Vísir - 11.12.1979, Side 17
IÞriðjudagur 11. desember 1979.
SMHSfMÍjÍ
TVEGGJA
KYNSL6BA
Gunnel Beckman: Vorið þegar
mest gekk á.
Þýðandi: Jóhanna Sveinsdóttir.
Iðunn, 1979.
Frá Iðunni kom I haust út bók-
in Vorið þegar mest gekk á.
Höfundur hennar er Gunnel
Beckman, sænskur rithöfundur.
Eftir hana kom út á siðasta ári
bókin Þrjár vikur framyfir á
islensku. Auk ritstarfa er
Gunnel Beckman virk i sveitar-
stjórnarmálum i heimabyggð
sinni Solna, sem er útborg
Stokkhólms.
Vorið þegar mest gekk á er
sjálfstæð saga, enda þótt hún sé
i beinu framhaldi af fyrri bók-
inni. Hún fjallar um 18 ára
gamla stúlku, Maju að nafni.
Foreldrar hennar eru i þann
veginn að s kilja og Maja býr hjá
föður sinum. En hún finnur fyrir
einmanakennd heima hjá sér
þegar móðir hennar og systir
eru farnar. Þá fer hún fram á
það að amma hennar, sem er
hjartveikog dvelur á eíliheimili
fáiaðflytja inn til þeirra feðgin-
anna.
Sagan lýsir viðskiptum henn-
ar og vinar hennar og fram
koma mismunandi viðhorf
þeirra til samskipta kynjanna.
Bókin lýsir tilfinningum stúlku
á mjög viðkvæmu lifsskeiði.
Mörg athyglisverð málefni
eru tekin til meðferðar f þessari
bók. Þar vil ég fyrst nefna fall-
egalýsingu á samskiptum Maju
og ömmu hennar. Maja verður
til að gera tilveru ömmu sinnar
skemmtilegri. Gamla konan
velur á milli þess að dvelja í ró
og næði á elliheimili þar sem
henni leiðist og þess að búa hjá
syni slnum og sonardóttur, þar
sem oftast er heldur meira líf i
tuskunum. Það eykur likurnar á
að hún deyi fyrr en ella. Hún
tekur seinni kostinn, þar sem
hún vill lifa llfinu lifandi. Það
styrkir samband hennar við son
sinn og sonardóttur.
Flutningur ömmu Maju leiðir
huga lesandans að þvl, á hvern
hátt aldraðir eru einangraðir i
nútimasamfélagi. Það virðist
bókmenntir
Sigurður
Helgason
skrifar um
barnabækur
alltof fáum detta I hug að þeir
vilji reyna að lifa innihaldsrlku
og sjálfstæðu lifi eins og annað
fólk. Maja megnar að veita
ömmu sinni gleði og þær kunna
báðar vel að meta samveruna.
Skemmtilegur er sá kafli I bók-
inni, sem lýsir vinnubrögðum
Maju og félaga hennar við hóp-
vinnuna og á hvern hátt þau
hagnýta sér reynslu og þekk-
ingu gömlu konunnar og veita
henni um leiö þá tilfinningu að
hún hafi eitthvert gildi, en sé
ekki eins og dauður hlutur sem
beðið sé eftir að hverfi.
Inn I söguna blandast skiln
aður foreldra Maju. Einhvern
veginn virðist hún skynja það
hvernig móðir hennar f jarlægist
hana og það lif sem fjölskyldan
hafði lifað. Maju finnst hún vera
að missa tökin á æsku sinni og
llf hennar er að verða óráðið og
öryggislaust.
Ég held aö mér sé óhætt að
segja að ekki sé um auðugan
garð að gresja að þvi er varðar
bækur fyrir unglinga, sem
komnir eru af barnsaldri. Fyrri
bók Gunnel Beckman sem út
kom á slðasta ári vakti athygli
fyrirþað að hún þótti vera í takt
við nútlmann. Þessibók er gædd
sömu kostum. Hún lýsir vel
hugsunum ungs fólks og þeim
vandamálum sem það þarf að
gllma við I daglegu llfi. Hún
verður til þess að vekja lesend-
ur til umhugsunar og er það vel.
Þyðing Jóhönnu Sveinsdóttur
er á eðlilegu og lipru máli. Hún
staðfærir ýmislegt að islenskum
aðstæðum og er það vel.
Sigurður Helgason.
Fjaliavirkíð
endurútgefið
Suðri hefur endurútgefið Fjalla-
virkið eftir Desmond Bagley.
Þýðandi er Torfi Ölafsson.
Flugmaður I aukaferð yfir
himingnæfandi Andesfjöllin
neyðir fhigstjórann til að nauð-
lenda I 16 þúsund feta hæð. Þeir
farþeganna sem komastaf leggja
af stað i háskalega för niður fjall-
ið en rekast á vopnaðan óvina-
flokk sem leitast við að klófesta
aldraðan stjórnmálamann,
frænku hans undur-fagra og að-
stoðarmann hans.
