Morgunblaðið - 19.07.2001, Síða 59

Morgunblaðið - 19.07.2001, Síða 59
Rosalega skemmtilegur biti Morgunblaðið/Ásdís Árni, Pétur Már og Böðvar Bjarki gera skemmtilegar myndir og ófyrirsjáanlegar. Í KVÖLD og næstu kvöld kl. 22.30 sýnir Filmundur þrjár hentumyndir. Þetta er ný tegund kvikmynda, fundin upp á Íslandi. Þar er beitt þeirri aðferð að setja raunverulega atburði í óvenjulegt samhengi og fá þannig nýja sýn á lífið. Fyrsta myndin sem sýnd verður er Kyrr eftir Árna Sveinsson. Önnur myndin heitir Friður en leikstjóri hennar er Pétur Már Gunnarsson. Þriðja myndin nefnist Lúðrasveit og brú og höfundur hennar er Böðvar Bjarki Pétursson. Að teygja á kvikmyndaforminu „Það var fyrir algjöra slysni sem við fundum upp hentumyndirnar,“ segir Árni. „Við fundum að myndirnar okkar voru skildar og fórum að velta því fyrir okkur hvernig myndir þetta væru. Pétur Már rannsakaði lista- söguna og við áttuðum okkur á að þetta form var þegar til í listasög- unni undir heitinu „ready-made art“ og hentumyndir er þýðing Þorsteins Thorarensen á því heiti,“ útskýrir Böðvar Bjarki. „Það sem við teljum að sé nýtt er að gera þetta í kvikmyndum.“ „Upphafið var þegar Duchamps ljósmyndaði pissuskálina árið 1912. Það var líka upphafið að því þegar listin fór að fjarlægjast áhorfandann allverulega,“ segir Árni. „Fyrir þann tíma var list mjög meðfærileg en það breyttist allt með honum.“ – Eruð þið að reyna að fjarlægjast áhorfendur? „Nei, en það er löngu tímabært, sérstaklega hérna á Íslandi, að teygja aðeins á þessu kvikmynda- formi,“ segir Böðvar Bjarki. „Heim- ildamyndir eru yfirleitt mjög leið- inlegar en við reynum eitthvað nýtt og ferskt með þessu formi. Við Ís- lendingar vorum orðnir uppi- skroppa með nálgun. Myndir í dag eru algjörlega fyrirsjáanlegar. Okk- ur langar að brjóta það upp. Á sama tíma var ég að reyna að gera skemmtilega mynd.“ „Já, við reyndum það allir,“ segir Árni. – Hvernig gerir maður skemmti- lega mynd? „Það er ofboðslega vinna á bak við þær allar í upptökum, klippingu og frágangi og það styður við inni- haldið. Ég held að skemmtilegar myndir séu þær sem hafa eitthvert innihald og setja einhverja hugsun af stað. Er það ekki?“ spyr Böðvar Bjarki. Allt alvöru fólk Við vinnu myndarinnar Lúðra- sveit og brú fylgist hann með Páli Pampichler og Hauki Karlssyni í eitt og hálft ár. „Upphaflega hugmyndin var að fjalla um vinnuna og heimspeki hennar. Mig langaði ekki að þvinga þetta saman, heldur sjá til hvað gerðist. Einu sinni læt ég lúðrasveit og brú mætast. Grunnhugmyndin var að fjalla um verkið, hvernig verk verður til, og niðurstaðan er bara myndin sjálf, það verk sem hún er.“ Árni tekst á við Hlemm í sinni mynd. „Þetta er svæði í Reykjavík sem er mjög skemmtilegt, þar er mikið af klikkuðu fólki. Það eina sem vantar þangað eru hórur, þá er allur skal- inn kominn. Einhver var að segja að fyllibytturnar hefðu of mikið vægi í þessari mynd en það er ekki satt, það er svo mikið af þeim þarna. Í myndinni er Keisaranum lokað, mesta veruleikaflótta sem Reykvík- ingar hafa tekið þátt í. Að færa rón- ana frá Hlemmi niður á Austurvöll. Alveg súrt!