Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ NOKKRIR aðilar hafa sýnt því áhuga að kaupa eignir úr þrotabúi Samvinnuferða-Landsýnar að sögn Ragnars H. Hall sem skipaður hef- ur verið skiptastjóri búsins. Hann vill ekki gefa upp um hve marga aðila er að ræða en segir að hann hafi hafnað tilboði sem Þingvalla- leið gerði í eignirnar í gær. „Við- ræður eru í gangi við nokkra aðila sem lýst hafa áhuga á að kaupa eignir af þrotabúinu,“ sagði Ragn- ar í samtali við Morgunblaðið. Hann átti síðdegis í gær fund með starfsfólki Samvinnuferða-Land- sýnar og fór yfir stöðu málsins með þeim. Ragnar sagði hugsanlegt að gengið yrði frá sölu einhverra eigna í dag. Brýnt væri að svona hlutir gengju hratt fyrir sig. Hann vildi ekki svara því hve margir að- ilar hefðu sýnt því áhuga að kaupa eignir úr þrotabúinu, en sagði að áhuginn hefði bæði beinst að inn- anlandsdeildinni og öðrum þáttum í rekstri fyrirtækisins. Ragnar sagði aðspurður að hann hefði hafnað tilboði Þingvallaleiðar sem lýsti því yfir opinberlega í gær að fyrirtækið vildi kaupa eignir þrotabúsins. Hann sagði að sala til þess kæmi því ekki til greina nema að fyrirtækið hækk- aði tilboð sitt. Velta Þingvallaleiðar 20 milljónir í fyrra Velta Þingvallaleiðar hefur verið í kringum 20 milljónir og starfs- menn þess eru þrír yfir vetrar- mánuðina. Það rekur rútur sem aka frá Reykjavík til Þingvalla og frá Reykjavík til Grindavíkur og í Bláa lónið. Þór Ingvarsson, stjórn- arformaður Þingvallaleiðar, sagði að á bak við tilboð fyrirtækisins í eignir þrotabús Samvinnuferða stæði erlendur aðili í ferðaþjón- ustu, en hann vildi ekki gefa upp nafn hans. Í fréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi kom fram að um væri að ræða ferðaþjónustufyrirtækið Bennett BTI, sem er í eigu breska fyrirtækisins Hogg Robinson plc. og er með meira en 100 skrifstofur á Norðurlöndunum. „Þetta eru bara getgátur,“ sagði Þór og vildi ekki staðfesta hvort rétt væri með farið eða ekki. Tapaði 217 milljónum á fyrstu 9 mánuðum ársins Rekstrartap Samvinnuferða á fyrstu níu mánuðum ársins var 217 milljónir króna eftir því sem kem- ur fram í gjaldþrotaúrskurði Hér- aðsdóms Reykjavíkur. Þar kemur jafnframt fram að staða fyrirtæk- isins versnaði enn í september- mánuði. 30. september námu bók- færðar eignir félagsins 875 milljónum en skuldir námu 859 milljónum. Skattaeign samkvæmt efnahagsreikningi nam 162 millj- ónum og eigið fé var neikvætt um 144 milljónir, sé ekki tekið tillit til skattaeignar. Samkeppnisstofnun hefur ekki uppi áform um að skipta sér af því sem hefur verið að gerast á ferða- skrifstofumarkaðinum þrátt fyrir að annar stærsti aðilinn á mark- aðinum hafi hætt starfsemi. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá Samkeppnisstofnun í gær, mun stofnunin hins vegar fylgjast með þróun mála næstu daga. Stofnunin gerði á sínum tíma athugasemdir þegar Flugleið- ir keyptu Ferðaskrifstofu Íslands, en þær athugasemdir miðuðu fyrst og fremst að því að tryggja sam- keppni í hótelrekstri. Skiptastjóri hafnar tilboði Þingvalla- leiðar í þrotabú Samvinnuferða Nokkrir aðilar hafa sýnt eign- um búsins áhuga STUNDUM er ekki nóg að strætó sé á réttum tíma, heldur væri miklu betra væri hann mátulega langt á undan áætlun. Þá yrði biðin í snjónum, kuldanum og skammdeginu í öllu falli ekki eins löng. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Biðin langa eftir strætó ur fram að fyrstu tíu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 159,1 milljarð króna en inn fyrir 171,8 milljarða króna fob. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 12,7 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 35,8 milljarða á sama gengi. Fyrstu tíu mánuði ársins var verðmæti vöruútflutnings 10,6 milljörðum eða 7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 62% alls útflutn- ings og var verðmæti þeirra 3% meira en á sama tíma árið áður. Aukning vöruútflutnings stafar að mestum hluta af aukningu útflutn- ings á áli, skipum og sjávarafurð- um, aðallega lýsi. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 12,5 millj- örðum eða 7% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Af ein- stökum vöruflokkum hefur orðið mestur samdráttur í innflutningi á flutningatækjum en einnig hefur orðið umtalsverður samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvörum. Á móti kemur að aukning hefur orðið á innflutningi hrá- og rekstrarvara. VÖRUSKIPTIN í október voru hagstæð um 2,5 milljarða króna en í október í fyrra voru þau óhagstæð um 4,0 milljarða á sama gengi. Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 20,5 milljarða króna og inn fyrir 18,0 milljarða króna fob. Í frétt frá Hagstofu Íslands kem- Vöruskipti hag- stæð um 2,5 millj- arða í október                                  !!"#$%&                                             !    "!#       !     "  #   !  $   $! % $% " $     &     '  $   &!   '   (             () *+,- * ,-.)  +-(/      , -.00 *) ((-,   *--) * ,(*- ,/ 0,(-   ,/ .0,) ) ,-(. ) 11/0 * 1*-)             ** **0- ) *-)0   ( ,*,0     , .//- )) -1,+  )1.* * ,),+ ,, -,1(  + ---) ( +0,- 0 ()(* + 0.0/    ! "   2,)-3 2,0)3 2.(-3  " 4,0)3 21-3   2,/-3 4,0-3 4+03    4)-+3 4)+-3 4,,13 2)/(3  #$%&' () *  + ),#*-                & "  !% ! % '     Halli á vöruskiptum við útlönd 23,1 milljarði betri en á sama tíma í fyrra HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 36 ára mann, Garðar Garðarsson, í þriggja ára fangelsi fyrir að stinga annan mann með hnífi í kviðinn í Lækjargötu í ágúst í fyrra. Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu tæp- ar 300 þúsund krónur í bæt- ur. Hæstiréttur sagði ekki trú- verðugt að kviðstungan hefði verið slys, eins og Garðar hélt fram, og sú fullyrðing ætti sér ekki stoð í framburði vitna. Garðar var jafnframt dæmdur fyrir innbrot í bíl, en hann á að baki langan sak- arferil í auðgunarmálum. Við ákvörðun refsingar leit Hæstiréttur til þess að Garð- ar var tvívegis dæmdur í Danmörku á árinu 1994 fyrir rán og í öðru tilvikinu að auki fyrir ofbeldi gegn opinberum starfsmanni. Höfðu dómarnir ítrekunaráhrif í þessu máli. Jafnframt var litið til þess að brotið var mjög alvarlegt, þar sem Garðar lagði til mannsins með hættulegu vopni og réð hending ein að ekki hlutust veruleg örkuml eða bani af. Þriggja ára fang- elsi fyrir hnífstungu KRÓNAN styrktist um 1,17% í gær í miklum viðskiptum, sem námu rúm- um 11 milljörðum króna. Fréttir af 2,5 milljarða króna af- gangi á vöruskiptum við útlönd í októbermánuði höfðu þessi jákvæðu áhrif á krónuna, að því er fram kom í hálffimmfréttum Búnaðarbankans í gær. Gengisvísitala krónunnar lækkaði um 1,17%, eins og fyrr segir, og var 149,18 stig í dagslok. Gengi Banda- ríkjadals nam þá 108,6 krónum. Krónan styrk- ist í miklum viðskiptum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.