Vísir - 19.01.1980, Side 20
20
VÍSIR
Laugardagur 19. janúar 1980
hœ krakkar!
i
Sofðu unga ástin, min, úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þin,
gamla leggi og völuskrin, við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
Við þetta kunna kvæði hefur Kristbjörg átta ára i Snælandsskóla teiknað
meðfylgjandi mvnd.
LOA
Hún Lóa er sjö ára. Hún
býr i einni af stóru blokk-
unum, sem standa uppi á
hæðinni í stóra kaup-
staðnum. Lóa á heima á
8. hæð. Þegar Lóa fer inn
og út úr húsinu sínu verð-
ur hún alltaf að fara í
lyftu. En Lóu f innst gam-
an að fara í lyftu svo það
er allt í lagi.
Lóa er með skolleitar
fléttur og grá augu. Hún
hefur nokkrar freknur á
nefinu. Lóa er nýbúin að
missa tvær framtennur,
en bráðum fær Lóa nýjar
tennur, enn þá stærri og
fallegri en þær, sem hún
hafði áður. Það voru
litiar barnatennur. öll-
um, sem þekkja Lóu,
fannst hún samt ósköp
sæt með barnatennurnar
sínar litlu og sumum
finnst hún svo agalega
sæt svona tannlaus. En
Lóa er sennilega bara
alltaf sæt, að minnsta
kosti þegar hún er í góðu
skapi, sem hún er eigin-
lega alltaf.
Lóa fer í skóla, sem er
rétt hjá hæðinni, þar sem
allar stóru blokkirnar
eru. Henni finnst stund-
um gaman í skólanum, en
stundum finnst henni
leiðinlegt.
Þegar dimmt er úti á
morgnana og veðrið er
vont, þá finnst Lóu erfitt
að vakna snemma. Hún
vill þá heldur kúra sig
undir sængina sína.
En þá kemur pabbi eða
manna og segja: Þú verð-
ur að flýta þér á fætur.
Lóa er ekkert mjög
svöng svona snemma á
morgnana. Samt veit
hún, að hún á að borða
hollan og góðan mat áður
en hún fer í skólann. Hún
borðar oft súrmjólk eða
kornflögur með mjólk.
Það f innst henni meira en
nóg á morgnana. Mamma
og pabbi vilja samt að
hún borði meira, rúg-
brauð með osti t.d., en
Lóa er þa orðin pakksödd
af súrmólkinni.
Kennarinn hennar Lóu
heitir Sveinn. Lóu finnst
hann góður kennari. Lóa
er farin að lesa og reikna
og skrifa. Lóu finnst
gaman að lesa, en ekki að
skrifa. Það er eins og blý-
anturinn passi ekki í putt-
ana á henni og stafirnir
verða skakkir og Ijótir.
Þegar hún ætlar að skrifa
fallegan staf og vanda sig
mikið, verður stafur-
inn kannski aðeins fall-
egri en hinir, en alls ekki
nógu fallegur, finnst
henni. Þess végna kvíðir
hún heldur fyrir skriftar-
tímunum.
Krakkarnir í bekknum
hennar Lóu eru 22, 14
strákar og 8 stelpur.
Beztu vinir Lóu heita
Guðrún og Tómas. Þau
eiga bæði heima í stóru
blokkinni á hæðinni alveg
eins og Lóa. frh.
Kalli og Kata eru alveg komin i mát með púsluspilið sitt, þó vantar aðeins
eitt stykki. Hvaða stykki vantar?
(þ jauinM :jbas)
ELDSPÝTNAÞRAUT
Leggiö tvo eldspýtustokka á borðið. Bilið á milli þeirra á aö vera
lengra en eldspýtulengd. Hvernig er hægt aö byggja góða brú á
milli stokkanna með aðeins fjórum eldspýtum?
Svar: Birtist i næsta helgarblaðL
Hvaða tveir hundar á myndunum eru nákvæm-
lega eins og hvaða tvö fiðrildi eru nákvæmlega
; „9 £X §0 So nn go f :jbaS