Morgunblaðið - 11.11.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.11.2001, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MEÐ sjóinn og bátana í baksýner ekki erfitt að muna hvaðanhann kemur. Rúnar Júlíussoner Suðurnesjamaður eins ogallir vita sem eitthvað hafa með ferli hans fylgst. Á nýja diskinum hans „Leið yfir“, er hins vegar fátt eitt um sjó og sjómennsku en aftur á móti ýmislegt sem vek- ur, ef svo má segja, gleðiblandinn trega. „Mér fannst sumt í tónlistinni minna helst á Dubl- iners,“ segi ég og rýni í textann á bakhlið um- rædds disks meðan ég maula kleinu og sýp á kaffi í hinum ágæta Kaffivagni þar sem við Rúnar sitjum hvort á móti öðru og ræðum saman. „Já, einmitt, ég hef verið nokkrum sinnum á Írlandi undanfarin ár, það heyrist á tónlist- inni. Ég er hrifinn af írskri músík og tónlistar- hefð og blanda mínu rokkuppeldi saman við þetta,“ svarar Rúnar. Um þessar mundir eru 25 ár liðin síðan hann stofnaði útgáfufyrirtækið Geimstein sem hann hefur rekið síðan ásamt fjölskyldu sinni. „Við Gunnar Þórðarson stofnuðum útgáfu- félagið Hljóma þegar enginn vildi gefa út tón- listina okkar eftir að Lifun með Trúbrot kom út – útgáfan þótti of dýr. Ég veðsetti húsið mitt og við gáfum út. Útgáfufélagið Hljómar starfaði í tvö ár, þá hætti það og ég stofnaði einn fyrirtækið Geimstein sem hefur gefið út nálægt 100 hljómplötur með tónlist af ýmsu tagi, einkum eftir unga tónlistarmenn.“ Afmælisútgáfa Geimsteins nú samanstend- ur auk fyrrnefnds disks Rúnars af sex öðrum titlum, fyrst ber að telja tvöfaldan disk með góðri innsýn í það sem Geimsteinn hefur gefið út sl. 25 ár, þá er Nýtt upphaf – gítartónlist Otis, Fálkar eru með frumsamin lög, Hljóm- sveitin Kalk er með Tímaspursmál, Spilafíkill- inn er nafnið á diski Svenna Björgvins & Co. og Gálan heitir diskur með frumsömdum lög- um Júlíusar, sonar útgefandans Rúnars Júl- íussonar. Sneri fyrst baki við áheyrendum En hvernig byrjaði þetta allt saman? „Ja, ætli við byrjum ekki á því að pabbi minn Júlíus Eggertsson úr Borgarfirði fór á vertíð á Suðurnesjum og kynntist mömmu minni Guðrúnu Stefánsdóttur Bergmann. Ég er að vísu ekki elstur þeirra barna, ég er miðjubarn, systir mín er níu árum eldri en ég og bróðir minn sex árum yngri, ég fékk því alla þá athygli sem ég óskaði eftir enda voru mæður þá yfirleitt heima á þeim árum. Ég hef hins vegar alltaf verið fremur hlé- drægur, raunar svo mjög að þegar ég kom fyrst fram sneri ég baki í áheyrendur. Ég kom fyrst fram á skólaballi og síðan byrjaði ég í Hljómum 1963. Fyrsta lagið sem ég söng op- inberlega var „It’s alright mama“ sem er frægt Elvis Presley-lag.“ Var Elvis kannski helsta fyrirmyndin? „Hann var ein af fyrirmyndunum. Elvis var auðvitað mjög vinsæll og áhugi á rokki var mikill í Keflavík. Það þótti raunar áhugavert úti um allan heim á þessum tíma. Keflavík varð fljótlega drjúg við að framleiða hljómlist- armenn og lagahöfunda. Við í Hljómum æfðum fyrst í herberginu mínu heima hjá foreldrum mínum á Sólvalla- götu 6 í Keflavík – í Dalnum, eins og það er kallað og er þó enginn dalur í Keflavík. Við fengum smám saman nauðsynleg tæki, svo sem magnara. Við vorum ekki búnir að æfa lengi þegar fyrstu