Morgunblaðið - 11.09.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMikil spenna á Íslandsmótinu í
knattspyrnu/B4, B5, B6, B7, B8, B9
Jóhannes Karl semur
við Real Betis/B1
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Barn lést í bílveltu
DRENGUR á þriðja ári lést í bíl-
slysi á Skeiðavegi í Árnessýslu á
laugardagskvöld þegar bifreið sem
hann var í ásamt foreldrum sínum
valt. Móðir barnsins, kona á þrí-
tugsaldri, slasaðist alvarlega og
liggur lífshættulega slösuð á gjör-
gæsludeild Landspítalans í Foss-
vogi. Faðir barnsins slasaðist hins
vegar minna.
Slysið varð á mótum Skeiðaveg-
ar og Suðurlandsvegar seint á
laugardagskvöld og fékk lögreglan
tilkynningu um það kl. 23.13. Bif-
reiðinni var ekið suður Skeiðaveg
og hún valt á gatnamótum við Suð-
urlandsveg. Talið er að ökumað-
urinn hafi misst stjórn á bifreiðinni
í möl í vegkanti með þeim afleið-
ingum að hún valt tvær til þrjár
veltur út fyrir veginn.
Konan, sem sat í aftursæti bif-
reiðarinnar, kastaðist út úr bifreið-
inni og var flutt með þyrlu Land-
helgisgæslunnar á Landspítalann.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Selfossi var barnið í
barnabílstól. Tildrög slyssins eru í
frekari rannsókn hjá lögreglunni á
Selfossi.
Ekki er unnt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.
ÞRÍTUGUR karlmað-
ur lést í bifhjólaslysi á
laugardag á mótum
Breiðholtsbrautar og
Suðurlandsvegar þeg-
ar tvö bifhjól lentu í
árekstri við jeppabif-
reið. Hinn látni hét
Vilberg Úlfarsson, til
heimilis í Flétturima
34, Reykjavík. Hann
var fæddur 11. mars
1971 og var ókvæntur
og barnlaus.
Lögreglunni í
Reykjavík barst til-
kynning um slysið kl.
15 á laugardag. Til-
drög slyssins voru þau
að nokkrum bifhjólum var ekið
austur Suðurlandsveg þegar jeppa-
bifreið var ekið út á Suðurlandsveg
af Breiðholtsbraut.
Tvö bifhjól lentu á
bifreiðinni og öku-
maður þess þriðja
missti stjórn á hjóli
sínu.
Ökumenn hjólanna
tveggja sem lentu á
bifreiðinni voru fluttir
á Landspítala – há-
skólasjúkrahús og lést
annar þeirra sem fyrr
segir, eftir komu á
sjúkrahúsið, en hinn
hlaut ekki alvarleg
meiðsl. Ökumann
jeppabifreiðarinnar,
sem var einn í bifreið-
inni, sakaði ekki.
Tildrög slyssins eru komin til
rannsóknar hjá lögreglunni í
Reykjavík.
Lést í bifhjólaslysi
Vilberg
Úlfarsson
Morgunblaðið/RAX
ÞESSI foss í Bláfjallakvísl á syðri Fjallabaksleið austan
Mýrdalsjökuls skartaði sínu fegursta þegar ljósmynd-
ari átti leið þar um á dögunum, ein af óteljandi nafn-
lausum perlum íslenskrar náttúru.
Nafnlaus náttúruperla
Úrskurður LÍN ekki
í samræmi við lög
barns og segir hvergi í reglum LÍN
að það gildi aðeins sé barnið alvarlega
veikt.
Formaður Stúdentaráðs fagnar
áliti umboðsmanns og segir tímabært
að farið verði yfir verklagsreglur
sjóðsins, LÍN hafi þrengt undanþágu-
heimildir án þess að heimild sé fyrir
því í lögum. Gunnar I. Birgisson, for-
maður stjórnar LÍN, hafði í gærkvöld
ekki kynnt sér álit umboðsmanns og
vildi því ekki tjá sig um það að svo
stöddu.
Beiðni stúdentsins, sem er kona,
var sett fram vegna fjárhagserfið-
leika sem rekja mátti til þess að hún
þurfti að stunda umönnun nýfædds
barns síns og gat því ekki sótt vinnu
utan heimilis. Stjórn lánasjóðsins
hafnaði beiðninni þar sem ekki var
sýnt fram á að um veruleg veikindi
barns væri að ræða og staðfesti mál-
skotsnefnd þennan úrskurð eftir að
hann hafði verði kærður.
Stúdentaráð leitaði til umboðs-
manns Alþingis sem skilaði áliti sínu í
gær. Stjórn LÍN er lögum samkvæmt
heimilt að veita undanþágu frá árs-
greiðslu námslána ef umönnun barna
eða aðrar sambærilegar ástæður
valda lánþega eða fjölskyldu hans
verulegum fjárhagsörðugleikum.
Umboðsmaður kemst að þeirri niður-
stöðu að úrskurður málskotsnefndar
LÍN hafi ekki verið í samræmi við lög
í þessu máli. Lögin verði að hans áliti
ekki skilin með öðrum hætti en svo að
„umönnun barns“ geti ein og sér verið
aðstaða sem beinlínis leiði til þess að
stjórn LÍN, og eftir atvikum mál-
skotsnefndinni, sé skylt að gera und-
anþágu frá endurgreiðslu námslána.
