Morgunblaðið - 11.11.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.11.2001, Blaðsíða 24
24 B SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ bíó Þ VÍ hefur löngum verið hald- ið fram að Coen-bræður séu í sérstöku dálæti hjá aðstandendum kvik- myndahátíðarinnar í Cannes. Burt- séð frá því hvort sú fullyrðing á við rök að styðjast eða ekki, hefur þeim ætíð verið tekið opnum örm- um af Fransmönnum og nýverið var Joel sæmdur heiðursriddara- tign þar í landi fyrir framlag sitt til listanna. Hann var enda valinn besti leikstjórinn á Cannes árið 1991, árið sem Barton Fink fékk Gullpálmann eftirsótta og í ár deildi hann þeim sama heiðri með öðrum eftirlætiskvikmyndagerðar- manni Frakka, samlandanum Dav- id Lynch. Rökkurmyndirnar hafa lengi verið bræðrunum Joel og Ethan Coen hugleiknar. Til marks um það var fyrsta mynd þeirra, tíma- mótamyndin Blood Simple, greini- lega sprottin úr þeim jarðveginum og mætti flokka sem einskonar ný- rökkurmynd. Rökkrið allsráðandi, bæði undir og yfir borði. Lánlausar andhetjur í kröppum og taktlaus- um darraðardansi við dauðann og samferðarmenn hans. Andinn og efnið Síðan eru liðin 17 ár án þess að bræðurnir hafa hætt sér út á þess- ar hugleiknu brautnir, fyrr en nú að þeir senda frá sér The Man Who Wasn’t There, ef til vill hrein- ræktuðustu film noir-mynd sem gerð hefur verið frá gullöld slíkra mynda um miðbik síðustu aldar. Myndin á sér stað um það leyti og fjallar öðru fremur um lánleysi, ástríður, glæpi og refsingar, skotin í tveimur litum – hvítum og svört- um. Söguhetjan er hreint engin hetja, heldur keðjureykjandi fá- máll rakari (Billy Bob Thornton) með lífsleiða á háu stigi. Venjuleg- ur náungi sem kemur sér óvænt í hann krappan, missir tök á at- burðarás sem hann hrindir sjálfur af stað og ræður ekki við afleiðing- arnar. Andi sögunnar, glæpir með- al venjulegra og vinnandi meðal- jóna, á rætur að rekja til reyfarahöfundarins James M. Cain og efnið samanstendur af Coen- bræðrum og mörgum af þeirra nánustu samstarfsmönnum, jafnt fyrir framan og aftan tökuvélina, þar með talinn kvikmyndatöku- maðurinn Roger Deakins og eig- inkona Joels, leikkonan Frances McDormand í sínu fyrsta hlutverki fyrir karl sinn og mág síðan hún fékk Óskar fyrir Fargo. Hugmyndina að rökkurreyfara um lánlausan rakara segja þeir að hafi kviknað við gerð The Hud- sucker Proxy. „Í einu atriðanna, sem gerist á rakarastofu, var að finna veggspjald sem sýndi nýj- ustu tísku í klippingu á 5. áratugn- um. Okkur varð starsýnt á þessar skemmtilegu myndir og út frá þeim fórum við að velta fyrir okk- ur sjálfum rakaranum sem klippt hafði fyrirsæturnar.“ Líkt og fyrri verk Coen-bræðra hefur The Man Who Wasńt There fallið vel í kram gagnrýnenda. Oft- ast nær, þegar myndir þeirra hafa átt í hlut, hefur það verið sagan sem heillar, innihaldsríkt og frum- legt handrit þeirra bræðra. Að þessu sinni kveður þó við annan tón því mönnum hefur fremur orð- ið starsýnt á útlit en innihald. Ein- staklega vel hefur nefnilega þótt takast til við að skapa þetta ómót- stæðilega andrúmsloft rökkur- myndanna og þykja óumdeildir hæfileikar tökustjórans Deakins njóta sín út í ystu æsar er hann kannar alla þá kima sem leikurinn með ljós og skugga býr yfir. En var alltaf á hreinu að myndin yrði tekin í svart-hvítu? „Við vorum alltaf staðráðnir í því að skjóta myndina í svart-hvítu,“ segir leikstjórinn Joel, sá fram- færnari þeirra bræðra. „Það er erfitt að skýra út hversvegna en allt frá því við byrjuðum á handrit- inu sáum við sólarsöguna í tveimur litum.“ „Auk þess hefði verið hætta á að fólk gerði sér ekki grein fyrir hversu merkileg myndin er ef hún hefði ekki verið í svart-hvítu,“ skýtur Ethan prakkaralega inn í og kímir. Hann heldur sig annars meira til hlés, hlustar brosmildur og gaumgæfilega á bróður sinn og leggur orð í belg aðeins er hann telur brýna nauðsyn til. Menn hafa hoggið eftir litatón- unum í myndinni og vaknar spurn- ingin hvort vísvitandi hafi verið ákveðið að hafa þá svo skarpa. Joel segir það hafa verið með ráðum gert. „Til þess að ná þessum eig- inleikum var myndin skotin og framkölluð á óvenjulegan máta. Hún var skotin á litaða negatívu sem síðan var prentuð yfir á svart- hvíta filmu. Þetta fór tökustjórinn Deakins fram á til þess að ná fram hárfínni silkiáferð sem ekki á sér hliðstæðu.