Morgunblaðið - 11.09.2001, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 11.09.2001, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. TVEGGJA daga opinber heimsókn forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, til Norður-Þingeyjar- sýslu hófst í gær í blíðskaparveðri. Forsetinn og fylgdarlið hans skoð- uðu m.a. Dettifoss og Ásbyrgi. Þrettán ára trompetleikari, Magnea Dröfn Hlynsdóttir, lék tvö lög fyrir forseta og föruneyti við komuna að fossinum, undir niði Jökulsár á Fjöllum. Pabbi hennar, Hlynur Bragason, þurfti að halda nótunum fyrir dóttur sína svo að þær fykju ekki út í veður og vind. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikið fyrir forseta  Norður-Þingeyingar/6 FLUGVÉLAR frá varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli koma til með að fljúga í átt að rússneskum flugvélum sem fyrirhuga æfingaflug á N-Atlants- hafi ef þær nálgast loftvarnarsvæði Íslands. Frið- þór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, sagði að varnarliðið fylgdist með öllum óþekktum vélum sem kæmu inn fyrir svæðið. Hann sagði að flogið yrði í átt að flugvélunum í þeim tilgangi að bera kennsl á þær og jafnframt yrði þeim fylgt eftir meðan þær eru innan svæðisins. Ekki er algengt að rússneskar herfugvélar sjáist við Ísland. Það gerðist síðast fyrir tveimur árum, en þá hafði það ekki gerst síðan 1991. Utanríkisráðuneytið fékk síðdegis í gær frekari upplýsingar um æfingaflug rússnesku vélanna. Ráðuneytið og flugmálayfirvöld voru í gærkvöld að skoða hvort upplýsingarnar tryggðu að ekki þyrfti að koma til röskun á flugi farþegaflugvéla um ís- lenska flugumferðarsvæðið. Rússneska sendiráðið tilkynnti utanríkisráðu- neytinu fyrirhugaðar æfingar á laugardagsmorg- un, en þær áttu að hefjast aðfaranótt mánudags. Utanríkisráðuneytið og íslensk flugmálayfirvöld töldu nauðsynlegt að fá meiri upplýsingar um æf- ingarnar svo að koma mætti í veg fyrir að þær hefðu áhrif á farþegaflug um svæðið. Rússar brugðust við gagnrýninni með því að fresta æfing- unum um tvo daga og sendu svo viðbótarupplýs- ingar í gær. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði að samkvæmt upplýsingum Rússa stæðu æfingarnar á íslenska flugstjórnarsvæðinu í einn dag, en þeir væru með tvo daga til vara ef á þyrfti að halda. Ut- anríkisráðuneytið sagðist vænta þess að koma mætti þessum samskiptum í góðan farveg í fram- tíðinni enda hefðu Íslendingar átt vinsamleg sam- skipti við Rússa mjög lengi. „Ég held að við verðum að læra af þessu og standa öðruvísi að málum í framtíðinni. Við við- urkennum rétt Rússa til að stunda æfingar en för- um aðeins fram á að það sé gert með þeim hætti að við getum búið við það og flugsamgöngur yfir Ís- land geti verið með eðlilegum hætti,“ sagði Hall- dór. NATO með æfingar á sama tíma Nokkra athygli vekur að æfingar rússneska flug- hersins eru tilkynntar á sama tíma og kafbátaleit- aræfing Atlantshafsbandalagsins stendur yfir og norski flugherinn stendur fyrir NATO-æfingum á hafinu fyrir vestan Noreg. Stanislav E. Pokrovsky, staðgengill rússneska sendiherrans á Íslandi, sagðist ekki geta útilokað að einhver tengsl væru á milli þessara æfinga og æfinga Rússa. „Það er jafnan þannig að þegar einn aðili stendur að heræfingum fylgjast aðrir með. Ég vil ekki staðfesta að það séu tengsl á milli þessara æfinga, en ég útiloka það ekki,“ sagði Pokrovsky. Varnarliðið fylgist með æfingum rússneska flughersins á N-Atlantshafi Flogið verður