Vísir - 27.07.1979, Page 24
Föstudagur 27. júlí 1979,
IBHBÉHHI
síminnerðóóll
Spásvæöi Vcöurstofu Islands
eru þessi:
1. Faxaflói, 2. Breiöafjörö-
ur, 3. Vestfiröir, 4. Noröur-
land, 5. Noröausturland, 6.
Austfiröir, 7. Suöausturland,
8. Suövesturland.
veðurspá
dagsins
Kl. 6 var 1023 mb hæð 600 km
austur af íslandi, en lægðar-
drag viö austurströnd Græn-
lands. Viðast veröur fremur
hlýtt til landsins i dag, en svalt
við norðurströndina.
SV land til Vestfjarða og mio:
SV 2-3 og siðar 3-4, skjijað, dá-
litil súld með köflum
Noröurland og noröurmiö:
Hægviðri, þokuloft á miöum,
næturþoka til landsins en viða
bjart aö deginum.
NA land, Áustfiröir og miö:
Hægviöri, skýjaö meðköflum.
SA land og miö: SV l-3skýjað,
sums staöar dálftil súld, eink-
um á miðunum.
Austurdjúp og Færeyjadjúp:
Sunnan 1-2, Þokumóöa.
Veðrið hér
og par
Veöriö kl. 6 I morgun:
Akureyri þoka, hiti 7 stig.
Bergenskýjað 14. Oslóskýjað
11. Reykjavik alskýjað 9.
Stokkhólmur þokumóða 13.
Veðriö ki. 18 I gær:
Aþenaheiðskírt26. Berlinlétt-
’skýjað 17.Chicagoalskýjaö 23. m
Feneyjar léttskýjað 25. £
Frankfurt léttskýjað 24. Nuk *
alskýjað 6. London skýjaö 26.
Luxemburg léttskýjaö 24.
Montreal skúrir 24. New York
mistur 28. Paris skýjað 27. '■
Róm léttskýjað 27. Maiaga
heiðskirt 25. Vin léttskýjað 19.
Winnipeg léttskýjaö 20.
KnúturKnudsen veöurfræöingur ber sig enn kunnáttusamlega aö viö heyvinnuna, þótt liöin séu 40 ár
siöan hann fékkst slöast viö sllkt starf. Vlsismynd GVA
Gðmiu skipin sem svikisl er um að selja úr landi:
Bráðnauðsyniegt að
spyrna við fðtunT
- segir Kjartan Jðhannsson rððherra
„Mcr sýnist i fljótu bragði aö
þessar upplýsingar Visis séu
alveg réttar og komi heim viö
þaö sem viö höfum komist aö.
Reglur, sem settar hafa veriö i
þessum efnum, skila ekki þeim
árangri sem ætlaö var og skip,
sem sagt er aö seld hafi veriö úr
iandi, fara bara ekkert héöan”,
sagöi Kjartan Jóhannsson sjá-
varútvegsráðhera I samtali viö
VIsi.
Eins og fram kom i VIsi I gær,
eru reglur um aö eldra skip
skuli selt úr landi þegar nýtt er
flutt inn þverbrotnar. Heyrir
það til undantekninga, ef
gamalt skip fer úr landi, og
veiðiflotinn heldur áfram að
stækka þvert ofan I fyrirætlanir
stjórnvalda.
,,Ég hefi verið að reyna að
sporna gegn þessu og veit ekki
til þess að við höfum gefið heim-
ildir i þessu efni nema hvaö
varðar Július Geirmundsson.
Fiskveiðisjóður veitir ekkert
lán til svona viöskipta, en að-
ferðin hefur greinilega ekki
skilað þvi sem að var stefnt”,
sagði Kjartan Jóhannsson.
„Það er alveg bráðnauðsyn-
legt að spyrna við fótum,þvi all-
ar upplýsingar benda til að það
veröi að draga úr sókninni og
það getur ekki verið rétt stefna
að auka þá við skipastólinn.
Þetta undirstrikar nauðsyn
þess, sem ég hefi verið að boða
og gera”, sagði sjávarútvegs-
ráðherra.
A bls. 3 er rætt við Harald
Haraldsson, framkvæmda-
stjóra Andra h.f. Hann telur að
unnt sé aö koma I veg fyrir brot
á reglunum með þvi að krefjast
þess að gamalt skip, sem á að
fara út I staðinn fyrir nýtt, verði
afhent i erlendri höfn.
