Morgunblaðið - 19.07.2001, Page 60

Morgunblaðið - 19.07.2001, Page 60
EINS og kunnugt er stendur til að endurvekja Eldborg- arhátíðina á Snæfellsnesi um verslunarmannahelgina. Undanfarna daga hefur verið lögð lokahönd á dagskrána og nú þegar hafa Stuð- menn, Skítamórall, Greif- arnir, Ný dönsk, Sóldögg, Írafár, Buttercup, Í svörtum fötum, Geirfugl- arnir, Lúdó & Stefán, XXX Rotweilerhundar, Útrás, Yasmine Olsson, 3G’s, Spútnik, Johnny on the NP, Nova, Gos, Jimi Suzuki og (rúsínan í pylsuendanum) Jet Black Joe boðað komu sína á hátíðina. „Jú, það passar,“ svaraði Páll Rósin- krans er Morgunblaðið hringdi í hann til þess að fá það staðfest hvort Jet Black Joe væru í raun á dagskránni en sjö ár eru síðan sveitin lagði upp laupana. „Það má eiginlega segja að ég og Gunni Bjarni séum að halda upp á það að það séu tíu ár frá því að ég og hann spiluðum fyrst saman.“ Páll Rósinkrans segir það ekki komið á hreint hverjir leiki með sveitinni, en segir það nokkuð víst að Hrafn Thoroddsen hljómborðsleikari verði ekki með að þessu sinni þar sem hann verði staddur á Þjóðhátíð í Vestmanna- eyjum sem liðsmaður SSSólar. Einnig segir hann ólíklegt að trommuleikarinn Jón Örn Arnarson leiki með. Aðspurður hvort þetta sé vísir að frekari samstarfi hans og Gunnars Bjarna segir Páll það vera alls óákveðið. „Við erum bara í rauninni að taka þetta. Kannski tökum við einhverja tvo eða þrjá tónleika en svo spáum við bara í áframhaldið síðar. Þetta á þannig séð ekki að vera nein endurkoma. Þetta er bara svona smá vinaþel. Það er eng- inn „dottinn í það“ eða eitthvað svoleiðis,“ segir Páll að lok- um. Samkvæmt Einari Bárðasyni hefur dagskrá hátíðarinn- ar vakið áhuga hjá erlendum plötufyrirtækjum og útsend- arar Atlanta, Warner Chapel og Maverick boðað komu sína. Hægt er að nálgast miða í verslunum 10 - 11 en 16 ára aldurstakmark er inn á hátíðina. Dagskrá Eldborgar 2001 að taka á sig endanlega mynd Morgunblaðið/Arnaldur Birgitta Haukdal úr Írafári ásamt kærastanum Hanna Bach úr Skítamóral, en báðar sveitirnar koma fram á hátíðinni. Jet Black Joe leik ur á Eldborg. Í svörtum fötum ætlar að fanga athyglina á Eldborg. Jet Black Joe snýr aftur 60 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ var á tónleikunum á sínum tíma, brást skjótt við beiðni Lam- berts og sendi honum töluvert af efni. Fór svo að hún er nú tengiliður Lamberts á Íslandi og munu þau vinna verkið í sameiningu. „Ég skrifaði honum Lambert, þar sem ég sat á sviðinu þegar Zeppelin voru að spila hér. Ég dreif mig í því að fá fullt af upp- lýsingum, fór niður í Þjóðarbók- hlöðu og svoleiðis,“ segir Krist- ín í samtali við Morgunblaðið. Hún segir þau ætla að gefa bókina út eins fljótt og auðið er, eða þegar búið er að safna sam- an öllum upplýsingum. „Allt verður svo sent til kostunaraðil- ans sem er víst einhver japansk- ur auðkýfingur. Það fer svo eft- ir því hvernig honum líst á þetta hvort hann muni hjálpa til. En bókin verður gefin út, hvort sem kostunaraðilar koma að þessu eða ekki. Hann Lambert mun þá bara gera það sjálfur.“ Viðbrögð hafa ekki látið á sér standa og nú hefur verið ákveð- ið að gefa einnig út íslenska út- gáfu af verkinu. Þeir sem vilja fá íslensku útgáfuna senda heim til sín geta sent tölvupóst á zep- pelin226_1970@hotmail.com. Þess má og geta að allir þeir sem leggja hönd á plóg við verk Kristínar og Lamberts verður getið í báðum útgáfunum. Áhugasömum er boðið að hafa samband, annaðhvort í síma 869-0291 eða með tölvu- pósti, dagmey@hotmail.com, telji þeir sig geta aðstoðað. STÓRSVEITIN Led Zeppelin hélt eftirminnilega hljómleika í Laugardalshöll, 22. júní árið 1970. Á þeim tíma átti hún ein- göngu tvær plötur að baki en sú síðari, Led Zeppelin II, er af mörgum fræðimönnum talin ein besta rokkplata allra tíma. Í kjölfar Íslandsheimsóknarinnar samdi sveitin svo lagið „Immigrant Song“, sem inni- heldur, eins og frægt er orðið, línurnar „We come from the land of the ice and snow, From the midnight sun where the hot springs blow.