Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 16

Morgunblaðið - 30.11.2001, Page 16
SUÐURNES 16 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ þrátt fyrir um það bil 6% meðaltals- hækkun fasteignamats í bæjarfélag- inu. Hækkun fasteignagjaldsins er mismunandi eftir eignum. Sumar hækka meira en aðrar minna. Önnur hlutföll í álagningu fasteignagjalda eru óbreytt svo og lóðarleiga en fast- eignagjöld sem lögð eru á með fastri krónutölu, svo sem sorphirðugjald, eru óbreytt. Flestar upphæðir í öðrum gjald- skrám Reykjanesbæjar og stofnana hans hækka um 5% frá því sem nú er. Tekið tillit til bæjarbúa Ellert Eiríksson bæjarstjóri segir að það sé ekki nýtt að Reykjanesbær nýti ekki heimildir til hækkunar út- svarsálagningar. Útsvarið hafi verið hækkað síðast en ákveðið sé að gera það ekki nú. Hann segir að vissulega megi færa rök fyrir því að bærinn þurfi á hærra útsvari að halda, rétt eins og önnur sveitarfélög. Rekstur sveitarfélaga verði sífellt þyngri, meðal annars vegna mikilla launa- hækkana. Hins vegar sé eðlilegra að láta þessar hækkanir koma fram með jafnari hætti og taka tillit til hags- muna bæjarbúa, eins og bæjarsjóðs. Þess má geta að Reykjanesbær fékk á þessu ári arð vegna breytingar á Hitaveitu Suðurnesja í hlutafélag og fær um 60 milljónir til viðbótar í byrjun næsta árs. Ellert bæjarstjóri segir að bæjarbúar njóti þessa í lægri sköttum á næsta ári. Varðandi óbreytta álagningu fast- eignaskatts segir Ellert að álagning- arprósentunni hafi verið haldið óbreyttri um síðustu áramót, þótt þá hafi mörg sveitarfélög hækkað. Nú sé talið eðlilegt og sanngjarnt að hafa sömu álagningarhlutföll þrátt fyrir 6% meðalhækkun fasteignamats. Þetta komi að vísu misjafnlega við fólk því fasteignamatið breytist mis- munandi milli eigna. Megi færa rök fyrir því að sum hús og lóðir hafi ver- ið vanmetnar eignir og aðrar ofmetn- ar og með fasteignamatinu hafi mis- ræmi verið leiðrétt. Mörg önnur sveitarfélög hafa verið að hækka gjaldskrár sínar meira en nemur þeirri 5% hækkun sem stefnir í hjá Reykjanesbæ. Á þetta til dæmis við um leikskólagjöld. Ellert segir í þessu efni að leikskólagjöld hafi lengi verið lægri í Reykjanesbæ en annars staðar og stjórnendur Reykjanes- bæjar séu ekki gefnir fyrir það að dansa eftir ákvörðunum annarra. Miðað við þróun mála að undanförnu hafi þessi hækkun verið talin sann- gjörn, bæði fyrir notendur þjónust- unnar og bæjarsjóð. Bullandi taprekstur Kristmundur Ásmundsson bæjar- fulltrúi segir að afstaða Samfylking- arinnar komi fram á bæjarstjórnar- fundi þegar gjaldskrárnar verði teknar til afgreiðslu en fulltrúar flokksins sátu hjá við atkvæða- greiðslu um tillöguna í bæjarráði í gær. Hann segir að vel geti verið að nauðsynlegt sé að nýta betur heimild til útsvarsálagningar en gert sé í til- lögu meirihlutans, vegna þeirra miklu fjárhagserfiðleika sem bærinn eigi nú í. Bæjarsjóður hafi verið rek- inn með bullandi halla, nema núna vegna tilfallandi tekna sem komi til vegna útgreiðslu á hluta af eign Reykjanesbæjar í Hitaveitu Suður- nesja. Hins vegar segir Kristmundur að það sé ábyrgðarhluti að setja meiri peninga í hendur meirihlutans, hann hafi ekki farið svo vel með þá hingað til. Hann telur að almenn hækkun gjaldskrár um 5% sé nokkuð eðlileg, miðað við það sem almennt gangi og gerist. ÚTSVAR og fasteignagjöld verða óbreytt í Reykjanesbæ á næsta ári, frá því sem nú er, samkvæmt tillögu fulltrúa meirihluta bæjarstjórnar sem samþykkt var í bæjarráði í gær. Óbreytt álagningarprósenta fast- eignaskatts hefur í för með sér aukn- ar álögur á suma húseigendur vegna hækkunar fasteignamats frá síðasta ári. Gjaldskrár fyrir þjónustu stofn- ana bæjarins hækka almennt um 5%. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa þann hátt á að ákveða einu sinni á ári, við gerð fjárhagsáætlunar, allar skattaálögur og gjaldskrár komandi árs. Bæjarstjóri auglýsir síðan gjöld- in opinberlega. Bæjarráð hefur nú samþykkt tillögu meirihluta Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks en fulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá. Tillagan verður afgreidd endan- lega á fundi bæjarstjórnar á næst- unni. Ekki nýtt heimild til hækkunar Í tillögunni felst að útsvar verður 12,7% á næsta ári, sama hlutfall og í ár. Reykjanesbær mun samkvæmt því ekki nýta sér þá heimild til hækk- unar útsvars um 0,33% sem veitt hef- ur verið. Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis verður 0,36% og atvinnuhúsnæðis 1,65% Eru þetta sömu hlutföll og í ár Lagt til að gjaldskrár Reykjanesbæjar hækki um 5% Óbreytt útsvar og fasteignaskattar Reykjanesbær GLATT var á hjalla á Hjallatúni í gær þegar ömmu- og afadagur var haldinn í sex af sjö leik- skólum Reykjanesbæjar. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkur dagur var haldinn í bænum og ekki ólík- legt að úr verði árviss viðburður, miðað við áhuga. Margar ömmur og margir afar heimsóttu barnabörnin á Hjalla- túni. Þau hlustuðu á söng barnanna, léku við þau og þáðu kaffiveitingar. Allir virtust skemmta sér vel, ungir sem gamlir og voru sam- mála um að vel hefði tekist til. Sigríður Óskarsdóttir, amma Magna Ásgrímssonar, sagði að framtaki væri gott. „Það er búið að vera gaman. Mér finnst að þetta megi verða árlegur við- burður,“ sagði Sigríður. Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir Börnin á leikskólanum Hjallatúni í Njarðvík sungu Hátt uppi í fjöllunum fyrir ömmur sínar og afa. Glatt á Hjalla Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir Magni Ásgrímsson og Sigríður Óskarsdóttir, amma hans, teiknuðu. Reykjanesbær TUGIR manna hafa sýkst af slæmum augnvírusi sem herjað hefur á íbúa Reykjanesbæjar og nágranna undanfarnar vikur. Í einum grunnskólanum, að minnsta kosti, hefur verið gripið til þess ráðs að láta nemendur og starfsfólk þvo sér ótt og títt um hendurnar, til að reyna að draga úr útbreiðslu sjúkdómsins sem nú er í rénun. Augnvírusinn, sem mun vera slæmur kvefvírus, stakk sér fyrst niður í Reykjanesbæ fyrir um það bil sex vikum, að sögn Kristmund- ar Ásmundssonar, yfirlæknis hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Augu fólks sem smitast verða eld- rauð og bólgin og fólk fær slæman sviða og útferð. Vírusinn fer síðan gjarnan í hitt augað. Segir Krist- mundur að fólk eigi að leita sér læknis þegar það verður vart við einkennin. Fólk á yfirleitt í þessu vandamáli í 2–3 vikur og gengur stundum með lepp fyrir auga. Hann segir að vírusinn sé ekki mjög alvarlegur. Þó hafi komið fyrir að fólk hafi fengið ský á sjón- himnu og bólgur í lithimnu og þá þurfi að leita til augnlæknis. Tugir manna hafa sýkst í Reykjanesbæ og nágrenni og áætlar yfirlæknirinn að talan sé á milli 40 og 50. Vírusinn smitast við snertingu og hafa meðal annars tveir læknar á heilsugæslustöð- inni fengið hann. Það er fólk á öll- um aldri sem fengið hefur slæmskuna í augun. Tekur Krist- mundur fram að faraldurinn sé í hraðri rénun. Þvo sér oft um hendurnar Vírusinn stingur sér niður í skólunum, eins og annars staðar. Jónína Guðmundsdóttir, aðstoð- arskólastjóri Holtaskóla, segir að bæði nemendur og starfsfólk hafi fengið hann í augun. Ekki hafi þó verið talin þörf á að halda nem- endum eða starfsfólki heima vegna þessa, nema í undantekn- ingartilvikum. Í Holtaskóla var gripið til þess ráðs að dreifa handþvottakremi víða um húsið og láta starfsfólk og nemendur þvo sér ótt og títt um hendurnar til þess að reyna að draga úr útbreiðslu vírussins. Tugir manna sýkst af augnvírusi Þvo sér ótt og títt um hendurnar Reykjanesbær FERÐAMÁLASAMTÖK Suður- nesja efna til kirkjuskoðunardags á Reykjanesi næstkomandi sunnudag, í samvinnu við sóknarpresta. Verða þá til sýnis og sóknar fimm kirkjur sem byggðar eru á nítjándu öld. Eru þetta elstu kirkjurnar á svæðinu. Vakin er athygli á að sér- stakur byggingarstíll einkennir þær, hverja á sinn hátt, og að allar eiga þær merka sögu. Kirkjurnar eru: Kálfatjarnarkirkja á Vatnsleysu- strönd, Innri-Njarðvíkurkirkja, Út- skálakirkja í Garði, Hvalsneskirkja við Sandgerði og Kirkjuvogskirkja í Höfnum. Kirkjurnar verða opnar frá kl. 13 til 17 á sunnudag. Á þeim tíma verð- ur veittur fróðleikur um kirkjurnar og sögu þeirra. Haldnar aðventumessur og aðventustundir Aðventumessur verða í Útskála- kirkju klukkan 14 og Hvalsneskirkju kl. 17. Aðventustund verður í Kálfa- tjarnarkirkju kl. 17. Eftir messu í Útskálakirkju heldur kvenfélagið Gefn í Garði basar í safnaðarheim- ilinu. Víða verður kaffi á könnunni. Í fréttatilkynningu frá Ferða- málasamtökunum er vakin athygli á þessu tækifæri Suðurnesjamanna til að skoða nágrannakirkjur og sækja aðventumessur í næstu sókn. Einnig eru íbúar höfuðborgarsvæðisins hvattir til að leggja land undir fót og skoða sjávarbyggðakirkjur á Reykjanesi. Fimm elstu kirkjurnar opn- ar til skoðunar Reykjanes PÁLL Óskar Hjálmtýsson baritón og Monika Abendroth hörpuleikari halda tónleika í Njarðvíkurkirkju í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20.30. Á tónleikunum flytja Páll Ósk- ar og Monika lög af nýrri plötu sinni auk þess sem þau krydda dagskrána með þekktum lögum í flutningi Páls Óskars, nú í hörpuútsetningum. Miðar verða seldir við innganginn og kosta 1.200 kr. Páll Óskar og Monika með tónleika Njarðvík TVÍTUGUR maður var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni fyrir að stela tækjum úr tveimur bílum í Grinda- vík. Fullnustu refsingarinnar var frestað og fellur hún niður eftir tvö ár haldi maðurinn almennt skilorð. Maðurinn, sem einnig var dæmd- ur til að borga allan kostnað sakar- innar, játaði sakargiftir greiðlega. Honum var gefið að sök að hafa í apríl sl. stolið úr tveimur bifreiðum Black & Decker hjólsög, MVP sup- erline hleðslutæki, járnsög, tveimur hömrum, tveimur bogsögum, lóð- byssu, Wacker múrbrotsfleyg, Tip rafmagnsborvél, Kinzo slípijuðara, Agojama slípirokk og dráttarbeisli. Dæmdur fyrir að stela tækjum Grindavík ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.