—SG
Knútur
heyjar
„Ekkl komtð nálægt
pessu f 40 árM
Þegar veðurfræðingarnir eru
farnir að heyja, ætti það að vera
visbending fyrir okkur óveður-
fróða, að hann hangi þurr á með-
an. Siðustu dagana hefur einmitt
einn af veðurfræðingum Veður-
stofunnar, Knútur Knudsen, verið
að heyja og það i kringum sjálfa
Veðurstofuna. Visir sló á þráðinn
til hans og spurði um heyskapar-
horfur veðurfræðinga:
„Ja, þetta er nú mest f gamni
gert”, svaraði Knútur: ,,en ætli
ég fái ekki sosum eina 20 hesta af
heyi af blettinum hérna I kring.
Annars byrjaði ég á þessu
vegna þess að ég er nýbúinn að
kaupa mér hest og þegar farið
var að tala um hvernig ætti að
hirða blettinn, fannst mér upplagt
að gera það sjálfur.”
Knútur sagði okkur að hann
hefði ekki komið nálægt heyskap I
ein 40 ár eða frá þvi hann var
sjálfur unglingur i sveit. Þá heflii
hann vanist heyskap eins og hann „
var stundaður upp á gamla mát-
ann og nú væri gaman að taka
aftur i orf og ljá.
Knútur var loks spurður hvort
við hin gætum tekið þetta sem
teikn um að þurrkur yrði áfram,
en hann kvaö það varasamt. Það
yrði stillt en skýjað á næstunni á
Reykjavikursvæðinu en i sliku
veðri þornaði slægjan aldrei
fljótt. — HR
,.V» SflUM ALLT I EINU AÐ
SJÚR VAR UPP Á MI0JA VÉL”
- segir skipstjðrinn á vai KÓ 3. sem sðkk í gærkvöldi
„Ég hef ekki hugmynd um það hvað gerðist.
Við vorum á landleið og urðum allt i einu varir
við að vélin breytti um hijóð. Er við litum niður
sáum við að sjór var upp á miðja vél”, sagði Haf-
steinn Sigmundsson skipstjóri á Val KÓ 3, sem
sökk i gærkvöldi 11 sjómilur suð-suðvestur af
Hafnarnesi.
LOKl
SEGIR
Alltaf er veriö aö leita aö nýj-
um og spennandi sólarstöðum
tii þess aö veita landanum
hvild og hressingu frá hryss-
ingnum hér noröur á hjara.
Ætli þaö geti veriö satt, aö
næsti feröamannastaðurinn
okkar veröi Nicaragua?
Með Hafsteini i bátnum var
Kári sonur hans, 13 ára gamall,
og komust þeir feðgar I björg-
unarbát og var bjargað um borð
i Arnar AR 55 um tveimur
stundum siðar. Gott veður var á
þessum slóðum i gærkvöldi.
Hafsteinn sagði, að þessi leki
hefði veriö aftast I bátnum og
hann hefði verið það mikill að
þeir hefðu svo til strax farið I
björgunarbátinn. „Meðan
björgunartæki eru i lagi i svona
góðu veðri er ekki hægt að tala
um bráða hættu”, sagöi hann,
„en lekimjókst svo ört að það
varð ekki viö neitt ráðið.”
Hann sagði að þeir hefðu
hangið i bátnum nokkrar
mínútur meðan hann settist
alveg á afturendann og sfðan
hefði hann maraö með stefnið
upp úr drykklanga stund uns
hann hvarf i hafdjúpið.
Strax og ljóst var hvernig
komið var fyrir þeim sendi Haf-
steinn út neyðarkall og sagði
hann að tiltölulega skömmu
siðar hefði flugvél byrjað að
sveima yfir þeim. Það var flug-
vél frá Vængjum sem fann bát-
inn, en Landhelgisgæsluvélin
leysti hana af hólmi nokkru sið-
ar og sveimaði yfir björgunar-
bátnum þar til Arnar AR kom á
vettvang.
„Það er ekkert farið að spá i
það”, sagöi Hafsteinn er hann
var inntur eftir þvi hvað við tæki
nú. Hann kvaö þetta mikið tjón
en engar tölur um það lægju
fyrir enn.
Hafsteinn og Kári hafa verið á
handfæraveiðum á Val KÖ 3 frá
þvi um miðjan mai. Báturinn er
6.5 tonn.
—Gsal