Vísir - 11.12.1979, Blaðsíða 28

Vísir - 11.12.1979, Blaðsíða 28
Þriðjudagur 11. desember 1979 síminnerðóóll Spásvæði Veðurstofu tslands eru þessi: 1. Faxaflói, 2. Breiðafjörð- ur, 3. Vestfiröir, 4. Noröur- land, 5. Norðausturland, 6. Austfirðir, 7. Suðausturland, 8. Suðvesturland. Veöursoá dagsins K1 6 var 970 mb. lægð 500 km VSV af Reykjanesi og þaðan lægðardrag um 200 km S af Is- landi A á milli Skotlands og Hjaltlands. Milt veröur áfram. SV-land til Vestfjarða : A 3-5 en sumstaðar 6 á miðum, él með köflum. Norðurland: A eða SA 6-8 á miöum en SA 3-5 til landsins, skýjað. NA-land: SA 4-6 á miðum en hægari til landsins. Viða rign- ing. Austfirðir og SA-land: A 6-8, rigning. Heldur hægari sið- degis. Veðriö hér og har Klukkan 18 i gær: Aþena léttskýjaö 13, Berlin skiír 8, Chicago alskýjað 10, Feneyjarþokumóöa 8, Frank- furt skýjaö 10, Nuuk skýjaö ■í-8, London alskýjað 10, Luxemburg skýjaö 8, Las Palmas skýjað 20, Mallorca skýjað 14, Montreal skýjað + 8, New York skýjaö 17, Vín léttskýjað 6, Winnipeg skaf- renningur -=-8 Klukkan sex I morgun: Akureyri alskýjað 3, Bergen heiðrikt -í-4, Helsinki snjókoma -=-10, Kaupmanna- liöfn snjókoma 1, Osló létt- skýjað -=-6, Þórshöfnrigning 6. Loki segir Sagt er, að ungu ráöherrar Al- þýöuflokksins, og fyrrverandi ráðherrar Alþýðubandalags- ins, séu nú ákafastir stjórnar- myndunarmenn þcssara flokka, þótt það þyki ótriilegt um suma þeirra. Segið svo að ráðherrastólarnir hafi ekki áhrif.' verður Helgi Sellan lorsetl Samelnaðs ðings? „Faum ekkl svar um ðað irekar en aimað” seglr ðlalur Ragnar Grlmsson um alstððu Alðýðuflokkslns lll málsins ,/Við erum reiðubúnir að leggja til mann úr okk- ar röðum sem forseta Sameinaðs Alþingis," sagði ólafur Ragnar Grímsson, i morgun.* Olafur Ragnar sagöi, að Alþýöubandalagsmenn teldu eðlilegt, að forsetinn kæmi sam- kvæmt venju úr hópi næst- stærsta flokksins innan stjórnarmyndunarflokkannna. Samkvæmt heimildum Visis er Helgi Seljan forsetaefni Alþýðu- bandalagsins. ,,En við höfum ekki fengið svar frá Alþýöuflokknum I þessu frekar en öðru,” sagði hann. A viðræðufundi stjórnar- myndunarflokkanna i gær lögðu Framsóknarmenn fram skrif- lega tilllögur sinar i efnahags- málum og I dag munu alþýðu- bandalagsmenn leggja fram skriflega lista yfir helstu stefnu- mál sin. Framsókn og Alþýðubanda- lag stefna ákveðið að stjórnar- myndun, en Ólafur Ragnar sagði, að erfitt væri að átta sig á þvi, hvaða sjónarmið væru rikj- andi I Alþýðuflokknum. Hann sagði að sér sýndist ekki vera uppgert i flokknum, hvort þeir vildu fara inn i rikisstjórn og þá hvort þeir vildu inn i rikisstjórn af þessu tagi. _§j Enn hefur ekki oröiö mikill samdráttur I byggingariönaði á höfuöborgarsvæöinu, en útiitið er Iskyggilegt Myndin var tekin I morgun, þar sem smiöir unnu við mótauppslátt I höfuðborginni. Vfsismynd: GVA „Kvíðum ekkl bessum vetri” seglp Grétar Þorsteins- son h|á TrésmlOafélagl Reykiavlkur ,,Það hefur verið meira spurt um atvinnuhorfur og afkomu manna i okkar stétt i nágranna- löndunum nú i haust en áður, en mér er ekki kunnugt um, aö menn hafi tekið sig upp með fjöiskyldur sinar og flutt”, sagði Grétar Þor- steinsson hjá Trésmíðafélagi Reykjavfkur, þegar Visir spurði, hvort eitthvað væri um. aö smiðir færu úr landi i atvinnuleit. Grétar sagði, að undanfarin ár heföi það færsti aukana að smiðir tækju að sér verkefni utan Reykjavikur og örfá dæmi væru um, aö þeir hefðu flutt Ut á land vegna atvinnu sinnar. Nokkuð hefði verið um að menn hefðu farið til nágrannalandanna, aöal- lega Danmerkurog Sviþjóðar, til að kanna aðstæður eða vinna að ákveðnum verkefnum, enekki til að setjast aö. Hann sagði ennfremur, að at- vinnuhorfur hefðu verið betri I haust en búist hefði verið við og þeir kviðu ekki vetrinum, ef veðriðyrði ekkisl.; mt. Hinsvegar væru trésmiðir afar svartsýnir varðandi veturinn 1980-81, þvi að verulega hefði dregið úr lóðaút- hlutun og afleiðingar þess kæmu ekki fram fyrr en næsta vetur. — JM Hætta a mlklu atvinnu- leysl í byggingarlðnaDl Mikll övissa framundan, seglr formaður Landssambands Iðnaðarmanna ,,Það liggur i augum uppi að mikil óvissa verð- ur i byggingariðnaðinum á næstu mánuðum og hætta á mun meira atvinnuleysi en áður hefur þekkst”, sagði Sigurður Kristinsson forseti Landssambands iðnaðarmanna i samtali við Visi, en það hefur látið gera könnun á horfum i byggingarstarfsemi á þriðja fjórðungi þessa árs. Siguröur sagöi, aö sem dæmi um ástandiö væri aö nú störfuöu aöeins um 26% mannaflans i byggingariðnaðinum að ibúðar- byggingum, en hingað til hefði mestur hluti mannaflans starfað við slik störf. Aftur á móti hefði þeim fjölgað stórum, sem ynnu við viðhald og viðgerðir á húsnæöi og einnig væri nokkuð um það, að byggingarmenn af Reykjavikur- svæðinu færu út á land I leit aö verkefnum. Samkvæmt könnuninni er búist við samdrætti hjá fyrirtækjum með 44% mannaflans á siðasta fjórðungi þessa árs. Alls munu um 7400 manns hafa starfað I byggingariðnaðinum við lok þriðja ársfjórðungs. Um aukn- ingu á verkefnum var aöeins aö ræða hjá fyrirtækjum með 7,4% mannaflans. Verst mun ástandiö vera hjá verktökum, enda kemur fækkun nýbygginga jafnan fyrst við þá. Þá segir i könnuninni, að mikil óvissa riki um fyrirliggjandi verkefni. Velti hér mikið á opin- berum framkvæmdum hjá þeirri rikisstjórn sem við tekur, og einn- ig á starfsemi i húsnæðislána- kerfinu. Þá valdi óvissan sem rikt hafi i vaxtamálum, að menn halda nú gjarna að sér höndum i byggingarframkvæmdum. hr

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.