Morgunblaðið - 11.11.2001, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 B 13
ferðalög
Á söguslóðum í
Kaupmannahöfn
NORRÆNA FÉLAGIÐ og Ferðaskrif-
stofan Embla efna til helgarferðar til
Kaupmannahafnar 30. nóvember til
3. desember. Dvalið verður á góðu
hóteli á besta stað í borginni, segir í
tilkynningu frá Emblu, auk þess sem
boðið verður upp á gönguferðir.
„Hin heillandi borg Kaupmannahöfn
var höfuðborg okkar í 500 ár og
þar er íslensk saga nánast við hvert
fótmál. Farið verður í tvær um það
bil fjögurra tíma gönguferðir um
söguslóðir Íslendinga í Kaupmanna-
höfn, til dæmis slóðir Jörundar
hundadagakonungs, Þorleifs Repps,
Christians fjórða, Jóns Sigurðssonar
og Jónasar Hallgrímssonar, svo ein-
hverjir séu nefndir. Gengið verður
um Kóngsins Nýjatorg, Nýhöfn,
Strikið, Kaupmangaragötu og Stóra
Kanúkastræti. Stoppað verður við
Sívalaturn Christians IV, Gamla garð
(Regensen) og Frúarkirkju. Farið
verður um hið merka 18. aldara bar-
okk-hverfi Fredrikstaden, og áð í
Jónshúsi.“
Á slóðum íslenskra fanga
Einnig verður fjallað um íslenska
fanga í Kaupmannahöfn, Stokkhúsið
blasti til dæmis við úr glugga Jóns
og Brimarhólmur var skammt frá
Christiansborgarhöll og kauphöllinni.
„Þangað verður farið og komið við
á Christianshöfn þar sem Íslandsför
einokunarkaupmanna lögðu að. Ef
almennur áhugi er fyrir hendi verð-
ur gengið um fríríkið Kristianíu sem
einnig geymir sögu Íslendinga.“
Innifalið í verði ferðar, 49.900 krón-
um, er flug, gisting í þrjár nætur
með morgunverði, danskt jólahlað-
borð eins og þau gerast best, kynn-
isferðir og leiðsögn. Öllum er heimil
þátttaka í ferðinni.
Fararstjóri verður Þorleifur Frið-
riksson sagnfræðingur. Frekari upp-
lýsingar fást hjá Ferðaskrifstofunni
Emblu sem sér um bókanir. Sími: 511
4080, netfang inga@embla.is
Morgunblaðið/Ómar
Frá Nýhöfn í Kaupmannahöfn.
Í ÞEIM kulda og trekki sem verið
hefur síðustu daga á Íslandi og
minnt hefur okkur óþægilega á hve
langur vetur er fyrir höndum, reik-
ar hugurinn ósjálfrátt til heitari
landa. Eitt skemmtilegasta hita-
beltisland sem ég hef komið til er
karabíska smáeyjan Dóminíka.
Hún er frábær áfangastaður fyrir
fuglaskoðarann, göngugarpinn,
mannfræðinginn og kafarann, eða
bara alla sem unna náttúrunni,
enda hefur hún verið markaðssett
sem vistvæn ferðaparadís hin síð-
ustu ár.
Eyjan er örsmá og telst til Aust-
ur-Indía. Reyndar er henni svo oft
ruglað saman við Dóminíska lýð-
veldið sem er norðaustar í Kar-
íbahafinu að eyjarskeggjar vilja
breyta nafninu í upprunalegt nafn
eyjarinnar – „Waitikubuli“ – sem
þýðir: hávaxinn er líkami hennar
og vísar í fjalllendi eyjarinnar. Á
meðan nafnið er ekki komið á eyj-
una láta eyjarskeggjar sér nægja
að sötra bjór með sama nafni.
Dóminíka er sjálfstætt ríki en
fyrrverandi ensk nýlenda svo þar
tala allir ensku og auðvelt er að
eiga samskipti við fólk. Íbúafjöld-
inn er heldur ekki yfirstíganlegur
en einungis um 70.000 manns búa
á eyjunni. Manni er því farið að
líða töluvert vel á Dóminíku eftir
nokkra daga, farinn að hitta sama
fólkið aftur og aftur og kinka kolli
til þeirra.
Gylliboð leigubílstjóranna
Alþjóðlegar flugtengingar við
Dóminíku eru fáar og er það eig-
inlega helsti kostur hennar. Þang-
að koma fáir ferðamenn í pakka-
ferðum því á Dóminíku eru flestar
strendur með svörtum sandi og
ekki það sem „pakkaferðamenn“
sækja vanalega í. Skemmtiferða-
skip stoppa vissulega á Dóminíku
og fyrir utan pakkaferðamenn sem
koma með þeim þá eru það helst
bakpokaferðalangar sem renna þar
í gegn á eyjahoppi sínu.
