Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 2

Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ekkert lyfjapróf, engin laun / C3 Örn fer ekki á EM í Antwerpen / C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Morgunblaðið með nýju sniði / B1 Kjötflikki á tveimur jafnfljótum / B2 „... að vera sá sem sem ég vil“ /B4 Í leikandi lausri sveiflu / B6 Bros út að eyrum / B7 Auðlesið efni / B8 Sérblöð í dag Morgunblaðinu í dag fylgir jóla- blað frá Jack & Jones. Blaðinu verður dreift á Suðvestur- landi. BRONSMYND Jóns Sigurðssonar forseta skartaði hvítum búningi rétt eins og höfuðborgin öll í gær. Vetur konungur hefur minnt á sig með tilheyrandi kulda og myrkri. Brátt verður meiri birta yfir Austurvelli, þegar ljós- in hafa verið tendruð á Oslóar- jólatrénu. Morgunblaðið/Golli Í hvítum búningi BÁÐAR stíflur Norðlingaölduveitu verða úr steinsteypu og yfirfall lóns- ins verður á aðalstíflunni í farvegi Þjórsár en ekki á svokallaðri Eyva- fensstíflu, austan undir rótum Norð- lingaöldu, eins og ráðgert var í til- lögu að matsáætlun. Þetta fyrir- komulag verður dýrara en veldur minni náttúruspjöllum, segir hönn- uður stíflumannvirkjanna. Með steyptum stíflum opnast einnig möguleiki á vegarlagningu yfir stífl- urnar. Þessar breytingar og fleiri efnis- atriði skýrslu Landsvirkjunar um mat á umhverfisáhrifum vegna fyr- irhugaðrar Norðlingaölduveitu voru kynnt fulltrúum Ása-, Skeiða- og Gnúpverjahrepps á fundi í Lauga- landi í Holtum í vikunni. Gert er ráð fyrir því, samkvæmt matsáætlun, að Landsvirkjun skili skýrslunni í des- ember og Skipulagsstofnun kveði upp úrskurð í febrúar eða mars. Fram kemur á Norðlingaölduvef Landsvirkjunar að frá því tillaga að matsáætlun Norðlingaöldu var sam- þykkt í október sl. hafi hugmyndir Landsvirkjunarmanna um gerð og frágang stíflumannvirkjanna tekið umtalsverðum breytingum, m.a. vegna athugasemda heimamanna sem strax lögðust gegn því að yfirfall lónsins yrði ekki á aðalstíflunni í far- vegi Þjórsár. Ómar Örn Ingólfsson, bygginga- verkfræðingur hjá Hönnun, sagði að staðsetning yfirfallsins á aðalstífl- unni í Þjórsá hefði minna umhverf- isrask í för með sér en það væri um- talsvert dýrari framkvæmd, m.a. vegna þess að það hefði í för með sér að steypa þyrfti stífluna, en í tillögu að matsáætlun var ráðgert að aðal- stíflan, Norðlingaöldustífla, yrði jarðvegsstífla. Hún verður um 24 metra há og um kílómetri á lengd, með búnaði til að stýra vatnshæð lónsins og botnlokum, en Eyvafens- stíflan verður um 7 metra há og 300 metra löng, einnig steinsteypt. Kost- ur við steyptar stíflur er hinsvegar sá að minni þörf verður fyrir malarnám. Breytingar á stíflum Norð- lingaölduveitu HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir vilja Íslands og ann- arra EFTA-ríkja standa til þess að reka samninginn um Evrópska efna- hagssvæðið (EES) þannig að um tvær stoðir sé að ræða. Evrópusam- bandið dragi sífellt meira í efa að úr- skurðir Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) séu bindandi fyrir EFTA og ESB og í nokkrum tilfellum hafi ESB úrskurðað á annan hátt en ESA hefur gert. „Við teljum þetta vera brot á samn- ingnum, en eigum mjög erfitt með að sækja rétt okkar vegna þess að það eru engin slík ákvæði, nema þá að segja samningnum upp,“ segir Hall- dór Ásgrímsson. „Þess vegna er staða okkar fremur veik,“ bætir hann við. Utanríkisráðherra flutti Alþingi í gær aðra af tveimur árlegum skýrslum sínum um utanríkismál og gerði þá stækkun ESB m.a. að um- talsefni og áhrif sem það kynni að hafa á viðskiptakjör Íslendinga. Lýsti hann þeirri skoðun sinni að EES- samningurinn stæði í stað og upplýsti að embættismenn EFTA rækju sig sífellt á minnkandi skilning Evrópu- sambandsins á EES-samningnum. Ágreiningur um túlkun á fundi í Brussel á þriðjudag Upplýsti ráðherrann að á fundi í Brussel sl. þriðjudag hefði komið upp ágreiningur um túlkun samningsins í tilteknu máli. „Okkur var sagt að ef við vildum túlka samninginn sam- kvæmt orðanna hljóðan kynni