Morgunblaðið - 11.09.2001, Page 49

Morgunblaðið - 11.09.2001, Page 49
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 49 SAMRÆMD VEFMÆLING VIKA NR. 36 Sjá á www.chamber.is og textavarpi síðu 611 Samræmd vefmæling er listi yfir vefsetur, sem öll eru mæld af Modernus ehf. VEFUR FLETTINGAR INNLIT GESTAFJÖLDI www.mbl.is 1.355.935 420.147 83.061 www.simaskra.is 413.935 108.063 35.275 www.einkamal.is 1.126.808 131.698 23.044 www.hugi.is 349.472 64.964 15.236 www.strik.is 259.396 61.411 20.994 www.theyr.com 121.847 36.534 16.931 www.torg.is 121.363 33.252 8.122 www.femin.is 280.415 30.978 8.999 www.ruv.is 30.292 11.475 5.542 www.formula1.is 43.136 10.729 3.400 www.eidfaxi.is 34.634 9.707 3.192 www.althingi.is 41.395 9.423 4.301 www.netdoktor.is 50.232 8.656 4.757 www.textavarp.is 10.354 8.171 4.621 www.rsk.is 10.513 4.519 1.649 www.skifan.is 22.311 4.194 2.126 www.sjonvarp.is 14.729 4.069 2.234 www.gulalinan.is 16.241 3.728 2.700 www.form.is 9.554 3.380 2.260 www.ha.is 8.948 2.724 1.700 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. Verslunarráð Íslands 13–17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam- komulagi. FRANSMENN Á ÍSLANDI: Safn á Fáskrúðsfirði um veru franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í sumar kl. 10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Netfang: alberte- @islandia.is FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði, s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og eftir samkomulagi. GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar frá kl. 9–19. GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykjavík. Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S. 551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá 11. júní til 13. ágúst. HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17. LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS – HÁSKÓLABÓKA- SAFN: Opið mán.–fim. kl. 8.15–22, föst. kl. 8.15-19, lau. 9–17, sun. kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð sunnud. og hand- ritadeild lokuð laugard. og sunnud. S: 525 5600, bréfs: 525 5615. LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703. LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir, kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13– 16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á internetinu: http//www.natgall.is LISTASAFN REYKJAVÍKUR THE REYKJAVÍK ART MUSEUM Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105 ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191 Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista- safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 – 101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net- fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn- @reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu- daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19 Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105 Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista- safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí– september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla daga LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag- lega kl. 12–17 nema mán. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í s. 553 2906. LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla mið. kl. 12-18. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús, Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax: 563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán.–föst. kl. 10-16. LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17. MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími 575-7700. MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1. júní til 15. sept. kl. 11-17. MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borg- ara. Safnbúð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi, kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust- @eldhorn.is. MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/ Elliðaár. Frá 1. sept. - 31. maí er opið á sun. kl. 13–17. Hægt er að panta leiðsögn á öðrum tímum í síma 567 9009 eða á netfang: rafheimar@or.is MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor- steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253. IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550 og 897 0206. MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein- holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum tíma eftir samkomulagi. NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630. NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16. NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga frá kl. 13-17. NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17. Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bré- fas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða: hhtp://www.nordice.is. PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn- arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321. RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s. 551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16. SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási 7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn@natmus.is SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS- SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S. 581 4677. SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl. Uppl. í s: 483 1165, 483 1443. SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18. S. 435 1490. STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður- götu. Handritasýning opin kl. 14-16 þri.-föst. til 15. maí. STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla daga kl. 13–18 nema mánud. er lokað. Opnað fyrir hópa utan þess tíma eftir samkomulagi. Maríukaffi býður upp á gómsætar veitingar á opnunartíma. Til sölu steinar, minjagripir og íslenskt handverk. S. 431 5566. Vefsíða: www.islandia.is/steinariki SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pant- að leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum 861-0562 og 866-3456. ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu lokaðar vegna endurbóta á húsnæði. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning- ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga frá kl. 11–17. Sími 545 1400. AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10– 19. Lau. 10–15. LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14– 18. Lokað mán. NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní – 1. sept. Uppl. í s. 462 3555. NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum- ar frá kl. 11–17. NÁMSKEIÐIÐ „Ráð til að umbreyta lífi þínu“ verður haldið næstu þrjá þriðjudaga í Odda, Háskóla íslands, á vegum Karuna, samfélags mahayana- búddista á íslandi. Búddamunkur kennir og byggir á samnefndri bók eftir Geshe Kelsan Gyatso. Námskeiðið hentar öllum þeim sem hafa áhuga á hugleiðslu og innri friði hvort sem þeir eru búddistar eða ekki, segir í fréttatilkyningu. Hvert skipti er sjálfstæð eining og kostar kr. 1.000 en kr. 500 fyrir námsmenn og öryrkja. Kennsla hefst kl. 20 og eru allir velkomnir. Fyrirlestrar um búddisma „UMHVERFISÁHRIF stórra uppi- stöðulóna eru oft nefnd til sögunnar þegar metin eru áhrif stórra vatns- aflsvirkjana á hálendinu. Umhverfis- áhrif stórra lóna geta verið víðtæk, en áhrif á áfok og eyðingu gróðurs vekja sérstakar áhyggjur þar sem slík áhrif eru yfirleitt óafturkræf. En hver eru þessi áhrif, og hvaða máli skipta þau? Hvaða mótvægisaðgerð- ir eru mögulegar? Um þetta verður rætt á sameig- inlegri málstofu Umhverfisstofnun- ar Háskóla Íslands og Landverndar þriðjudaginn 11. september kl. 16.00 í stofu 101 í Lögbergi, Háskóla Ís- lands. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn,“ segir í fréttatilkynningu. Á málstofunni mun Ólafur Arn- alds sérfræðingur á Rannsókna- stofnun landbúnaðarins flytja fram- söguerindi. Fulltrúi Landgræðslu ríkisins, Guðmundur Hagalín, stöðv- arstjóri í Búrfellsvirkjun, Matthías Loftsson jarðverkfræðingur og Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor munu sitja við pallborð ásamt frummæl- anda til að fjalla frekar um málið. Stór uppistöðulón og áfok UM helgina voru tíu öku- menn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur og 23 vegna hraðaksturs. Þá voru 40 umferðaróhöpp tilkynnt lögreglu. Brýnt er að ökumenn taki tillit til breyttra aðstæðna í umferð- inni sem fylgja haustkomunni. Öku- maður, sem grunaður er um ölvun, ók bifreið sinni inn í trjárunna á Sæ- braut við Skútuvog. Við leit fannst einnig tæki til fíkniefnaneyslu. Hljómtækjum stolið fyrir hundruð þúsunda Um helgina voru lögreglu til- kynntir 12 þjófnaðir og 10 innbrot að auki. Á föstudag var lögreglu til- kynnt um þjófnað á hljómflutnings- tækjum frá veitingastað í miðborg- inni. Verðmæti hlutanna nemur hundruðum þúsunda. Brotist var inn í fyrirtæki í miðborginni aðfaranótt laugardags og stolið tölvum og tæknibúnaði. Ekki er ljóst hvort það voru sömu aðilar sem fóru síðan aft- ur inn í fyrirtækið aðfaranótt mánu- dags og stálu tölvubúnaði. Tveir menn sáust á gangi í Hafn- arstræti með málverk á milli sín. Þegar þeir urðu lögreglu varir tóku þeir á rás en það náðist að handtaka annan. Málverkið höfðu þeir haft með sér af veitingastað þar sem þeir höfðu snætt. Auk þess að stela mál- verkinu höfðu þjófarnir farið frá ógreiddum reikningi á staðnum. Hinn handtekni var vistaður í fanga- geymslu. Aðfaranótt sunnudags voru tveir menn handteknir við innbrotstil- raun í fyrirtæki í Grafarvogi. Annar karlmaður var handtekinn við inn- brot á heimili í Grafarvogi. Við handtökuna náði viðkomandi einnig að vinna skemmdir á lögreglubif- reið. Þekktur brotamaður var hand- tekinn eftir innbrot í söluturn í Mos- fellsbæ aðfaranótt sunnudags. Hann hafði brotið rúðu og stolið skipti- mynt sem fannst á honum við hand- töku. Líkamsmeiðingar og gripdeildir Fimm líkamsmeiðingar voru til- kynntar til lögreglu um helgina, flestar vegna átaka milli ölvaðra manna í tengslum við skemmtana- hald. Lögreglan hafði afskipti af öku- manni í Breiðholti á laugardags- morgun. Í bifreið hans fundust ætl- uð fíkniefni. Maðurinn var yfirheyrður á lögreglustöðinni í Breiðholti en síðan sleppt. 