Vísir - 11.12.1979, Side 3
Þriðjudagur 11. desember 1979.
3
Kampútseusöfnunln:
Kennarar I eln-
um skóla gáfu
á 3|u mllljón
milljón króna. Þá hafa nem-
endur við M.A. boöið fram að-
stoð sina við söfnunarstarfið og
nemendur i barnaskólum i
Reykjavik hafa aðstoðað við út-
gáfu á blaði Hjálparstofiiunar-
innar, Höndinni, og einnig við
gerð söfnunarbaukanna.
Þess má loks geta að framlög-
um má koma til skila á giró-
reikning 20005 og ennfremur til
sóknarpresta. — HR
Landssöfnunin á vegum
Hjálparstofnunar kirkjunnar er
nú i fiillum gangi og hafa þegar
safnast töluverðar npphæðir. að
sögn Guðmundar Einarssonar
fr amkvæm dastjór a.
Fyrir skömmu gáfu þannig
kennarar i einum af framhalds-
skólum Reykjavikur allar þær
greiðslur sem þeir fá fyrir að
fara yfir stila nemenda sinna.
Var hér um að ræða á þriöju
Franskur prófessor
fær fálkaorðuna
Hinm 22. nóvember 1979 var
Regis Boyer, prófessor, afhentur
stórriddarakross Fálkaorðunnar,
sem forseti Islands sæmdi hann
nýlega. Regis Boyer hefur verið
prófessor i Norðurlandamálum
við Parisarháskóla siðan 1969, en
á árunum 1961-1963 var hann
franskur sendikennari i Reykja-
vik. Hefur hann gefið sig sérstak-
lega að Islenskum bókmenntum
og menningu og stuðlaö mjög- að
útbreiðslu þekkingar um Island i
Frakklandi. Doktorsritgerð hans
við Sorbonne fjallaði um krisön-
dóm á íslandi á 12. og 13. öld, en
hún var gefin út nýlega. Hann
hefúr einnig samið mikiö rit um
heiðna trú á Norðurlöndum og rit
um mynd Islendingasagna af per-
sónuleika Islendinga. Nýjast af
frumsömdum verkum hans er rit
um Islendingasögurnar — Les
Sagas Islandaises.
Regis Boyer hefur þýtt á
frönsku talsvert af i'slenskum
bókmenntum, fornum og nýjum.
Má t.d. nefna Eyrbyggjasögu,
Njálu, Haraldar söguharðráða og
Landnámabók. Eru formálar
hans, ekki hvað sist að Njálu-þýð-
ingunni, hinir athyglisverðustu.
Tvær skáldsögur Halldórs Lax-
ness, Gerpla og tslandsklukkan,
hafa komið Ut I Frakklandi I þýð-
ingu Boyer og þýðingar hans af
islenskum nútimaskáldskap hafa
birst i m.a. Les Lettres Nouvell-
es.
Þess ber loks að geta að Regis
Boyer hefur oftsinnis komið fram
i útvarpi og kynnt islenskar bók-
menntir og menningu. Starf
Regis Boyer fyrir ísland er algert
einsdæmi i Frakklandi og þótt
viðar væri leitað.
Hefur pip flreyml
merkilegan flraum?
II Hrinpdu pá eða skrlfaðu fil Vfsis
2 Nokkuð er farið að berast af
í draumum og ráðningum á þeim,
? en Visir mun birta þessar frá-
' 'sagnir fyrir jólin. Eins væri gam-
■ an að fá frásögur af dulrænni
. jreynslu i annarri mynd. Lesendur
eru hvattir til að hringja eða
skrifa, ef þá hefur dreymt skýran
draum, sem hefur komiö fram.
Simanúmerið er 86611 og utaná-
skriftin: Visir, Siðumúla 14,
Reykjavik.
Gírórelknlngur fyrlr Da sem
vilia styðla móður Teresu
Móðir Teresa er nýkomin til
Oslóar til að taka á móti friðar-
verðlaunum Nóbels. Regla henn-
ar, Kærleikstrúboðarnir, starfar
nú I 70 löndum og hús systranna
eru orðin 143 talsins.
Hér á landi hefur verið opnaður
giróreikningur, sem þeir geta
lagt inná, sem viíja styðja starf
reglunnar. Söfnunarféö er sent til
eins af klaustrum reglunnar, sem
er i London og senda systurnar
það siðan til Indlands eða til
hvers þess staðar sem gefendur
óska eftir. Númer reikningsins er
23900-3og geta menn lagt framlög
sin inn á hann á pósthúsum og i
bönkum hvar sem er á landinu.
HASKOLABOLIR
Osvikin ámerísk gæðavara
á góðu verði: kr. 5.500.-
Laugavegi 37 Sími 12861
Laugavegi 89 Sími 10353
Verið velkomin
Harnæringarkúrar
SKÚLAGÖTU 54 - SÍMI 28141
RAKARASTOFAN SEVILLA
HAMRABORG 12 - SÍMI 44099
RAKARASTOFAN
DALBRAUT 1 - SÍMI 86312