Morgunblaðið - 11.11.2001, Side 26

Morgunblaðið - 11.11.2001, Side 26
26 B SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ bíó E F ÞAÐ er eitthvert eitt við- fangsefni sem sameinað getur allar fjórar kvik- myndir Bandaríkjamanns- ins Todds Solondz er það félagsleg einangrun og einmanaleikinn sem getur fylgt því að vera „öðruvísi“ en það sem samfélagið telur „venjulegt“. Todd Solondz hefur ekki farið í grafgötur með að hann byggi þær lýsingar á persónulegri reynslu. Þótt hárbeitt sjálfshæðnin hafi orðið til að honum hefur verið hampað sem nýjum Woody Allen er t.d. sá stóri munur á þessum tveimur kvikmyndagerðarmönnum að undirmálsmenn Solondz, hinir lánlausu nördar, eru síður en svo umvafðir kvenfólki og svölum vin- um líkt og Allen vill gjarnan hafa þá. Nördarnir eru nefnilega sannir nördar, í einu og öllu. Brjóstum- kennanlegir, vart viðbjargandi og sannarlega ekki með glæsikvendi upp á arminn. Eftir tíðindalitla byrjun vakti Solondz fyrst athygli árið 1995 fyr- ir aðra mynd sína, Welcome to the Dollhouse. Þetta er mynd um ein- mana táningsstúlku sem gengur erfiðlega að bindast tengslum við jafnaldra sína og þarf í ofanálag að glíma við skilningsleysi foreldr- anna. Viðfangsefnið verður öllu viðameira og eldfimara í þriðju myndinni, Happiness, sem vakti mikla athygli er hún var sýnd á kvikmyndahátíð hér á landi fyrir tveimur árum. Solondz segir þar sögu þriggja systra, þeirra nán- ustu og annarra sem á einn eða annan máta koma við líf þeirra, yf- irleitt á einhvern kynferðislegan eða öfugsnúinn máta. Gagnrýnir áhorfendur Fjórða myndin, Storytelling, sver sig um margt í ætt við Happ- iness og gæti talist rökrétt fram- hald hennar. Viðfangsefnið og efn- istök eru í það minnsta álíka ögrandi og óhefluð, kaldhæðin og ljúfsár. Til viðbótar við einmana- leikann og bældar kynlífshvatir koma inn í spilið kynþáttafordóm- ar, pólitísk rétthugsun, ásókn heimildarmyndarinnar að friðhelgi einkalífsins og vangaveltur um skilin milli raunveruleika og skáld- skapar. Samlíkingin við Allen karlinn er samt engin tilviljun og nær lengra en til kímnigáfunnar og svipaðra efnistaka. Þeir eru nefnilega einn- ig nauðalíkir í útlit og fasi, hann og Solondz. Smávaxnir, ofurvið- kvæmir gleraugnaglámar sem maður á æði bágt með að trúa að hafi afrekað að klára heilan hlaupahring um ævina – saman- lagt, hvað þá migið í saltan sæ. En kurteisina og vingjarnlegheitin vantar ekki. „Upphaflega átti myndin að vera í þremur hlutum,“ byrjar Solondz á að svara og röddin virðist við það að bresta. „En ég fjarlægði stuttan eftirmála, sem ég taldi heildar- myndina ekki þurfa á að halda. Ég kunni vel við hann en hann var samt óþarfur.“ Storytelling fjallar í örfáum orð- um um líf „venjulegs“ útborgar- fólks, rétt eins og Óskarsverð- launamyndin American Beauty og heimildarmyndin American Movie: The Making of the Northwestern. Solondz segist vissulega hafa verið að leggja þar orð í belg en þó ekki með því að mótmæla hvernig út- hverfafólk er dregið upp í þeim myndum heldur miklu fremur hver viðbrögð áhorfenda voru við mynd- unum. „Það stakk mig svo mjög þegar ég sá þær á almennum sýn- ingum hversu gjarnir áhorfend- urnir voru að hlæja að óförum þessa brjóstumkennanlega fólks. Mér varð því meinilla við þessa áhorfendur og fjalla óbeint um það í myndinni. Ennfremur mætti kannski segja að ég sé að reyna að ganga fram af nákvæmlega þessu fólki, kalla fram samviskubit hjá því yfir því að hlæja að svona sögu. Oftast eru þetta óharnaðir ungir áhorfendur, námsfólk sem þráir ekkert heitara en að vera tekið alvarlega, teljast til gáfu- menna og velja sér myndir sam- kvæmt því, vegna þess að það heldur sig eitthvað meira og merkilegra eftir að hafa séð þær. Margir ganga í gegnum þetta þroskaskeið en ég læt það samt fara alveg óstjórnlega í taugarnar á mér.