Vísir - 23.02.1980, Side 8

Vísir - 23.02.1980, Side 8
vtsm Laugardagur 23. febrúar 1980 8 Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davfó Guómundsson Ritstjórar: Olafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Hannes Sigurðsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttlr, Katrln Pálsdóttir, Páll Magnússon, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfl Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Askrift er kr. 4.500 á mánuði Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. innanlands. Verð i lausasölu 230 kr. eintakið. Auglysingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Prentun Blaðaprent h/f. EKKI SÆMANDI 0PINBERRI ST0FNUN AÐkoman f húsnœ&l Félagsmálastofnunar Reykjavfkurborgar vfö Borgartún, sem Vfsismenn sko&u&u f vfkunnt, var svo slæm og húsnæ&iö svo só&alegt og óhrjálegt aö slfkt er engan veginn sæmandi opinberri stofnun, sem hefur þaö hlutverk a& hjálpa þeim, sem minna mega sin i borginni. Vísismenn heimsóttu og skoðuðu í vikunni húsnæði í Reykjavík, sem Félagsmála- stofnun borgarinnar hefur til af- nota og leigir skjólstæðingum sínum. Þær lýsingar, sem blaðið birti í máli og myndum af því, sem þar bar fyrir augu, hafa vakið undrun og fyrirlitningu. Þessi viðbrögð hafa ekki ein- ungis orðið meðal almennings, sem hrökk við og trúði varla, að nokkur (slendingur byggi við slikan aðbúnað, heldur hafa við- brögð nefndarmanna í félags- málaráði borgarinnar, sem hefur yfirstjórn Félagsmálastofnunar með höndum, verið á þann veg, að þeim hefur greinilega ekki verið kunnugt um, hvernig þetta húsnæði var útlítandi. Aðkoman var hrikaleg og um- hverfið og sóðaskapurinn þannig að um þverbak keyrði. Hjúkrunarnemar, sem komu á staðinn í janúarlok, og kærðu ástand húsnæðisins til Heil- brigðisef tirlits Reykjavíkur- borgar sögðu f Vísi í gær, að ástand húsnæðis Félagsmála- stofnunar hefði jafnvel veriðenn verra en lýst hefði verið í Vísi. Guðrún Helgadóttir, borgar- fulltrúi Alþýðubandalagsins sem sæti á í félagsmálaráði borgar- innar, sagði í viðtali við Vísi I gær, að sér fyndist mjög gott að Vísir hefði tekið þetta mál upp. Hún sagði augljóst, að þessum stað hefði ekki verið sinnt sem skyldi og væri hún auðvitað ekki ánægð með hvernig málum væri háttað þarna. Þjóðviljinn brást hins vegar við á furðulegan hátt í gær vegna frásagna Vísis og fer blaða- maður sem jafnframt er vara- borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins í einhverja illskiljanlega póli- tíska varnarstöðu vegna málsins og í stað þess að fjalla um hús- næðið og aðbúnaðinn f þessu leiguhúsnæði Félagsmálastofn- unarinnar, gerir Þjóðviljinn árásir á blaðamenn Vísis og full- yrðir, að blaðamaður og Ijós- myndari Vísis hafi falsað frétta- myndirnar, sem með greininni birtast. Þeim grófu ásökunum í garð Vísismanna svarar einn lög- reglumannanna, sem voru á staðnum I Vfsi í dag og vísar þeim til föðurhúsanna. Þá fullyrðir Þjóðviljinn, að Vísir sé með f rásögnum sínum að „selja" ógæfu og líferni fólksins, sem í húsnæðinu bjó, „tveggja vesalinga" eins og Þjóðviljinn kallar fólkið. Þetta er furðulegur þvættingur þar sem f frétt og greinum Vísis um málið er ekki stafkrókur um óhamingju fólksins, sem þarna átti hlut að máli, — þvert á móti er það einungis húsnæðið og að- búnaðurinn, sem Félagsmála- stof nun borgarinnar býður upp á, sem Vísir var að vekja athygli á. Þeir blaðamenn Vísis, sem þarna áttu hlut að máli munu kæra blaðamann Þjóðviljans til siðareglunefndar Blaðamanna- félags Islands fyrir skrif hans, sem eru algert brot á siðareglum blaðamanna. Það er auðvitað hlutverk f jöl- miðla að vera spegill þess sem er að gerast í þjóðlífinu og f þeim efnum ber blaðamönnum skylda til að segja sannleikann. Það hafa starfsmenn Vísis gert í þessu máli. Niðurstaðan er sú, að opinber stofnun eins og Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar get- ur