Morgunblaðið - 11.11.2001, Side 16

Morgunblaðið - 11.11.2001, Side 16
16 B SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ allt safnið verði aðgengilegt,“ sagði Jóhann. Fjöltyngt bókasafn „Guðmundur G. Hagalín sagði ár- ið 1946 að safnið væri til bráða- birgða í Sundhöllinni og þar er það enn,“ sagði Jóhann þegar við heim- sóttum útlánssal bókasafnsins. Í Sundhöllinni býr safnið við mikil þrengsli. Lesstofan rúmar aðeins tvo og skrifstofa forstöðumannsins er jafnframt kaffistofa starfsfólks og aðstaða ræstifólks. Í safnið koma um 20 þúsund gestir á ári sem er nokkuð mikið í ljósi þess að í sveit- arfélaginu eru um 4.500 íbúar, þar af 3.200 í Skutulsfirði eða næsta ná- grenni safnsins. Þegar útlánssalurinn í Sundhöll- inni er heimsóttur vekja athygli bækur á pólsku og tælensku. „Við kaupum töluvert af lesefni fyrir ný- búa,“ segir Jóhann. „Þegar Serbó- króatarnir komu keyptum við 150 bækur á serbókróatísku. Þeir fluttu svo nánast allir suður svo ég lánaði Borgarbókasafni allan bunkann. Nú erum við að fá um 200 titla á pólsku. Það er sniðugt hvað þær eru ódýrar í innkaupi! Eins erum við að bæta við tælensku bækurnar og að fá um 100 titla í viðbót við það sem fyrir er. Við pöntum bækurnar í náinni samvinnu við talsmenn málahóp- anna sem um ræðir. Lögð er áhersla á bækur fyrir börn og unglinga, eins þjóðlegt efni. Það hjálpar þeim að viðhalda þekkingu á móðurmálinu og sinni menningu. Svo stendur til að vera hér með kennslu í tælensku. Þetta er gert til að börnin haldi tengslum við móðurmál sitt og föð- urland. Það efni sem við eigum á er- lendum málum stendur öðrum bókasöfnum til boða.“ Jóhann segir að það spyrjist fljótt út meðal nýbúanna að efni á þeirra tungu sé til í safninu. „Margt af þessu fólki er vel menntað og þykir varið í að geta fengið lánaðar bækur á sínu máli.“ Gamla sjúkrahúsið er í þráðlausu netsambandi við aðrar stofnanir Ísafjarðarbæjar. Húsið verður vel tölvuvætt og verið er að netvæða bókasafnið. „Hér verða tölvur sem almenningur hefur aðgang að og gott aðgengi að alls konar skrám. Ætlunin er að skrá allt safnið, bæði bækur, skjöl og ljósmyndir og hafa það aðgengilegt á tölvutæku formi,“ sagði Jóhann. Gott samstarf hafi verið við Snerpu í uppbyggingu tölvukerfisins og tenging verði úr safnskránni í tölvubókasafn Snerpu. Höfuðstöðvar Listasafns Ísa- fjarðar verða í Gamla sjúkrahúsinu. Forstöðumaður þess er Jón Sigur- pálsson. Að sögn Jóhanns er hug- myndin að verk í eigu safnsins verði til sýnis í Gamla sjúkrahúsinu, auk þess sem safnið lánar verk til stofn- ana og skóla í bænum. Vantar meira fjármagn Jóhann segir að stefnt hafi verið að því að ljúka við endurnýjun Gamla sjúkrahússins í fyrra og að taka það í notkun með hátíðlegri at- höfn 17. júní árið 2000. Húsið var upphaflega vígt 17. júní 1925, á af- mælisdegi Jóns Sigurðssonar. „Jón Sigurðsson er stórt númer hérna. Ég fann í gömlum skjölum að bókasafnið var tileinkað minningu hans árið 1944 og var það samþykkt í bæjarstjórn,“ segir Jóhann. En hvenær verður hægt að taka Gamla sjúkrahúsið í notkun á ný? „Það tæpt að þetta hafist fyrir 17. júní á næsta ári, en við vonumst til að geta dansað fyrir Vilmund lækni árið 2003,“ sagði Jóna Símonía. Til að ljúka verkinu þarf meira fjár- magn. Jóhann segir að endurbygg- ingin hafi verið unnin í samvinnu við Húsafriðunarnefnd og hún styrkt verkið eftir megni. „Við bindum vonir við fjármagn að sunnan og horfum til hugmynda um menning- arhús. Þetta verður sannkallað menningarhús.