Vísir - 31.08.1979, Side 3
VISIR Föstudagur 31. ágúst 1979.
Humar tandað.
Lélegrl humar-
vertfð lýkur
Mjög léleg humarvertið hefur verið á austur-
svæðinu svonefnda en út á það er gert frá Höfn i
Hornafirði. Telja fiskifræðingar að aflaleysið stafi
aðallega af köldum sjó i vor og fyrri hluta sumars.
Af þessum sökum var vertiðin framlengd um 2 vik-
ur, frá 15. til 31. ágúst þar sem ekki var nærri búið
að veiða upp i kvótann, sem er 2000 lestir.
Hjá Fiskifélaginu fengust þær
upplýsingar að aflinn hefði verið
orðinn um siðustu mánaðarmót
tæplega 1200 lestir.
Aflinn á Höfn var svo lélegur til
aö byrja með að ekki nema
helmingur þeirra sem höföu leyfi
til veiöanna, notfærðu sér leyfið.
„Heildaraflinn fram að þessu
er rúmar 70 lestir”, sagði
Kristján Þórarinsson hjá
hraðfrystihúsi Kaupfélags
MISRITUN
Misritun varð i myndatexta á
forsiðu Visis i gær. A myndinni
var sænski utanrikisráðherrann
Hans Blbc, en ekki sá danski,
Henning Christoffersen.
Austur-Skaftfellinga, „en það er
um 100 tonnum minni afli en i
fyrra. Hins vegar má geta þess,
aðbúið var að afla I70lesta i júli-
lok I fyrra, en nú er ágúst-
mánuður liðinn.
Það hafa komið heldur betri
róðrar I framlengingunni”, sagði
Kristján, „heldur en var i sumar,
en hinsvegar hefur enginn kraftur
veriö i veiöunum”.
Humaraflinn hefur verið þó
nokkuö betri á vestursvæöinu að
sögn Guðmundar Ingmarssonar
hjá Fiskifélaginu. Til dæmis
hefur aflinn við Eldey verið betri
en I meöalári. Á vestur-svæðið er
gert út frá Vestmannaeyjum,
Þorlákshöfn og viðar á suðvestur
horni landsins.
FI
„Þetta eru duttl-
ungar I Slöfn,”
-seglr Krlstján Benedlktsson. öorgarlulltrúl
„Ég hefði greitt Gylfa Kristins-
syni mitt atkvæði, vegna þess að
ég tel að hann hafi meiri menntun
og sé hæfari að gegna þessu
starfi,” sagði Kristján Benedikts-
son, borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins i borgarráöi. Kristján,
var sem kunnugt er fjarverandi
þegar atkvæðagreiðsla fór fram
um ráðningu framkvæmdastjóra
Æskulýösráös borgarinnar. Kosið
var um tvo frambjóöendur og
fékk Ómar Einarsson, fulltrúi á
skrifstofu Æskulýðsráðs, stöðuna
með atkvæðum tveggja sjálf-
stæöismanna og Sjafnar Sigur-
björnsdóttur, borgarfulltrúa Al-
þýöuflokksins.
Miklar deilur hafa risíö upp um
rétt Sjafnar til þess að sitja
þennanborgarráðsfund, en Krist-
ján Benediktsson var I frii, þegar
þetta geröist og átti Sjöfn að vera
varamaður Kristjáns. Vinstri
menn segja að Sjöfn hafi knúiö
fram atkvæðagreiðslu um stöð-
una með stuðningi sjálfstæöis-
manna, en ákveðið hafði verið að
atkvæðagreiðslan færi ekki fram
fýrr en Kristján væri kominn úr
frii sfnu.
Visir spuröi Kristján, hvort
fimm ára starfsreynsla Ómars
Einarssonar skipti engu máli i
þessu tilviki. Kristján kvað ekki
mega túlka skoöun sina á þessu
máli þannig, að hann teldi Ómar
óhæfan til að gegna stöðunni.
Kritján var þá spurður aö þvf,
hvort það skipti máli að Gylfi
Kristinsson væri vinstri maður en
Ómar ekki, en Kristján kvað svo
ekki vera.
Hvert er þitt viöhorf gagnvart
geröum Sjafnar Sigurbjörnsdótt-
ur I vinstra samstarfinu?
„Vegna þessarar ráðningar vil
ég segja aö mér finnst þetta ákaf-
lega óeðlilegt og taktlaust af
henni að beita sér gegn frestun
atkvæðagreiöslunnar.
Ég veit ekki hvort gjörðir
hennar geti talist sjálfstæðar,
miklu frekar ósjálfstæðar þvi
annaö hvort eru menn f meiri-
hlutasamstarfi og taka tillit til
samstarfsaöilanna eða ekki, en
hlaupa ekki þvers og kruss eftir
eigin duttlungum.”
— Finnst þér Sjöfn sýna sjálf-
stæði I ákvörðunum?
„Mér finnst ákvarðanir hennar
bera stundum meiri vott um
duttlunga en sjálfstæði.”
Visir náöi ekki sambandi við
Sjöfn Sigurbjörnsdóttur vegna
þessa máls.
Tónlelkar f MH undir
stjórn Paul zukofsky
Undanfarið hefur staöiö yfir
svokallaö Zukofsky námskeið á
vegum Tónlistarskólans i
Reykjavík. Leiðbeinandi og
hljómsveitarstjóri á námskeiöinu
er Bandarikjamaðurinn Paul
Zukofsky, sem er aö góöukunnur
sem fiðluleikari og hljómsveitar-
stjóri.
