenn segja stærsta jökul-
inn á meginlandinu. „Menn sjá fyrir
sér að jöklasetrið muni tengjast
væntanlegum þjóðgarði, Vatnajökli.“
Margir heimsækja jöklasýninguna á Höfn
Morgunblaðið/GRG
Jöklasýningin á Höfn í Hornafirði var opnuð í fyrra.
Komið hefur verið fyrir á sýningunni
ýmsum gömlum munum sem á einn eða
annan hátt tengjast Vatnajökli.
Jöklasýningin er opin alla
daga í sumar frá klukkan 10-18.
Boðið er upp á fyrirlestra um
efni sem tengist jöklum annan
hvern þriðjudag. Þá daga er
sýningin opin til klukkan 22.
Panta má kvöldheimsóknir fyrir
hópa í síma 478 1500.
Kvikmynd
meðal nýjunga
SAFN Jóns Sigurðssonar á Hrafns-
eyri við Arnarfjörð er opið alla daga í
sumar og þar getur að líta fjölbreytta
ljósmyndasýningu um líf og starf
Jóns forseta, auk ýmissa muna sem
tengjast honum, að því er fram kemur
hjá Hallgrími Sveinssyni staðarhald-
ara.
Minningarkapella Jóns Sigurðs-
sonar, sem Sigurbjörn Einarsson
biskup vígði 3. ágúst 1980, er til sýnis
og þar segir Hallgrímur að þeir sem
óska geti staldrað við og hlustað á
ljúfar píanóballöður hjá safnverðin-
um, Sigurði G. Daníelssyni, einkum
eftir Sigfús Halldórsson.
Í burstabæ Jóns Sigurðssonar er
rekin greiðasala og þar er selt kaffi
með heimabökuðu meðlæti og súpa
og brauð. Hægt er að taka á móti allt
að 50 manns í einu og eru hópar beðn-
ir að panta með fyrirvara.
Vestfirskt handverk að fornu og
nýju frá Byggðasafni Vestfjarða og
Handverkshópnum Koltru á Þingeyri
er til sýnis í bænum og gefst þar gott
tækifæri til að bera saman handíðir
manna á Vestfjörðum fyrr og nú.
Safn nýuppgerðra verkfæra sem
tengjast hestum er einnig til sýnis á
staðnum og er til vitnis um hlutverk
„þarfasta þjónsins“ í sveitum landsins
á sínum tíma.
Margt að sjá í safni
Jóns Sigurðssonar
Sími safnsins er 456 8260
og netfangið er jons@snerpa.is