“ Heimildir: Ársrit Sögufélags Ísfirðinga 1965. Ísafirði 1966. Jóhann Gunnar Ólafsson. Bæjarstjórn Ísafjarðarkaupstaðar eitt hundrað ára. Ísafirði 1966. Jón Þ. Þór. Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna, IV. bindi. Ísafirði 1990. Skutull, 1. og 3. árg. Ísafirði 1923-5. Vesturland, 1. árg, 6. tbl. Ísafirði 1923. Vilmundur Jónsson. Sjúkrahús og sjúkraskýli á Íslandi í hundrað ár. Reykjavík 1970. http://www.isafjordur.is/bokasafn/ Edinborgarhúsið stendur áEyrinni á Ísafirði. Það varbyggt 1907 eftir teikninguRögnvaldar Ólafssonar arkitekts og síðar húsameistara ríkisins. Hann hefur oft verið nefndur fyrsti íslenski arkitektinn. Meðal annarra þekktra húsa Rögnvaldar má nefna Vífilsstaða- spítala, pósthúsið í Reykjavík og kirkjurnar á Þingeyri og Húsavík. Edinborgarhúsið var lengi eitt reisulegasta hús á Ísafirði. Það er kennt við verslunina Edinborg sem var eitt stærsta verslunarfyr- irtæki landsins um aldamót 19. og 20. alda. Eftir að Edinborgarversl- unin hætti rekstri var m.a. Tog- arafélag Ísfirðinga þar til húsa uns húsið komst í þjónustu Kaup- félags Ísfirðinga og síðar að hluta Rækjustöðvarinnar. Húsið er 1.155 m2 á þremur hæðum. Búið er að friða húsið að utan að tilhlutan Húsafriðunarnefndar ríkisins. Félag um menningu og hús Einkahlutafélagið Edinborg- arhúsið var stofnað 9. september 1992 að tilhlutan Litla leikklúbbs- ins og Myndlistarfélagsins á Ísa- firði. Auk ofangreindra eiga ein- staklingar og fyrirtæki hluti í Edinborgarhúsinu ehf. Alls eru hluthafar um 70 talsins, að sögn Jóns Sigurpálssonar, formanns stjórnar hússins. Sama ár var Ed- inborgarhúsið keypt. Tilgangur Edinborgarhússins ehf. er að efla menningar- og fé- lagsstarf á Vestfjörðum. Félaginu og húsinu er ætlað að vera sam- eiginlegur vettvangur þeirra sem unna listum og fjölbreyttu mann- lífi. Undir þaki Edinborgarhúss eiga að rúmast sem flestir þættir nútímamenningar og það að vera lifandi vettvangur heimamanna. Þar á einnig ferðafólk að geta komist í snertingu við menningu Vestfjarða ásamt því að fá þar ferðaupplýsingar og veitingar. Upplýsingaskrifstofa ferðamála, Vesturferðir og Úrval-Útsýn hafa aðstöðu í suðurenda hússins. Mikil vinna við endurbætur Fljótlega eftir kaupin var hafist handa við endurbyggingu hússins, sem var í mikilli niðurníðslu. Eins þurfti að breyta því töluvert svo það fengi gegnt nýju hlutverki. Teiknistofan Kol og salt ehf. hefur annast hönnunarvinnu vegna end- urbyggingarinnar. Til endurbót- anna hafa fengist fjárstyrkir frá Ísafjarðarbæ, úr húsafriðunarsjóði og ríkissjóði. Eftir mikla vinnu sjálfboðaliða og iðnaðarmanna hófst menningarstarfsemi fyrir al- vöru í suðurhluta hússins árið 1996. Húsið er hugsað sem margþætt menningarmiðstöð og er fyr- irmyndin aðallega sótt til meg- inlandsins, að sögn Jóns Sig- urpálssonar. Menningarmiðstöðin í Edinborg er eitt þeirra húsa sem Ísafjarðarbær hefur kynnt til þátt- töku í hugmyndum ríkisstjórn- arinnar um menningarhús á lands- byggðinni. Um nokkura ára skeið hafa marvíslegar uppákomur verið á vegum menningarmiðstöðvarinnar, sýningar af ýmsum toga, tónlistar- uppákomur og leikuppfærslur. Einnig hafa verið haldnar ráð- stefnur, málþing og fyrirlestrar. Ýmsir fastir þættir eru ár hvert á vegum Edinborgar, má þar nefna þátttöku á Degi íslenskrar tungu