Námskeiðið hafa sótt 65 hljóð-
færaleikarar frá lslandi, Dan-
mörku, Sviþjóö, Finnlandi og
Englandi.
Námskeiðinu lýkur I kvöld með
tónleikum i sal Menntaskólans
við Hamrahlíð par sem flutt
verða nokkur af þeim tónverkum,
sem æfð hafa veriö á nám-
skeiöinu. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
1
Hðfum mðtmælt
yflrtðku Breta á
Rockall-klettl
„Við eigum ekki eingöngu að hafa samvinnu
við Færeyinga heldur athuga að taka upp viðræð-
ur við Breta og íra lika um, hvort þessar þjóðir
geti komist að samkomulagi um yfirráð á þessu
svæði”, sagði Eyjólfur Konráð Jónsson i viðtali
við Visi.
Nú eiga Færeyingar og Danir
I deilum við Breta út af rétti til
hafsvæðis á Atlantshafi I kring-
um klettinn Rockall eða Rokk-
inn, sem Bretar slógu eign sinni
á fyrir nokkrum árum.
Islendingar hafa mótmælt til-
raunum Breta til aö vinna sér
einhvern rétt með þvi aö slá
eign sinni á klettinn. Þannig
hefur Alþingi lýst þvi yfir að
ytri landgrunnmörk lslands til
suöurs verði ákveðin án tillits til
Rokksins (Rockall) og að sam-
vinna verði höfð við Færeyinga
til að tryggja sameiginleg rétt-
indi á landgrunnssvæöinu utan
200 sjómilna marka landanna.
A hverju byggja Bretar um-
ráð sin yfir klettinum?
„Þeir bara lýstu þvi yfir að
kletturinn kæmi undir skoska
lögsögu. Viö mótmæltum þvi
ekki þá, en erum búnir að þvi
núna með þessari ályktun Al-
þingis um, að við munum ekki
taka neitt tillit til klettsins i
sambandi við okkar landgrunn
til suðurs.
Danir mótmæltu þessum aö-
gerðum Breta llka á sinum
tima, fyrir hönd Færeyinga.
Það sem um er að ræða er aö
það eru fjögur lönd sem telja sig
eiga réttindi á hinni svokölluöu
Rockall-hásléttu og Hatton-
banka. Þetta sokkna land er
annars yfirleitt kallað Rockall-
svæðið. En Hatton-bankinn er
nær okkur heldur en Bretum og
Irum og minnsta kosti vestari
parturinn af honum mundi falla
til Islands, ef að miðlinureglan
gilti.
Það mætti athuga það fyrir
næsta fund hafréttarráðstefn-
unnar, hvort óformlegar um-
ræður þessara fjögurra þjóöa
gætu ekki leitt til samkomulags
um yfirráð á þessu svæöi”.
sagði Eyjólfur.
Menn vita ekki með vissu
hvort olia finnst á þessu svæði
en þaö er taliö liklegt.
Sennilega er þaö atriði undir-
rót deilnanna milli Dana og
Breta, en Danir telja aö hafi
Bretar sitt fram á þessum slóð-
um, muni þaö takmarka mjög
aögang Færeyinga aö þessum
auðlindum.
—FI
i ... u
FJÖLVA l=!Þ ÚTGÁFA
Klapparstig 16 Sími 2-66-59
. *
„Góð” bók er gulls ígildi
Hvað er það besta, sem
ein bókaútgáfa getur gert
á barnaári til að stuðla að
vexti og þroska barna? —
Það er að gefa út vand-
aða, listræna og í alla
staði fagra barnabók.
Hvað er það besta, sem
íslenskir foreldrar geta
gert fyrir barn sitt í bóka-
kaupum á ári barnsins?
Það er að láta af þeirri
ósvinnu, að meta börn sín
ekki meira en það að
kaupa aðeins lítilf jörleg-
ustu og ódýrustu bækurn-
ar. Þessi siður er því mið-
ur mjög útbreiddur og
sýnir virðingarleysi fyrir
sál barnsins. Metur fólk
börn sín ekki meira en
iþað, að það tímir ekki að
kaupa annað en ódýrt
efni?
Hvað er það versta sem
ein bókaútgáfa getur gert
börnum á þessu blessaða
ári barnsins. Það er að
kynda undir auglýsinga-
skrumi fyrir ómerkilegar
bækur. Það er hægt að
gera það, æsa börn upp
með skrýpum og látum.
Það er hægt að særa við-
kvæma sál og hafa alla að
fíflum með ómerkilegum
áróðri.
Vegna þess viðhorfs, að
foreldrar tíma ekki að
gefa börnum sínum góðar
bækur, hafa íslenskar út-
gáfur gefist upp á þvæi
að mestu að gef a út veru-
lega vandaðar, góðar og
dýrar barnabæk.ur.
Það helsta sem Fjölvi
hefur þar til málanna að
leggja eru tvær listafagr-'
ar bækur, önnur er
Grimmsævintýri í stóru
broti, myndskreytt af
frægum listamanni. Hitt
er hið undurfagra ævin-
týri um Prinsinn óham-
ingjusama, eftir Oscar
Wilde.
Á næstunni mun Fjölvi
gefa út enn eina sérlega
vandaða og fagra barna-
bók. Þetta er sagan af
Víu-litlu, langvíuungan-
um, sem elst upp í Horn-
bjargi innan um fjölda
frænda sinna. En svo
kemur að því að hún á að
hoppa úr bjarginu út í sjó-
inn og þá kárnar gaman-
ið. Via litla mun koma út
um miðjan september.
Hún er undur fallega
myndskreytt af sænsku
listakonunni önnu Marí
Lagercrantz.
—- AUGLYSING