Vísir


Vísir - 01.10.1979, Qupperneq 4

Vísir - 01.10.1979, Qupperneq 4
Mánudagur 1. október 1979 4 (pakarastofan *>*KLAPPARSTIG M Klapparstíg 29 - simi 13010 ^HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG Kýkomið Austurrískir jokkor 09 kopur Sendum í póstkröfu Smkmm LAUGAVEGI66 ” SÍMI25980 RIKISKASSINN VINNUR MEST í FJÁRHÆTTUSPIU Til er enskur málsháttur, sem segir: „Ef þú getur ekki sigrast á þeim, skaltu snúast i lið með þeim!” Þetta spakmæli virðast stjórnvöld ýmissa V-Evrópu- landa hafa haft að leiðarljósi, þegar þau hafa i vaxandi mæli leyft fjárhættuspil til þess aö drýgja skattatekjur. Misjafnlega er á þessu tekiö i hverju landi. t Bretlandi og Vestur-Þýskalandi virðast nær allar tegundir fjárhættuspils leyfilegar samkvæmt lögum og hefur rikissjóður ærinn gróða af. I öörum löndum, eins og Italiu, Grikklandi svo aö dæmi séu tekin , eru ströng takmörk sett á fjárhættuspilið fyrir ýmsar óllkar sakir. Bretar, þetta dagfarsprúða og hæglynda fólk, virðast ófor- betranlegir fiárhættusDilarar. Þeir veðja á hvaö sem vera skal: Hunda, hesta, knattspyrnu, happ- drætti, bingó... og áfram enda- laust. t fjárhirslur rikisins renna árlega hrikalegar upphæðir frá spilafikn þjóöarinnar. 1 skýrslu einnar stjórnar- nefndarinnar segir,að Bretar hafi 'veðjað á árinu 1976 upphæðum sem samtals hafa numiö um 62.4 billjónum króna, og þriðjungur þess mun hafa runnið til skatts- ins. Þessi skýrsla segir, aö hvorki meira né minna en 94% fullorö- inna þegna landsins stundi fjár- hættuspil i einu eða öðru formi. Þar af 40% reglulega. Eftir þvi sem nefndarmenn segja, veðja 35% á knattspyrnugetraunirnar og 9% á hunda og hesta að minnsta kosti einu sinni I mánuöi. Þessi hunda- og hestaveðmál þrifast I hundruðum verslana, utan veðhlaupabrautanna, og árin 1977 og 78 greiddu þessar veð- málastofur 105.5 milljaröa króna i skatta, og voru þær tekjur notaðar til þess aö bæta veð- hlaupabrautir og tilheyrandi mannvirki. Þar viö bætast spilavitin, sem blómstra, þrátt fyrir himinhá rekstrarleyfisgjöld. „Veðmál eru eins og rauður þráöur I gegnum allt okkar þjóð- félag,” segir séra Gordon Moody i breska kirkjuráðinu, en þaö hefur fvlgst með fjárhættuspilinu siðustu fjörutíu árin. Það sama mætti segja um Vestur-Þýskaland, þar sem leyfist allskonar fjárhættuspil, og rikið rakar að sér spilagróða. Hlutur rikiskassans er þó misjafn, eftir þvi hvað fjárhættu- spil er um að ræða. t V-Þýskalandi eru tuttugu og eitt spilaviti og velta þau árlega um 24 milljörðum króna. Þau verða að skila 97.5 Aftur I vinningum, en rikiö hiröir svo stærstan hlutann af þeim 2.5% sem 'eftir eru. Ymis happdrætti, knattspyrnu og veðhlaupagetraunir raka inn 24% af veöfénu. Þau skila aftur milli 50 og 70% i vinningum, og rikiö tekur hlut af þvi, sem eftir verður þá. t V-Þýskalandi er mun minna veðjað á kappreiðar en annarsstaðar, þar sem sú iþrótt er stunduð. Megnið af spilagróðanum, sem rikið ber úr býtum er notað sem tekjustofn ýmissa iþrótta-, menn- ingar-, velferðar- og mannúðar- mála. Ef ekki væri vegna skatts af hinum vikulegu getraunum og happdrættum, væri til dæmis dómkirkjan i Köln 1 rústum. Ólympiulæikarnir i Munchen 1972 voru til dæmis að hluta kostaðir af sjónvarpshappdrætti. Staðreyndin er sú, aö vestur- þýska rikið hefur skipulegt svo kyrfilega allt fjárhættuspil I land- inu, að glæpasamtök eiga ekki minnsta möguleika á að smeygja þar fæti inn fyrir dyr. Sama má segja um Bretland. A ttaliu, þar sem skuggi mafiunnar hvilir yfir öllu, eru yfirvöld ekki jafn-örugg um sig. Frá Mont Blanc til syðsta odda Sikileyjar getur forhertur fjár- hættuspilari aðeins fundið fjögur löglega rekin spilaviti. I Feneyjum, San Remo, Saint Vincent og Campione d’Italia. Það hefur nokkrum sinnum komið til tals I þinginu i Róm á siðustu árum að leyfa rekstur fleiri spilavita. Sú hugmynd hefur þó aldrei öðlast verulegt fylgi. Þessi ströngu takmörk, sem höfð eru á rekstri spilavita, hafa þó ekki aftrað Itölum frá öðrum fjárhættuspilum eða veömálum, bæði löglegum og ólöglegum, og sagt er að þar sé velt milljörðum króna á ári hverju. Rikishapp- drætti eru enn vinsælasta fjár- hættuspilið og gáfu þau af sér um 1.6 milljarö króna i skattatekjur á siðasta ári. Samt greiöa þau helming spilagróðans i vinninga. Það er á allra vitorði, að ólög- leg veðmál og spilaviti þrifast neðanjarðar, en embættismenn segja, að enn sem komið sé valdi það þeim ekki áhyggjum þvi það mun vera I svo litlum mæli. Yfir heildina litið virðast Italir ekki spilafiknir. t Grikklandi eru ekki miklar freistingar á þessu sviði á vegi almennings. Þó eru þar rekin þrjú spilaviti, en strangar tak- markanir á þvi hverjir lands- manna fái aö stunda þau. Banka- mönnum og opinberum embættis- mönnum er bannað að stiga þar inn fæti. Tvö spilavitin eru i Rhódes og Korfú, og þangað fær heimafólk ekki að koma. I Mount Parnes-spilavitið hjá Aþenu fá þeir Grikkir einir að koma, sem hafa á skattskýrslum sinum tvær milljónir króna I árstekjur eða meir. Engar sögur fara af glæpum eða spillingu I sambandi við spilavitin, sem á siðasta ári skiluöu af sér 5.6 milljörðum króna i rlkiskassann, eöa 75% spilagróðans. A Möltu aflar rikissjóður sér árlega með auöveldum hætti 1.6 milljarða króna i tekjum af happ- drættum, sem rikiö stendur fyrir, eða I skatti af auglýsingum annarra happdrætta. Möltubúar virðast mjög spila- fiknir og hafa tekjur af fjárhættu- spilinu farið vaxandi frá ári til árs. Þar gilda strangar varúöar- reglur til þess að fyrirbyggja að afbrotamenn geti seilst i þennan rekstur, og er þeim fylgt fast eftir. Af fréttum um handtökur manna og upptöku spilapeninga á siðustu mánuðum viröist ekki af veita.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.