Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 49 sjónvarps- dagskráin á mbl.is Á Fólkinu á mbl.is er tenging við vefinn sjonvarp.is þar sem sjón- varpsdagskrá allra helstu stöðva er að finna. Hægt er að skoða dag- skrána eftir tíma, sjónvarpsstöðv- um eða efni. Einnig er hægt að fá áminningu um ákveðna dagskrárliði í tölvupósti. Verð á herb. og íbúðum yfir hátíðarnar: Stúdíóíbúð kr. 5.000 á nóttu eða kr. 20.000 á viku. Herb. með aðgangi að baði á nóttu kr. 4.000 eða kr. 15.000 á viku. Ekki er um morgunverð að ræða á þessu tímabili. Gleðileg jól. Gistihús Regínu Mjölnisholti 14, 3. hæð, símar 551 2050 og 898 1492 Það verður opið að venju hjá okkur um jólin og áramót frá 17. des. fram til 5. janúar Óskum öllum landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla, árs og friðar. Mjölnisholti 14, 3. hæð, sími 551 20 0 gistih.regina@isl.is Við bjóðum ódýrari gistingu í miðri viku í júlí og ágúst. Verð: Stúdíóíbúð kr. 5.000 2ja manna herbergi kr. 4.000 Eins manns herbergi kr. 3.000 Morgunverður innifalinn. SAMKVÆMT tillögum Eftirlits- stofnunar EFTA (ESA) munu sex sveitarfélög verða tekin af byggða- korti fyrir Ísland og munu þau og fyrirtæki í þeim ekki eiga kost á byggðastyrkjum ef þau óska þess. Þessi sveitarfélög eru Reykjanes- bær, Sandgerðishreppur, Gerðar- hreppur, Vatnsleysustrandarhrepp- ur, Akraneskaupstaður og Innri- Akraneshreppur. Samkvæmt eldra byggðakorti var höfuðborgarsvæðið eina svæðið sem ekki gat notið byggðastyrkja. Í reglum Evrópusambandsins (ESB) eru ríkisstyrkjum settir mjög þröngar skorður. Þó má beita byggðastyrkjum en hins vegar geta ekki öll svæði fengið slíka styrki. Því fer ESA eftir þrenns konar viðmiðum, þ.e. hver þjóðarfram- leiðsla viðkomandi svæðis er, at- vinnustigi byggðar og þéttleika byggðar. Síðasta nefnda viðmiðið á við um Ísland, en það þýðir að ef íbúar eru færri en 12,5 á ferkílómetra þá get- ur það svæði notið byggðastyrkja. Deila má um hvað séu byggðastyrkir og hvað ekki Kristján Skarphéðinsson, skrif- stofustjóri byggðamála í iðnaðar- ráðuneytinu, segir að byggðakort fyrir Ísland hafi síðast verið sam- þykkt árið 1996 en þá hafi verið miðað við þá kjördæmaskipan sem senn fellur úr gildi. Því þurfi iðn- aðarráðuneytið að fá samþykki ESA fyrir nýju byggðakorti. „Við lögðum til að miðað yrði við nýju kjördæmin en ESA fannst það vera allt of stór svæði. Því var ákveðið að skipta þessu niður miðað við sveitarfélög.“ Eins og áður segir munu áður- nefnd sveitarfélög og fyrirtæki í þeim ekki geta fengið byggðastyrki. Spurður um hver áhrif á viðkom- andi sveitarfélög munu vera segist Kristján ekki geta sagt til um það og enn fremur megi ávallt deila um hvað séu byggðastyrkir og hvað ekki. „Að sumu leyti má segja sem svo að það séu engir byggðastyrkir á Íslandi. Við erum með Byggða- stofnun en hún fær samtals 200 milljónir á ári samkvæmt fjárlögum og af því fer hluti í rekstur stofn- unarinnar og eitthvað í styrki en yf- irleitt eru það mjög litlir styrkir.“ Hann segir jafnframt að ef fyr- irtæki á almennum markaði fái lán frá Byggðastofnun þá séu vextirnir lægri en á almennum markaði og í því felist að sjálfsögðu styrkur. En hvaðan kemur sá styrkur? „ESA er að segja að fyrirtæki í þessum sveitarfélögum megi ekki fá byggðastyrki en svo er spurning hvað eru byggðastyrkir.“ Mótmælt að Akranes sé ekki á kortinu Þegar síðasta byggðakort fyrir Ísland var gert árið 1996 var um mikið atvinnuleysi að ræða á Suð- urnesjum en svo er ekki í dag. Kristján segir að iðnaðarráðuneytið hafi hins vegar mótmælt því að Akraneskaupstaður og Innri-Akra- neshreppur séu á einu atvinnu- svæði. Kaupstaðurinn og hreppur- inn eigi því að tilheyra byggðakortinu. „Í fyrsta lagi höfum við sagt að miklu færri en 12,5 búi á hverjum ferkílómetra uppi á Akranesi og í Innri-Akraneshreppi og í öðru lagi þá getur venjulegur verkamaður ekki búið upp á Akranesi og unnið í Reykjavík vegna þess kostnaðar sem það hefur í för með sér. Það er því ekki hægt að segja að göngin leiði til þess að þetta sé orðið eitt atvinnusvæði nema þegar atvinnu- rekandinn greiðir allan ferðakostn- að.“ Kristján segir að iðnaðarráðu- neytið vænti svara frá ESA síðar í þessum mánuði. Tillögur Eftirlitsstofnunar EFTA um byggðakort fyrir Ísland Sex sveitarfélög munu ekki eiga kost á byggðastyrkjum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.