Evr- ópusambandið að gera það líka að því er varðar aðgang að starfi í ýmsum nefndum. Þeir hafa talið sig túlka það mjög frjálslega hingað til og gengið lengra en samningurinn gerir ráð fyr- ir. Það er út af fyrir sig rétt, en hins vegar eru samráðsskyldur og við höf- um talið heppilegast að slíkt samráð eigi sér stað á frumstigi í nefndum. Þess vegna þyrftum við aðgang að starfi þeirra,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið og bætti við að þetta væri dæmi um að rekstur samn- ingsins gengi ekki að öllu leyti eins og æskilegt væri og nauðsynlegt væri að ræða ýtarlega við Evrópusambandið. „Þetta endurspeglar þá staðreynd að samningurinn um EES hefur ekki sama vægi og áður, því færra fólk og færri þjóðir standa að baki honum. Þess hefur gætt á ýmsan hátt að Evr- ópusambandið ræktar hann ekki með sambærilegum hætti og áður var og það er vanþekking á samningnum. Þetta eru staðreyndir sem við stönd- um frammi fyrir,“ sagði Halldór Ás- grímsson. Utanríkisráðherra um rekstur EES-samningsins Gengur ekki eins og æskilegt væri  Utanríkisráðherra /10 JÓNAS Magnússon, prófessor og yf- irlæknir á handlækningasviði Land- spítala – háskólasjúkrahúss, verður í hópi breskra skurðlækna sem næstu daga munu halda námskeið fyrir lækna í Luzaka í Afríkuríkinu Zamb- íu. Auk námskeiðsins verður Jónas meðal fyrirlesara á þingi skurðlækna þar. „Við munum kenna þeim undir- stöðuatriði í skurðlækningum eða allt frá því að sauma eftir aðgerðir og í eitthvað flóknari hluti,“ sagði Jónas í samtali við Morgunblaðið. Hann segir læknana gefa vinnu sína en al- þjóðafyrirtækið Johnson & Johnson kostar ferðirnar. Á skurðlækna- þinginu flytur Jónas síðan fyrirlest- ur þar sem hann greinir frá vísinda- vinnu íslenskra lækna. Kennir skurð- lækningar í Zambíu ALLMARGIR árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í gær. Ofan- hríð sem skall á síðdegis byrgði mörgum ökumanninum sýn en í Hafnarfirði voru fimm árekstrar tilkynntir á mili klukkan 17 og 19. Tíu árekstrar voru bókaðir hjá lögreglunni í Reykjavík milli klukkan 15 og 18:30. Lögreglunni í Kópavogi voru tilkynnt fimm umferðaróhöpp í gær, í einu tilfellinu flutti lög- regla ökumann á slysadeild en hann var ekki talinn alvarlega slasaður. Þá fóru tveir bílar út af Reykjanesbraut, annar við Grindavíkurveg en hinn við Njarðvík, og tveir bílar rákust saman í Njarðvík en allt gerðist þetta á einni klukkustund, milli klukkan 17 og 18. Nokkurt eigna- tjón varð en lögreglan í Keflavík sagði að farþegar jafnt sem öku- menn hefðu sloppið án teljandi meiðsla. Vetrarumferð vefst fyrir ökumönnum RJÚPNAVEIÐI hefur verið treg á líðandi veiðitímabili, tekjur verslana af rjúpnasölu eru nánast engar og því eru líkur á að atvinnurjúpna- veiðar leggist af. Þetta kemur fram í pistli Sigmars B. Haukssonar, formanns Skotveiði- félags Íslands, á heimasíðu félagsins og telur formaðurinn að þetta sé já- kvæð þróun. Fram kemur að mjög lítið verði af rjúpu í verslunum fyrir jólin. Versl- anir og veitingahús hafi greitt allt að 600 kr. fyrir rjúpuna, sem magn- veiðimönnum þyki of lítið, og hafi nokkrar þekktar rjúpnaskyttur þeg- ar lagt byssuna á hilluna. Verðið út úr búð sé um 800 kr. og hafi versl- anir því nánast enga hagsmuni af því að selja rjúpu nema að þjónusta viðskiptavini sína. Verð á sumum landbúnaðarvörum eins og t.d. svínakjöti hafi lækkað stórlega og því megi gera því skóna að Íslend- ingum sem borði rjúpu á jólum muni fækka. Atvinnu- menn leggja byssuna á hilluna Formaður Skotvís ♦ ♦ ♦ TUGIR manna hafa sýkst af slæmum augnvírusi sem herjað hefur á íbúa Reykjanesbæjar og nágrennis undanfarnar vik- ur. Hér mun vera um að ræða slæman kvefvírus. Augu fólks sem smitast verða eldrauð og bólgin og fólk fær slæman sviða og útferð. Kristmundur Ás- mundsson, yfirlæknir hjá Heil- brigðisstofnun Suðurnesja, segir að fólk eigi að leita sér læknis þegar það verður vart við einkennin. Tugir sýkjast af augnvírusi  Þvo sér/16
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.