Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 10

Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HALLDÓR Ásgrímsson (B) utanrík- isráðherra flytur Alþingi venju sam- kvæmt skýrslur um þróun og stöðu utanríkismála tvívegis á ári, að hausti og vori. Ræða ráðherrans í gær tók m.a. fyrir áhrif hryðjuverkanna í Bandaríkjunum hinn 11. september sl., stækkun Evrópusambandsins og gildistöku Evrumyntar, þróun EES- samningsins og alþjóðleg viðskipta- mál. Sagði hann að útflutningsvið- skipti væru undirstaða hagsældar Ís- lendinga. Fá ríki byggðu á utan- ríkisviðskiptum í eins ríkum mæli og Ísland. Samkvæmt tölfræðiskýrslu sem skrifstofa EFTA hefur tekið saman er Ísland í 6. sæti ríkja heims þegar þau eru flokkuð eftir mikilvægi útflutningsviðskipta. EES-samningurinn mikilvæg- asti viðskiptasamningur okkar Halldór sagði að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið væri lang- mikilvægasti viðskiptasamningur Ís- lendinga og samningurinn hefði stað- ið undir efnahagslegum væntingum og verið nauðsynlegur grundvöllur framfara. EES-samningurinn myndi áfram gegna lykilhlutverki þar sem hann tryggði aðgang að mikilvægasta útflutningsmarkaði Íslendinga. Sá markaður myndi eflast með stækkun ESB til austurs en vaxandi líkur væru á að allt að tíu ný ríki yrðu aðilar að ESB árið 2004. Við það sköpuðust ótvíræð sóknarfæri vegna nýrra samninga á vettvangi Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar og vegna nýrra fríverslunarsamninga EFTA. EES-samningurinn hefur staðið í stað Halldór sagði að frá gerð EES- samningsins hefði þróunin innan ESB verið hröð en á sama tíma hefði EES-samningurinn staðið í stað. Því hefði hann beitt sér fyrir því innan EFTA að EES-samningurinn yrði uppfærður. Vísbendingar hefðu bor- ist um að ESB kynni nú að vera reiðubúið að ræða takmarkaða tækni- lega endurskoðun samningsins. Halldór sagði að EFTA-ríkin hefðu á liðnum árum gert fríverslunar- samninga við flest þessara nýju aðild- arríkja, sem m.a. fælu yfirleitt í sér fulla fríverslun með fisk. Við inn- göngu ríkjanna í ESB féllu þessir samningar úr gildi og reglur svo- nefndrar bókunar 9 tækju við og hefðu í för með sér óhagstæðari toll- meðferð. Ísland muni því formlega fara fram á að EES samningurinn verði aðlagaður þessum staðreyndum og að markaðsaðgangur verði ekki verri eftir stækkun ESB. „Af viðbrögðum ESB má ráða að þessi róður verður þungur en þar sem hér er um gífurlegt hagsmunamál að ræða verður það sótt af fullum þunga,“ sagði Halldór. Halldór sagði að við síðustu stækk- un ESB hefði Ísland fengið tollfrjálsa innflutningskvóta sem miðuðust við viðskiptareynslu. Vandinn við að beita þessari lausn nú fælist í því að Ísland hefði litla markaðshlutdeild á þessu svæði eftir hrun kommúnism- ans. Halldór sagði að markaðsupp- bygging Íslendinga hefði verið tak- mörkuð í þessum löndum á undan- förnum árum en á sama tíma hefðu Norðmenn lagt í verulegt markaðs- átak í Póllandi. Þeir hefðu nú um 50% markaðshlutdeild í fiski á pólskum markaði en Ísland hefði 1%. „EFTA-ríkin hafa lagt sitt af mörk- um til efnahagslegrar uppbyggingar í Evrópu með framlögum í þróunar- sjóð fyrir fátækari ríki ESB. Búast má við að ESB óski viðbótarframlags frá EFTA-ríkjunum vegna stækkun- arinnar. Evrópusambandið hefur lýst því