ekki með nokkru móti boðið skjólstæðingum sínum upp á hús- næði af þessu tagi né heidur látið sjúklinga sem ófærir eru að sjá um sig sjálfir hírast á slíkum stöðum án eftirlits og aðstoðar. Menn hafa gengiö á skóla, menn ganga i skóla og ganga i skól- ann. Margir eru þeir or&nir morgnarnir sem ég hef fariö fótgangandi I skólann, bæ&i nemandi og kennari. Ég er me& þeim ósköpum fæddur, aö mér hefur alltaf þótt skólaganga skemmtileg, e&a svo til alltaf, skulum vi& segja: a& læra lær- dómsins vegna, a& kenna kennslunnar vegna. Skólinn hefur veitt mér óteljandi yndis- stundir og llfinu lit og gildi. 1 meira en tuttugu ár höfum vi& Jón Arni hringst á i morgun- sáriö, me&an kennsla er i skól- anum. Þetta er öryggisrá&stöf- un, ef viö skyldum ekki vakna i tæka tiö. Slikt hendir sjaldan bá&a. Gó&an dag, gott er, segjum vi& og látumst vera morgungla&ir og erum þa&, held ég. A&ur sex daga i viku, nú fimm daga veitist mér sú bless- un a& mega hefja morgungöngu til kennslu I skólanum sem hef- ur fóstraö mig, umboriö og ali&. Ekki er þa& litils viröi, aö geta hafiB morgungöngu sina ánæg&ur og meö nokkurri eftir- væntingu. A& koma i hóp vin- gjarnlegra samstarfsmanna, fá sér skyldugan kaffisopa til hressingar og bregöa á glens, á&ur en fariö er á fund nem- enda. Þetta er aldrei alveg eins. Nýtt fólk, ný andlit, ný viöhorf, ný viöfangsefni, nýjar a&feröir. Tilgangurinn þó alltaf óbreyttur, aö þykjast mi&la þekkingu, reyna a& vera ekki lei&inlegur, reyna aö vekja áhuga, reyna a& glæ&a skilning, látast vita ýmislegt, vera þó gætinn i gagnrýni og ör á hrós. Samfagna þeim, sem vel gengur, og hvetja til frekari dá&a, uppörva þá, sem óheppnir hafa veriö e&a legiB á li&i sinu, morgungangan I skólann hafin a& nýju, rétt eins og ekkert hafi I skorist. Ég hlýt aö vera meö kennarabakteriu, enda er þa& svo, aö sumir hafa reynst ónytjungar viö allt annaö en kennslu. Hættan er bara sú, aö menn festist i hlutverkinu og veröi aö steingervingum og segulböndum. Mér finnst ég vera oröinn Iskyggilega mikill masgepill, hef ska&vænlega gaman af a& heyra sjálfan mig tala. Ég ætti a& reyna a& setja mig I spor nemendanna, þvi a& mér þykir stundum ekkert ger- ræ&islega gaman a& hlusta. Okkur „skörfunum” gleymist, held ég, oft aö reyna a& horfa á okkur sjálfa frá sjónarhóli nem- enda eöa hlusta á okkur me& þeirra eyrum. Fyrir margt löngu sendi nemandi I 1. bekk (nú prófessor) þessa merkilegu vlsu inn á kennarastofu til okkar: Kennararnir þeir kenna margt, kannski er þaö lika ágætt. Sumir eru bara þónokkuö smart, en samt er hitt ekki fágætt. En viö erum alltaf a& dæma og „fyrirgefa” og hneykslumst stundum á smávegis misskiln- ingi, I úrlausnum, sem kann a& henda nemendur (nemandir) okkar. Nemandi (nemönd) I 1. bekk mi&skóladeildar átti aö þý&a þennan meinleysislega danska texta á islensku: Bægge mine söstre gar I skole. Nú vildi svo vel e&a illa til a& nemandinn (nemöndin) átti systur, sem kölluö var Begga, og sannleik- ans vegna var& þýöingin a& sjálfsögöu: Begga systir min gengur i skóla. Og hver gat sagt a& þa& væri rangt? Af skólagöngu a& láta ekki deigan siga, en reyna a& gera betur næst. Ég hef svo sem hlotiö minar skrokkskjó&ur á skólagöngunni. Ég hef enga tölu á þvi, hversu oft ég hef dottiö á hálku meö átakanlegum tilbur&um, bækurnar sundrast úr töskunni um svell og snjó, gleraugu brotnaö, svo a& ég hef or&i& óvigur, já og einu sinni vaknaöi ég uppi á sjúkrahúsi, brotinn og bramlaöur, eftir aö hafa oröiö fyrir bil me& freöinni rúöu. Þar var margt kveöiö og þar á meöal þetta: Voöanum undan ei má venda, örlagaþræ&ir manninn toga. Hattur og taska i háan boga hefjast til flugs og aftur lenda. Slöan ofan i hrúgu hrynur, hyggjuvana og máttarlinur, eins og flatvaxin fatabenda. En strax og bein hafa samein- ast og brot eru gróin, er á íörmimvegi / Gisli Jónsson skrifar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.