Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 11 SÍFELLT fleiri ákveða nú að hefja greiðslur í viðbótarlífeyrissparnað, sér í lagi í ljósi þess að mótframlag atvinnurekenda hækkar um helming eftir áramót. Eftir þann tíma getur fólk lagt 4% af tekjum sínum í við- bótarlífeyrissparnað og fengið 0,4% mótframlag frá ríkinu og 2% fram- lag frá vinnuveitanda og verður þá heildarframlag af launum í viðbót- arlífeyrissparnað komið í 6,4%, ef launþegi leggur fram 4%. Miðað við 150.000 króna mánaðarlaun nemur sparnaðurinn þá 9.600 krónum á mánuði en ráðstöfunartekjur á mán- uði lækka hins vegar aðeins um 3.698 krónur. Launþegar geta samið við ýmsar fjármálastofnanir um að hefja slíkan viðbótarlífeyrissparnað og nokkrir af stærstu lífeyrissjóðunum hafa séreignadeildir til ávöxtunar á líf- eyrissparnaði. Fyrirtæki í verð- bréfaþjónustu hafa einnig heimildir til að taka við viðbótarlífeyrissparn- aði og er hann geymdur þar í formi fjárvörslusamninga. Bankar eru bæði með fjárvörslusamninga og innlán og þá bjóða líftryggingafélög- in þennan sparnað í formi trygginga. Ávöxtun sparnaðarins er auðvitað misjöfn eftir því hvaða leið er valin og þá skiptir einnig miklu hversu mikil umsýslugjöld vörsluaðilar taka. Á lífeyrisbókum bankanna er ekki tekið umsýslugjald og séreigna- deildir lífeyrissjóðanna taka yfirleitt ekki slíkt gjald, en algengt er að gjaldið sé um 0,5% í ávöxtunarleið- um fjármálafyrirtækja. Launþegar geta hins vegar þurft að greiða veru- legar upphæðir í kostnað ef viðkom- andi er heimsóttur af vátrygginga- miðlara. Kaupþing hefur stofnað nýjan sjóð sem ber nafnið Vista og var settur sérstaklega á laggirnar fyrir vátryggingamiðlara, sem heim- sækja fólk til að veita ráðleggingar, selja tryggingar og fá fólk til að taka viðbótarlífeyrissparnað. Velji fólk þann kost að leggja viðbótarlífeyr- issparnað í Vistasjóðinn fara iðgjöld fyrstu átta mánaða í kostnað og fer greiðsla fyrstu sex mánaðanna í söluþóknun til vátryggingamiðlara, en tveir af þessum átta mánuðum eru greiddir út við 60 ára aldur. Miðað við 6,4% sparnað af 150.000 króna mánaðarlaunum nemur því söluþóknunin til vátryggingamiðlara alls 57.600 krónum og alls þarf laun- þeginn að greiða 76.800 krónur í kostnað en fær 19.200 til baka við 60 ára aldur. Þessar upphæðir hækka síðan eftir því sem launin hækka, þannig þarf einstaklingur með 300.000 mánaðarlaun að greiða vá- tryggingamiðlurum 115.200 krónur í söluþóknun, miðað við að iðgjöld fyrstu sex mánaða renni til vátrygg- ingamiðlarans. Sjóðfélagar fá greiddan lokabónus hjá Vista Kaupþing býður síðan fólki sem hefur samband beint við fyrirtækið, með því að mæta á staðinn eða sækja um á heimasíðu fyrirtækisins, að legga sinn viðbótarlífeyrissparn- að í sambærilegan sjóð og Vista. Þá þurfa sjóðfélagar ekki að greiða söluþóknun en borga hefðbundið 0,5% umsýslugjald sem tekið er af ávöxtunarleiðum fjármálafyrir- tækja. Í tveimur sambærilegum bækl- ingum sem Kaupþing gefur út, ann- ars vegar um Vista lífeyrissparnað og hins vegar um lífeyrissparnað Kaupþings, kemur fram að um sömu kjör er að ræða, fyrir utan söluþókn- unina sem vátryggingamiðlarar fá fyrir sölu á Vista. Samkvæmt töflum í bæklingunum kemur fram að ávöxtun í lífeyrissparnaði Kaup- þings er heldur hagstæðari. Sam- kvæmt því nemur ávöxtun sparnað- arins eftir 20 ár 2.678.760 krónum á lífeyrissparnaði Kaupþings, miðað við 6% sparnað af 150.000 króna mánaðarlaunum. Sambærilegur sparnaður