“ Leikið björtum augum Það er forvitnilegt að velta fyrir sér hvort leikarar nálgist svart- hvítar myndir á annan veg en lit- myndir og þá hvernig. Hvort þeir séu meðvitað að leika í svart-hvítu. Frances McDormand segist sann- arlega hafa verið meðvituð um þetta og velt mjög fyrir sér á töku- stað hvernig hún gæti sett sig í „svart-hvítar stellingar“: „Við lit- um á þetta sem mikla áskorun. All- ir hlutaðeigandi voru með sérstakt litaspjald á sér sem sýndi hvernig hver litur kæmi út í svart-hvítu. Það hjálpaði heilmikið. Mér þótti þetta mjög persónuleg reynsla, var næmari fyrir útlitinu. Maður var sífellt að velta fyrir sér hvaða grái litur yrði á hinu og þessu. Í and- litsmyndatökum tók maður eftir þeirri merkilegu staðreynd að hvítan í augunum, var í raun það eina sem reyndist alveg hvítt á lit- inn. Þannig fór birtan frá augum að þjóna hlutverki lýsingar í öllu rökkrinu og skipta miklu máli fyrir söguna. Undir slíkum kringum- stæðum verður leikarinn heltekinn af augnsvipnum því hann getur hreinlega skorið úr um hvernig stemmning ríkir í viðkomandi at- riði.“ Billy Bob Thornton segist kannski ekki hafa velt litunum eins mikið fyrir sér, heldur því að um tímabilsmynd væri að ræða, mynd sem gerðist um miðbik síðustu ald- ar. „Eftir að hafa klætt mig í klæð- skerasaumuð jakkafötin og kveikt í fílterslausri sígarettunni kom yfir mig ákveðinn andi. Gott ef göngu- lagið breyttist ekki í kjölfarið og allt fasið í raun. Maður varð yf- irvegaðri, rólegri. Svart-hvíti lit- urinn gerði það kannski að verkum að ég reyndi að vera eðlilegri en venjulega, raunsærri. Mér hefur nefnilega alltaf fundist svart-hvítar myndir vera nær raunveruleikan- um en litmyndir, ekkert svigrúm fyrir blekkingar, allir virðast t.d. sveittir. Maður er vissulega með- vitaður um þetta.“ Rakarinn, tíkin og lögfræðingurinn Leikstíllinn í myndinni ber þess nokkur merki að litið hafi verið til gömlu rökkurmyndanna eftir inn- blæstri. Rakari Thorntons gæti t.d. hafa verið klæðskerasaumað hlut- verk fyrir Bogart og að sama skapi hefði eiginkona McDormands hent- að Stanwick. „Eina beina vísbendingin um innblástur var hártoppurinn sem ég bar en hann var gerður í anda Raymond Burr,“ segir Thornton og kímir. „Okkur var bent á að skoða myndir á borð við The Post- man Always Rings Twice og Double Indemnity en að öðru leyti réð ég mér sjálfur. Ég hef lengi verið aðdáandi Bogarts og alltaf þótt Fred MacMurray (aðalleikar- inn í Double Indemnity) vanmetinn leikari. Þegar ég sá myndina brá mér síðan svolítið því mér fannst þetta ekki vera ég heldur einhver leikari frá 5. áratugnum. Ég var undir það búinn að einhverjir myndu líkja mér við Bogart en hvað varðar leikstílinn hefur mér verið bent á að ég taki fremur á hlutverkinu líkt og Montgomery Clift hefði gert.“ McDormand segist mun fremur hafa haft í huga ákveðna staðlaða ímynd af leikkonum rökkurmynd- anna fremur en að hafa leitað til einhverra ákveðinna. „Ég leit svo á að persónurnar væru allar staðl- aðar, Billy Bob væri Rakarinn, ég Tíkin, Tony Shahoub Lögfræðing- urinn og þar fram eftir götunum.“ Maðurinn sem reykti of mikið Rakarinn er keðjureykingamað- ur og sést vart í mynd án þess að hafa líkkistunagla milli vara eða fingra. Þegar Thornton er inntur eftir því hvort hann hafi stúderað reykingatakta gömlu rökkurhetj- anna eða jafnvel Jean-Paul Bel- mondo þá bendir hann á af ein- skærri hógværð að hann sé mun vitgrannari en fólk haldi, hann hafi í raun séð fáar bíómyndir og hlusti miklu fremur á tónlist. Hvað keðjureykingarnar í myndinni varðar þá segir hann handritið hafa kveðið á um þær. „Ég var sjálfur reykingamaður á meðan á gerð hennar stóð þannig að þegar slökkt var á tökuvélinni þá fékk ég mér eina. Þið getið því rétt ímynd- að ykkur hversu mikið ég reykti! Enda hætti ég þessum óþverra um leið og tökum lauk, fékk algjört ógeð.