Morgunblaðið - 19.07.2001, Side 45
ekki eyddi Tóta sumrinu með okkur
austur í sumarbústað við Þingvalla-
vatn.
Varla er hægt að minnast á Tótu
án þess að minnast á „Laugu“, en
Lauga eða Guðlaug var systir
mömmu og var í heimili hjá Gróu og
Nikulási. Lauga var Tótu eins og
önnur mamma og reyndist henni afar
vel, sem hún svo fékk ríflega launað
af Tótu seinna. Tóta gekk í Mennta-
skólann. Þar eignaðist hún marga
góða vini enda var hún afar glaðlynd
og skemmtileg kona. Hún giftist Þór-
halli Halldórssyni frá Vestmannaeyj-
um og áttu þau einn son saman. Þau
slitu samvistir. Tóta vann lengst af
hjá Útvegsbankanum, eða þar til hún
hætti störfum vegna aldurs. Seinna á
lífsleiðinni kynntist hún yndislegum
manni, Gunnari Helgasyni, sem var
henni afar góður og eftir að hún
veiktist vék hann varla frá henni.
Ég vona að góður Guð styrki hann
í sorg sinni og veri með honum ætíð,
því betri mann er vart að finna.
Arnþrúður (Lilla).
Kær vinkona Þóra Ólafsdóttir er
látin eftir mikil veikindi.
Tótu hef ég þekkt lengi, við höfum
verið í saumaklúbbi saman í yfir 50
ár.
Minningarnar hrannast upp og
fljótt koma upp í huga minn fjórar
ungar, glæsilegar stúlkur sem héldu
hópinn hér í Reykjavík. Þetta voru
Kiddý systir, Lilla Kristins, Didda
Guðmunds og Tóta Nikk. Þær voru
bæði fallegar og kátar enda leit þær
margur guminn hýru auga. Nú eru
tvær horfnar úr þessum hópi, Didda
og nú Tóta. Blessuð sé minning
þeirra.
Ég var oft með þessum vinkonum
og á margar góðar minningar um
gleðistundir með þeim.
Þóra Ólafsdóttir var alin upp í
Reykjavík hjá Gróu Pétursdóttur, fv.
bæjarfulltrúa í Reykjavík og varafor-
seta S.V.F.Í., og Nikulási Kr.
Jónssyni skipstjóra. Þess vegna
var hún kölluð Tóta Nikk. Á heim-
ilinu var einnig Guðlaug systir Gróu
sem reyndist Tótu mjög vel. Þarna
ólst Tóta upp við ástríki foreldra og
bræðra, sem voru þrír, Pétur, Jón og
Örnólfur. Fjölskyldutengslin voru
sterk og þær mágkonur Tótu, Mar-
grét og Sigríður voru miklar vinkon-
ur hennar og reyndust henni sérlega
vel í hennar veikindum. Það var gam-
an að koma heim með Tótu á Öldu-
götuna, mér var þar vel tekið.
Tóta giftist Halldóri Þórhallssyni
frá Vestmannaeyjum og eignuðust
þau einn dreng, Þórhall sem er verk-
fræðingur. Þau slitu samvistir.
Þórhallur hefur verið búsettur í
Bandaríkjunum um áraraðir. Hann
giftist amerískri stúlku, Sue og áttu
þau eina dóttur, Heide Margréti.
Hjá þeim dvaldi Tóta oft og naut
þess að vera með ömmustúlkunni.
Þessi fjölskylda fór ekki varhluta af
sorginni því Heide lést í bílslysi 18
ára gömul. Þetta var stórt áfall fyrir
Tótu, sem elskaði þetta eina barna-
barn sitt mikið enda var hún sérlega
gæfuleg stúlka. Þá var gott að eiga
góða fjölskyldu að.
Tóta vann hjá Útvegsbankanum
lengst af sínum starfsferli. Hún var
vel gefin og ákaflega mikil hannyrða-
kona og lærði til þess í hannyrðaskóla
í Kaupmannahöfn eftir að hún lauk
stúdentsprófi. Margt fallegt liggur
eftir hana í útsaumi. Hún átti fallegt
heimili og var góð heim að sækja og
vinmörg var hún.
Tóta var mjög músikölsk, spilaði á
píanó og svo átti hún harmonikku.
Margar voru gleðistundirnar með
vinum á góðum stundum þegar Tóta
tók í nikkuna eða píanó og hélt uppi
söng og gleði, hún var sannkallaður
gleðigjafi.
Síðustu árin átti hún góðan vin,
Gunnar Helgason sem reyndist henni
mjög vel og mun hann sakna vinar í
stað.
Það er margs að minnast eftir
margra ára vinskap og held ég að
mér sé óhætt að mæla fyrir okkur all-
ar í saumaklúbbnum þegar ér segi,
þakka þér allt og allt kæra vinkona.
Ég sendi Þórhalli, Sue, Gunnari,
Maggy, Siggu og þeirra fjölskyldum
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Sigurbjörg Magnúsdóttir
(Bíbí).
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 45
✝ Erlingur Guð-jónsson fæddist
9. október 1952 í
Reykjavík. Hann lést
á Haukeland Syke-
hus í Bergen í Nor-
egi 8. júlí síðastlið-
inn. Foreldrar
Erlings eru Guðjón
Sigmundsson, f.
16.1. 1926 í Vest-
mannaeyjum, d.
