Morgunblaðið - 11.11.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.11.2001, Blaðsíða 27
um eða hlægja af óöruggi í garð viðfangsefnisins.“ Solondz segist hafa velt þessu mikið fyrir sér vegna þess að hann hafi svo oft verið spurður að því hvort hann sé að reyna að kalla fram hlátur á óþægilegum augna- blikum af einskærum kvikindis- skap. Hann segist eiga erfitt með að svara slíkum spurningum því í tilfellum sumra áhorfenda sé það raunin, en ekki annarra. „Ég veit ekki ennþá hvernig ég á að bregð- ast við fólki sem segir mér að það hafi hlegið að atriðinu í Happiness þegar maðurinn nauðgaði unga stráknum. Þetta fólk misskildi að sjálfsögðu hvert ég var að fara en ég dæmi það samt ekki of hart því það er aldrei að vita hver undirrót hlátursins var í raun. Auðvitað er ég alltaf að taka þessa áhættu með efnistökum mínum; að fólk viti ekki hvar það hefur söguna og til- ganginn. Ég veit svo sem ekki hvað ég get gert í því. Fólk túlkar hluti á ólíka vegu. Einhverjir skilja hvert ég er að fara, öðrum býður við því og enn aðrir kunna að fá eitthvað kynferðislegt út úr því. Ég hef mína sýn og samviskan er hrein.“ Aðspurður segist hann hafa litl- ar áhyggjur af því að brandarar í svo alvarlegum dramatískum myndum, skemmtanagildið sem þær búa yfir, skaði áhrifamáttinn. „Þetta eru náttúrlega ekkert ann- að en gamanmyndir þótt ég leyfi mér aldrei að nota það orð til að lýsa þeim. Ég veit að margir myndu taka það mjög óstinnt upp sökum þeirra hörmulegu atburða sem einnig er að finna í mynd- unum. Fyrir mér eru þetta samt gamanmyndir.“ Vald heimildarmyndagerðarmanna Solondz veltir sér mjög upp úr stöðu heimildarmyndarinnar í Storytelling og virðist hafa miklar áhyggjur af því valdi sem heimild- armyndargerðarmaðurinn hefur yfir viðfangsefni sínu. „Heimild- armyndagerðarmaður hefur viðlíka vald og blaðamenn að því leyti að hann hefur fullt vald til að velja heimildir út frá fyrirfram gefnum forsendum. Slík vinnubrögð eru ætíð gildishlaðin og geta svo auð- veldlega haft misbeitingu í för með sér. Fyrir mér er þetta alltaf ákveðinn galli við heimildarmynd- ir. Seinni hluti myndarinnar tekur á þessu síðasta atriði í formi hins misheppnaða Tobys sem finnur annars glötuðu lífi sínu gildi á ný með því að misnota líf annarra sér til framdráttar. Síðan vaknar aftur spurningin hver er að færa sér hvern í nyt, heimildarmyndargerð- armaðurinn eða áhorfandinn.“ Lífið er ekki sanngjarnt Oft hafa myndir Solondz verið túlkaðar á þann veg að þær fjalli um baráttuna milli yfirgangs- seggja og fórnarlamba þeirra sem gjarnan ljúki með því að hinir fyrrnefndu hljóti makleg mála- gjöld. Solondz segist þó aldrei hafa litið á sögur sínar frá þessari hlið. „Ég get ekki einu sinni tekið undir þær tilgátur að réttlætið sigri allt- af að lokum,“ segir hann. „Þvert á móti er ég sammála því sem fjöl- skyldufaðirinn staðfasti, leikinn af John Goodman, segir við son sinn: „Lífið er ekki sanngjarnt!“ Ég hef áhuga á sambandi kúg- arans og fórnarlambs hans en vil síður taka afstöðu til þess. Ég er lítið fyrir það að taka afstöðu yfir höfuð.“ Solondz verður svolítið hvumsa þegar því er fleygt að hvöt hans sé drifin áfram af hatri, að hann kjósi fremur að fá hvöt sinni fullnægt með kvikmyndagerð en að skjóta gesti og gangandi af handahófi. „Ég hef heyrt slíkar getgátur áð- ur,“ segir hann augljóslega nokkuð særður, „og þykir þær vægast sagt harkalegar í minn garð. Ég tel það líka hæpið að hatrið drífi mig áfram. Í það minnsta kann ég vel við persónur mínar og sækist eftir nærveru þeirra. Ég á erfitt með að gera mér grein fyrir hvað drífur mig áfram og satt að segja velti því lítið fyrir mér. Það myndi bara þvælast fyrir rökhugsun minni.