“ segir Árni og hlær. Pétur Már fjallar síðan um laumu- reykingar í sinni mynd. „Þetta er par og annað laumu- reykir fyrir hinu. Hvort það er kem- ur í ljós. Konan er svolítið feimnari. Ég elti hann í vinnuna og ætlaði að gera það sama með hana en það var erfiðara. Málið var að mynda þau í sínu hversdagslífi og tala síðan við annað fólk sem var komið út úr skápnum með sínar reykingar,“ út- skýrir hann. „Við vonum að sem flestir komi til að sjá eitthvað nýtt,“ segir Böðvar Bjarki. „Ég hef engan hitt sem finnst myndirnar leiðinlegar,“ bætir Pétur Már við. „Þetta er rosalega skemmtilegur biti úr íslenskum raunveruleika. Þetta er allt alvöru fólk og alvöru aðstæður settar í skemmtilegt sam- hengi sem við getum kallað bíó- myndir,“ segir Árni og botnar við- talið. Filmundur sýnir þrjár hentumyndir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 59 ÞAÐ er erfitt að hugsa sér að iðk- endur eins nútímavæns tónlistar- forms og dans/raftónlistar búi yfir fortíðarþrá. En þannig verður mál- um víst háttað á Café 22 í kvöld þeg- ar hin eina sanna „old skool har- dcore“-stemmning verður rifjuð upp fyrir tilstilli þeirra plötusnúða, hins goðsagnakennda Grétars og hins grínaktuga DJ Bjössa brunahana. Þeir félagar hafa að undanförnu ver- ið að bisa við að blása rykið af göml- um, jöskuðum tólftommum frá dýrð- ardögum hinnar hamingjuríku harðkjarnatíðar og víst að það verð- ur stansað, dansað og öskrað (flaut- að?) fram á bjarta nátt. Miðaverð er sléttar 500 kr. og verður dyrum tímavélarinnar upp lokið kl. 21.00 en látnar aftur fimm tímum síðar. Þess ber að geta að á staðnum verða seldir sérstakir blanddiskar með öllu því besta sem harðkjarnadanstónlistin bjó yfir á árunum 1990–1993. Samsetning þeirra var í höndum Orko og DJ Elv- ars Inga. DJ Grétar. Dansað til að muna Reif í Reykjavík betra en nýtt Nýr og glæsilegur salur Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 8  Kvikmyndir.com  Hausverk.is Sýnd kl. 6. EÓT Kvikmyndir.is Dýrvitlaus og drepfyndinn Sýnd kl. 6, 8 og10 Með Rob Schneider úr Deuce Bigalow: Male Gigolo Frá höfundum Big Daddy Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is FYRIR 990 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 8 og 10. www.sambioin.is Dýrvitlaus og drepfyndinn Með Rob Schneider úr Deuce Bigalow: Male Gigolo Frá höfundum Big Daddy Forsýnig kl. 8. Enskt tal. Vit nr. 244 Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína. Sýnd kl. 10. Vit nr 243. Kvikmyndir.com  strik.is Sími 461 4666 samfilm.is FYRIR 990 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ www.sambioin.is Sýnd kl. 9.30. Síðustu sýn Vit 235. Sýnd kl. 6 og 8.Vit nr 249. Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr 243. PEARL HARBOR 7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu. Hann heyrði að það væri villt í LA. hann vissi ekki hversu villt! Kvikmyndir.com  strik.is One Night at McCool´s er sýnd í Regnboganum MAGNAÐ BÍÓ  Kvikmyndir.com  Hausverk.is Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Ghostbusters! Sýnd. 6, 8 og 10. Dýrvitlaus og drepfyndinn Með Rob Schneider úr (Deuce Bigalow: Male Gigolo.) Framleitt af hinum eina sanna Adam Sandler Sýnd. 6, 8 og 10. Stærsta ævintýri sumarsins er hafið Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.05.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.05. úr (Deuce Bigalow: Male Gigolo.) www.laugarasbio.is Framleitt af hinum eina sanna Adam Sandler Dýrvitlaus og drepfyndinn  Hausverk.isKvikmyndir.com Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.05. B. i 12 ára.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.