“ „Þegar við Joel vorum að velta fyrir okkur nafni myndarinnar,“ skýtur Ethan inn, „þá datt honum reyndar í hug nafnið The Man Who Smoked Too Much.“ Fljúgandi diskar gegna lykil- hlutverki í myndinni – eða ekki, allt eftir því hvernig hún er túlkuð. Í fréttum er sagt frá því að slíkir hvítir aðskotahlutir úr geimnum hafi sést á sveimi yfir svörtum (hvað annað) næturhimni Kaliforn- íu, rakaranum jarðbundna til lítilla viðbrigða. Ethan segir að sér hafi þótt óttinn við hið óþekkta orðið að vera til staðar í mynd sem gerist á þessum tíma. Heimsbyggðin hafi verið nýstigin upp úr erfiðri heims- styrjöld, ógn kjarnorkustyrjaldar farin að gera vart við sig og heims- endahugmyndir grasserandi. Slík- ur jarðvegur hafi verið upplagður fyrir langsóttar sögur af ferðalög- um grænna karla með þrjú augu til Jarðar á hvítum fljúgandi disk- um. Hinsvegar vilja þeir bræður ekki viðurkenna að þeir hafi sjáflir orðið fyrir slíkri lífsreynslu. „Ég hef aldrei séð fljúgandi diska sjálf- ur,“ segir Joel, „en ég þekki fólk sem hefur séð þá.“ Rakaratónlist Tónlistin hefur löngum verið í veigamiklu hlutverki í myndum Coen-bræðra og nægir að nefna sem dæmi síðustu mynd þeirra O Brother, Where Art Thou?, sem var uppfull af vel völdum banda- rískum grasrótarlögum. Í nýju myndinni öðlast píanóverk Beethovens hinsvegar stóran sess þegar rakarinn fellur óvænt fyrir þeim í flutningi ungrar og við- kvæmrar nágrannastúlku. „Stúlk- an átti að vera í píanónámi og við þurftum að finna hentug verk sem hún átti að vera að æfa,“ skýrir Ethan. „Sónötur Beethovens áttu einfaldlega vel við þá stemmningu sem við reyndum að skapa og per- sónueinkenni rakarans. Tónlistar- val er alltaf tilfinningum háð, þeg- ar við erum annars vegar.“ Aðalleikarinn Thornton er fjöl- hæfur listamaður, allt í senn leik- ari, leikstjóri, handritshöfundur og nú síðast hefur hann getið sér orð sem tónlistarmaður en á dögunum kom út hans fyrsta sólóplata. Á óskarsverðlaunaður handritshöf- undur og annálaður leikstjóri ekki stundum erfitt með að vinna við verk annarra án afskipta? „Það er allur gangur á því hvort ég finn mig knúinn til þess að skipta mér af handritum, fer eftir því hver höfundurinn er og hversu auðvelt ég á með að fara með lín- urnar. Í tilfelli bræðranna þarf maður ekki að hrófla við einum einasta staf. Handritið var það sem laðaði mig að verkefninu. Svo ómengað, skýrt og klárt. Laust við málamiðlanir og fingraför misvitra yfirboðara. Maður þarf sjaldnar að eiga við handrit sem hefur að geyma eina ákveðna sýn. Það hef- ur enginn fiktað við þetta handriti. Það endaði þarna upp á tjaldinu, nákvæmlega eins og til var ætlast í upphafi. Það þykir mér aðdáun- arvert. Hinsvegar hef ég komið að myndum sem ég hef skipt mér mikið af.“ Rómantík á tökustað McDormand og Coen hafa verið saman í heil 17 ár og bregður henni gjarnan fyrir í myndum bræðranna, þótt misjafnlega fyr- irferðarmikil sé. Hvernig kunna þremenningarnir við að vinna svo náið með skyldmennum sínum? „Það er miklu praktískara,“ svarar McDormand án umhugs- unar. „Ég er hvort eð er alltaf á tökustaðnum þannig að það er fínt að vinna dálítið í leiðinni. Þá get- um við líka eytt tíma með börn- unum saman. Við hittumst á töku- stað þannig að fyrir okkur verður hann ætíð rómantískur ...“ Eitt af því sem gerir bræðurna Coen svo spennandi kvik- myndagerðarmenn er að þeir eru aldrei samir við sig. Skarphéðinn Guðmundsson komst að því í Cannes fyrr á árinu að film noir-hefðin hefur síðasta veifið átt hug þeirra og aðalleikara myndarinnar The Man Who Wasn’t There, Billy Bob Thornton og Frances McDormand, allan. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Maðurinn sem reykti of mikið: Billy Bob Thornton og James Gandolfini. skarpi@mbl.is Rakarinn í rökkrinu Billy Bob fékk að fljóta með í Coen-fjölskylduferðina til Cannes fyrr á árinu.ill f flj í fj l l f i il f i .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.