“ Til að vera sanngjarn segist hann þó vera fullkomlega meðvit- aður um að húmor sé smekksat- riði, að fólk hlægi að ólíkum hlut- um og það sem meira er, ástæður fyrir hlátri þess liggi ekki alltaf ljósar fyrir. „Maður veit aldrei hvort fólki finnst myndin fyndin í alvöru, sé að taka undir með hin- Sögumaðurinn Solondz Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Solondz: „Ég átta mig alveg á að það er fullt af fólki sem kann ekki að meta það sem ég geri og það er bara allt í lagi.“ Todd Solondz þykir tvímæla- laust eitthvert athyglisverð- asta kvikmyndaskáld Banda- ríkjamanna um þessar mundir og rennir nýjasta mynd hans Storytelling frekari stoðum undir þá fullyrðingu. Hann fræddi Skarphéðin Guð- mundsson nánar um list- sköpun sína og nýjustu hug- arsmíð. Í AUGUM þeirra sem þekkja Sean Penn fyrst og síðast af síðum slúðurblaðanna og fyrir að vera fyrrum eiginmaður Madonnu er hann væntanlega hinn mesti fauti, lumbrandi á ljósmynd- urum og blaðasnápum og gott ef því hafi ekki verið fleygt fram á sömu síðum að drottning poppsins hafi sjálf fundið fyrir hnefa hans, er hið stormasama hjónaband þeirra var ennþá löggilt. Hinir, sem fylgst hafa með hinum sanna Penn, kynntust honum fyrst sem ungum og sérlega efnilegum leikara og síðar leikstjóra, hafa á honum allt annað og öllu sann- gjarnara álit. Þeir vita að hann er í dag einhver virtasti leikari samtím- ans og sem leikstjóri hefur honum eftir aðeins þrjár kvikmyndir tekist að skapa sér sinn eigin sérstæða stíl, nokkuð sem margir kvik- myndagerðarmenn leitast eftir að gera allan sinn liðlanga feril. Fyrstu myndir hans tvær Indian Runner og The Crossing Guard voru báðar myrkar, jafnt í útliti og efni, fjöll- uðu um óhamingjusamt, misskilið fólk í leit að betra lífi en samt fet- andi ógæfusama lífsins slóð í átt að ennþá frekari glötun. Nýjasta mynd hans The Pledge sver sig í ætt við þær fyrri hvað drungalegt and- rúmsloft varðar og þótt hún sé fjarri því að vera léttmeti þá er hún um margt aðgengilegasta verk Penn til þessa. Og Jack leikur aðal- hlutverkið... Aftur. Þrátt fyrir lofsamleg ummæli gagnrýnenda hafa myndir Penn svo gott sem farið fyrir ofan garð og neðan í heimalandi hans og aðdrátt- arafl hans sem kvikmyndastjörnu þar augljóslega engu máli skipt. „Ég er alls ekkert bitur út í landa mína vegna þessa. Ég ann þeim heitt en smekkur þeirra er bara svo skrítinn. Kvikmyndaheimurinn þar minnir reyndar svolítið á hinn póli- tíska að því marki að fólk virðist velja þær myndir sem það vill sjá á svipuðum forsendum og það velur frambjóðendur til forsetakosninga. Það hefur maður einfaldlega þurft að sætta sig við. Því viðurkenni ég fúslega að ég reiði mig þeim mun meira á að Evrópubúar hafi smekk fyrir myndir mínar. Reynsla mín hefur verið sú að það sem höfðar til mín höfðar fremur til fólks utan heimalands míns og sér í lagi Evr- ópubúa. Ég vona að þessi tilfinning mín eigi við rök að styðjast og myndin höfði til Evrópubúa. Annars skiptir þjóðerni mynda mig engu máli heldur hvort þær innihaldi nokkrar bitastæðar hug- myndir og hreyfi við mér á einhvern máta. Stundum sé ég banda- rískar myndir sem gera það. Ég held meira að segja að ég geti nefnt slíka mynd sem ég hef séð, frá öll- um þeim þjóðlöndum sem ég kann yfir höfuð að nefna. Um daginn sá ég t.d. mexíkönsku myndina Amores Perr- os eftir Alejandro González Iñárritu, mynd sem endurnærði trú mína á framtíð kvikmyndanna. Góð bíómynd er góð bíó- mynd, sama hvaðan hún kemur. Vandinn er bara sá sami og í póli- tíkinni þar sem hinir góðu ná aldrei kjöri.