Morgunblaðið - 11.09.2001, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Tölvunámskeið á næstunni
Tölvulæsi 1
fyrir byrjendur
60 kennslustundir
13. sept. - 22. okt.
kl.17:30 - 21:00 þri, fim
Hæg yfirferð.
Hagnýtt tölvunám 1
60 kennslustundir
18. sept. - 26. okt.
kl.17:30 - 21:00 þri, fim
Venjuleg yfirferð.
Stök námskeið
10-20 kennslustundir
Venjuleg yfirferð.
• Internet Explorer
12. - 13. sept. kl. 17:30 - 21:00
• Outlook
17. - 19. sept. kl. 13:00 - 16:30
• Windows
17.- 20. sept. kl. 17:30 - 21:00
• Word 1
24.- 27. sept. kl. 08:30 - 12:00
Lært á laugardögum
10 kennslustundir
kl. 09:00 - 17:00 Hraðnámskeið
fyrir þá sem vilja nýta helgina
til náms.
• Windows 2000 15. sept
• Word 1 22. sept.
• Excel 1 29. sept.
Hádegismatur innifalinn.
Horfðu til framtíðar
Faxafeni 10 (Framtíð) · Sími 561 6699
tolvuskoli@tolvuskoli.is · www.tolvuskoli.is HTML
28. - 29.sept. kl. 08:30 - 16:30
FrontPage 1
8. - 11. okt. kl. 08:30 - 12:00
FrontPage 2
5. - 8. nóv. kl. 17:30 - 21:00
Stök námskeið í vefsíðugerð ætluð byrjendum
Ath!
Skrá
ning
sten
dur
yfir
DR. SUNITA Gandhi, fram-
kvæmdastjóri Áslandsskóla
og Íslensku menntasamtak-
anna sem reka skólann, segir
að Kristrún Lind Birgisdótt-
ir, fyrrverandi skólastjóri
skólans, hafi átt í vandkvæð-
um með hópvinnu sem hafi
skapað erfiðleika við skólann.
Hún hafi sjálf óskað eftir því
að segja upp en var boðið að
taka þess í stað tveggja mán-
aða leyfi og að starfslýsingu
hennar yrði breytt þegar hún
sneri til baka. Nú hafi skól-
inn hins vegar samþykkt
uppsögn hennar.
Fjarvera Kristrúnar frá
skólanum hefur verið skýrð
með því að hún hafi tekið
leyfi af persónulegum ástæð-
um en Kristrún sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að
vegna samstarfsörðugleika
við Sunitu Gandhi hafi hún
sagt upp störfum. Að öðru
leyti vildi hún ekki tjá sig um
málið. Sunita segir að hún
hafi orðið mjög undrandi
þegar hún heyrði þessa skýr-
ingu Kristrúnar. Hún hafi af-
hent uppsögn sína hinn 2.
september síðastliðinn en þá
hafi Sunita ekki tekið við
henni heldur boðið henni að
koma til baka og fá breytta
starfslýsingu eftir tveggja
mánaða leyfi, sem hún hafi
þegið.
Átti í erfiðleikum
með hópvinnu
Hún segir að í uppsagn-
arbréfi Kristrúnar standi að
hún segi upp af persónuleg-
um ástæðum og það hafi ver-
ið samkomulag um að sú
skýring yrði gefin á brott-
hvarfi hennar. Það hafi skól-
inn og kennarar hans staðið
við í yfirlýsingum hingað til.
Að sögn Sunitu er verk-
efnaskipting skólans þannig
að samkvæmt starfslýsingu
Kristrúnar átti hún að hafa
umsjón með námsefni,
stundatöflugerð og að skipu-
leggja starf kennaranna en
aðrir aðilar sæju um aðra
þætti. Innan þessa ramma
hafi Kristrún haft algerlega
frjálsar hendur. „Þannig að
hún hafði afmörkuð verkefni
en það lítur út fyrir að hún
hafi eytt miklum tíma í ann-
að. Kannski var það vegna
þess að hún var að kynnast
þessu nýja skólakerfi en ég
tel að mikið af vandamálun-
um hafi stafað af því að hún
átti í erfiðleikum með hóp-
vinnu.“
Sunita segist ekkert hafa á
móti Kristrúnu persónulega.