uppákomurnar byrj- uðu. Ég var búinn að æfa mig á bassann í nokkra daga þegar við spiluðum fyrst – ég kunni ekkert á bassann en spilaði samt. Gunnar Þórðarson, Einar Júlíusson og Eggert Kristinsson voru búnir að vera í hljómsveitum áður en ekki ég. Spennandi tímabil Við tók spennandi tímabil, af brennandi áhuga lá ég yfir að pikka upp lög, æfa og spila, ekki síst hlustaði ég á Bítlana, þeir eru með svo hátt skor – lögin þeirra eru svo laus við að vera leiðinleg. Enn í dag fylgist ég mjög vel með músík bæði hér á landi og erlendis – hlusta og pikka upp. Ég fór að semja lög í lok fyrra Hljóma- tímabilsins, en mest eftir að Trúbrot tók til starfa og þegar Hljómar voru endurvaktir. Ég er líklega búinn að semja um 300 lög og texta. Mér finnst gaman að semja og lögin koma til mín alla vega, stundum tek ég bara gítarinn og lögin eru tilbúin eftir fimm mínútur.“ En ætlaðir þú alltaf að verða tónlistarmað- ur? „Nei, ég hafði bara mikinn áhuga og síðan átti þetta bara að „duga næstu helgi,“ eins og móðir mín sagði. Þannig hélt þetta áfram helgi eftir helgi. Það eru víst komin æði mörg hundruð helgar síðan og alltaf er að bætast við. Svona gerðist þetta. Mamma hugsaði eins og mæður hugsa, hún vildi að ég lærði eitthvað „praktískt“ og hefði ábyggilega innkomu. Pabbi vildi að ég yrði múrari eins og hann. Pabbi var þó sáttari við tónlistarstörfin en mamma. Hann sá að ég fékk góðan pening og beindi mér að því að fara að byggja mér hús. Mamma var því auðvitað meðmælt en ég held að hún hafi síðast á bana- sænginni minnt mig á að það væri aldrei of seint að fara að læra eitthvað. Þá var ég kom- inn á miðjan aldur.“ Enn með hausinn upp úr Hvernig er að lifa af popptónlist á Íslandi? „Ég er enn með hausinn upp úr. En ég er auðvitað ekki vellauðugur eins og erlendir popparar eru sumir. Slíkt gerist varla hér á Íslandi, til þess er markaðurinn of lítill. Maður lifir bara af frá degi til dags, á fyrir reikningunum, svona eins og gerist með fólk. Ég hef hins vegar fengið að vinna við það sem mér finnst skemmtilegt – það er stóra lánið. Það er svo sem ekkert öruggt lengur í ver- öldinni – nú er t.d. verið að reka flugstjóra úti um allan heim og þannig mætti telja. Ég hugsa að maður gæti haldið í sér lífinu með því að eiga kassagítar og spila, fólk hættir seint að vilja skemmta sér – það mætti reyna þetta ef allar brýr brynnu. Það er gefandi að geta spilað á gítar og sungið og fólki líður bet- ur eftir að hafa hlustað á góða tónlist. Það er einmitt það sem allt snýst um – að geta samið tónlist sem hrífur fólk – það er mesta gjöfin. Ein plata á ári Ég hef gefið út að jafnaði eina plötu á ári með tónlist eftir mig. Það kemur við mann að heyra lög eftir sig leikin í útvarpi, á böllum, í partíum, við brúðkaup, jarðarfarir eða við önnur tækifæri. Ég get ekki nefnt neitt sér- stakt lag í þessu sambandi, það er eins og að gera upp á milli barna sinna.“ Hverjir eru kostir þess og gallar að vera popphetja? „Ég er ekki búinn að átta mig á því. Ætli að- alkosturinn sé ekki eins og fyrr sagði að fá að vinna við það sem mann langar til. Athyglin sem fylgir svona starfi getur hins vegar skap- að visst ónæði – en hér er það náttúrlega ekk- ert í líkingu við það sem erlendir tónlistar- menn búa við. Þetta er þó auðvitað líka gaman, fylgir leiknum.