19 ára piltur var handtekinn eftir þjófnað á fatnaði í verslun í Kringl- unni á laugardag. Hann hafði sett inn á sig fatnað fyrir á þriðja tug þúsunda króna. Við leit fundust einnig á honum ætluð fíkniefni auk greiðslukorta sem hann gat ekki gefið skýringu á. Úr dagbók lögreglunnar – 7.–10. sept. Innbrot og um- ferðaróhöpp tíð Í LAUGARDAGSBLAÐINU var birt grein um brunabótamat eftir Margréti Hauksdóttur lögfræðing og Örn Ingvarsson verkfræðing, sem bæði eru framkvæmdastjórar hjá Fasteignamati ríkisins. Línurit sem sýna átti afskriftaferil við með- alviðhald húss, og átti að birtast með greininni, féll út og er birt hér ásamt útskýringum. Í grein Margrétar og Arnar kom fram að við endurmat á brunabóta- mati er verið að hrinda í framkvæmd lögum sem marka breytta aðferðar- fræði við ákvörðun brunabótamats. Hún felst í því að við ákvörðun á brunabótamati fasteigna skuli taka tillit til afskrifta með hliðsjón af aldri, sliti, viðhaldi og ástandi eignar. Afskriftum má skipta í þrennt; efnislegar, úreldingar- og hagrænar afskriftir. Við endurmat Fasteigna- mats ríkisins á brunabótamati sem tekur gildi 15. september næstkom- andi, er beitt efnislegum afskriftum. Við útreikning efnislegra afskrifta er notuð byggingarfræðileg sundur- liðun, þ.e. hver bygging sem tekin er til brunabótamats er aðgreind í ein- staka byggingarþætti. Hver bygg- ingarþáttur er síðan sundurgreindur í annars vegar efnisliði og hins vegar vinnu- og vélaliði. Af heildarnýbygg- ingarkostnaði eru efnisliðir um 55% en vinnu- og vélaliðir um 45%. Þar sem aldur og slit hafa ekki áhrif á vinnu og vélakostnað er efnislegum afskriftum aðeins beitt á efniskostn- aðinn. Efnisþættir húss hafa mislangan endingartíma. Afskriftarhraði fer eftir endingartíma byggingarþátta, þannig afskrifast byggingarþáttur með 20 ára endingartíma (t.d. hrein- lætistæki) um 5% á ári en bygging- arþáttur með 50 ára endingartíma (t.d. gluggar) um 2% á ári. Einfalda mynd af afskriftarregl- unum má sjá í meðfylgjandi línuriti sem sýnir á lárétta ásnum aldur húss og á lóðrétta ásnum hvað eftir stend- ur af upphaflegum efnislegum verð- mætum sem eyðilagst geta í eldi. Við 50 ára aldur húss standa þannig um 79% eftir, þ.e. afskrifuð hafa verið 21% af upphaflegu gildi.                                              Afskriftir í brunabótamati Í MATVÆLAFRAMLEIÐSLU þarf oft að safna saman hlutum (t.d. fiskbitum) af óreglulegum stærðum og pakka þeim í skammta með gef- inni lágmarksstærð, t.d. uppgefinni markþyngd, segir í fréttatilkynn- ingu. Miðvikudaginn 12. september 2001 mun prófessor Páll Hensson segja frá reikniaðferðum sem Marel hf. og Verkfræðideild HÍ hafa þróað til að ákvarða samval eða niðurröðun hlutanna í skammta þannig að yfir- vigt sé lágmörkuð. „Ein reikniaðferðin hefur verið notuð síðan 1993 í Marel-samvals- flokkurum sem seldir hafa verið um allan heim, og sem sótt hefur verið um einkaleyfi á. Samstarf Marel hf og HÍ á þessu sviði hefur bæði gagnast Marel eins og að ofan grein- ir en einnig HÍ, en unnin hafa verið nokkur áhugaverð lokaverkefni í verkfræði og ýmis nemendaverkefni í námskeiðum um þetta efni. Sem stendur er Agni Ásgeirsson að vinna að PhD ritgerð um samvalið við Georgia Institute of Technology. Fyrirhugað er að hann segi frá sinni vinnu á fundi ARFÍ eftir áramót. Á fundinum mun Páll segja frá að- ferðum án þess að vera mjög tækni- legur. Hann mun einnig fjalla um ýmsar praktískar hliðar málsins, t.d. baráttu um einkaleyfi á reikniaðferð- um og sölu og notkun tækjanna sem reikniaðferðirnar eru í,“ segir í fréttatilkynningu. Fundurinn hefst kl. 16. 15 í Tæknigarði. Útflutningur íslenskra reikniaðferða Galtarviti í vitlausum hreppi Í viðtali við hljómsveitina múm í laugardagsblaðinu kom fram að sveitin hefði verið við upptökur í Galtarvita í Súðavíkurhreppi í sum- ar. Þarna er Galtarviti ranglega staðsettur. Hér áður fyrr tilheyrði hann Suðureyrarhreppi, en síðar var sá hreppur sameinaður Ísafjarð- arbæ og tilheyrir Galtarviti því sveit- arfélagi í dag. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT NÝLEGA var settur upp vefur fyr- ir áhugaljósmyndara. Slóðin er www.ljosmyndari.is. „Tilgangur með ljosmyndari.is er að miðla ýmsum fróðleik um ljósmyndun, birta greinar um allt er viðkemur ljósmyndun, gagnrýni á myndir, ljósmyndasamkeppnir, ljósmynda- sýningar, skoðanakannanir, upplýs- ingar um starfandi ljósmynda- klúbba á Íslandi, ljósmyndarafélög, viðtöl við ljósmyndara, jafnt at- vinnumenn sem og áhugamenn ásamt viðtölum við ýmsa er tengj- ast ljósmyndun á einn eða annan hátt. Á vefsíðunni ljosmyndari.is er fjöldinn allur af ljósmyndum. Fylgst verður með því nýjasta í ljósmyndun og reynt verður að gera því góð skil,“ segir m.a. í fréttatilkynningu Það er Pálmi Guðmundsson ljós- myndari sem hefur veg og vanda af uppsetningu þessarar vefsíðu áhugaljósmyndara, “ segir þar enn- fremur. Ný vefsíða fyrir áhuga- fólk um ljósmyndun ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.