“ Sáttur við sitt Storytelling er mun persónlegri mynd að mati Solondz en fyrri myndir hans. Hún endurspeglar t.a.m. skýrt viðbrögðin við því sem hann hefur gert og bregst á gáska- fullan hátt við gagnrýninni. Í fyrri hluta myndarinnar er fjallað um nemendur í skapandi ritlist og samskipti þeirra við strangan og lítt uppbyggjandi svartan kennara sem þau líta upp til þrátt fyrir að hann eigi sjálfur við sköpunarharðlífi að glíma. Sol- ondz segist ekki byggja þá frásögn á eigin reynslu þótt hann hafi vissulega sótt slík námskeið og lent í klóm ósanngjarnra kennara með mikilmennskubrjálæði. „Þeg- ar allt kemur til alls fannst mér þetta sögusvið einfaldlega henta vel fléttunni sem ég hafði í hausn- um, þessari kynferðislegu kyn- þáttahatursfléttu.“ Það vekur athygli að Solondz kýs að nota nokkur lög skosku poppsveitarinnar Belle & Sebast- ian í myndinni. Segir hann ástæð- una tvíþætta; sjálfur kunni hann vel að meta þá tónlist og einnig hafi honum fundist hún lýsa hug- arástandi unglingsins Scoobie í myndinni sem „narraður“ er til þess að afhjúpa líf sitt og innstu kenndir fyrir heimildarmynd. Er hann er spurður að lokum hvort hann hafi ekki löngun til þess að öðlast frekara vægi innan kvikmyndaheimsins og ná til fleiri áhorfenda svarar hann því til að hann kunni vel við stöðu sína í dag. „Mér hefur farnast vel í lífinu og ferill minn þróast í þær áttir sem ég óskaði mér. Ég átta mig al- veg á að það er fullt af fólki sem kann ekki að meta það sem ég geri og það er bara allt í lagi.“ skarpi@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 B 27 bíó Besti stuðningur húðarinnar T R Ú Ð U Á F E G U R Ð RÉNERGIE CONTOUR LIFT Í tilefni opnunar stórglæsilegrar HYGEU snyrti- vöruverslunar á 1. hæð í SMÁRALIND bjóðum við viðskiptavinum LANCÔME, þetta glæsilega veski að gjöf. Smáralind, sími 554 3960 Gjöfin þín Þegar þú kaupir tvær LANCÔME vörur, þar af eitt krem. nessu Redgrave, Helen Mirren, Harry Dean Stanton, Benicio Del Toro, Aaron Eckhart og Mickey Rourke. „Tökuskilyrðin við mynd- ina í Bresku Kólumbíu í Kanada, voru einkar erfið. Sökum þess urðu hlutirnar að ganga rösklega fyrir sig og lítill tími gafst til æfinga og persónusköpunar. Ég taldi því lang- skynsamlegast að kalla á hóp hæfi- leikaríkra reynslubolta sem ég vissi að ég gæti treyst fullkomlega til að taka hlutverk sín föstum og örugg- um tökum. Leikara sem ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af, svo ég gæti alfarið einbeitt mér að sjálfri kvikmyndagerðinni. Þannig lét ég þau eiginlega leikstýra sjálf- um sér. Ég áttaði mig síðast á því að Robin væri rétta manneskjan í sitt hlutverk og það var ekki fyrr en ég fattaði að tölvurnar gætu gert hana tannlausa og eins illa á sig komna og persóna hennar átti að vera.“ Jack er stærsta gjöfin Jack Nicholson hefur látið hafa eftir sér að Sean Penn sé einn þeirra leikstjóra sem hann er alltaf tilbúinn að vinna með, einfaldlega vegna þess að hann sé í sérflokki. En hvernig þótti hinum yngri og óreyndari listamönnum að vinna með karlinum, sjálfum Jack? „Því er auðsvarað,“ segir Penn. „Ég elska Jack Nicholson. Hann er ein- hver stærsta gjöf mín og einhver stærsta gjöf bandarískrar menning- ar. Það er ekki hægt að hugsa sér betri stuðning en hann veitir mér.“ Robin Wright Penn, mótleikkona Nicholsons í The Pledge, tekur heilshugar undir með eiginmanni sínum: „Þetta er ósvikinn náungi. Maður veit alltaf hvar maður hefur hann. Þótt ég hafi þekkt hann í fjölda ára þá þekki ég hann samt eiginlega ekki neitt. Hann hleypir fólki ekki svo glatt inn. Er fámáll maður og hlédrægur. Nærvera hans er hins vegar alveg ótrúlega sterk og hlýrri maður fyrirfinnst ekki.“ skarpi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.