þar sem kvæðamenn og sagnaþulir hafa stigið á stokk og eins bók- menntakynninguna „Opin bók“, fyrir hver jól. „Vestanvindar“ er bókmenntadagskrá þar sem fjallað er um vestfirsk skáld lífs og liðin. Leikhússalur Nú er hafin vinna við innrétt- ingar í norðurhluta hússins. Þar verður salur fyrir allt að 250 gesti. Salurinn er sérhannaður fyrir leik- sýningar en mun einnig henta ágætlega fyrir aðrar uppákomur. Í risinu er mikið rými sem burð- arvirki hússins setur sterkan svip á. Að sögn Jóns Sigurpálssonar er hugmyndin að þar verði ráð- stefnusalur. Þá verður innréttað kaffihús í viðbyggingu, sem áður var vélasalur. Jón segir að vilyrði hafi fengist hjá Endurbótasjóði menningarbygginga um framlag til Edinborgarhúss upp á allt að 30 milljónir króna. Þegar er búið að afgreiða 18 milljónir. Þá er ótalin mikil sjálfboðavinna félagsmanna við endurbætur hússins. „Við teljum að með framlaginu sem eftir er að afgreiða frá End- urbótasjóði, ásamt því sem við höfum fram að færa, getum við lokið við stóra salinn, vonandi á næsta ári. Þá er eftir að kaupa tækjabúnað sem er dýr,“ sagði Jón. Jafnhliða framkvæmdum við stóra salinn verður unnið að inn- réttingu kaffihúss í hliðarbygg- ingu, enda þessir tveir húshlutar nátengdir. Listaskóli Rögnvaldar Í húsinu er starfræktur Lista- skóli Rögnvaldar Ólafssonar. Skól- inn er kenndur við arkitekt húss- ins og var stofnaður 5. desember 1993 á 119 ára fæðingarafmæli Rögnvaldar. Að sögn Jóns er skól- inn sá fyrsti sinnar tegundar sem stofnaður er hér á landi, en hann sameinar undir einu þaki allar helstu listgreinar og stuðlar að því að þær vinni saman. Skólinn er Menningarmiðstöðin Edinborg Í Edinborgarhúsi á Ísafirði er stunduð margþætt menningariðja. Þar er bæði listaskóli og menningarmiðstöð. Ráðgert er að innrétta fjölnota sali, m.a. fyrir leiksýningar. Morgunblaðið/RAX Í Listaskólanum er m.a. kenndur ballett og þjóðdansar. Kennari er Kataryna Pavlova frá Úkraínu. Jón Sigurpálsson, stjórnarformaður Edinborgarhússins ehf., á loftinu þar sem til stendur að innrétta ráðstefnusal. Myndlistarnemar í Listaskóla Rögnvaldar. F.v.: Patrycja Wittstock og Borgný Gunnarsdóttir. Kennari þeirra er Pétur Guðmundsson. sjálfseignarstofnun og rekinn af Myndlistarfélaginu á Ísafirði, Litla leikklúbbnum og Tónlistarskóla Margrétar Gunnarsdóttur. Listaskólinn sér um kennslu í leirlist fyrir Grunnskólann á Ísa- firði og umræður eru hafnar um nánara samstarf við Mennta- skólann á Ísafirði. Nemendur, að frátöldum nemendum grunnskól- ans eru á annað hundrað. Skólinn býður upp á fjölþætta kennslu í mörgum listgreinum. Haldin eru námskeið sem vara allt frá sex vikum og upp í veturlöng námskeið. Til dæmis um náms- framboð má nefna að á yfirstand- andi haustönn er boðið upp á pí- anókennslu fyrir alla aldurshópa og söngnámskeið. Námskeið í gít- arleik, ballettkennslu fyrir börn og er það í fyrsta sinn sem kenndur er listdans á Ísafirði svo vitað sé. Leiklistar- og myndlistarnámskeið fyrir börn og fullorðna s.s. teikni- myndasagnagerð, teiknun, málun, módelteikningu og mótun í leir. Á öðrum nótum eru svo námskeið í hönnun og námskeið um íslenska byggingararfleifð og handverks- námskeið um gerð aðventuskreyt- inga. http://www.snerpa.is/edinborg Innréttaður verður salur fyrir leiksýningar o.fl. í norðurenda Edinborgarhússins, sem er til hægri á myndinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.