Morgunblaðið - 11.09.2001, Page 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
2001
anfarin ár, enda er þetta ágæt bú-
bót. Ég hef reyndar ekki smakkað
háfinn sjálfur en mér er sagt að
hann sé herramannsmatur. Að
minnsta kosti vill Bretinn ólmur
kaupa þetta af okkur,“ segir Sig-
mar.
Háfur, sem verður um 80-100
sentimetra langur, finnst allt í
kringum Ísland en er þó mun sjald-
séðari við norðanvert landið og
Austfirði en í hlýja sjónum sunnan-
NOKKRIR netabátar frá Vest-
mannaeyjum hafa síðustu daga
fengið töluvert af háfi í netin undan
suðurströnd landsins. Þannig land-
aði Pétursey VE um 10 tonnum af
þessum óvenjulega afla um síðustu
helgi. Sigmar Sveinsson, skipstjóri
á Pétursey, segir að oft fáist háfur í
netin á þessum árstíma. Aflinn sé
fluttur í gámum á Bretlandsmarkað
og fyrir hann fáist ágætt verð. „Við
höfum veitt svolítið af háfi und-
og suðvestanlands. Íslendingar
hafa fram til þessa lítið borið sig
eftir háfnum en Frakkar, Skotar,
Írar og Englendingar hafa í gegn-
um tíðina sótt nokkuð í þennan sér-
kennilega fisk. Í bók Gunnars Jóns-
sonar, Íslenskir fiskar, segir að
mest hafi veiðst af háf á Íslands-
miðum árið 1957 eða 1.014 tonn og
þar af hafi Íslendingar veitt 207
tonn sem sé mesti afli okkar til
þessa.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Skipverjar á Pétursey VE landa góðum háfsafla í Vestmannaeyjum.
Fá mikið af háfi í netin
KAUPÞING hf. hefur gert samning
um kaup á svissneska eignastýring-
arfyrirtækinu Handsal Asset Man-
agement SARL, sem hefur aðsetur í
Genf. Þetta kom fram í tilkynningu
frá Kaupþingi á Verðbréfaþingi Ís-
lands í gær. Þar segir að með kaup-
unum eignist Kaupþing 100% hlut í
félaginu, en seljandi sé Michelle Val-
fells. Michelle mun starfa áfram fyr-
ir félagið og veita því forstöðu.
Tilgangur kaupanna er sagður
vera að renna frekari stoðum undir
rekstur Kaupþings í Sviss. Samning-
urinn er gerður með fyrirvara um
samþykki fjármálayfirvalda um
heimildir Kaupþings til kaupanna.
Eignastýring ofan á skuldastýringu
Bjarni Markússon, forstöðumaður
Kaupþings í Sviss, segir að með
kaupunum sé verið að bæta eign-
astýringu ofan á þá skuldastýringu
sem fyrirtækið sé með og að þannig
sé verið að auka þjónustuna. Hann
segir að Handsal Asset Management
hafi verið dótturfélag verðbréfafyr-
irtækisins Handsals. Michelle Val-
fells hafi í desember 1998 keypt fyr-
irtækið af eldri eigendum Handsals.
Burnham International tók hins veg-
ar yfir rekstur Handsals á miðju ári
1999.
Að sögn Bjarna hefur Handsal
Asset Managemet starfað við það að
stýra eignum þriðja aðila, þ.e. að sjá
um fjárfestingar fyrir viðkomandi.
Hann segir að starfsemi Kaup-
þings í Sviss gangi vel og segist
ánægður með þær móttökur sem
fyrirtækið hafi fengið á því ári sem
liðið sé frá stofnun þess. Með kaup-
unum á Handsal Asset Management
sé verið að treysta grunninn enn
frekar.
Michelle Valfells er eiginkona
Jóns Valfells sem starfar hjá Rauða
krossinum í Genf.
Kaupþing kaupir
eignastýringar-
fyrirtæki í Sviss
KOLMUNNAVEIÐI er ennþá
góð og allt bendir til þess að afli
Íslendinga verði meiri en
nokkru sinni. Nú hafa íslenzku
skipin landað um 235.000 tonn-
um af kolmunna á Íslandi. Auk
þess hefur nokkru magni verið
landað í Færeyjum eða alls
tæplega 8.000 tonnum. Heild-
arafli íslenzku skipanna er því
ríflega 242.000 tonn, en var allt
síðasta ár um 260.000 tonn.