skilar hins vegar 2.590.054 krónum hjá Vista, sem er 88.706 krónum minna. Hjá Vista fá sjóðfélagar hins vegar greiddan lokabónus, ef sjóðurinn er greiddur út eftir 60 ára aldur eða við fráfall eða örorku, sem eftir 20 ára sparnað nemur 97.323 krónum. Mið- að við lokabónus er ávöxtunin á Vista því hagstæðari sem nemur 8.617 krónum eftir 20 ára sparnað, en hins vegar þarf launþegi að greiða 57.600 krónur í upphafskostn- að, miðað við sömu forsendur launa og sparnaðar. Vistasjóðurinn var settur á mark- að í samkeppni við erlend fyrirtæki eins og Sun Life sem selja söfnunar- líftryggingar, en sum slíkra fyrir- tækja taka allt að átján mánaða greiðslu í kostnað. Vista er hins veg- ar ekki söfnunarlíftrygging þó svo að uppsafnaður sjóður greiðist út til erfingja við fráfall sjóðfélaga. Viðbótarlífeyrissparnaður hag- stæðari en söfnunarlíftrygging Samkvæmt útreikningum Hag- deildar ASÍ frá 1999 var 2% viðbót- arlífeyrissparnaður þá næstum helmingi hagstæðari en Sun Life sparnaðarleið með líftryggingu. Miðað við að launatekjur hjóna væru 362.000 krónur á mánuði nemur sparnaðurinn eftir 30 ár 6,1 milljón króna með viðbótarlífeyrissparnaði, að frádregnum sköttum, en 4,1 millj- ón króna með sparnaðarleið Sun Life. Þá voru ráðstöfunartekjur meiri á mánuði í viðbótarlífeyris- sparnaði og því gott ráðrúm til að kaupa líftryggingu að auki, eftir því sem fram kemur á heimasíðu ASÍ. Tiltölulega einfalt er fyrir laun- þega að gera samning um viðbót- arlífeyrissparnað við fjármálastofn- anir. Margir hafa fengið send heim samningseyðublöð frá sínum við- skiptabönkum eða lífeyrissjóðum, sem einfalt er að fylla út og senda til baka. Þá gerist það sjálfkrafa að framlag launþega, ríkis og vinnu- veitanda er lagt inn á reikning og getur sjóðfélagi síðan fylgst með ávöxtun sparnaðarins. Verulegur kostnaður vegna viðbótarlífeyrissparnaðar hjá Vistasjóði Kaupþings Iðgjöld fyrstu 6 mán- aða fara í söluþóknun HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt mann í tveggja mánaða fangelsi og svipt hann ökurétti ævilangt, vegna slyss sem hann varð valdur að und- ir áhrifum áfengis. Maðurinn ók bifreið sinni aftan á aðra bifreið skammt frá Hellu í júní í fyrra. Hinn bíllinn kastaðist út af veginum og slasaðist ökumaður hans alvarlega. Áfengismagn í blóði mannsins mældist 1,82 prómill, en blóðsýnið var tekið um einum og hálfum tíma eftir slysið. Maðurinn neitaði að hafa verið undir áhrifum áfengis, en sagðist hafa drukkið vín með mat kvöldið fyrir áreksturinn, haldið áfram áfengisdrykkju um nóttina og fram á morgun og þá verið orðinn blind- fullur. Hann hefði þá sofnað, en vaknað aftur um hádegisbil. Þá hélt maðurinn því fram, að hann hefði drukkið um fimm hálfs- lítra dósir af léttöli eftir að hann settist undir stýri og loks nánast tæmt eina bjórdós eftir árekstur- inn. Nýtur vafans um magnið Í dómi Hæstaréttar segir að þeg- ar litið sé til framburðar mannsins um drykkju sína nóttina áður og sama dag og hann ók, framburðar hans um drykkju eftir slysið, mikils áfengis í blóði og alls annars þyki hafið yfir allan skynsamlegan vafa að hann hafi við aksturinn verið undir áhrifum áfengis í skilningi umferðarlaga. Hann var þó látinn njóta vafans um hversu mikið magn áfengis yfir löglegum mörkum var í blóði hans. Maðurinn hefur áður verið dæmdur og gengist undir sáttir vegna ölvunaraksturs. Tveggja mán- aða fangelsi fyrir ölvunar- akstur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.