“ Hvað um kvenkyns aðdáendur? „Ég er feiminn og fékk uppeldi sem mið- aðist ekkert sérstaklega að því að byggja upp sjálfstraust, það kom með árunum. Eftir að ég byrjaði að syngja var mikið hringt í mig. Svo mikið að þegar ég byrjaði að vera með kon- unni minni, Maríu Baldursdóttur, og hún hringdi í mig þá sagði pabbi henni ítrekað að ég væri ekki heima - þekkti hana ekki úr. Þótt hann hefði í aðra röndina gaman af þessari at- hygli sem „krakkinn“ fékk, þá vildi hann líka verja mig fyrir áreitni. María var fegurðardrottning Íslands á sín- um tíma og hana skorti sannarlega ekki áhugasama aðdáendur en við stóðum þetta af okkur – yfirstigum alls kyns vandamál sem upp komu af miklu áreiti utan frá, mikilli vinnu og talsvert miklum fjarvistum, hún var um tíma flugfreyja og ég var mikið frá við spilamennsku. Við eignuðumst snemma barn, hún var 17 ára og ég 19 ára. En þetta gekk allt saman. Við glímdum við það sem upp kom og greiddum úr því strax. Regla á „óreglunni“ Það var líka mikið framboð á „óreglunni“, en mér tókst að hafa reglu á „óreglunni“, þetta er erfitt fyrir alla – ekkert síður fyrir fullorðið fólk en unglinga, það sýnir reynslan. Það er mikilvægt að gæta sín á þessu sviði, annars er maður eins og kerti sem brennur í báða enda, verður skar mjög fljótlega. Of mik- ið skemmtanalíf er innantómt líf – ef maður skynjar það nógu tímanlega vinsar maður bara úr – greinir kjarnann frá hisminu. Þetta hefur gengið þokkalega sem betur fer. Óneitanlega þarf þó sterk bein til að þola þessa tegund af áreiti. Ég var svo heppinn að eiga foreldra sem voru góðar fyrirmyndir og alast upp í góðu umhverfi. Við María eigum tvo syni og fimm barnabörn, við höfum verið lánsöm.“ Hvað um poppheiminn í dag? „Hann er orðinn miklu magnaðri en hann var þegar ég var að alast upp – miklu meira af öllu, meira af fólki sem er að fást við tónlist og meira af efni sem gefið er út. Aðgengið er líka miklu betra, ekki síst í gegnum Netið. Ég hlusta mikið og kaupi líka mikið af diskum. En þótt magnið sé svo mikið orðið að enginn hafi undan að fylgjast með því öllu þá rís enginn eins hátt og Bítlarnir gerðu á sínum tíma og Elvis á sinni tíð.“ Spilarðu alltaf um hverja helgi? „Já, hverja einustu helgi og stundum mörg- um sinnum á dag – ýmist einn á kassagítar, með einum eða tveimur öðrum, svo með Hljómum. Á böllum, í brúðkaupum, sam- kvæmum, við jarðarfarir og þannig mætti telja. Í sambandi við útgáfu á diskinum „Leið yfir“, þá kem ég til með að halda tónleika víða um land og í því tilfelli verða það synir mínir Baldur og Júlíus sem spila með mér. Annar spilar á trommur og hinn á hljómborð, sjálfur spila ég á bassa og syng.“ Morgunblaðið/Þorkell Synir Rúnars, þeir Baldur og Júlíus, munu spila með honum á tónleikum víðsvegar um land í tilefni af útgáfu nýja disksins, en sjálfur mun hann sjá um sönginn. Stóra lánið „Leið yfir“ nefnist nýr diskur með tónlist eftir Rúnar Júlíusson sem hann syngur sjálfur. Hann sagði Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá tónlistarútgáfu sinni og ýmsu fleiru þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.