Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 46
FRÉTTIR 46 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sumarbrids í Hamri Stefán Vilhjálmsson sendi okkur eftirfarandi frétt af bridslífinu í höfuðstað Norðurlands þar sem hann hvetur norðanmenn sem og ferðamenn til að líta inn í Hamri á þriðjudagskvöldum. Á vegum Bridsfélags Akureyrar er spilað á þriðjudagskvöldum í Hamri, félagsheimili Þórs við Skarðshlíð. Spilaður er léttur tví- menningur, spilamennska hefst kl. 19:30 og allt spilafólk hjartanlega velkomið. Pétur Guðjónsson og Una Sveinsdóttir hafa verið sigursæl í sumarbridge, en urðu þó ekki meðal efstu para síðasta þriðju- dagskvöld. Þá unnu Frímann Stef- ánsson og Björn Þorláksson, hlutu 110 stig. Næstir urðu Stefán Vil- hjálmsson og Hermann Huijbens með 101 stig og þriðju Sverrir Haraldsson og Marinó Steinarsson með 90 stig. Sumir telja spilamennsku ekki eiga við á sumrin, en aðrir vilja meina að alltaf sé gott „bridsveð- ur“: Brids er gott í bleytutíð er bylur regn á glugga, og skíni sumarsólin blíð er sest við spil í skugga. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Súrefnisvörur Karin Herzog Oxygen face ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Bílstjórar — vélamenn Vanir vöru- og „trailer“-bílstjórar óskast strax. Einnig vantar vanan mann á traktorsgröfu og vélamann í afleysingar. Upplýsingar í símum 899 2303 og 565 3140. Klæðning ehf. byggingaverktakar, Skeifunni 7, 2. hæð, 108 Reykjavík, s. 511 1522, fax 511 1525 Trésmiðir Óskum eftir að ráða vana trésmiði til starfa sem fyrst, undirverktökum og/eða launþegum, við utanhússklæðningu og ísetningu á gluggum. Næg vinna fram- undan. Unnið í uppmælingu. Upplýsingar gefur Hákon Örn Arnþórs- son í síma 822 4403. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Setbergsskóli Vegna forfalla vantar kennara við Setbergs- skóla til að kenna almenna kennslu á yngsta stigi. Um er að ræða kennslu eftir hádegi. Launa- og kjaramál fara eftir gildandi kjara- samningum KÍ og launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 25. júlí. Allar upplýsingar gefur Loftur Magnússon skólastjóri í síma 555 2915 og 565 1011. Víðistaðaskóli Við heilsdagsskóla Víðistaðaskóla er laus staða forstöðumanns og auk þess er laus staða al- menns starfsmanns. Æskilegt er að umsækj- endur hafi uppeldismenntun eða reynslu af uppeldisstörfum. Launa- og kjaramál eru samkvæmt samningum STH við Hafnarfjarðarbæ. Allar upplýsingar gefur skólastjóri Sigurður Björgvinsson í síma 899 8530 og 555 2912. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31 en einnig er hægt að sækja um rafrænt á netfangið: hafnarfjordur.is . Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540 Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Ólafur Stefánsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali. Atvinnuhúsnæði til leigu Skeifan Til leigu neðri hæð og skrifstofur á pöllum í nýuppgerðu húsi. Á skrifstofuhæð er loftræst- ing, tölvu-og símalagnir, snyrting og eldhús- krókur. Lofthæð í sal er um 4,4 m. Næg bíla- stæði eru við húsið. Austurströnd Til leigu 190 fm verslunar/þjónustuhúsnæði í nýbyggðu húsi á Seltjarnarnesi. Húsnæðið er staðsett í norðurenda hússins og afhendist tilbúið til innréttinga. Mosfellsbær Til leigu ca 700 fm verslunarhúsnæði í verslun- armiðstöð í Mosfellsbæ. Gengið er inn í hús- næðið á jarðhæð. Austurstræti 400 fm kjallari undir 10-11 verslun í Austur- stræti. Upplýsingar gefur Þorlákur Ó. Einarsson á skrifstofu. Sími 570 4500, fax 570 4505. FYRIRTÆKI Fyrirtæki Til sölu fiskverkunarhús á Suðurnesjum 180 m2. Tilbúið fyrir saltfiskverkun. Vélar og tæki geta fylgt. Flatningsvél-hausari-viktar-kör og fl. Húsinu fylgir stór eignarlóð. Upplýsingar í síma 421 1584. TIL LEIGU Til leigu í Sætúni 8, efsta hæð, („penthouse“), alls 169 fm. Upplýsingar veitir Stóreign í síma 55 12345. TILKYNNINGAR Hestur í óskilum Grár fullorðinn hestur á járnum í óskilum í Mið- dal í Laugardal. Stafirnir EH klipptir í síðu. Upplýsingar í símum 486 1169 eða 486 1199. Oddviti Laugardalshrepps. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00. Vitnisburðir. Ræðumaður: G. Theodór Birgisson. Fjölbreyttur söngur. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. www.samhjalp.is . Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Samkoma kl. 20.00. Högni Valsson predikar, „Trú án Heilags anda". Lofgjörð og fyrir- bænir. Allir hjartanlega velkomnir! Sunnudag: Opið hús kl. 20.00. Mánudag: Fjölskyldubæna- stund og samfélag. „Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín, því að á þig vona ég, ó Guð." Athugið! Opnunartími skrifstofu og bókabúðar er alla virka daga frá kl. 13.00 til 16.00. www.vegurinn.is .   600—1400 fm húsnæði í Skeif- unni. 4,4 m lofthæð, góðar inn- keyrsludyr, næg bílastæði, frábær staðsetning. Hentar fyrir verslun, heildsölu, lager o.fl. Hagstætt leiguverð. Upplýsingar í síma 588 2220. Útivist með helgarferð að Fjallabaki FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir um helgina til ferða um Fjalla- baksleiðir, bæði þá nyrðri og syðri þar sem hægt verður að velja milli öku- og skoðunarferðar að Fjalla- baki og nýrrar gönguleiðar. Nýja gönguleiðin liggur af Fjallabaksleið nyrðri í Jökuldölum og er gengið þaðan um Illagil, Muggudali og Strútslaug að Strút, en í ökuferðinni er m.a. komið við í Eldgjá, Álftavatnakróki, skoðaður Rauðibotn og margt fleira áhuga- vert, segir í fréttatilkynningu. Útivist býður einnig að venju upp á helgarferðir á Fimmvörðu- háls og í Bása. Fararstjórar eru Hákon Gunnarsson og Anna Soffía Óskarsdóttir. Pantanir og farmið- ar eru á skrifstofunni á Hallveig- arstíg 1. Áhyggjur vegna málefna sauðfjárbænda „ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing- arinnar græns framboðs lýsir áhyggjum af því óvissuástandi sem skapast hefur í slátrunar- og af- urðasölumálum sauðfjárbænda víða á landinu. Sauðfjárbændur mega síst við því, afkomu sinnar vegna, að lenda í erfiðleikum með að af- setja framleiðslu sína og sæta óvissu um uppgjör. Einnig er ljóst að fyrirhuguð lokun afurðastöðva verður mikið áfall viðkomandi byggðarlögum ef af verður. Þuríður Backman, fulltrúi þing- flokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í landbúnaðar- nefnd Alþingis, hefur óskað eftir því að nefndin komi saman til fund- ar til að kynna sér stöðu mála og kanna með hvaða hætti er unnt að tryggja hagsmuni bænda,“ segir í ályktun frá þingflokki Vinstri grænna. ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.