Morgunblaðið - 11.11.2001, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Vertu klár í slaginn
þegar þinn tími kemur!!!
Hafin en innritun á eftirfarandi námskeið,
sem öll hefjast 17. janúar 2002:
Bóklegt Atvinnuflugmannsnám ATPL(A)0201
Umsóknarfrestur til 29. desember 2001
Skólasetning 17. janúar 2002
Lágmarksfjöldi 18 nemendur
Bóklegt einkaflugmannsnámskeið PPL(A)0201
Umsóknarfrestur til 29. desember 2001
Skólasetning 17. janúar 2002
Lágmarksfjöldi 18 nemendur
Kennt verður á kvöldin á virkum dögum
og á laugardögum frá 9:00 til 11:45
Flugkennaranámskeið FI(A)0201
Umsóknarfrestur til 29. desember 2001
Skólasetning 17. janúar 2002
Lágmarksfjöldi 18 nemendur
Kennt verður á kvöldin á virkum dögum kl 1900-2200
Inntökukröfur: sjá flugnám: Flugkennaranámskeið, FI(A)
Upplýsingar í síma 530-5100 og á flugskóli.is
E f t i r t a l d i r s t a n d a a ð F l u g s k ó l a Í s l a n d s
HYUNDAI Sonata vann sannfær-
andi sigur í síðustu blindprófun Fé-
lags bandarískra bifreiðaeigenda,
(United States Auto Club), á
Toyota Camry, einum mest selda
fólksbíl á Bandaríkjamarkaði. Að
sögn talsmanna Hyundai MC sýna
þessar niðurstöður fyrst og fremst
að viðhorf neytenda til vörumerkja
hafa ekki síður áhrif á val þeirra en
verð og gæði.
Blindprófanir hafa notið vaxandi
vinsælda hjá FBB, sem tilkynnti
nýlega að slíkar prófanir yrðu fram-
vegis að föstum lið í starfsemi
þess. Þær fara þannig fram að þeir
bílar sem prófaðir eru huldir brún-
um pappír, að rúðum undanskildum,
þannig að ógerningur er að þekkja
hinar ólíku framleiðslugerðir í sund-
ur.
Af þeim 528 einstaklingum sem
tóku þátt í prófuninni, töldu 354,
eða um 2⁄3 hlutar þátttakenda, að
Hyundai Sonata tæki Toyota
Camry fram hvað aksturseiginleika,
gæði og þægindi varðaði. Að þess-
um niðurstöðum fengnum sagði
Byung-Ho Sung aðstoðarforstjóri
að þær staðfestu að þróunarstarf
Hyundai MC hefði náð þeim áfanga
að geta keppt við mest seldu bif-
reiðategundir heims í hönnun og
gæðum. „Forgangsverkefni okkar
nú er því að styrkja ímynd Hyundai
í augum neytenda.“
Sonata vann Camry í blindprófun
VOLKSWAGEN sýndi W12 of-
ursportbílinn á bílasýningunni í Tók-
ýó en hann var fyrst kynntur á
sama stað árið 1997 í hug-
myndaútfærslu, teiknaður af Giug-
iaro. Yfirmenn VW segja óvíst hvort
bíllinn verði framleiddur en komi til
þess muni hann kosta meira en
sambærilegur Lamborghini Murciel-
ago, arftaki Diablo, sem í Þýska-
landi kostar tæpar 20 milljónir
króna. Bíllinn er afturhjóladrifinn
með 600 hestafla, 12 strokka vél
sem er w-laga. Á sýningunni var
einnig sami ofursportbíllinn í akst-
urshæfu ástandi en sá bíll hafði ör-
fáum dögum áður sett heimsmet í
24 klukkustunda hraðakstri á
Nardo prófunarbrautinni í Ítalíu þar
sem hann náði 297 km meðalhraða.
Talsmenn VW segja að of-
ursportbíllinn myndi styrkja veru-
lega ímynd VW en auk þess færi
hraðametið á Ítalíu sönnur á getu
og gæði W12 vélarinnar. Sumir hafa
hins vegar látið í ljós efasemdir um
ofursportbíl með VW-merkinu og
benda á að skörun geti orðið gagn-
vart öðrum bílum VW-samsteyp-
unnar, t.a.m. Lamborghini Murciel-
ago, sem kemur á markað í þessum
mánuði, en Lamborghini er í eigu
Audi, sem tilheyrir VW-samsteyp-
unni.
Martin Winterkorn, sem á sæti í
stjórn VW, hefur sagt að ákvörð-
unar sé að vænta um hvort bíllinn
verði framleiddur. Verði það nið-
urstaðan er búist við að einungis
50-100 bílar verði smíðaðir á ári.
W12 ofursportbíll VW í Tókýó
Morgunblaðið/Gugu
Ofursportbíll VW vakti mikla athygli í Tókýó.VW W12 sem sló hraðamet á Nardo-brautinni á Ítalíu.
JEEP ætlar að taka þátt í slagnum
á jepplingamarkaðnum. Nýi bíllinn
var afhjúpaður á bílasýningunni í
Tókýó, reyndar enn sem komið er
einungis í hugmyndaútfærslu, en
gefið hefur verið upp að bíllinn eigi
að kosta innan við 2.250.000 kr. í
Evrópu. Willys 2, eins og farar-
tækið heitir, er andlegur arftaki
Willys-jeppans og þarf því að tak-
ast á við margra áratuga sögu þess
mikla vinnuþjarks. Bíllinn er 3,62
m á lengd og vegur um 1.350 kg.
Hann verður með sömu vél og er
að finna í Mini Cooper S, þ.e. 1,6
lítra, fjögurra strokka vél með for-
þjöppu sem skilar 160 hestöflum
og 210 Nm togi.
Í samkeppni við Toyota RAV4
og Suzuki Grand Vitara
Bílnum er honum ætlað að
velgja Toyota RAV4 og Suzuki
Grand Vitara undir uggum og hef-
ur til þess útbúnaðinn því hann er
með fjögurra þrepa sjálfskiptingu,
sítengdu fjórhjóladrifi og einnig
lágt drif. Hann á að ná 100 km
hraða á 10 sekúndum. Gormafjöðr-
un er á öllum hjólum. Bíllinn verð-
ur minni en Wrangler, sem áfram
verður framleiddur. Helstu útlits-
einkenni bílsins eru há hurðarlína
en ólíklegt þykir að yfirbygging úr
koltrefjaefnum og álrammi haldi
sér vegna mikils framleiðslukostn-
aðar.
Þó þykir líklegt að bíllinn haldi
opnanlegu þakinu, farangursgrind-
inni og aukaljósunum sem hug-
myndabíllinn státaði af.
Morgunblaðið/Gugu
Bíllinn vakti óskipta athygli á sýningunni í Tókýó.
Bíllinn er hrár og nýstárlegur að innan.
Willys 2 boðar jeppling frá Jeep