“ Smáatriðin skipta öllu Sean Penn er ná- kvæmur kvikmynda- gerðarmaður, sem leggur ætíð mjög upp- úr því að nostra við smáatriðin. Í The Pledge virðast smáat- riðin jafnvel skipta hann ennþá meira máli en áður fyr- ir sögufléttu og þær ályktanir sem áhorfanda er boðið upp á að draga. „Smáatriði í bíómyndum getur skipt þær öllu máli, í það minnsta fyrir mig. Þannig hef ég alltaf lesið þær og þannig hef ég kosið að semja myndir mínar. Það endurspeglar einfaldlega lífið sjálft. Öll höfum við orðið vör að stundum eru það smá- atriðin sem gefa því gildi og til- gang.“ The Pledge fjallar um lögreglu- mann sem hefur rannsókn á hrotta- fengnu morði á ungri stúlku sex stundum áður en honum er gert að láta af störfum fyrir aldurs sakir. Hann tekur að sér að bera móður stúlkunnar sorgartíðindin sem heimtar að hann lofi að hann muni finna morðingjann og koma honum bak við lás og slá. Gamall refur úr lögreglunni getur ekki látið slík orð sem vind um eyru þjóta og brotið loforð. Hann einsetur sér því að hafa upp á morðingjanum þrátt fyr- ir að vera kominn á eftirlaun og ungur þroskaheftur maður hafi ver- ið ákærður fyrir morðið. Saga þessi byggir á skáldsögu eftir svissneska rihöfundinn liðna Friedrich Dürren- matt. Penn er mikill unnandi hans og lagði hart að sér við að myndin yrði eins trú bókinni og mögulegt væri. „Ég kynntist verkum rithöf- undarins fyrst óbeint í gegnum Jack þegar framleiðendur mínir bentu mér á að hann, sem unnandi spennusagna, vildi gjarnan vinna við mynd sem gerði yrði eftir verk- um Dürrenmatt. Eftir að hafa lesið bókina sá ég strax hvers vegna.“ Líður betur bak við tökuvélina Penn er einn virtasti leikari sam- tímans og hefur t.a.m. verið til- nefndur oftar en einu sinni til Ósk- arsverðlauna fyrir frammistöðu á því sviði. Þrátt fyrir að eftirspurnin eftir framlagi frá honum sé mikil þá sést honum æ sjaldnar bregða fyrir á hvíta tjaldinu, einfaldlega vegna þess að hann segist kunna miklu betur við sig bak við tökuvélina. „Mér finnst miklu meira heillandi að leikstýra kvikmyndum heldur en leika í þeim. Eina ástæðan fyrir því að ég er enn að leika er sú að þann- ig get ég borgað reikningana. Það hentar mér ekki vel sem listamanni að þurfa að fara að skipulagi ann- arra, þurfa að setja mig í stellingar þegar aðrir segja til, t.d. eld- snemma á morgnanna. Ég ber mikla virðingu fyrir leikurum sem geta þetta með góðu móti. “ The Pledge hefur á að skipa ein- vala liði leikara til viðbótar við þau Nicholson og Wright Penn, kannski ekki reglulegum stórstjörnum held- ur vönduðum og mikilsvirtum leik- urum á borð við Sam Shepard, Va- Aðalatriði smáatriðanna Þriðja leikstjórnarverkefni leikarans sérlundaða Sean Penn heitir The Pledge og skartar eftirlætisleikara hans og vini í aðalhlutverkinu, sjálfum Jack Nicholson. Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við Penn og konu hans, Robin Wright Penn, um nýju myndina – og Jack. „Ég elska Jack Nicholson,“ segir Penn um aðalleik- arann í mynd sinni. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Sean Penn kann orðið miklu betur við sig bak við tökuvélarnar heldur en fyrir framan þær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.