Fyrsta öddu-bókin efúr Jennu
Jensdóttur og Hreiðar Stefáns-
son, kom út árið 1946 og heitir ein-
faldiega Adda, og siðan þá hefur
veriðstöðugeftirspurn eftir þess-
ari bók. Hefur hún verið endur-
prentuð mörgum sinnum og nú
kemur hún út I 6. útgáfu. Sömu
sögumásegjaum þærbækursem
fylgdu I kjölfarið allar hafa notið
feiknamikilla vinsælda, svo að
einsdæmi má telja með i'slenskar
barnabækur. Þetta eru einhverj-
ar hollustu og heilbrigðustu bæk-
ur sem foreldrar geta valið börn-
um sinum. Jenna og Hreiðar hafa
lært þá list til fullnustu að ná
athygli yngstu lesendanna og
skilja tilfinningalif barnanna af
næmni.
öddubækurnar eru sjö talsins
og fást nú allar i nýrri útgáfu.
Þær eru: Adda, Adda og litli
bróðir, Adda lærir að synda, Adda
kemur heim, Adda I kaupavinnu,
Adda i menntaskóla, Adda trúlof-
ast.
trtgefandi öddu-bókanna er
Bókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri.
ELVIS!
ELVIS!
Mleira af Elvls
Hagprent hefur gefið út barna-
bókina Elvis! Elvis! eftir Maria
Gripe. Þýðandi er Torfey Steins-
dóttir.
Þetta er framhald af bókinni
Elvis Karlsson.
A bókarkápu segirm.a. svo um
söguna: „Allan fyrsta daginn var
Elvis I skólanum.
Og allan annan daginn.
Og allan þriöja....
En svo fór hann ekki oftar.
Siðan rann það upp fyrir honum
að hann hefði alls ekki sjálfur
byrjað I skólanum heldur
mamma. Hannlét baradraga sig
með og vissi ekki hvað hann
gerði”.
ðdduöækurnar
f nýrri útuáfu
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu innheimtumanns rlkissjóös I Keflavlk, Jóns G.
Briem hdl., Arna Guðjónssonar hrl., Garöars Garöarsson-
ar hdl., Einars Viöar hrl., Hákons H. Kristjónssonar hdl.,
Hafsteins Sigurössonar hrl., Skarphéöins Þórissonar hdl.,
Ágústar Fjeldsted hrl. og Baldvins Jónssonar hrl., veröur
uppboösréttur Keflavlkur settur á skrifstofu embættisins
aö Vatnsnesvegi 33, Keflavik föstudaginn 14. des. nk. kl.
16.00. Þvl næst verður rétti framhaldiö I TOLLVÖRU-
GEYMSLUNNI t KEFLAVÍK, þar sem tekiö veröur fyrir
aö selja á nauöungaruppboöi bifreiöarnar:
P-1886, Ö-3469, Ö-5482, Ö-1425, 0-5211, Ö-5277, Ö-3945, ö-
1951, Ö-303, Ö-5199, R-43137, Ö-646, Ö-4536, Ö-4872, Ö-3595
Ö-449, Ö-2095, Ö-749, Ö-3698, Ö-391, Ö-1556, X-1249, ö-181l’
Ö-1423, Ö-2014, Ö-4771, Ö-830, Ö-459, Ö-1226, Ö-432, Ö-3469
Ö-3970, Ö-4001, Ö-1750, Ö-157, 0-4115, Ö-2008, Ö-5009, ö-
1308. Ennfremur: Therma tonic örbylgjuofn. Lips hræri-
vél, sófasett, hljómflutningstæki, 2 stóla, Philips litsjón-
varp, isskápa, Candy þvottavél og vökvapressu og
rafsuöuvél af Loke-gerð og handlyftara.
Þá veröa seldir eftirtaldir ótollafgreiddir munir. Privileg
frystikista, Privileg kæliskápur, Bosch frystikista og
Sharp hljómflutningstæki. Þessir munir eru nýir og veröa
TIL SYNIS FRA KL. 13-14 UPPBODSDAGINN t TOLL-
VÖRUGEYMSLUNNI t KEFLAVtK. Uppboösskilmálar
liggja frammi á skrifstofu uppboðshaldara. Greiösla fari
fram viö hamarshögg.
Uppboöshaldarinn f Keflavfk.
VEFARINNHF.
ÁRMÚLI 21 - SÍMI 84700
Bókhald og eignaimisýsla
Bókhaldsþjónusta og reikningsskil fyrir fyrir-
tæki og einstaklinga.
Tölvuvinnsla eða spjaldfærsla.
utvarpsklukka
Verð
frá
kr
43
500
BORGARTUN118
REYKJAVÍK SÍMI27099
SJONVARPSBUÐIN
RpC
snyrtivörur
Frönsk snyrtivörulína í fjölbreyttu úrvali, framleidd
fyrir viðkvæma húð og þá sem hættir við ofnæmi.
Gerð úr sérstaklega hreinsuðum hráefnum af bestu
fáanlegri gráðu og inniheldur engin ilmefni þar sem
þau geta verið varhugaverð fyrir viðkvæma húð.
Framleidd við sömu skilyrði og eftir sömu kröfum
og lyf og undir stjórn lyfjafræðinga. Á umbúðum er
getið innihaldsefna auk framleiðsludags. Varan
hefur þegar fengió gott orð hér og þykir afburóa
góð.
Hagstætt verð.
Einnig aðrar snyrtivörur, t.d.:
Ckristian Dior Clwtbl cl Hm feffx. MAX FACTOR
REVLOn * sans soucis jnflwpuwíl phyris
LÍTIÐ INN OG LlTIÐ A
LAUGAVEGS APOTEK
snyrtivönideiki