yfir að stækkun eigi ekki að hafa þær afleiðingar að nýir tollmúrar verði reistir í Evrópu. Því tel ég að ESB beri skylda til að horfa á þetta mál í breiðu samhengi. Hafa ber í huga að EFTA-ríkin gerðu fríversl- unarsamninga sína áður en umsókn- arríkin sóttu um aðild að sambandinu. Með þeim samningum var lagður grundvöllur að uppbyggingu við- skipta til lengri tíma litið og því hafa þeir skapað tækifæri sem enn eru að mestu ónýtt. Við höfum óhagstæðan viðskiptajöfnuð við þessi lönd og helstu tækifærin til markaðssóknar þar eru á sviði sjávarútvegs. Það er því mikilvægt að stækkunin útiloki ekki að við fáum nýtt þessi tækifæri. Ég á erfitt með að færa rök fyrir því að Alþingi samþykki aukin framlög í þróunarsjóð vegna stækkunarinnar, ef stækkunin skerðir markaðsaðgang okkar og tækifæri í milliríkjaviðskipt- um,“ sagði Halldór m.a. í yfirgrips- mikilli ræðu sinni. Fjölmargir þingmenn úr öllum flokkum tóku þátt í umræðunni og varð úr hin fjölbreytilegasta orðræða þar sem fátt á vettvangi alþjóðamála varð útundan. Margir þingmenn lögðu út frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum hinn 11. september sl. og áhrifum þeirra, sem og stríðinu í Afganistan og baráttunni gegn hryðjuverkum. Samrunaferlið í Evr- ópu setti svip sinn á umræðuna, ekki síst staða Íslands og eins EFTA. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, gerði Evrópu- málin að umtalsefni og lýsti þeirri vinnu sem staðið hefur yfir á vegum Samfylkingarinnar í því skyni að meta kosti og galla aðildar Íslands að ESB. Lýsti hann þeirri skoðun sinni, eftir ýtarlega yfirlegu og skoðun, að kostir aðildar fyrir Ísland væru meiri en gallarnir, en gat um leið þess að innan Samfylkingarinnar hefði verið ákveðið að fara þá leið að láta flokks- menn sjálfa ákveða stefnu flokksins í atkvæðagreiðslu. Ekki væri nægilegt fyrir fullvalda þjóð að sætta sig við það sem henni væri áskapað með EES-samningnum. Ögmundur Jónasson (Vg) lýsti málflutningi Össurar á þann veg að hann „hefði komið út úr skápnum“ gagnvart Evrópuumræðunni og nú væri skoðun hans ljós. Skýrt kom hins vegar fram í máli hans og formanns Vinstri grænna, Steingríms J. Sigfús- sonar, afdráttarlaus andstaða við að- ild að Evrópusambandinu. Taldi Ög- mundur t.d. aðspurður að algengur misskilningur væri að tengsl Íslands við ESB gegnum EES-samninginn hefðu fært íslenskri verkalýðshreyf- ingu mikla sigra. Sagði hann það allt ofmetið og sagði fjölmargt í réttind- um launafólks hér langtum betra en í löndum ESB. Össur Skarphéðinsson furðaði sig á þessum ummælum Ög- mundar og gat þess á sl. þingi ASÍ hefði komið fram skýr vilji til þess að Evrópuumræðan yrði sett á dagskrá og EES-samningurinn hefði fært ís- lensku launafólki umtalsverð réttindi. Evrópusinnar sakaðir um aðför að íslensku krónunni Athygli vakti að Tómas Ingi Olrich (D), formaður utanríkismálanefndar, hélt uppi harðri gagnrýni á Evrópu- sambandssinna í ræðu sinni og sagði þá veikja stöðu íslensku krónunnar með stöðugum málflutningi um gild- istöku evrunnar og hugsanlega aðild okkar að Myntbandalagi Evrópu. Sagði hann tekið eftir þeim sem töl- uðu þannig og að fylgst yrði með þeim áfram. Benti hann á að enn hefði eng- inn flokkur þorað að setja aðild að Evrópusambandinu á oddinn, en staða Sjálfstæðisflokksins væri