Ekkert í orðalagi þess lagaákvæðis
sem við á eða lögskýringargögnum
gefi til kynna að skilja megi orðalagið
„umönnun barns“ með þeim hætti að
það eigi aðeins við þegar um er að
ræða umönnun „alvarlega veiks
barns“. Tilmæli umboðsmanns eru að
mál stúdentsins sem um ræðir verði
tekið til skoðunar að nýju, óski konan
þess, og að málskotsnefndin leysi þá
úr því í samræmi við þau sjónarmið
sem fram koma í áliti hans.
Þungur áfellisdómur yfir LÍN
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formað-
ur Stúdentaráðs, segir álit umboðs-
manns vera þungan áfellisdóm yfir
LÍN, en þetta er í þriðja skipti á
þessu ári sem umboðsmaður Alþingis
gagnrýnir málsmeðferð lánasjóðsins
þegar kemur að undanþágum frá
endurgreiðslum námslána. Þorvarður
Tjörvi segir að í þessu áliti gangi um-
boðsmaður lengst í gagnrýni sinni, yf-
irstjórn sjóðsins sé ekki einungis
gagnrýnd fyrir að rannsaka viðkom-
andi mál ekki nógu vel, heldur einnig
fyrir að þrengja heimildir stúdenta til
að fá undanþágu frá endurgreiðslum
námslána án þess að heimild sé fyrir
því í lögum og reglum sem gilda um
sjóðinn.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að
málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra
námsmanna hafi ekki farið að lögum
þegar beiðni stúdents um undanþágu
frá fastri ársgreiðslu af námslánum
hinn 17. september 1999 var hafnað á
þeirri forsendu að barn stúdentsins
væri ekki alvarlega veikt. Hægt er að
fá undanþágu vegna umönnunar
HARKALEG líkamsárás sem ung-
lingsstúlka varð fyrir á Landakots-
túni í síðustu viku hefur vakið ugg
meðal íbúa í hverfinu og varar fólk
börn sín við að fara einsömul yfir tún-
ið þar sem árásarmaðurinn hefur enn
ekki náðst og málið því óupplýst.
Stúlkan, átján ára menntskæling-
ur, var á leið í skóla klukkan átta að
morgni í síðustu viku. Að sögn móður
stúlkunnar var orðið albjart þennan
morgun þegar hún gekk yfir túnið eft-
ir göngustíg sem liggur þar í gegn. Þá
kom maður gangandi á móti henni
eftir stígnum, kastaði sér á hana svo
hún féll inn í runnaþykknið. „Hann
virtist ekkert skuggalegur – bara
vegfarandi rétt eins og hún en þegar
hann var kominn í návígi sá hún að
hann var sjúskaður. Í staðinn fyrir að
ganga framhjá henni gekk hann í veg
fyrir hana og kastaði henni inn í runn-
ana. Dóttir mín er í mjög góðri þjálf-
un, bæði sterk á líkama og sál, svo
hún barðist um á hæl og hnakka og
öskraði á hjálp. Athygli árásarmanns-
ins beindist að því að þagga niður í
henni þar sem hann hélt fyrir vit
hennar, skellti höndinni fyrir munn-
inn á henni svo hún beit illa í tunguna
á sér. Hann tróð höndunum upp í
hana og reif í munnvik hennar, kýldi
hana aftan í höfuðið og skaddaði hana
talsvert í andliti,“ segir móðir stúlk-
unnar um árásina. Stúlkan hlaut einn-
ig sár á handlegg og fótleggjum.
„Engir þessara líkamlegu áverka
eru sem betur fer varanlegir en þessi
aðstaða að lenda í svona árás er ekki
það sem neinn vill þurfa að upplifa og
sérstaklega ekki að aðrir, sem hafa
minna bolmagn til að verjast, lendi í
svipuðu,“ segir móðirin en dóttir
hennar náði að verjast árásarmann-
inum af svo miklum krafti að hann
hljópst á brott. Tvær nágrannakonur
mæðgnanna voru vitni að árásinni og
komu stúlkunni til aðstoðar.
„Önnur þeirra var að horfa á eftir
syni sínum fara í skólann og hin var að
viðra hundana sína þegar þær heyrðu
öskrin í dóttur minni. Þær komu að
rétt eftir að hún hafði hrist manninn
af sér og veittu henni ómetanlegan
stuðning. Þær tóku hana með sér
heim og hringdu á lögreglu og viljum
við þakka þessum góðu grönnum fyr-
ir hjálpina og benda á mikilvægi þess
að fólk hafi augu og eyru opin og komi
náunga sínum til hjálpar.“
Líkamsárás í
runnaþykkni
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
komist að þeirri niðurstöðu að Fé-
lagsþjónustan í Reykjavík hafi ekki
starfað í samræmi við lög þegar
stofnunin svaraði fyrirspurn eins
skjólstæðinga sinna. Karlmaður
sendi fyrirspurn um hvort hann
fengi áframhaldandi greiðslur frá
stofnuninni auk þess sem hann
spurðist fyrir um rétt sinn til lækn-
isaðstoðar og menntunar.
Í áliti umboðsmanns segir að fé-
lagsmálanefndum sveitarfélaga sé
óheimilt að taka beinlínis afstöðu til
þess hvort einstaklingar eigi rétt á
sjúkratryggingu, enda hafi löggjaf-
inn sérstaklega falið Trygginga-
stofnun, að taka ákvarðanir um rétt
manna að því leyti.
Félagsþjón-
ustan fór ekki
að lögum