Vísir - 24.01.1980, Síða 1
Fimmtudagur 24. janúar 1980, 20. tbl. 70. árg.
Kjötverslun Tómasar á
Laugaveginum í morgun. Pét-
ur Pétursson afgreiðslumaður
var i óðaönn að koma girnileg-
um þorramat fyrir á trogum,
en þorrinn byrjar á morgun.
Hjá Tómasi er meðal annars
hægt að fá þorrabakka með 17
tegundum matar og er þessi
skammtur um eitt kíló.(VIsism.
GVA).
„Rikisverksmiðjurnar á Siglu-
firði hafa ekki starfsleyfi frá
Heilbrigðiseftiriiti rikisins, en
mál þeirra hefur ekki veriö hægt
að taka fyrir hér hjá stofnuninni
ennþá vegna mannfæðar” sagði
Hrafn Friðriksson, yfirlæknir,
forstöðumaður Heilbrigðiseftir-
litsins i viðtali viö Visi.
Hrafn sagði, að verksmiðjunum
bæri að koma sér upp fullnægj-
andi mengunarbúnaöi, þannig að
ibúar á Siglufirði hefðu ekki
óþægindi af þessari starfsemi.
Tilefni fyrirspurnarinnar voru
mótmæli 800 Siglfirðinga til
stjórnar Sildarverksmiðja rikis-
ins vegna mengunar frá verk-
smiðjum þeirra á Siglufirði, sem
Visir skýrði frá i gær, en nánar er
fjallað um máliö á blaösiöu 11 i
dag.
SR á Slgluflrði án starfsleyflsl
áttl 20% il hlutalé
Kroditkorta hl.:
Stærsll
hluthaf-
inn selur
sinn hlut
Magnús K. Jónsson stærsti
hluthafinn i Kreditkort hf.,
sagði sig i gær íir stjórn
Kreditkorta hf. og hefur hann
einnig farið fram á að hluta-
brcf sin verði boðin til sölu.
1 yfirlýsingu sem Magnús
hefur sent frá sér, segir að á-
stæðan fyrir ákvörðuninni sé
sú, að hann hafi verið ,,auri
ataður af illum pennum” og
telji hann að það geti skaðað
framgang fyrirtækisins
Kreditkort hf. Hefur stjörn
fyrirtækisins samþykkt beiðni
hans um að vera leystur frá
störfum og bjóða hlutabréf
hans, sem nema tæpum 20% af
hlutafé fyrirtækisins, til sölu.
Segist stjórnin harma þann
„róg og dylgjur” sem Magnús
hefur verið borinn.
„Minskoðun er sú, að þessi
atriði eigi eingöngu við skrif
Timans i þessu máli”, sagði
Róbert Arni Hreiðarsson, lög-
fræðingur Kreditkorta hf.,
þegar Visir bar undir hann
þessi ummæli.
Visir hefur skýrt frá þvi, að
Magnús K. Jónsson hafi verið
stjórnarformaður Myndiðj-
unnar Astþórs hf. og Astþórs
Magnússonar hf. en þau fyrir-
tæki voru lýst gjaldþrota á sl.
ári.
Rétt er að taka fram, að
Visir hefur undanfarna daga
einungis skýrt frá staðreynd-
um málsins, sem liggja fyrir
hjá opinberum aðilum, en
hvorki birt „róg” né „dylgj-
ur”.
—HR
GlaldDrotamál
Myndiðjunnar
Ástpórs hf.:
Eignirnar fluttar til
mánuöi fyrlr gjaldDrot
Eignatilfærslunni má rifta að mati skiptastjóra
Myndiðjan Astþór hf. lét Giró-
myndir fá mestan hluta iagers
sins upp I skuldir, réttum
mánuði áöur en Myndiðjan var
lýst gjaldþrota. Samkvæmt
gjaldþrotalögum mun slik
eignatilfærsla vera riftanleg.
Þetta kom fram þegar Visir
ræddi við Guðmund Óla Guð-
mundsson skiptastjóra i gjald-
þrotamáli Myndiðjunnar Ast-
þórs. Eins og kunnugt er eru
Girómyndir I eigu Magnúsar K.
Jónssonar fyrrum stjórnarfor-
manns Myndiðjunnar Astþórs
hf„ en hann er stærsti hluthaf-
inn I Kreditkortum hf. eins og
Visir hefur skýrt frá.
Guðmundur Óli sagði að
eignatilfærsla þessi hefði farið
fram i janúarmánuði 1979, en 2.
mars hefði Myndiðjan verið
lýst gjaldþrota. Hefði andvirði
lagersins verið i kringum 5
milljónir króna. Taldi Guð-
mundur að eignatilfærsla þessi
væririftanleg aö þvi.leytiað hún
fór fram á sama áriog til gjald-
þrotsins kom og hefði það veriö
löngu fyrirsjáanlegt. Þ.að mun
að auki vera ástæða til riftunar
að greitt var í afbrigðilegum
gjaldeyri einsog vörubirgðum.
Guðmundur sagði að einnig
væru til athugunar eignatil-
færslur milli þessara fyrirtækja
frá febrúar 1978. Þá tóku Giró-
myndir nánast yfir eignir
Myndiöjunnar Astþórs. Voru
þá eignir og skuldir Myndiðj-
unnar metnar til jafns eða á 26
milljónir. Hvort það eignamat
fengi hins vegar staðist væri
ennþá nokkuð óljóst.
Aö sögn Guömundar nema
kröfur á þrotabúið nú 45-50
milljónum króna og eru stærstu
kröfuhafarnir Gjaldheimtan og
tollstjóri. Veröa kröfuhafar
kallaðir á fund, sennilega i
næstu viku, og þá veröur
væntanlega tekin ákvörðun um,
hvor áðurnefnd eignatilfærsla
milli fyrirtækjanna veröur kærð
til saksóknara til aö.fá henni
rift en slfkt veröur að gera meö
dómi.
— HR