Morgunblaðið - 11.11.2001, Page 12
12 B SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
Hver er eftirminnilegasta ferðin
þín?
Ég fór til Salsomaggiore Terme á
Ítalíu en þar var haldið 1.000
manna Evrópuþing Kiwanishreyf-
ingarinnar. Bærinn er um 100 km
suðaustur af Mílanó í héraðinu
Emilia Romagna. Hann stendur í
ávölum hæðunum upp af Pódaln-
um og þarna er náttúrufegurð
mikil. Bærinn sjálfur er einnig mjög fallegur.
Hvað er sérstakt við þennan bæ?
Salsomaggiore er þekktur allt frá dögum Rómverja sem saltbærinn og
bæjarbúar lifðu á saltframleiðslu. Einnig eru þarna ölkeldur með ein-
staklega heilnæmu vatni. Fyrsta heilsuhælið var stofnað árið 1839 og
Salsomaggiore byggðist upp sem heilsubær. Sagt er að allt fínasta fólk-
ið á Ítalíu og Evrópu svo sem Verdi, Caruso, ýmsir leikarar og aðrar
stjörnur hafi dvalið þar. Líklega hefur blómatími staðarins verið fyrir
stríð, en enn kemur fólk á heilsuhælin. Nú er þetta einnig mikill ráð-
stefnubær og árlega halda Ítalir fegurðarsamkeppni sína í Salsomag-
giore.
Er hægt að fá góða gistingu?
Hótelin eru mörg hver nokkuð farin að láta á sjá en eru þó ágæt. Hægt
er að fá gistingu af ýmsum toga allt upp í fimm stjörnu hótel. Við gistum
á hóteli sem var með fjórar stjörnur en mér fannst því svolítið of gefið
því það var orðið svolítið lúið. En viðmót starfsfólksins var gott og
morgunmaturinn fínn. Gistingin var reyndar dýr, um 11.000 krónur nótt-
in, en ætli verðið hafi ekki verið togað upp vegna ráðstefnunnar.
Hvernig var maturinn?
Maturinn var mjög góður. Við borðuðum reyndar aðallega í ráð-
stefnuhöllinni. En ég fór oft á veitingahús til að fá mér ís. Þá var hægt
að velja sér ísrétti af löngum matseðli og ísinn var einstaklega góður.
Annars er alls staðar hægt að fá hefðbundinn ítalskan mat svo sem Par-
maskinku og Parmaost, kálfakjöt og fleira og þarna voru pítsurnar góð-
ar, alveg eins og ég vil hafa þær.
Er einhverja afþreyingu að finna í bænum?
Það er kannski erfitt fyrir mig að dæma um það því ég dvaldist þarna
aðeins yfir helgi og rúmlega það. En síðdegis á sunnudeginum gerði ég
eins og allir bæjarbúar virtust gera – ganga um bæinn, versla og setjast
á veitingahús. Andrúmsloftið var skemmtilegt og allir voru afslappaðir.
Þótt ég hafi ekki komið til að versla sá ég að til var mikið úrval af alls
konar heilsuvörum. Eflaust er líka gaman að ferðast til nálægra staða.
Til dæmis er stutt að fara og samgöngur góðar til Parma, Bologna og
fleiri staða.
Langar þig að koma aftur til Salsomaggiore?
Mig langar mjög mikið að koma þangað aftur og dvelja í eina viku eða
tvær. Þarna er mjög notalegt og rólegt og ég held að maður kæmi end-
urnærður til baka. Maturinn, vínið og umhverfið er eins og best verður á
kosið. Fólkið er mátulega kærulaust og afslappað og þótt heilmikið sé af
ferðafólki í bænum finnur maður ekki fyrir því.
Hægt er að nálgast upplýsingar á Netinu t.d á www.wel.it eða láta leit-
arvél finna Salsomaggiore Terme.
Góður matur og
fallegt umhverfi
Ástbjörn Egilsson, kirkju-
haldari Dómkirkjunnar, fer
til útlanda nokkrum sinnum
á ári, oft í tengslum við
setu sína í Evrópustjórn
Kiwanishreyfingarinnar.
