Morgunblaðið - 11.11.2001, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 B 11
ferðalög
AUSTFIRÐINGAR hafa tekið upp
á því að halda upp á daga myrkurs
rétt fyrir upphaf jólaföstu, áður en
tími jólaljósanna rennur upp. Dag-
arnir verða 22.–25. nóvember og
segir Jóhanna Gísladóttir hjá Mark-
aðsstofu Austurlands tilganginn
þann að fólk gleymi ekki myrkrinu
sem fylgt hefur manninum frá örófi
alda, þessari andstæðu ljóssins.
„Við erum víðast hvar orðin svo
vel raflýst að sjaldgæft er að upplifa
algert myrkur. Þó eru til þeir staðir
á Austurlandi, sem algerlega eru
lausir við ljósamengun og stjörnu-
himinninn og norðurljósin fá að
njóta sín í heiðskíru veðri,“ segir
hún.
Draugasögur við kertaljós
Meðan dagar myrkurs standa yfir
kemur fólk víðs vegar að saman á
Austurlandi til þess að skemmta sér
og jafnvel hræðast í myrkrinu, að
hennar sögn. „Menn segja drauga-
sögur við kertaljós, fara blysför á
fjöllum og í dölum og skoða stjörnu-
himininn undir leiðsögn kunnugra.
Einnig sækja Austfirðingar tónleika
þar sem myrkrið er hyllt og til að
undirstrika myrkrið enn frekar er
gerður ljósaskúlptúr. Veitingastaðir
munu bjóða upp á veitingar í anda
myrkursins og haldin verður ljós-
myndasamkeppni með þemanu
myrkur. Þá verður stiginn dans og
sungnir söngvar,“ segir Jóhanna.
Hún kveðst jafnframt vonast til að
stjörnur og norðurljós beri fyrir
augu.
Hræðsla, gleði eða rómantík
„Og kannski draugar og forynjur.
Ætlunin er að upplifa myrkrið
svarta og skynja áhrif þess. Verða
menn hræddir eða glaðir, hljóðir eða
ærslafengnir, kannski rómantískir
eða bara undrandi og gagnteknir?“
veltir Jóhanna fyrir sér.
„Hvað sem því líður verða allir
með í myrkrinu og Flugfélag Íslands
verður með tilboð á flugi til Egils-
staða í tengslum við daga myrkurs,“
bendir Jóhanna á að síðustu.
Myrkrinu
heilsað á
Austurlandi
Dagar myrkurs verða haldnir á Aust-
urlandi 22.–25. nóvember.
Nánari upplýsingar veita Flug-
félag Íslands, sími 570-3030 og
471-1210, og Markaðsstofa
Austurlands, sími 472-1750.
Fullkomnaðu
verkið
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
Söluaðilar um land allt
MEÐGÖNGUFATNAÐUR
fyrir mömmu
og allt fyrir litla krílið
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136
Ljósmynd/Sigursteinn Baldursson