„Hún er mjög hæf mann-
eskja og hefur marga mjög
góða eiginleika sem voru
góðir fyrir skólann en á sama
tíma var hún ekki á stað og
stund þar sem hún gat spilað
eftir eigin höfði á öllum svið-
um eins og hún vildi. Hún
var ekki tilbúin að vinna í
hópi og kannski er það það
eina sem við getum sagt með
vissu – að hún vildi ekki
vinna í hópi.“
Mönnun skólans í lagi
Hún segir þetta hafa verið
það eina sem hún hafi þurft
að hafa áhyggjur af því sam-
starfið við aðra hafi gengið
eins og í sögu. Nú hafi hins
vegar verið ákveðið að taka
við uppsögn Kristrúnar
þannig að tveggja mánaða
leyfi sé ekki lengur inni í
myndinni. „Við óskum henni
alls hins besta og vonum að
hún finni góða vinnu,“ segir
hún.
Hvað varðar staðhæfingar
um að skólinn hafi ekki á að
skipa því kennaraliði sem til-
skilið er segir Sunita að þar
sé um rangfærslur að ræða.
Íþróttakennari og hjúkrunar-
fræðingur séu starfandi við
skólann og sömuleiðis sé nú
búið að ráða forfallakennara
en sá sem gegndi því starfi
hafi þurft að taka að sér um-
sjónarkennarastarf þar sem
einn bekkur bættist við skól-
ann á síðustu stundu. Hins
vegar sé ekki búið að ráða
smíðakennara og heimilis-
fræðikennara þar sem
kennslustofur fyrir þessi fög
séu ekki til reiðu enda þurfi
ekki að kenna þessar greinar
allt skólaárið um kring. Þá
kenni kennarar skólans
minna en 30 kennslustundir
á viku sem sé jafnmikið eða
minna en í almennum grunn-
skólum en hins vegar séu
laun þeirra mun hærri.
Sunita segir að umræðan
um skólann hafi náð til for-
eldra barna við skólann. „Við
biðjum þá að vera jákvæða,
að minnsta kosti gagnvart
börnunum, þrátt fyrir hinn
neikvæða fréttaflutning af
skólanum því við viljum ekki
að þau verði særð vegna alls
þessa,“ segir hún og bendir
þeim á að snúa sér frekar til
skólans ef þeir hafa áhyggj-
ur.
Veldur bæjarstjóra
ekki miklum áhyggjum
Magnús Gunnarsson bæj-
arstjóri segir mál Áslands-
skóla ekki valda sér miklum
áhyggjum. „Ég hef ekki
fengið inn á borð til mín
kvartanir frá kennurum eða
öðrum sem standa að skól-
anum né heldur frá foreldr-
um í hverfinu.“
Hann segir ljóst að nei-
kvæð umfjöllun nú snúist
fyrst og fremst um stöðu frá-
farandi skólastjóra. „Málið er
í mínum huga þetta: Bæj-
aryfirvöld gera ákveðinn
samning við Íslensku
menntasamtökin. Það er far-
in ný leið og leiðin er sú að
þau ráða sér starfsfólk, þar
með skólastjóra. Meðan Ís-
lensku menntasamtökunum
er treyst til að fara með
þetta verkefni er þeim líka
treyst fyrir því að kennaralið
og aðrir sem starfa við skól-
ann uppfylli þær kröfur sem
við gerum varðandi menntun
og annað en við höfum líka
ákveðinn skilning á því að
menn eru að stíga ákveðin
skref, menn eru að fóta sig í
skólastefnu og skólastarfi
sem er algerlega nýtt og ég
get ekki séð annað en að
skólastarf sé þarna með al-
gerlega eðlilegum hætti.“
Inntur eftir því hvort bæj-
