Morgunblaðið - 19.07.2001, Síða 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í KVÖLD heldur Djasskvintettinn
Jump Monk tónleika í Deiglunni á
Akureyri og hefjast þeir kl. 21.30.
Þar með hefst tónleikaferð hans
sem heldur áfram á Mývatni, held-
ur síðan til Neskaupstaðar, Hafnar
í Hornafirði, til Hellu og endar viku
seinna í Reykjavík.
Kvintett þessi er samstarfsverk-
efni saxófónleikaranna Ólafs Jóns-
sonar og Hauks Gröndal, og á efnis-
skrá er tónlist samin af píanóleik-
aranum og tónsmiðnum Thelonius
Monk.
Best með tvo blásara
Ólafur og Haukur hafa leikið
saman í hinum ýmsu hljómsveitum
undanfarin ár, en Ólafur útskrif-
aðist úr Berkley College of Music í
Boston vorið 1992. Haukur hefur,
eftir lokapróf frá Tónlistarskóla
FÍH 1997, verið búsettur í Kaup-
mannahöfn þar sem hann nemur
við Rytmisk Musikkonservatorium
og er fyrsti Íslendingurinn sem
kemst inn í þann skóla. Þeir hafa
fengið mér sér á ferðalagið menn af
ekki verri endanum, þá Tómas R.
Einarsson bassaleikara, Matthías
Hemstock trommuleikara og hinn
unga og snjalla píanista Davíð Þór
Jónsson.
„Það er skemmtilegt að hafa tvo
blásara í bandi af þessu tagi frekar
en einn sólóista, við erum búnir að
útsetja fínustu raddir og þetta er
orðið miklu meira,“ segir Haukur.
– Verður engin keppni um sólóin
þá?
„Nei, það er bara svona góðlátleg
samkeppni í gangi,“ segir Haukur
og glottir. „Sum af þessum lögum
eru þrælútsett en þetta er samt als
ekki stíft,“ bætir Ólafur við.
Skemmtilegar hrynpælingar
„Við erum að spila lög sem hafa
síður heyrst, en öll tónlistin hans
Monks er svo frábær að maður
verður að prófa að spila allt sem
hann hefur gert allavega einu
sinni,“ segir Haukur.
Strákarnir segja svo marga
hrifna af Monk því hann sé viss
tenging úr „bebop“-djassi yfir í
módern djass, að mjög stór hluti af
nútíma djasshljómi komi frá Monk.
„Hann var með geysilega
skemmtilegar hrynpælingar,“ segir
Ólafur, „og lögin sem við munum
flytja eru frá mjög breiðu tímabili,
eða frá 1946 til um 1960.“
„En Monk var geðklofa-
sjúklingur og var alveg óvirkur frá
byrjun áttunda áratugarins og þar
til hann dó 1982. Öll lögin sem við
leikum eru þannig að ef maður hef-
ur eitthvað hlustað á djass þá heyr-
ir maður strax að þetta er Monk,“
segir Haukur.
– Eru þau ekkert tormelt?
„Nei, því þetta er svo ryþmískt og
sérstakt að það er ekki spurning að
allir geta haft gaman að þessu.
Bandið er líka mjög gott og Davíð
Þór stendur sig mjög vel í hlutverki
Monks,“ segja saxófónleikararnir
að lokum ánægðir með sig og sína.
Morgunblaðið/Ásdís
Kvintettinn Jump Monk skipa Haukur, Davíð Þór,
Ólafur, Matthías og Tómas.
Blásarar í
hrynpælingum
Djasskvintettinn Jump Monk á ferð um landið
Rás 1
Íslenskur djass
kl. 19.00 um helgar