Ég var á slíku eyjahoppi og kom
þangað með bát. Allir helstu sölu-
menn og bílstjórar eyjunnar höfðu
safnast saman við bryggjuna og
kepptust við að bjóða þeim sem
stigu frá borði ýmsan varning,
gistingu, leiðsögn og bílferðir.
Fróðleiksmolar
ferðalangsins
Ragna Sara Jónsdóttir rsj@mbl.is
Úr kuldanum í hitann
Dóminíku má heimsækja allt
árið um kring, en helsti ferða-
mannatíminn er frá miðjum
desember fram í miðjan apríl.
Meðalhiti í janúar er 20–29̊C, í
júlí 22–32̊C og oftast er mjög
rakt.
Vatnið má drekka úr krananum.
Samgöngur LIAT flýgur til
eyjanna í kring og bátar ganga
daglega.
Mæli með gistihúsi Ma Bass (8
Fields Lane, Roseau. Sími:
(+1767) 448-2999), því hún er
sjálfskipuð amma allra ferða-
manna og höfðingi heim að
sækja. Hagan í húsinu á móti er
frábær leiðsögumaður sem fer
t.d. upp að Boiling Lake.
Tenglar
www.dominica.dm
www.delphis.dm
www.divedominica.dm
!
"!#
$ %!
& &"'"
(
)!*"+!
!
Margir falla fyrir gylliboðum leigu-
bílstjóranna en komast síðan að
því að það er glataður bisness að
vera leigubílstjóri því eyjan er svo
lítil að innanbæjaraksturs er alls
ekki þörf í höfuðborginni Roseau.
Höfuðborgin er lífleg og
skemmtileg en um leið og komið er
út fyrir hana má sjá hvað eyjan er
gullfalleg og ósnert. Gróðurinn er
þéttur og dýralífið blómlegt. Það
tekur ekki langan tíma að keyra í
kringum eyjuna, það er auðveld-
lega hægt að gera á tveimur til
þremur dögum, þ.e.a.s. ef maður
treystir sér til að keyra vinstra
megin á götunni, í bröttum hlíðum
með kröppum beygjum.
Sjómenn á túnfiskveiðum
Lítil þorp dreifast um alla eyj-
una og það er gaman að heimsækja
þau þótt þar sé ekki mikið í boði
fyrir ferðamenn. Hins vegar taka
þorpsbúar oftast vel á móti ferða-
löngum og það er gaman að rabba
við þá þegar maður er annaðhvort
búinn að kaupa eitthvað af þeim
eða búinn að segja þeim að maður
ætli ekki að kaupa neitt. Hægt er
að smakka ávexti sem maður hefur
aldrei heyrt á minnst í görðum
þeirra og fylgjast með sjómönn-
unum landa túnfiski við ströndina.
Ef menn fá nóg af mannlífi eyj-
unnar er um að gera að drífa sig
inn í þéttan skóginn og ganga til
dæmis upp að „Boiling Lake“ sem
er annað stærsta stöðuvatn í heim-
inum kraumandi af sjóðandi vatni.
Gönguferðin þangað í gegnum
skógi vaxin hverasvæði er falleg og
frábært að baða sig í volgum foss-
um í litlum trjálundum á leiðinni.
Landslagið minnir á hverasvæði
Íslands, að viðbættum trjám, og
maður freistast til að hugsa, bara
ef það væri líka svona hlýtt á Ís-
landi! Svo ætti það ekki að koma á
óvart að fagurt og hrikalegt lands-
lag eyjunnar heldur áfram neð-
ansjávar og leynast nokkrar nátt-
úruperlur þar fyrir þá sem stunda
köfun.
Molar
Ljósmynd/Ragna Sara
Í kuldanum sem ríkir á Fróni þessa dagana er best að hugsa til heitu landanna. Uppáhaldshitabeltisland Rögnu Söru er
smáeyjan Dóminíka í Karabíska hafinu þar sem fjölbreytt mannlíf fer saman við fagra náttúru.
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.845 á viku.
Innifalið í verði: ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar. (Allt nema bensín og
afgr.gjöld á flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
GSM- símakort
með dönsku símanúmeri.
Nú einnig bílaleigubílar frá
Kaupmannahöfn og Hamborg sem
má aka um Austur-Evrópu.
Heimasíðan, www.fylkir.is
fjölbreyttar upplýsingar.
Fylkir Ágústsson
Fylkir — Bílaleiga ehf.
Sími 456 3745
Netfang fylkirag@snerpa.is .
Heimasíða www.fylkir.is .
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
HÚSASKILTI
Pantið tímanlega
til jólagjafa.
DILBERT
mbl.is