Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 28
flokksmenn fengju að velja á milli,
enda er hann talinn leiðtogi íhalds-
samari armsins í flokknum og hefur
verið kallaður arftaki Margrétar
Thatcher.
Skráðir félagar í Íhaldsflokknum fá
brátt senda kjörseðla og verða úrslit-
in kunngerð 12. september. Mjótt
þykir á munum milli Clarkes og
Smiths og þora fáir að spá fyrir um
niðurstöðuna.
Fulltrúar andstæðra fylkinga
Clarke og Smith eru að ýmsu leyti
fulltrúar andstæðra fylkinga í Íhalds-
flokknum. Fyrst ber að nefna að
Clarke er eindreginn Evrópusinni og
hlynntur inngöngu Breta í Efnahags-
og myntbandalag Evrópu (EMU),
ólíkt meirihluta flokksmanna. Smith
er hins vegar í hópi mestu efasemd-
armanna um Evrópusamstarfið og
hefur jafnvel látið þau ummæli falla
að ef til vill væri hagstæðast fyrir
Breta að standa fyrir utan ESB.
Evrópumálin hafa verið Íhalds-
flokknum þung í skauti og telja marg-
ir að það hafi átt þátt í lélegu gengi
flokksins í kosningunum í júní að
hann gerði andstöðuna við evruna að
helsta kosningamáli sínu.
Afstaðan til evrunnar er talin vera
það sem helst geti staðið í vegi fyrir
því að íhaldsmenn treysti Clarke fyrir
leiðtogaembættinu, enda hefur meiri-
hluti flokksmanna efasemdir um inn-
göngu í EMU. Óttast margir að klofn-
FRAMBJÓÐENDURNIR tveir til
leiðtogaembættisins í breska Íhalds-
flokknum, sem almennir flokksmenn
munu nú greiða
atkvæði um í póst-
kosningu, eru afar
ólíkir menn og
ljóst er að þeir
myndu leiða
flokkinn í ólíkar
áttir.
Í þriðju umferð
atkvæðagreiðslu
þingflokks íhalds-
manna á þriðju-
dag hlaut Kenn-
eth Clarke,
fyrrverandi fjár-
málaráðherra, 59
atkvæði, Iain
Duncan Smith,
talsmaður flokks-
ins í varnarmál-
um, 54 atkvæði en
Michael Portillo,
talsmaður í ríkis-
fjármálum, rak
lestina með 53 atkvæði. Úrslitin voru
óvænt fyrir tvennar sakir; annars
vegar áttu fáir von á að Evrópusinn-
inn Clarke fengi flest atkvæði og hins
vegar kom á óvart að Portillo félli úr
leik, því hann hafði lengst af þótt sig-
urstranglegastur og var efstur í fyrri
umferðunum tveimur. Aftur á móti
þótti líklegt frá upphafi að Smith yrði
annar þeirra tveggja sem almennir
ingurinn innan flokksins vegna
Evrópumálanna versni enn frekar,
nái hann kjöri. Ýmsir hafa ennfremur
bent á að það gæti orðið ríkisstjórn
Verkamannaflokksins hvatning til að
flýta þjóðaratkvæðagreiðslu um evru-
aðild, enda væri þá ekki von á eins
harðri andstöðu af hálfu Íhaldsflokks-
ins og ella.
En Clarke hefur tekið skýrt fram
að hann telji að Íhaldsflokkurinn eigi
fremur að einbeita sér að öðrum
málaflokkum, einkum mennta- og
heilbrigðismálum. Hann hefur heitið
því að ganga ekki gegn vilja meiri-
hluta flokksmanna í Evrópumálum og
að gera ekki upp á milli manna eftir
afstöðu þeirra til evrunnar.
Í öðru lagi tilheyrir Clarke frjáls-
lyndari armi flokksins, en Smith þeim
íhaldssamari. Þó stærstur hluti
skráðra flokksmanna, sem hafa at-
kvæðisrétt í leiðtogakjörinu, sé vafa-
laust í íhaldssamari kantinum nýtur
Clarke mikilla vinsælda meðal þeirra
og skoðanakannanir benda þar að
auki til þess að hann sé líklegri til að
auka stuðning almennra kjósenda við
flokkinn. Smith kemur verr út í könn-
unum og telja margir hann lítt til þess
fallinn að ná til almennings, þó hann
njóti trausts meðal íhaldsmanna.
Einnig má nefna að Clarke býr yfir
gríðarlegri pólitískri reynslu og hefur
gegnt mikilvægum ráðherraembætt-
um, en Smith hefur aldrei átt sæti í
ríkisstjórn. Reynslan er talin Clarke
til tekna, en hins vegar gæti Smith
grætt á því að ekki er hægt að bendla
hann við erfið mál frá því Íhaldsflokk-
urinn var enn við stjórnvölinn.
