Morgunblaðið - 19.07.2001, Side 52

Morgunblaðið - 19.07.2001, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                       !          "#  $       BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. NÚ ER gaman hjá fjölmiðlafólki, nóg um að skrifa og skrafa. Þing- maður einn hefur orðið uppvís að ósannsögli og stuldi. Það er eins og að nú sé búið að finna hinn eina sanna sökudólg fyrir allt svindl og svínaríi sem stundað hefur verið í þessu þjóð- félagi um aldir. Árni Johnsen réttdræpur og dæmdur af öllum. En mér er spurn – hvað gerist í framhaldinu? Verður Árni dæmdur og er þá þar með búið að hreinsa þetta þjóðfélag af öllu illu? Eða mun kannski einhver halda áfram að svindla og einn og einn halda áfram að svíkja, til dæmis undan virðis- aukaskatti? Það á eftir að koma í ljós, kannski verður þjóðfélagið okkar miklu betra eftir þessar aðfarir, kannski ekki. Hvað sem því líður ætla ég að segja mína meiningu og hún er sú að um- burðarlyndi er betra en dómharka þegar einhverjum verður eitthvað á, sérstaklega ef verið er að hugsa til þess að byggja upp betri heim og bjartari framtíð. Ég held að við get- um öll sagt með sanni að ekkert okk- ar sé með öllu saklaust og ef við vilj- um sýna sanna samábyrgð leitum við ekki eftir sökudólg til að gera heim- inn betri heldur lausnum. Fyrirgefning og mildi eru merki- legri meðul og árangursríkari en refsingar og harðneskja. Við fáum fréttir utan úr hinum stóra heimi frá Ísrael, Írlandi og Júgóslavíu. Á þessum stöðum er endalaust verið að berjast og enginn vill gefa eftir, sættast og fyrirgefa. Hefndin er ekki lausn, hún hefur aldrei verið það eins og sagan sannar svo sorglega aftur og aftur. Hefnd og refsing verður aldrei lausn sem leiðir til friðar og betra lífs. Fyrirgefningin aftur á móti er lausn, hún hefur bara svo sorglega sjaldan verið reynd á opinberum vettvangi. En þótt fyrir- gefningin hafi ekki verið mikið ástunduð milli þjóða og þjóðarbrota hafa flestir reynslu af því að þeim hafa verið fyrirgefnar ýmsar yfir- sjónir af þeirra nánustu, mömmu, pabba, eiginmanni eða eiginkonu. Og þeir sem það hafa reynt vita að það hefur gert þá að betri mönnum og heiminn þar með betri, því heimur- inn er endurspeglun af okkur þannig að ef við verðum betri menn verður heimurinn betri. Því segi ég – hvern- ig væri að fyrirgefa Árna? Ég held það gæti verið áhugaverð tilraun til að sjá hvernig það virkar, því við vit- um að refsingar og hefnd virka ekki. SIGRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR, Illugagötu 39, Vestmannaeyjum. Dæmum ekki Frá Sigrúnu Þorsteinsdóttur: Sigrún Þorsteinsdóttir Í GREIN í Morgunblaðinu 17. júlí sl. vekur Kristinn Pétursson (Garðabæ) athygli á ummælum Árna M. Mathie- sen sjávarútvegsráðherra á ráðstefnu sem haldin var í tengslum við alþjóð- legu sjávarútvegssýninguna í Boston nú í vor. Árni var frummælandi á ráð- stefnunni og í ræðu sinni þakkaði hann 25% aflareglunni, sem beitt hef- ur verið nokkur undanfarin ár, þann árangur sem náðst hefur í uppbygg- ingu þorskstofna á Íslandsmiðum. Klykkti ráðherrann út með að segja að senn mætti vænta þess að árlegur þorskkvóti yrði hækkaður í 350 þús- und tonn. Kristinn segir að engir íslenskir fjölmiðlar hafi greint frá þessum um- mælum utan hvað málgagn Lands- sambands smábátaeigenda hafi vitnað til fréttar WorldCatch frétta- vefsins um ræðu íslenska sjávarútvegsráðherrans. Þetta er rangt hjá Kristni. Sama dag og Árni M. Mathiesen hélt ræðu sína í Boston var efni ræðunnar gert að umtalsefni í frétt á fréttavef InterSeafood.com, sem er alíslenskur fréttavefur um sjávarútvegsmál þrátt fyrir nafnið, og var sérstök athygli vakin á áherslu ráðherrans á þátt aflareglunnar í uppbyggingu þorskstofnsins og því að vænta mætti 350 þúsund tonna þorsk- kvóta. Reyndar skildi ég ummælin þannig að þessa kvóta væri að vænta á næsta ári og ég sé það að erlendir fjölmiðlar, s.s. Fishing News Inter- national, lögðu sama skilning í málið. Auk fréttar InterSeafood.com á hin- um íslenska hluta fréttavefjarins, var ræða sjávarútvegsráðherra birt orð- rétt á hinum enska hluta fréttavefjar- ins. Þá skal bent á að ræðan hefur verið aðgengileg á heimasíðu sjávar- útvegsráðuneytisins. Þegar greint var frá tillögum Haf- rannsóknastofnunar um ráðlega veiði úr einstökum nytjastofnum á næsta fiskveiðiári og ákvörðun sjávarút- vegsráðherra þar að lútandi, voru umrædd ummæli ráðherrans rifjuð upp í frétt á InterSeafood.com. Sér- stök athygli var vakin á því misræmi sem fram kom í ræðunni í Boston og þeim niðurskurði sem gerður var á þorskkvótanum. Það er því rangt hjá Kristni Péturssyni að íslenskir fjöl- miðlar hafi ekki fjallað um umrætt mál. Hins vegar má virða honum það til vorkunnar að þótt frétta- og mark- aðsvefur InterSeafood.com hafi verið starfræktur í rúma níu mánuði þá er útbreiðslan enn sem komið er tak- mörkuð við 500 til 600 alvöruheim- sóknir á hverjum virkum degi. Á þessum tíma hafa verið birtar hátt í 6.000 fréttir um sjávarútvegsmál á vegum InterSeafood.com. Auk þess sem InterSeafood.com er með starf- semi á Íslandi er starfrækt frétta- þjónusta í Færeyjum og sömuleiðis eru þær sjávarútvegsfréttir sem hæst bera á Íslandi og í Færeyjum birtar á ensku og norsku. Kristni og öðrum, sem vilja kynna sér efni vefsins, er bent á að rólegt er yfir fréttaþjónust- unni þessa dagana vegna sumarleyfa en úr því ætti að rætast þegar kemur fram í ágústmánuð. EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON fréttastjóri InterSeafood.com Ummæli Árna á InterSeafood.com Frá Eiríki St. Eiríkssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.