aryfirvöld muni fylgjast með
framgangi mála við skólann
segir Magnús: „Það er aug-
ljóst að það er ekki fylgst
jafngrannt með nokkrum
grunnskóla á landinu og
þessum og bæjaryfirvöld
munu örugglega ekki víkja
frá þeirri stefnu sinni að með
nýjungum þurfi bæði aðhald
og eftirlit en um leið þurfi að
gefa ákveðið svigrúm til þess
að þróa nýja hluti. Að sjálf-
sögðu munu bæjaryfirvöld
fylgjast grannt með málum á
næstu vikum og mánuðum
líkt og þau eru skyldug til
gagnvart öðrum skólum bæj-
arins.“
Skólastjóri Áslandsskóla lætur af störfum vegna ágreinings við Íslensku menntasamtökin
Skólinn hefur sam-
þykkt uppsögn
Hafnarfjörður
Morgunblaðið/Þorkell
Sunita Gandhi segir samstarfið við aðra starfsmenn Ás-
landsskóla en fyrrverandi skólastjóra hafa gengið vel.
Þrjú frábær fyrirtæki
1. Lítil heildverslun sem selur náttúruvænar snyrtivörur í lyfjabúðir
og gjafavörubúðir. Er einnig með gjafavörur fyrir blómabúðir.
Þægilegt fyrirtæki fyrir einn til tvo aðila. Miklir stækkunarmögu-
leikar.
2. Mögnuð tískuvöruverslun fyrir ungar konur. Flytur inn mest sjálf.
Er einnig með alla fylgihluti. Glæsileg verslun með góð tæki
og frábær sambönd. Er nálægt Reykjavík og fær mikla verslun
þaðan. Skilar góðum hagnaði. Myndir á staðnum.
3. Einn glæsilegasti sælgætis- og skyndibitastaður á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu. Öll nýjustu og bestu tækin og vönduðustu innrétting-
arnar. Tvær bílalúgur. Mikil velta, er núna um 6-7 millj., og stefnir
hratt upp. Stór myndbandaleiga. Allt nýtt og það allra besta.
Er hjá stórum matarfrekum skóla. Arðbært fyrirtæki.
Höfum kaupanda að stórri matvöruheildverslun.
Höfum kaupanda að smærri plastverksmiðjum.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
UNNIÐ er að deiliskipulagi nokk-
urra reita við Borgartún og voru til-
lögur þar að lútandi kynntar í Skipu-
lags- og byggingarnefnd í vikunni.
Það er vinnustofan Þverá sem sér
um hönnun deiliskipulagsins en um-
ræddir reitir afmarkast af Sæbraut,
Snorrabraut, Skúlagötu, Skúlatúni,
Borgartúni og Steintúni. Áður hafa
verið gerðir rammaskilmálar fyrir
Skúlatúnsreit eystri þar sem Véla-
miðstöðin var meðal annars.
Að sögn Valdísar Bjarnadóttur
arkitekts voru þrjár mismunandi til-
lögur að deiliskipulaginu kynntar í
skipulagsnefnd á miðvikudag en ekki
hefur verið tekin afstaða til þeirra.
Því er of snemmt að kynna þær að
þessu sinni.
Lögð var fram húsakönnun Ár-
bæjarsafns samhliða kynningunni og
aðspurð segir Valdís að könnunin
geri ráð fyrir að nokkur hús á svæð-
inu verði vernduð. Hins vegar sé
töluvert af húsum sem séu hálfgerðir
braggar og útbyggingar og verið sé
að heimila niðurrif á þeim.
Aftur á móti leggur Valdís áherslu
á að ekki sé verið að fyrirskipa nið-
urrif heldur veita eigendum þessara
húsa aukna möguleika á að nýta lóðir
sínar.
Skipulagt við Borgartún
Túnin