Fall Portillos
Niðurstaðan í atkvæðagreiðslu
þingflokksins á þriðjudag eru gríðar-
leg vonbrigði fyrir Michael Portillo,
enda hafði um árabil verið litið á hann
sem framtíðarflokksleiðtoga. Portillo
tilkynnti strax að hann myndi draga
sig í hlé og láta af setu í skuggaráðu-
neytinu. Portillo var fyrstur til að gefa
kost á sér til leiðtogaembættisins og
naut stuðnings lykilmanna, þar á
meðal tveggja þriðju hluta skugga-
ráðuneytisins. Allt þar til í lok síðustu
viku var útlit fyrir að hann yrði efstur
í kosningu þingflokksins og myndi
síðan sigra í leiðtogakjörinu.
En Portillo hefur alltaf verið nokk-
uð umdeildur. Voru andstæðingar
hans óþreytandi við að líkja stefnu
hans við „sýndarmennskupólitík“
Tonys Blairs, væna hann um að vera
slæm fyrirmynd í siðferðismálum
(Portillo hefur viðurkennt að hafa átt
kynlíf með karlmanni á skólaárunum)
og vega að honum fyrir að hafa færst
nær miðju í pólitíkinni.
Það var Portillo mikið áfall er hann
missti þingsæti sitt 1997, en hann náði
aftur kjöri 1999 og eftir það virtist leið
hans til æðstu metorða vera greið. En
eftir áfallið á þriðjudag er hann varla
talinn eiga afturkvæmt í eldlínuna.
Býsna ólíkir menn keppa um leiðtogastöðuna í breska Íhaldsflokknum
Myndu leiða
flokkinn í
ólíkar áttir
Reuters
Kenneth Clarke ræðir við fréttamenn fyrir framan breska þinghúsið.
Kenneth Clarke og Iain Duncan Smith
heyja lokabaráttuna um leiðtogaembættið í
breska Íhaldsflokknum, en að sögn
Aðalheiðar Ingu Þorsteinsdóttur treysta
fáir sér til að spá fyrir um úrslitin.
Iain Duncan
Smith
Michael
Portillo
ERLENT
28 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Minjasafnið er við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal
KOMIÐ hefur í ljós að 184
ferðatölvur og hátt í 500 skot-
vopn hafa horfið úr geymslum
bandarísku alríkislögreglunnar
(FBI). Vitað er að ein tölvan
innihélt leynileg gögn og verið
getur að þrjár til viðbótar hafi
einnig geymt slíkar upplýsing-
ar. Að minnsta kosti þrettán
tölvum var stolið en ekki er vit-
að um afdrif hinna. Ekki hefur
komið fram hvort tölvunni sem
geymdi hinar leynilegu upplýs-
ingar var stolið eða hvort hún
hafi horfið með öðrum hætti.
Öldungadeildarþingmaðurinn
Charles Grassley sagði á
þriðjudaginn að frammistaða
FBI væri óafsakanleg, „það er
háalvarlegt mál að lögreglan
skuli hafa týnt tölvum sem inni-
halda svona viðkvæmar upplýs-
ingar,“ sagði Grassley.
Rannsókn á starfsemi FBI
Alls virðast 449 byssur hafa
horfið úr geymslum FBI og var
184 þeirra stolið. Heimildar-
menn innan FBI segja að ein
þeirra hafi þegar verið notuð til
að fremja morð. Flestar eru
byssurnar skammbyssur en
nokkrar vélbyssur hafa einnig
horfið. Formaður dómsmála-
nefndar þingsins, James Sen-
senbrenner, sagði á þriðjudag
að alvarleg mistök hjá FBI
hefðu eitt sinn verið stórfréttir
en væru orðin reglulegir við-
burðir.
Tölvurnar og vopnin hurfu
ekki öll í einu heldur hefur
þetta átt sér stað á ellefu ára
tímabili og segja þingmenn að
alvarlegt sé að FBI hafi lagt
meiri áherslu á að hylma yfir
slík hvörf í stað þess að rann-
saka þau.
Dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna, John Ashcroft, hefur
fyrirskipað allsherjar rannsókn
á innviðum stofnunarinnar og
meðferð lögreglumanna á eign-
um hennar. Á fullkominn listi
yfir eignir FBI að liggja fyrir
ekki síðar en þrítugasta sept-
ember næstkomandi.
Röð hneykslismála hefur
gengið yfir alríkislögregluna
síðustu misseri. Nýlega var
kínverskum vísindamanni
sleppt úr fangelsi en hann var
grunaður um að hafa stundað
njósnir fyrir Kínverja. Þótti
rannsókn málsins hafa misfar-
ist og var mönnum því ekki
stætt á því að halda honum
lengur.
Alríkislögreglan er einnig
ennþá að rannsaka mál Ro-
berts Hanssens sem hefur við-
urkennt að hafa njósnað fyrir
Rússa og skemmst er að minn-
ast þess að um fjögur þúsund
blaðsíður er vörðuðu mál
hryðjuverkamannsins Timothy
McVeighs bárust lögmönnum
hans fyrst nokkrum dögum fyr-
ir áætlaða aftöku McVeighs.
Hneyksli hjá FBI
Horfin
vopn og
týnd gögn
Washington. AP, AFP.