Samkvæmt upplýsingum
Samtaka fiskvinnslustöðva hef-
ur alls verið landað hér á landi
ríflega 275.000 tonnum og er
hlutur erlendra fiskiskipa í því
um 40.000 tonn. Mestu hefur
verið landað á Eskifirði, um
66.500 tonnum, 55.200 tonnum
hefur verið landað hjá SR-mjöli
á Seyðisfirði og 54.400 hjá Síld-
arvinnslunni í Neskaupstað.
Mikil veiði
á kolmunna
ÁKVÖRÐUN sjávarútvegsráðherra
að setja keilu og löngu í kvóta, sam-
hliða því að afnema þorskaflahá-
markskerfi og þakkerfi krókabáta,
hefur leitt til þess að línubátar í
krókaaflamarki á Suðausturlandi,
suður um og norður í Breiðafjörð
hafa legið bundnir við bryggju í þá
10 daga sem liðnir eru af fiskveiði-
árinu, að sögn Arnar Pálssonar,
framkvæmdastjóra Landssambands
smábátaeigenda.
Örn segir ekki bæði sleppt og
haldið í þessu máli, það gangi ein-
faldlega ekki upp að stjórna með
þessum hætti. „Varla hefur það verið
ætlun sjávarútvegsráðherra að
leggja af línuútgerð krókabáta á
þessu landsvæði. Framkvæmd
krókaalfamarks, samhliða kvóta-
setningu í keilu og löngu er hins veg-
ar ávísun á slíkt. Við eru vongóðir
um að nefnd sem nú vinnur að end-
urskoðun á lögum um stjórn fisk-
veiða leggi til að veiðum krókabáta
verði stjórnað með svipuðu kerfi og
var áður en hið svokallaða krókaafla-
markskerfi var sett á. Ef að stjórn-
völd hinsvegar kvika ekki frá króka-
aflamarkskerfinu þá munum við
krefjast þess að krókabátum verði
heimilaðar frjálsar veiðar þeim teg-
undum sem ekki teljast til krókaafla-
marks. Verði ekki fallist á það er það
lámarkskrafa að aflareynsla þessara
báta verði metin,“ segir Örn.
Enginn keilu- og
löngukvóti til leigu
Í ályktun stjórnarfundar Árborg-
ar, félags smábátaeigenda á Suður-
landi, er kvótasetningu á keilu og
löngu sem nýlega kom til fram-
kvæmda með reglugerð, harðlega
mótmælt. Í ályktuninni segir að
þetta megi skilja sem svo að áhöfn-
um krókaaflamarksbáta sé fyrirlagt
að henda öllum keilu- og lönguafla en
gæta þess vandlega að ekki sjáist til
þeirra. Bent er á að þessum bátum
sé skilt að nota króka við veiðarnar,
þeir noti aðallega línu en á hana
veiðist alltaf keila og langa sem með-
afli við Suðurströndina. Við upphaf
fiskveiðiársins sé enginn keilu- eða
löngukvóti til leigu og því standi bát-
arnir frammi fyrir því að róa ekki
eða að henda keilu- og lönguaflanum.
Fer stjórn Árborgar þess á leit við
sjávarútvegsráðherra að hann leið-
beini mönnum um hvor leiðin skuli
farin.
Þurfa að henda
keilu og löngu
ÞRÁÐLAUST fjarskiptakerfi sem
vinnur á örbylgju og veitir aðgang
að Netinu hefur verið sett upp í
Reykjavík. Útbreiðslusvæði kerf-
isins nú er Reykjavík, Kópavogur,
Seltjarnarnes og hluti Garðabæjar
en það er enn í uppbyggingu.
Íbúar og fyrirtæki á þessu
svæði geta tengst Netinu þráð-
laust með loftneti og tengibúnaði
frá fyrirtækinu eMax, sem á og
rekur kerfið í samstarfi við banda-
ríska fyrirtækið iDigi Comm-
unications, en það er með einka-
leyfi fyrir tækninni sem notuð er.
Samkvæmt upplýsingum frá
eMax er ekkert upphafsgjald fyrir
þjónustuna en greiða þarf fyrir
uppsetningu búnaðar og fast gjald
er greitt mánaðarlega fyrir þjón-
ustu. Ekki er þörf á tengingu við
síma.
Veitir þráðlausan
aðgang að Netinu