hins vegar skýr; aðild væri ekki á dagskrá. Hafnaði Tómas Ingi því alfarið að krónan sem gjaldmiðill væri ónýt. „Á meðan þeir þora ekki opinskátt að mæla með inngöngu eru þeir reiðu- búnir til að grafa undan gengi ís- lensku krónunnar með óábyrgu tali um að hún sé ónýt og ekkert geti styrkt stöðu okkar nema aðild að evr- unni. Svo er því sleppt að aðild að evr- unni gengur ekki nema aðild að Evr- ópusambandinu sé komin þegar,“ sagði hann og rakti m.a. hugmyndir sem nú væru uppi í Brussel um n.k. samræmt skattakerfi og galt varhug við slíku yfirþjóðlegu valdi. Formaður utanríkismálanefndar vék einnig að hugmyndum utanríkis- ráðherra um endurskoðun á bókun 9 í EES-samningnum og nauðsyn þess að leiðrétta tollaívilnanir vegna fisk- afurða í ljósi versnandi viðskiptakjara okkar á Evrópumarkaði með þessar afurðir. Sagði hann sjálfsagt að skoða þetta en varaði við því að slík endur- skoðun væri líkleg til að hafa í för með sér auknar kröfur af hálfu ESB til veiðiheimilda hér við land, t.d. af hálfu Spánverja og Portúgala. Tala fyrir aðild Eystrasaltsríkja Allan þennan málflutning taldi for- maður Samfylkingar mega túlka sem árásir formanns utanríkismálanefnd- ar á utanríkismálanefnd og furðaði sig á því hversu ósamstiga þessir for- ystumenn Íslendinga í utanríkismál- um væru. Sagði hann undarlegt að formaður utanríkismálanefndar vildi ekki aðild að Evrópusambandinu og væri jafnframt andsnúinn því að EES-samningurinn yrði endurskoð- aður. Þórunn Sveinbjarnardóttir (S) gagnrýndi Tómas Inga harkalega fyr- ir að vilja banna alla Evrópuumræðu og spurði hvert við værum komin þegar almenn umræða um ESB og evruna væri nú orðin að aðför að krónunni í augum sjálfstæðismanna. Sigríður Anna Þórðardóttir (D) vék að Eystrasaltslöndunum og vilja þeirra til inngöngu í NATO. Spurði hún um afstöðu utanríkisráðherra til þessa og hvað íslensk stjórnvöld hefðu gert gagnvart þessum óskum. Halldór Ásgrímsson svaraði því til að íslensk stjórnvöld töluðu jafnan fyrir aðild Eystrasaltsríkjanna að NATO og hann mæti það svo að aldrei áður hefðu verið jafn miklir möguleikar á því að ríkin fengju inngöngu. Íslend- ingum áskotnaðist einstakt tækifæri til að ræða þessi mál sem gestgjafar á utanríkisráðherrafundi NATO í maí á næsta ári. Umræður á Alþingi um stöðu og horfur í utanríkismálum Utanríkisráðherra segir EES-samninginn standa í stað Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Halldór Ásgrímsson flutti Alþingi skýrslu um utanríkismál í gær. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær, er hann flutti skýrslu sína um utanríkismál, að hann ætti erfitt með að færa rök fyrir því að Alþingi sam- þykkti aukin framlög í þróunarsjóð fyrir fá- tækari ríki Evrópusambandsins vegna væntanlegrar stækkunar ESB ef stækk- unin skerti markaðsaðgang Íslendinga og tækifæri í milliríkjaviðskiptum. MENNTAMÁLANEFND Alþingis samþykkti á fundi sínum í gær að vísa frumvarpi Gunnars Birgis- sonar (D) og fleiri þingmanna úr mörgum flokkum til annarrar um- ræðu. Líklegt er að sú umræða fari fram í næstu viku. Frumvarpið um lögleiðingu ólympískra hnefaleika hefur um nokkurt skeið verið eitt umdeild- asta deilumálið á Alþingi. Það var fellt naumlega í atkvæðagreiðslu í lok þingstarfa vorið 2000, en kom aftur fram um haustið það ár og allt stefndi í afgreiðslu frumvarps- ins sl. vor þegar það var tekið af dagskrá á síðustu dögum þingsins til þess að liðka fyrir þinglokum. Gunnar lagði frumvarpið enn fram á fyrstu dögum yfirstand- andi haustþings og mælti fyrir því í fyrra mánuði. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins skiptast þingmenn á löggjafarsamkomunni enn í tvær fylkingar, með og á móti efni þess, og því er útlit fyrir spennandi umræðu í næstu viku. Menntamálanefnd mun ekki hafa breytt frumvarpinu mikið í meðförum sínum en þó mun það snúast um lögleiðingu áhuga- mannahnefaleika eftir afgreiðslu hennar, í stað ólympískra hnefa- leika áður. Frumvarp um hnefaleika afgreitt LÁRA V. Júlíusdóttir hæstarétt- arlögmaður segist ekki geta séð að menn muni eiga lögvarða kröfu á hendur ríkinu fyrir fæðingaror- lofsgreiðslur verði ákvörðun tekin um það með nýrri lagasetningu að fresta gildistöku ákvæða í lögum um fæðingar- og foreldraorlof sem fela í sér aukinn rétt feðra til töku fæðingarorlofs. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu er nú rætt um það meðal stjórnarmeirihlutans á Al- þingi að fresta gildistöku ákvæðis í fæðingar- og foreldraorlofslögum sem felur í sér að feður fái tveggja mánaða sjálfstæðan rétt til fæð- ingarorlofs í stað eins áður. Er tal- ið að með því verði hægt að spara ríkissjóði um 700 til 800 milljónir kr. í útgjöld á næsta ári. Umrætt ákvæði á skv. núgildandi lögum að koma til framkvæmda hinn 1. jan- úar nk. Lára segir það einnig afar lang- sótt að um stjórnarskrárbrot verði að ræða, t.d. brot á eignarrétt- arákvæði stjórnarskrárinnar, verði tekin ákvörðun um frestun um- rædds ákvæðis í fæðingar- og for- eldraorlofslögunum. Vísar hún máli sínu til stuðnings m.a. til dóma sem gengið hafi í málum þar sem lög hafi verið sett á til að aft- urkalla launahækkanir í kjara- samningum. Í þeim dómum hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að lögin um afturköllun launa- hækkana hafi staðist stjórnar- skrána. Eigi ekki kröfu á hendur ríkinu Hæstaréttarlögmaður um frestun fæðingarorlofs ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ MAÐUR sem framdi vopnað rán í söluturninum Bússu við Garðastræti í fyrrakvöld var ófundinn í gær. Hann var vopnaður hnífi við ránið og komst á brott með lítilræði af pen- ingum og tóbaki. Rannsókn málsins stendur enn yfir hjá lögreglu, sem leitar mannsins. Ræningi ófundinn TORE Dyrdahl, talsmaður Den Norske Bank (DnB), vildi í samtali við Morgunblaðið í gær hvorki stað- festa né heldur neita því hvort bankinn ætti í viðræðum um að gerast kjölfestufjárfestir í Lands- banka Íslands. Valgerður Sverrisdóttir, við- skiptaráðherra, staðfesti í liðinni viku að norrænn banki ætti í við- ræðum við HSBC-bankann í Lund- únum en hann er ráðgjafi íslenska ríkisins varðandi söluna á Lands- bankanum. „Ef svo vildi til að við hefðum áhuga á að eignast hlut í Lands- banka Íslands myndum við ekki tjá okkur um það í fjölmiðlum,“ segir Dyrdahl. Den norske Bank er stærsti banki Noregs með um 483 milljarða norskra króna efnahagsreikning og hjá honum starfa um 7.400 manns. Norska ríkið á liðlega 47% hlut í bankanum en stefnt er að því að minnka eignarhlut ríksins í bank- anum. Landsbankinn DnB neitar ekki áhuga á kaupum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.