Eftirminnileg ferð
NÚ er sá tími árs þegar fjölmargir
Íslendingar leggja leið sína til borga
í Evrópu, fara í svokallaðar versl-
unarferðir. Margir skella sér til
Dublin á Írlandi, en þar er gott að
versla og Írar einstaklega þægilegir.
Fyrir golfáhugamenn er ekki verra
að vita að í og við Dublin eru fjöl-
margir golfvellir sem eru vel þess
virði að heimsækja, jafnvel þó ekki
sé dvalið í marga daga á eyjunni
grænu.
Tíu golfvellir eru í og við Dublin
og því ekki nokkur vandræði að
komast í golf. Vellirnir eru allir
þannig að leikið er á sumarflötum
allt árið, nema ef sérlega leiðinlegur
vetur er, þá skella Írar vetrarflötum
á einhverjar brautir. Vellirnir eru
hver öðrum fallegri og það er því
ekki aðeins gaman að spila þá vegna
þess hversu góðir þeir eru heldur,
og ekki síður, eru sumar brautir
þannig að þær líkjast meira lysti-
garði.
Völlum á Írlandi má skipta í
tvennt, annars vegar eru það hinir
frægu strandvellir, eða links-vellir
og hins vegar það sem Írar kalla
parkland-velli en það eru skógar-
vellir sem standa oftast fjarri sjón-
um.
Strandvellirnir við Dublin eru
mjög skemmtilegir sérstaklega
Portmarnock, þar eru reyndar tveir
vellir, og European og þó svo það
taki tæpa klukkustund að aka frá
miðbæ Dublinar að síðarnefnda vell-
inum þá er það vel þess virði. Þar
eru margar holur sem hafa verið
valdar með fallegustu og bestu golf-
holum í heimi þannig að fólk verður
ekki svikið af því að spila þar.
Vellirnir hrein listaverk
Parkvellirnir við Dublin eru einn-
ig mjög skemmtilegir og nægir þar
að nefna Druid’s Glen og Kildary
Country Club, eða K-club eins og
hann er jafnan nefndur. Báðir þessir
vellir eru hrein listaverk og hannaði
Arnold Palmer þann síðarnefnda.
Undirritaður lék á dögunum fimm
velli í nágrenni Dublin og voru þeir
hver öðrum skemmtilegri. Fyrsta
daginn, daginn sem komið var til Ír-
lands, var farið á Royal Dublin, sem
er alveg við hliðina á Portmarnock-
völlunum og á leiðinni frá flugvell-
inum inn í miðborgina. Þetta er
strandvöllur sem er ágætur en þó
hvergi nærri eins skemmtilegur og
Portmarnock og European.
Næsta dag var leikið á European,
sem er væntanlega síðasti strand-
völlurinn sem gerður verður á Ír-
landi því stjórnvöld hafa ákveðið að
ekki verði gerðir fleiri strandvellir á
eyjunni grænu. Þessi völlur er alveg
frábær og sama má segja um K-club
sem er geysilega fallegur og klúbb-
húsið þar er einstaklega glæsilegt
og þar verða menn helst að vera með
hálstau og í jakka ætli þeir sér að
snæða eftir golfleikinn. Þó er hægt
að fá snarl og drykki með án þess að
fara í sparifötin.
Það sama á í raun við um Druid’s
Glen hvað varðar klæðnað í klúbb-
húsi og einnig varðandi golfvöllinn
sjálfan. Hann er í einu orði sagt frá-
bær og sérstaklega eru síðari níu
holurnar glæsilegar.
Daginn sem haldið er heim á leið
er tilvalið að leika St. Margaret’s-
völlinn sem stendur rétt við flugvöll-
inn og þangað er aðeins um tíu mín-
útna akstur frá golfvellinum. St.
