Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SKIPULAGS- og bygginga- nefnd hefur samþykkt að kynna tillögudrög að endur- skoðuðu deiliskipulagi Mjódd- ar fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu. Eitt aðalmarkmið deiliskipulagsvinnunnar er að fjölga bílastæðum í nágrenni verslunarmiðstöðvarinnar og að ganga frá umhverfi svæð- isins. Skipulagssvæðið afmarkast af Reykjanesbraut, Breið- holtsbraut, Stekkjarbakka og Álfabakka en fjöldi verslana og þjónustufyrirtækja er með starfsemi á svæðinu. Að sögn Ágústu Sveinbjörnsdóttur, hverfisstjóra hjá Borgar- skipulagi, var upphafið að endurskoðuninni það að kaup- menn töldu að töluverður bíla- stæðaskortur væri á svæðinu sem væri bagalegt í harðn- andi samkeppni um viðskipta- vinina. „Því er verið að skoða að byggja þarna bílastæði á opnum palli austan megin við aðal verslunarhúsin og vestan megin er verið að tala um að gera bílakjallara undir hluta bílastæðanna. Þannig að þarna er verið að auka bíla- stæðafjöldann í Mjóddinni al- mennt.“ Óskir um að stækka kvikmyndahúsið Hún segir einnig til skoð- unar óskir um að stækka kvikmyndahúsið en þar vilji menn byggja sal til viðbótar. Loks er einn óbyggður reitur sem áður var ætlaður undir heilsugæslustöð en að sögn Ágústu er verið að leggja til að þar komi íbúðarhús í takt við það eina íbúðarhús sem fyrir er. Ágústa leggur áherslu á að ekki sé um endanlegar tillög- ur að ræða heldur einungis drög sem að þessu sinni verða kynnt fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu. Munu þeir fá tvær vikur til að skoða drögin og koma með ábendingar varð- andi skipulagið. Í framhaldinu verður svo unnin skipulagstil- laga sem færi í almenna aug- lýsingu þar sem almenningi gefst kostur á að kynna sér tillöguna og koma með ábend- ingar og athugasemdir ef ein- hverjar eru. Bílastæðum fjölgað Morgunblaðið/Þorkell Kaupmenn telja þörf á fleiri bílastæðum vegna harðnandi samkeppni um viðskiptavini. Mjódd Unnið að nýju deiliskipulagi umhverfis verslunarmiðstöðina FYRIRKOMULAG sam- keppni um deiliskipulag Garðabæjar, sem auglýst verður í desember, hefur vakið nokkurn kurr innan arkitektastéttarinnar þar sem keppnin verður blönd- uð. Það þýðir að annars veg- ar verður boðskeppni þar sem fjórum arkitektum og teiknistofum verður boðin þátttaka gegn þóknun og hins vegar opin hugmynda- samkeppni. Valdís Bjarnadóttir, for- maður Arkitektafélags Ís- lands, segir þetta fyrirkomu- lag hafa verið mjög lítið notað á Íslandi til þessa. „Samkeppnisreglur Arki- tektafélagsins bjóða hins vegar upp á þetta. Blönduð samkeppni er almennt séð fyrst og fremst notuð til þess að tryggja ákveðna þátttöku,“ segir Valdís. Þeg- ar hún er spurð um hvort keppni af þessu tagi verði ekki til að mismuna þátttak- endum þar sem sumir fái greitt fyrir þáttöku og aðrir ekki og þeir fyrrnefndu geti því unnið tillögur sínar betur segir hún að þátttakendur viti að hverju þeir gangi og þeim beri engin skylda til þátttöku. Þá gildi það sama og um venjulegar keppnir þar sem ekki er borgað fyrir þátttöku. „Keppendur eru þá í sömu stöðu og í venjulegri keppni,“ segir Valdís. Fjórar gerðir samkeppna Hún segir mjög einstak- lingsbundið hversu mikla vinnu arkitektar leggi í til- lögur sínar og segir það fara eftir umfangi samkeppninn- ar hvort þátttaka verði mikil í samkeppnum. Tegund samkeppni er ferns konar. Almenn opin keppni þar sem þátttakend- ur alls staðar að úr veröld- inni geta tekið þátt, boðs- keppni þar sem einstökum arkitektum er boðin þátt- taka, tveggja þrepa keppni þar sem tillögur eru unnar í tveimur áföngum, og um- rædd blönduð keppni. „Arkitektafélagið vill al- mennt hvetja til opinna sam- keppna af því að þá eru mestar líkur á að margar mismunandi lausnir komi inn og góður samanburður fáist,“ segir Valdís. Sam- keppnum hefur farið fjölg- andi og undanfarið hafa þær verið 3–5 á ári. Í flestum til- fellum hafa samkeppnir leitt til þess að vinningstillögur hafa verið útfærðar og þykja verk þessi hafa verið kjarn- inn í framþróun í íslenskum arkitektúr. Á heimasíðu Arkitektafélags Íslands seg- ir að við það að halda sam- keppni öðlist verkkaupi mjög víða sýn á viðfangsefn- ið. „Um leið eru samkeppnir hvati að frjórri hugsun, bæði hjá verkkaupa og þátttak- endum. Forsenda fyrir góð- um arkitektúr er góður verkkaupi og góður verk- kaupi verður enn betri í kjöl- far arkitektasamkeppni,“ segir jafnframt á síðunni. Hvatt til op- inna arkitekta- samkeppna Garðabær ÞAÐ er ekki dónalegt lífið hjá lífsglöðum krökkum þegar snjókorn taka að falla og hægt er að skemmta sér við þeysireið á sleðum og öðru tiltæku. Ekki vantar snjóinn í höfuðborgina þessa dagana og er ekki að sjá annað en að ungviðið kunni vel að meta þessa til- breytni frá gráum og blaut- um götunum. Þessi hópur gerði sér mat úr góðri sleðabrekku fyrir utan Morgunblaðshúsið á dög- unum og var ekki annað að sjá en að fjörið væri í al- gleymingi þegar þau brunuðu niður brekkuna.Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Brunað niður brekkuna Kringlan BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að borgin leysi til sín lóðarréttindi og mann- virki á lóð nr. 78 við Sól- vallagötu. Er það mat borgarlögmanns að borgin hafi verið bótaskyld vegna samþykktar deiliskipulags þar sem gert var ráð fyrir leikvelli á lóðinni. Forsaga málsins er sú að í júní árið 1999 sam- þykkti borgarráð að gerð- ur yrði leigusamningur við lóðarhafa um lóðina þegar núverandi hús hefði verið fjarlægt og hafin yrði bygging íbúðarhúss á lóð- inni. Deiliskipulagstillaga, sem unnin var ári síðar gerði ráð fyrir að á lóðinni yrði byggt 300 fermetra fjölbýlishús en vegna fjöl- margra athugasemda hagsmunaaðila var fallið frá því. Í staðinn gerði samþykkt deiliskipulag ráð fyrir að á lóðinni kæmi leikvöllur. Borgin borgi 5,2 milljónir Í millitíðinni höfðu lóð- arhafar látið teikna bygg- ingu á lóðinni í samræmi við nýtingarhlutfall aðal- skipulags og fyrstu hug- myndirnar að deiliskipu- laginu sem aldrei voru samþykktar. Töldu lóðar- hafar sig eiga bótarétt á borgina enda höfðu þeir verið með staðfest kaup- tilboð í lóðina upp á 5.820.000 króna með þeim réttindum sem henni fylgdu. Í bréfi borgarlögmanns til borgarráðs kemur fram að hann telur borgina bótaskylda vegna málsins. Samþykkt borgarráðs frá því í júní 1999 um gerð lóðarsamnings um lóðina og uppbyggingu á henni hafi verið ívilnandi stjórn- valdsathöfn sem borgarráð ógilti með samþykkt deili- skipulagsins. Því beri borgarsjóði að leysa lóðina til sín enda sé nú gert ráð fyrir að hún verði nýtt fyr- ir leiksvæði. Kemur fram í bréfinu að samkomulag hafi tekist við lóðarhafa um að Reykja- víkurborg leysi til sín lóð- arréttindin og trésmíða- verkstæði sem á lóðinni er fyrir 5,2 milljónir króna. Hefur borgarráð með sam- þykkt sinni fallist á það. Borgin leysir til sín lóðarréttindi Vesturbær FULLTRÚAR Sjálfstæðis- flokksins í umhverfis- og heil- brigðisnefnd Reykjavíkur- borgar lögðu til á fundi nefndarinnar í gær að fram- kvæmdir við göngustíga í grennd við hesthúsabyggð í Víðidal yrðu endurskoðaðar hið fyrsta með það að mark- miði að skilja í sundur eins og kostur er umferð hesta og fót- gangandi. Í tillögunni sem lögð var fram af Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Helgu Jó- hannsdóttur segir að við end- urskoðun skuli haft samráð við Hestamannafélagið Fák og Íslenska fjallahjólaklúbb- inn. Fáksmenn héldu fjölmenn- an fund í síðustu viku þar sem þeir lýstu áhyggjum sínum yf- ir þróun reiðvegamála. Vilja fresta göngu- stígum Víðidalur Framkvæmdir í hesthúsahverfi BÆJARRÁÐ Kópavogs hef- ur samþykkt að veita afslátt á leikskólagjöldum barns ef systkini þess er í dagvistun hjá dagmóður. Verður gjaldið þá það sama og forgangshóp- ar greiða. Samþykktin gerir ráð fyrir að barnið sem afsláttinn fær sé eldra en eins árs. Að sögn Sesselju Hauksdóttur, leik- skólafulltrúa hjá Kópa- vogsbæ, er talsvert um að systkini séu í dagvistun hjá dagmóður annars vegar og í leikskóla hins vegar. „Það er systkinaafsláttur í leikskólum og það er líka systkinaafslátt- ur ef tvö börn eru hjá dag- móður. Það hefur verið bent á að það sé óeðlilegt að þetta gildi ekki líka þegar annað systkinið er hjá dagmóður og hitt í leikskóla,“ segir hún. Tekur gildi um áramót Sesselja segir að með þessu fái eldra barnið, þ.e. barnið sem er í leikskólanum, 35 pró- sent afslátt af gjöldum sem sé það sama og forgangshópar greiði. Gerir samþykktin ráð fyrir að afslátturinn verði veittur frá næstu áramótum. Reiknast systkinaafslátturinn samkvæmt reglum um leik- skóla og fer í gegn um það kerfi. Bæjarráð samþykkir nýja reglu varðandi leikskólagjöld Afsláttur ef systkini er hjá dagmóður Kópavogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.