í átt að rússnesku vélunum  Rússar gáfu/30 BJÖRK Guðmundsdóttir er nú á tónleikaför um heiminn til að kynna breiðskífu sína Vespertine. Í þeirri ferð stendur til að hún leiki hér á landi í desember og í viðtali við Morgunblaðið segir hún að sig skipti miklu að bestu tónleikarnir verði einmitt hér á landi. Vespertine hefur fengið góða dóma en Björk segist reyna að lesa sem fæsta dóma, hvort sem þeir séu góðir eða vondir, því að þeir hafi alltaf áhrif, „sama hvað maður þyk- ist vera öruggur með sig“. Á nokkrum tónleikum hefur Björk sungið án hljóðnema og segir hún það mikinn létti, því henni finn- ist hún ekki skila nema 30% af því sem hún vill þegar hún er með hljóðnemann í hendinni. Björk syngur á ensku á plötum sínum og tónleikum erlendis en segist í viðtalinu munu syngja á ís- lensku hér á landi eins og hingað til. „Þegar ég byrjaði að syngja söng ég hljóð í fimm ár. Síðan fór ég að reyna að setja íslensk orð í staðinn fyrir hljóðin og svo tóku við mörg ár þar sem ég hélt tónleika og starfaði erlendis. Mér finnst ég hafa sungið á ensku án þess að selja í mér tunguna af því að ég gekk í gegnum allt hitt fyrst … Það er ekkert slæmt að syngja á ensku; það fer eftir því við hvern þú ert að tala. Þess vegna mun ég alltaf syngja á íslensku þegar ég er á Ís- landi, annað væri bara rugl.“ Vonir standa til þess að innan hálfs mánaðar verði búið að ganga frá samningi um tvenna tónleika Bjarkar með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands rétt fyrir jól eins og kemur fram í viðtali við Þröst Ólafsson, framkvæmdastjóra Sinfóníunnar, í blaðinu í dag. Björk Guðmundsdóttir kynnir breiðskífu sína Vespertine um heim allan Bestu tónleikarnir verði á Íslandi  Tónlistin eðlisávísun/24  Unnið að tónleikum/28 SUMARIÐ 2002 verður fluga eina leyfilega agnið í alls átta laxveiðiám hér á landi, eftir að samþykkt var á fundi veiðirétt- areigenda í Laxá á Ásum að að- eins yrði veitt á flugu í ánni næsta sumar. Árnar sjö eru, auk Laxár á Ásum, Vatnsdalsá, Hofsá, Hrútafjarðará, Haf- fjarðará, Straumfjarðará, Fljótaá í Fljótum og Reykja- dalsá í Reykjadal. Þá er aðeins veitt á flugu í Kjarrá í Borg- arfirði. Auk þessa má nefna að í þremur laxveiðiám, Hítará, Norðurá og Miðfjarðará, er að- eins leyfð fluguveiði eftir mán- aðamót júní-júlí og maðkveiði er bönnuð á Nesveiðum í Laxá í Aðaldal, þótt spónveiði sé þar enn leyfð. Einnig eru sérstök fluguveiðisvæði í Laxá í Aðal- dal, utan Nessvæðanna, í Laxá í Kjós og í Elliðaánum. Litið er á bann við maðki og spón sem verndartæki, en nið- ursveifla laxastofnsins er mönnum áhyggjuefni. Aðeins fluga í átta veiðiám TVEIR erlendir menn voru úrskurð- aðir í viku gæsluvarðhald á sunnu- dag að kröfu lögreglunnar í Reykja- vík vegna gruns um að villa á sér heimildir með fölsuðum vegabréfum og að svíkja tugi þúsunda út úr bönk- um. Þeir voru með frönsk vegabréf og kannar lögregla nú um hvaða menn ræðir og hefur sent fyrirspurn til alþjóðalögreglunnar Interpol. Mennirnir voru handteknir á Laugaveginum á laugardagskvöld, en þá hafði athæfi þeirra í bönkunum verið kært. Þeir höfðu stundað að skipta gjaldeyri í bönkunum en létu kaupin ganga til baka með því að segja að þeir væru hættir við við- skiptin eftir að hafa fengið afhentan gjaldeyri. Þá fengu þeir eigið fé til baka en skiluðu hins vegar ekki öll- um hinum nýfengna gjaldeyri eins og þeim bar. Grunur um vegabréfa- fölsun og fjársvik

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.