13.8. 1979 í Kristi-
ansand, og Ester
Sigurjónsdóttir, f.
30.7. 1925 á Siglu-
firði. Systur Erlings
eru: Brynja, f. 3.5. 1947, maki
Sigtryggur Eyfjörð Benedikts-
son, f. 31.3. 1945, Hlín, f. 17.5.
1963, og Unnur, f. 15.8. 1964,
maki Egill Jóhannsson. Erlingur
kvæntist hinn 15.júní 1972 Haf-
dísi Guðrúnu Magnúsdóttur, f.
24.11. 1953. Foreldrar hennar
voru Magnús Hildi-
mar Jónsson, f. 5.12.
1905 á Minnibakka,
N-Ísafjarðarsýslu,
d. 20.4. 1991, og
Laufey Guðjóns-
dóttir, f. 22.10. 1910
í Reykjavík, d. 11.2.
1968. Þau Erlingur
og Hafdís eiga fjög-
ur börn: Guðjón
Örn, f. 4.10. 1972,
maki Liv Unni; Við-
ar Páll, f. 10.11.
1975, maki Inger;
Ester Eva, f. 3.12.
1979, maki Øystein;
og Helena Íris, f. 13.7. 1986.
Þau Erlingur og Hafdís hafa
búið í Noregi í yfir 20 ár og sein-
ustu árin starfaði Erlingur á ol-
íuborpöllum á Norðursjó.
Útför Erlings fór fram í Krist-
iansand 17. júlí.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(Valdimar Briem.)
Það er með miklum trega sem
við kveðjum kæran vin sem alltof
fljótt var tekinn frá fjölskyldu og
vinum.
Við erum varla ennþá búin að
átta okkur á þessari sorgarfregn
að hann Erlingur okkar sé dáinn.
Við kynntumst þeim hjónum fyrir
15 árum þegar við vorum búsett í
Kristiansand í eitt ár. Hún nafna
kom og heilsaði upp á okkur því
henni þótti gaman að sjá í dag-
blaðinu að alnafna hennar væri bú-
sett í sama hverfi og þau hjónin.
Þennan tíma sem við bjuggum í
þessum fallega bæ syðst í Noregi
þróaðist vinátta sem við höfum
viðhaldið alla tíð síðan. Í fyrra
þegar við fórum til Noregs til að
sýna Klöru dóttur okkar fæð-
ingabæ sinn og hvar hún ólst upp
sína fyrstu mánuði hittum við Dísu
og Erling. Daginn eftir að við
komum í bæinn brást Erlingur vel
við vandræðagangi okkar með
fellihýsi og bíl og bjargaði málum
eins og hans var von og vísa og
samdi við umboðið í bænum að
taka bílinn til viðgerðar daginn
eftir að við komum í bæinn.
Þannig þekktum við Erling,
ávallt reiðubúinn til að rétta fram
hjálparhönd, svo ljúfur og hlýr.
Við erum mjög þakklát þeim
fyrir þessar yndislegu stundum
sem við áttum með þeim þessa
daga sem við stoppuðum í
Kristiansand. Sá tími sem við ætl-
uðum að stoppa dróst heldur betur
því okkur leið svo vel í návist
þeirra í hlýlegu íbúðinni þeirra.
Við hefðum viljað geta sýnt þakk-
læti okkar í verki í næstu Íslands-
heimsókn þeirra.
Það var svo gaman að fá að upp-
lifa samstöðu þeirra hjóna í fyrra-
sumar. Þau voru jafn heilluð af
golfíþróttinni og ætluðu að eiga
saman margar góðar stundir við
það sameiginlega áhugamál í fram-
tíðinni.
Elsku Dísa, við vitum að þú hef-
ur misst mikið, engan gat grunað
þá að aðeins tæpu ári seinna yrði
Erlingur horfinn frá okkur.
Við sendum þér og börnum ykk-
ar og tengdabörnum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Minning um góðan mann lifir
áfram.
Steinar, Hafdís, Linda,
Klara og Birgir.
ERLINGUR
GUÐJÓNSSON
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
&" 7
5 & !!'
>1 ! #!&# !
9.& "%/9 9&
1,"
'
'
'
% 1"5 & ! ""
5 & ! ""
>& 5 & ! ""
# !5 & !!'
5%& 5 & ! ""*
; * )" * 7
7
" )
"
"
'
5 4* 48 - > !"
7 %@H
! *
&%!& ""
5%& 09&! ""
/&%25 ! ""
5 && !G%&
$&5%# !!'
4* ! ""
!&5*5%# !!'
5%& * ! ""
4!" 5%# !!'
5 ! 5%# ! ""
'!/!" > !&9" *
( )
((I
# @=
%/
" #
$ . .$
!& ""
9 ?# ! ""
> I %
%!!'
$ I %
)!") !'
2/ !I %
5%## !!'
4'&$ I %
%/ !!'
9 I %
% !!'
2%& I %
&& !!'
$ I %
/!"% !!'
( I %
' *
* ,
" "
"
76 -
5 !"
5
9<& "@:*
: * ) ") 4+ /
0
1 ' ,"
1" ""
# !!'
5 >& ""
"%9 0* % !!'
!!'
&! %" $! ""
5 ""
< 5 !!'
# * $!!'
0%" *($!"! ""
' *
* * 7
"
54 0E7 1,"
" ,
5&
5%&'!&01"5 ! *