Margaret’s er park-völlur sem er
mjög þægilegur og þar er fínt að
ljúka deginum áður en farið er út á
völl. Góð búningsaðstaða er þar og
ágætur veitingastaður þannig að
það væsir ekki um menn þótt þeir
stoppi þar aðeins á leiðinni út á flug-
völl. Völlurinn sjálfur er mjög þægi-
legur, hann er mjög opinn þannig að
menn geta verið dálítið villtir án
þess að það komi mikið að sök og
flestir ljúka leik á ágætu skori og
halda því ánægðir heim á leið.
Við marga velli eru hótel þannig
að menn geta gist við vellina og í því
sambandi er rétt að benda einnig á
City West-völlinn og hótelið sem er
mjög góður staður að vera á ætli
menn sér að leika mikið golf.
Írar vilja fá ferðamenn í golf
Það er áberandi þegar komið er á
golfvelli í Írlandi hversu viðmóts-
þýðir Írar eru og þegar maður gefur
sig á tal við þá, fyrir eða eftir leik, er
eins og maður hafi þekkt viðkom-
andi í fjölda ára. Írar leggja mikið
upp úr golfinu og vilja að sem flestir
ferðamenn komi til eyjunnar til að
leika golf. Golfklúbbar á Írlandi eru
fámennir þrátt fyrir að þeir ráði yfir
glæsilegum völlum og mikilfengleg-
um klúbbhúsum. Ástæðan er að
þeim ber að hafa nægilegt pláss fyr-
ir aðra en klúbbmeðlimi til að leika
og því er algengt að meðlimir séu
ekki nema rétt um 200 talsins.
Annað dæmi um hversu mikið Ír-
ar leggja upp úr golfinu er að þegar
undirritaður var það á dögunum fór
fram Samvinn Classic-golfmótið,
sem er í samvinnu Samvinnuferða
og ferðamálaráðs Írlands. Eftir mót-
ið var matur í boði ferðamálaráðsins
og þar mætti einn ráðherra til að af-
henda verðlaun og blanda geði við
íslenska kylfinga. Einnig má benda
á að ferðamálaráð hefur undanfarin
ár aðstoðað sjónvarpsstöðina Sýn
við gerð golfþátta þar sem golf
snjallra íslenskra kylfinga hefur
verið fest á filmu. Í haust voru það
tveir meistaraflokkskylfingar auk
nafnanna Sigurðar Sigurjónssonar
leikara og Sveinssonar handknatt-
leiksmanns. Þáttur um golfleik
kappanna verður á dagskrá Sýnar
um jólin þannig að kylfingar fá eitt-
hvað fyrir sig um hátíðirnar þó svo
að golftímabilinu hér heima sé lokið.
Skúli Unnar Sveinsson mælir með Dublin, ekki síst fyrir þær sakir að
margir golfvellir eru í grenndinni.
Golfsettið með til Írlands
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Þessir herrar öttu kappi á K-Club-vellinum á Írlandi, frá vinstri eru Edwin Rögn-
valdsson, frá GSÍ sem var kylfusveinn Sigurðar Sveinssonar og Guðmundar
Ingva Einarssonar, Sigurður Sigurjónsson, Ólafur Þór Ágústsson og Júlíus
Rafnsson, frá GSÍ sem dró fyrir Hafnarfjarðarúrvalið.
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Sjöunda holan á K-Club er sérlega falleg og höggið inn á flöt erfitt enda tiltölulega lítil flöt sem er vel varin trjám.
FJÖLMARGIR golfvellir eru í
næsta nágrenni Dyflinnar og
hægt er að fá upplýsingar um
þá flesta á Netinu. Ágætar
slóðir eru:
http://www.golftravelire-
land.net/courses
http://www.golfingireland.com
http://www.golfing-ireland.com
http://www.globalgolf.com/
Ireland/index.html
w
w
w
.t
e
xt
il.
is
KUNERT
WELLNESS
Sokkabuxur
Hnésokkar
Ökklasokkar
iðunn
tískuverslun
2. hæð, Kringlunni, sími: 588 1680
v/ Nesveg, Seltjarnarnesi, sími: 561 1680