“ (eða „Við komum frá landi ísa og snjós, hvar hver- ir spúa og miðnætursól er ljós“). Það lag varð einmitt opnunarlag næstu plötu sveitarinnar, Led Zeppelin III, sem kom út þá um haustið. Um þessar mundir er ungur Breti, Keith Lambert, að vinna að örbók um þessa tónleika, 32 síðna í tímaritsformi (þ.e. A4 broti), og hefur í því skyni leitað aðstoðar Íslendinga við öflun heimilda. Lambert er 34 ára gamall, meðlimur í Led Zeppel- in tökulagasveitinni Simply Led og vart þarf að taka fram að hann er forfallinn aðdáandi. Á þriðjudaginn birtist frétt á síðum þessum þar sem var aug- lýst eftir minjum tengdum tón- leikunum, s.s upptökum, mynd- um, aðgangsmiðum, veggspjöld- um og fólk enn fremur hvatt til að hafa samband, lægi það á haldbærum gullmolum varðandi tónleikana. Kristín nokkur Snæfells, sem Led Zeppelin á Íslandi 1970 Minningar óskast Ljósmynd/Guðjón Einarsson Jimmy Page, gítarleikari Led Zeppelin, á sviðinu í Höllinni. NÝTT OG BETRA Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ www.sambioin.is  strik.is  KVIKMYNDIR.is 1/2 Hugleikur Sýnd kl. 4 og 6. Vit 236. Sá snjalli er bxunalaus! Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 242. Nýi Stíllinn Keisarans Sýnd kl. 4. ísl tal Vit 213 Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína. Nýjasti rómantíski gamanmyndasmellurinn frá framleiðendum Notting Hill & Four Weddings And A Funeral. Með Renée Zelweger (Jerry Maguire, Nurse Betty), Hugh Grant (Notting Hill, Four Weddings And A Funeral) og Colin Firth (Shakespeare in Love og Fever Pitch). Kemur báðum kynjum í gott skap. Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.10. Vit nr. 250 Kvikmyndir.com DV Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 243. Sýnd kl.8.15. Vit 235. B.i. 12. PEARL HARBOR 7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu.Sýnd kl. 3.45 og 6. Vit 234  strik.is Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 249 Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Ghostbusters!  Hausverk.is  Kvikmyndir.com Hann heyrði að það væri villt í LA. hann vissi ekki hversu villt! HÁSKÓLABÍÓ þar sem allir salir eru stórir Hagatorgi sími 530 1919 Sýnd kl. 10. B. i. 16. Síðasta sýn Keanu Reeves og James Spader Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi Frábær hasarmynd sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum Stærsta ævintýri sumarsins er hafið TILLSAMMANS betra er að borða grautinn saman en steikina einn Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. 1/2 Kvikmyndir.com  H.L. Mbl.  H.K. DV  Strik.is  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 6. Síðasta sýnSýnd kl. 8 og 10.30. RIEN SUR ROBERT  SV Mbl Sýnd kl. 8 . B.i.16. Síðasta sýn Kvikmyndir.comDV strik.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. MIÐASALAN á tónleika bresku hljómsveitarinnar Coldplay í Laugardagshöllinni 22. ágúst fer í gang 30. júlí kl. 10.00 – á slag- inu. Miðaverð verður 5.500 krón- ur í stúku og 4.500 í stæði og er aldurstakmarkið 18 ár, sökum áfengisveitinga sem verða á staðnum. Sölustaðir verða tveir á höfuðborgarsvæðinu, Skífan á Laugavegi og í Kringlunni, en einnig verða 2.000 miðar, af þeim 5.500 sem í boði verða, seldir á Netinu á val.is, einkum til að þjónusta áhugasama tónleikafara utan borgarmarkanna. Að sögn Þorsteins Stephensens, eins tónleikahaldara, hefur ekki verið gengið frá upphitunar- atriðum en hann segir að þau mál ættu að skýrast innan tíðar. Liðsmenn Coldplay ætla sér að staldra lengur við á Íslandi en gengur og gerist með listamenn er hér á landi leika enda segir Þorsteinn þá afar spennta yfir því að koma og skoða landið og leika fyrir sína fjölmörgu ís- lensku unnendur. Þeir áforma að vera hér í fjóra daga, frá mánu- degi fram á fimmtudag, en þá halda þeir til Írlands til að leika á margumtöluðum heimkomu- tónleikum U2 í Slane-kastala. „Það má því segja að tónleikarnir á Íslandi sé nokkurs konar loka- æfing fyrir U2 tónleikana stóru,“ segir Þorsteinn. „Sveitarmenn hafa tjáð mér að þeir ætli sér að leika fulla dagskrá sem taki ríf- lega einn og hálfan tíma í flutn- ingi. Coldplay hefur leikið vítt og breitt um heimin undanfarið og þykir orðin vel þétt á sviði og kröftug.“ Lokaæfing fyrir stór- tónleikana með U2 Chris Martin söngvari þykir mjög tilfinningaþrunginn á sviði. Miðasalan á Coldplay-tónleikana hefst 30. júlí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.